Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. maí 2026 19:57 Gísli Þorgeir Kristjánsson var markahæstur í kvöld og átti heiðurinn að síðustu tveimur mörkunum, sem tryggðu titilinn. Getty/Jürgen Fromme Magdeburg er Þýskalandsmeistari í handbolta árið 2026 eftir 31-30 sigur gegn Flensburg í kvöld.
Magdeburg þurfti bara jafntefli í toppslagnum gegn Flensburg en tókst að knýja fram sigur eftir hádramatískan leik í 31. umferð. Ómar Ingi Magnússon, Elvar Örn Jónsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson fögnuðu allir meistaratitlinum með Magdeburg í kvöld, þó þrjár umferðir séu eftir af þýsku deildinni. Ómar Ingi og Elvar Örn skoruðu sitt hvor þrjú mörkin en Gísli Þorgeir lét mest til sín taka og var markahæstur með sex mörk. Ómar Ingi í leik kvöldsins. Ronny Hartmann/Getty Images Leikurinn var hörkuspennandi en það leit út fyrir að Magdeburg myndi tapa þegar Flensburg tók tveggja marka forystu undir lokin. Þá tók Gísli Þorgeir sig hins vegar til og skoraði mark sem minnkaði muninn. Gísli fiskaði svo víti í næstu sókn Magdeburg og Philip Weber jafnaði úr vítaskotinu. Lokamínútan var síðan alveg ævintýraleg. Flensburg fékk tvö tækifæri til að taka forystuna á ný. Í fyrra skiptið var skotið frá Flensburg varið, en svo skaut Albin Lagergren í stöngina fyrir Magdeburg. Lagergren bætti síðan upp fyrir stangarskotið og stal boltanum af Flensburg í lokasókn leiksins. Hann gleymdi sér hins vegar í fagnaðarlátunum og kom boltanum ekki í mark Flensburg fyrir lokaflautið. Magdeburg varð þar með Þýskalandsmeistari í þriðja sinn á sex árum og getur bætt Meistaradeildinni við titlasafn tímabilsins þegar úrslitahelgin fer fram í júní. Þýski bikarinn fór hins vegar til Fuchse Berlin fyrr á tímabilinu svo þrennan er ekki á leiðinni.
Þýski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira