Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sindri Sverrisson skrifar 18. október 2026 15:59 Mari segist hafa verið hluti af einstaklega góðu teymi í hlaupinu. Sportmyndir.is/Guðmundur Freyr Jónsson „Ég get alveg meira. Njöddi er að fara að vinna í fyrramálið og það þarf að sinna þessu barni,“ grínaðist Mari Järsk eftir að hafa hlaupið 27 hringi, rúma 180 kílómetra, á HM í bakgarðshlaupi aðeins tíu vikum eftir að hafa fætt sitt fyrsta barn.
Mari ákvað að stimpla sig út eftir 27. hring og hún viðurkennir að það sé í raun óskiljanlegt hve langt hún náði fyrir Íslands hönd í Elliðaárdalnum nú um helgina í ljósi þess að sonur hennar kom í heiminn í ágúst. „Ég skil ekki. Ég er búin að vera að hlaupa svona 5-8 kílómetra á dag síðan ég fæddi Ljónsa. Það er magnað hvað líkaminn getur. Við hættum alltaf mikið fyrr þegar við höldum að við séum búin. Þegar ég hringdi og sagði að það passaði bara að hætta núna þá slokknaði bara á líkamanum. Ég hefði ekki getað hlaupið síðasta hring hraðar því líkaminn segir bara: „Nei, nú er ég búinn.“ Af því að þú ert búin að taka ákvörðun. Þess vegna er svo gott að vera alltaf með lengra markmið,“ sagði Mari í viðtali við Garp I. Elísabetarson og Tinnu Miljevic í beinni útsendingu Vísis. Viðtalið má sjá hér að neðan. Mari sá svo sannarlega ekki eftir því að hafa tekið þátt þrátt fyrir skelfilegt veður um helgina en hlakkaði vissulega til að komast í heita sturtu. „Þetta er búið að vera ÓGEÐSLEGA gaman. Ég er í svo rosalega flottu teymi. Engin samkeppni. Ógeðslega gaman. Yndislegt,“ sagði Mari sem er í fimmtán manna landsliði Íslands á HM og var sú fjórða sem ákvað að láta gott heita. Aðspurð um veðrið sagði hún íslensku keppendurna hafa verið duglega að skipta um föt eftir hvern hring en í bakgarðshlaupi eru hlaupnir 6,7 kílómetrar á klukkutíma fresti. „Þetta truflaði mig minna en ég hélt. Þegar ég horfði út í morgun hugsaði ég: „Djöfulsins rigning. Megum við ekki fá tvo hringi þurra?“ Svo kom ég hingað og það var alveg þurrt í þrjá hringi og það var bara ógeðslega næs. Við bara skiptum um föt í hverjum einasta hring,“ sagði Mari. Hún hefur áður hlaupið 50 hringi í bakgarðshlaupi, eða 335 kílómetra, og segist alveg hafa getað farið lengra að þessu sinni. Hún grínaðist hins vegar með að maðurinn hennar, Njörður, þyrfti hjálp með hinn tveggja mánaða gamla Óliver Leo. „180 kílómetrar er ógeðslega flott tala. 200 er líka ógeðslega flott tala en þá kem ég heim svo seint, fæ enga hvíld og Njöddi er bara ósofinn í margar nætur því „mamma er að hlaupa“ með eitthvað smábarn heima. Hvað á maður að halda lengi áfram?“ sagði Mari hlæjandi áður en hún fékk fjölmörg faðmlög og hamingjuóskir frá viðstöddum í Elliðaárdalnum.
Bakgarðshlaup Tengdar fréttir Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Það er ekki að sjá á hlaupadrottningunni Mari Jaersk að hún sé á leið heim úr landsliðskeppni í Bakgarðshlaupum á næstunni. Hún nýtir hverja einustu sekúndu milli hringja til hins ítrasta. 17. október 2026 22:42 Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi fer fram um helgina í Elliðarárdalnum. Fimmtán hlauparar hlupu af stað í hádeginu á laugardag og stefna á að hlaupa eins lengi og líkaminn leyfir. Vísir er í beinni útsendingu og vakt frá hlaupinu. 17. október 2026 10:33 Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Gleðitár féllu er ein af dætrum Íslandsmethafans í Bakgarðshlaupum, Þorleifs Þorleifssonar, mætti óvænt til landsins til þess að styðja við bakið á pabba sínum í landsliðskeppni sem nú stendur yfir í Elliðaárdalnum. 17. október 2026 18:20 Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Ofurhlauparinn Elísa Kristinsdóttir er ekki með landsliðinu sem keppandi á HM í bakgarðshlaupi að þessu sinni en gerir það sem hún getur til að hjálpa Þórdísi Ólöfu Jónsdóttur á milli hringja. 18. október 2026 11:00 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“ Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sjá meira
Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Það er ekki að sjá á hlaupadrottningunni Mari Jaersk að hún sé á leið heim úr landsliðskeppni í Bakgarðshlaupum á næstunni. Hún nýtir hverja einustu sekúndu milli hringja til hins ítrasta. 17. október 2026 22:42
Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi fer fram um helgina í Elliðarárdalnum. Fimmtán hlauparar hlupu af stað í hádeginu á laugardag og stefna á að hlaupa eins lengi og líkaminn leyfir. Vísir er í beinni útsendingu og vakt frá hlaupinu. 17. október 2026 10:33
Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Gleðitár féllu er ein af dætrum Íslandsmethafans í Bakgarðshlaupum, Þorleifs Þorleifssonar, mætti óvænt til landsins til þess að styðja við bakið á pabba sínum í landsliðskeppni sem nú stendur yfir í Elliðaárdalnum. 17. október 2026 18:20
Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Ofurhlauparinn Elísa Kristinsdóttir er ekki með landsliðinu sem keppandi á HM í bakgarðshlaupi að þessu sinni en gerir það sem hún getur til að hjálpa Þórdísi Ólöfu Jónsdóttur á milli hringja. 18. október 2026 11:00