Neuer snýr aftur og verður aðalmarkmaðurinn á HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. maí 2026 21:32 Manuel Neuer spilaði síðast fyrir Þýskaland á EM 2024. sportinfoto/DeFodi Images/DeFodi via Getty Images Hinn fertugi Manuel Neuer mun klæða sig aftur í landsliðstreyjuna og verja mark Þýskalands á HM í sumar.
Neuer hætti með þýska landsliðinu eftir EM 2024 en er snúinn aftur og var valinn í 26 manna leikhópinn sem landsliðsþjálfarinn Julian Nagelsmann kynnti í dag. Nagelsmann sagði markmiðið skýrt, Þýskaland ætlaði að verða heimsmeistari og Neuer væri best til þess fallinn að verja markið. „Með markmenn er aðalmálið að velja þá þrjá bestu. Þess vegna ákváðum við að athuga hvort hann væri til í að spila fyrir landsliðið aftur. Auðvitað spilaði stóran þátt í því að hann framlengdi samning sinn nýlega [um eitt ár til viðbótar við Bayern Munchen],“ sagði Nagelsmann. „Allir vita hvers kyns áru Manuel kemur með og hvað hann getur gert fyrir þetta lið. Hann er tilbúinn að taka annað stórmót. Við munum leggja upp leikplanið með hann sem aðalmarkmann, en vitum þá að við erum með heimsklassa varamarkmann,“ sagði Nagelsmann einnig en Oliver Baumann breytist með þessari ákvörðun í varamarkmann. Baumann, sem spilar með Hoffenheim í heimalandinu, hafði spilað alla undankeppni HM sem aðalmarkmaður Þýskalands. Nagelsmann sagðist hafa þurft að taka margar erfiðar ákvarðanir þegar hann valdi hópinn en nefndi sérstaklega Matthias Ginter, varnarmann Freiburg. Hann átti gott tímabil og leiddi Freiburg í úrslitaleik Evrópudeildarinnar en var ekki valinn í HM hópinn. „Við vorum í góðu sambandi en hann hefur ekkert spilað þau þrjú ár sem ég hef verið við stjórnvölinn. Þú getur sagt að það sé ástæðan. Ég sagði samt við hann að hann væri mikilvægur fyrir okkur. Hann hefur ekkert gert til eiga skilið að vera ekki valinn en við verðum líka að líta á heildarmyndina og hugsa um hvaða leikmenn passa saman.“ Gemeinsam für Deutschland: Unser Kader für die WM 2026! 🖤❤️💛#dfbteam #fifaworldcup2026 pic.twitter.com/zaxWgXsGGv— DFB-Team (@DFB_Team) May 21, 2026
HM 2026 í fótbolta Þýski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Leik lokið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Sjá meira