Handbolti

Gísli Þor­geir tryggði Magdeburg þýska meistara­titilinn

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson var markahæstur í kvöld og átti heiðurinn að síðustu tveimur mörkunum, sem tryggðu titilinn. 
Gísli Þorgeir Kristjánsson var markahæstur í kvöld og átti heiðurinn að síðustu tveimur mörkunum, sem tryggðu titilinn.  Getty/Jürgen Fromme

Magdeburg er Þýskalandsmeistari í handbolta árið 2026. Stigið sem liðið fékk í 30-30 jafntefli gegn Flensburg í kvöld dugði til að tryggja titilinn.

Magdeburg þurfti bara jafntefli í toppslagnum gegn Flensburg og það varð akkúrat niðurstaðan, eftir hádramatískan leik í 31. umferð. 

Ómar Ingi Magnússon, Elvar Örn Jónsson og Gísli Þorgeir Kristjánsson fögnuðu allir meistaratitlinum með Magdeburg í kvöld, þó þrjár umferðir séu eftir af þýsku deildinni.

Ómar Ingi og Elvar Örn skoruðu sitt hvor þrjú mörkin en Gísli Þorgeir lét mest til sín taka og var markahæstur með sex mörk.

Ómar Ingi í leik kvöldsins. Ronny Hartmann/Getty Images

Leikurinn var hörkuspennandi en það leit út fyrir að Magdeburg myndi tapa þegar Flensburg tók tveggja marka forystu undir lokin. Þá tók Gísli Þorgeir sig hins vegar til og skoraði mark sem minnkaði muninn.

Gísli fiskaði svo víti í næstu sókn Magdeburg og Philip Weber jafnaði úr vítaskotinu. Það reyndist síðasta mark leiksins og markið sem tryggði meistaratitilinn þegar uppi var staðið.

Lokamínútan var samt alveg ævintýraleg og fleiri mörk hefðu hæglega getað verið skoruð.

Flensburg fékk tvö tækifæri til að taka forystuna á ný. Í fyrra skiptið var skotið frá Flensburg varið, en svo skaut Albin Lagergren í stöngina fyrir Magdeburg. 

Lagergren bætti síðan upp fyrir stangarskotið og stal boltanum af Flensburg í lokasókn leiksins. Hann gleymdi sér hins vegar í fagnaðarlátunum og kom boltanum ekki í mark Flensburg fyrir lokaflautið.

Magdeburg varð þar með Þýskalandsmeistari í þriðja sinn á sex árum og getur bætt Meistaradeildinni við titlasafn tímabilsins þegar úrslitahelgin fer fram í júní. Þýski bikarinn fór hins vegar til Fuchse Berlin fyrr á tímabilinu svo þrennan er ekki á leiðinni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×