Viðskipti innlent
78 79 80 81 82 83 84 85 86 … 334 ›
Harpa Rut og Sölvi ráðin til LIVE Sölvi Sölvason lögmaður og Harpa Rut Sigurjónsdóttir hafa verið ráðin til Lífeyrissjóðs verzlunarmanna. Viðskipti innlent 11.5.2023 12:38
Leigufélög enn spennandi fjárfesting þrátt fyrir brotthvarf Heimstaden Leigufélagið Heimstaden mun á næstu mánuðum minnka íbúðasafn sitt á Íslandi. Ástæðan mun vera sú að lífeyrissjóðir vildu ekki fjárfesta í félaginu. Að sögn framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs þýðir þetta ekki að leigufélög þyki minna spennandi vara fyrir fjárfesta. Viðskipti innlent 11.5.2023 11:52
Ekki Samherji sem biðst afsökunar Forsvarsmenn Samherja segjast ekki vera að baki heimasíðu sem óprúttnir aðilar hafa búið til í nafni fyrirtækisins. Á heimasíðunni má finna falsaða fréttatilkynningu þar sem beðist er afsökunar á framferði Samherja í Namibíu. Viðskipti innlent 11.5.2023 11:28
Borgin seldi skuldabréf fyrir 3,2 milljarða Skuldabréfaútboði Reykjavíkurborgar lauk í gær og seldi borgin skuldabréf fyrir 3,2 milljarða króna. Boðin voru út bréf í tveimur skuldabréfaflokkum, RVK 32 1 og RVKG 48 1. Bárust tilboð upp á 4,6 milljarða króna. Viðskipti innlent 11.5.2023 10:55
Leitin að arftaka Halldórs Benjamíns: „Það er ekkert stress í gangi“ „Þetta er í ferli og gengur vel. Það er ekkert stress í gangi.“ Þetta segir Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, um stöðuna á ráðningu á nýjum framkvæmdastjóra samtakanna. Viðskipti innlent 11.5.2023 10:47
Gréta María segir upp störfum hjá Arctic Adventures Stjórn Arctic Adventures hefur ráðið Ásgeir Baldurs í starf forstjóra Arctic Adventures hf. Gréta María Grétarsdóttir, sem gegnt hefur starfi forstjóra Arctic Adventures hefur sagt upp störfum. Hún hefur stýrt félaginu frá árslokum 2021 en starfaði þar áður hjá Brimi og Krónunni. Viðskipti innlent 11.5.2023 09:52
Sigríður tekur við stjórnarformennsku hjá KLAK Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins, hefur tekið við stjórnarformennsku hjá KLAK - Icelandic Startups, en ný stjórn tók við störfum á aðalfundi félagsins í síðasta mánuði. Viðskipti innlent 11.5.2023 09:37
Hátt í fimmtíu milljóna króna forstjóraskipti Starfslok Helga S. Gunnarssonar sem forstjóra fasteignafélagsins Regins hf. kostuðu fyrirtækið 48 milljónir króna. Leigutekjur félagsins jukust um sextán prósent á fyrsta fjórðungi ársins borið saman við sama tímabil í fyrra. Viðskipti innlent 10.5.2023 22:37
Tveggja daga pásukvöð brot á reglum EES Sú staðreynd að erlend rútufyrirtæki innan geta ekki boðið upp á lengri en tíu daga samfelldar rútuferðir er brot á EES-reglum. Reglurnar takmarki markaðsaðgengi erlendra rútufyrirtækja. Viðskipti innlent 10.5.2023 15:27
Ingvar nýr samskiptastjóri SFF Ingvar Haraldsson er nýr samskiptastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja (SFF). Ingvar hefur starfað sem aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins frá árinu 2018. Fyrir það hefur hann verið viðskiptablaðamaður hjá Viðskiptablaðinu, Fréttablaðinu og Vísi. Viðskipti innlent 10.5.2023 14:29
„Ómögulegt með nokkurri sanngirni að kalla slíka hækkun leiguokur“ Stjórnarformaður Ölmu íbúðafélags hf. segir félagið ekki vera hluta af húsnæðisvandanum, það sé frekar hluti af lausninni. Hann segir ósanngjarnt að ætla að einstök dæmi um miklar hækkanir á leiguverði eigi við um allan markaðinn. Viðskipti innlent 10.5.2023 11:11
Arion breytir vöxtum Arion banki hefur ákveðið að að lækka vexti á verðtryggðum íbúðalánum sem bera breytilega vexti frá og með deginum í dag um 0,15 prósent og verða því 2,79 prósent. Þetta á við um lán sem þegar hafa verið veitt og ný útlán. Viðskipti innlent 10.5.2023 09:50
Sveinn Bjarki ráðinn tæknistjóri Swapp Agency Sveinn Bjarki Brynjarsson hefur verið ráðinn tæknistjóri Swapp Agency og hefur hann þegar hafið störf. Viðskipti innlent 10.5.2023 08:53
Óskar í Óskataki sér fram á að vinna fyrir 5,4 milljarða króna Lægsta boð í gerð Arnarnesvegar um Vatnsendahæð í efri byggðum Kópavogs reyndist 718 milljónum króna undir kostnaðaráætlun. Boðið kom frá verktökunum Óskataki og Háfelli og er upp á 5,4 milljarða króna. Viðskipti innlent 9.5.2023 20:10
Jafn miklar fjárhagsáhyggjur og þegar hann átti ekkert Athafnamaðurinn Steinarr Lár segist hafa jafn miklar fjárhagsáhyggjur nú og þegar hann var blankur. Áhyggjurnar beinist fyrst og fremst að því hvað hann eigi að gera við eignir sínar og hvernig hann á að sinna þeim. Viðskipti innlent 9.5.2023 13:30
Stígi skref til baka í átt að sjálfstæðara FME Seðlabankastjóri segir að sér finnist ekki ólíklegt að stigin verði skref til baka frá sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins í átt að því að gera eftirlitið sjálfstæðara. Viðskipti innlent 9.5.2023 11:11
Bein útsending: Ræða skýrslu fjármálaseftirlitsnefndar Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Unnur Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits og Björk Sigurgísladóttir, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits munu mæta á opinn fund í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis sem hefst klukkan 9:15 í dag. Viðskipti innlent 9.5.2023 08:45
Metsætanýting hjá Icelandair í apríl Metsætanýting var hjá Icelandair í apríl en heildarfjöldi farþega var um 296 þúsund og um 22 prósent fleiri en í sama mánuði í fyrra þegar farþegar voru 242 þúsund. Sætaframboð í apríl jókst um 17 prósent miðað við fyrra ár. Viðskipti innlent 8.5.2023 20:29
Farþegafjöldi í apríl þrefaldaðist á milli ára Farþegum PLAY fjölgaði mikið í apríl og voru 102.499 talsins, samanborið við 86.661 farþega í mars. Sætanýtingin nam 80,8 prósentum. Hér er um að ræða verulegan vöxt frá sama tíma í fyrra, þegar farþegar voru 36.669 og sætanýtingin 72,4%. Farþegafjöldinn sem næst þrefaldaðist á milli ára. Svo segir í tilkynningu frá Play. Viðskipti innlent 8.5.2023 12:25
Guðný Björg og Svandís Hlín stýra nýjum sviðum hjá Landsneti Guðný Björg Hauksdóttir hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra mannauðs og umbóta sem er nýtt svið hjá Landsneti og Svandís Hlín Karlsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskipta- og kerfisþróunar hjá Landsneti sem líka er nýtt svið. Viðskipti innlent 8.5.2023 10:27
Birgir Hrafn mun leiða stafræna þróun hjá Digido Birgir Hrafn Birgisson hefur verið ráðinn sem sérfræðingur í gagnadrifinni markaðssetningu hjá Digido. Viðskipti innlent 8.5.2023 07:18
Forstjórarnir héldu báðir titlum sínum við samrunann Guðný Helga Herbertsdóttir og Haraldur Þórðarson verða bæði áfram forstjórar eftir sameiningu Vátryggingafélags Íslands (VÍS) og Fossa. Viðskipti innlent 5.5.2023 21:46
Erna Björk nýr fjármálastjóri Advania Erna Björk Sigurgeirsdóttir hefur verið ráðin nýr fjármálastjóri Advania og tekur sæti í framkvæmdastjórn fyrirtækisins. Hún kemur til Advania frá Sýn. Viðskipti innlent 5.5.2023 13:40
Jón Brynjar ráðinn forstöðumaður fjármála hjá Sýn Jón Brynjar Ólafsson hefur verið ráðinn til Sýnar og mun hann leiða fjármál sem er deild á sviði fjármála og stefnumótunar. Deildin nær yfir uppgjör og reikningsskil, hagdeild og innheimtu og mun Jón Brynjar vera forstöðumaður þeirrar deildar. Viðskipti innlent 5.5.2023 13:18
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir í apríl Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í apríl þar sem 71 einstaklingi var sagt upp störfum. Viðskipti innlent 5.5.2023 12:51
Gjaldþrot Engilberts nam 245 milljónum króna Engar eignir fundust í þrotabúi Engilberts Runólfssonar athafnamanns og verktaka á Akranesi. Lýstar kröfur í þrotabúið námu 245 milljónum króna að því er fram kemur í Lögbirtingablaðinu. Viðskipti innlent 5.5.2023 12:30
Hrun hjá Marel og feðgarnir töpuðu 7,5 milljörðum Verð á hlutabréfum Marel lækkaði í gær um 17,56 prósent og fór markaðsvirði félagsins úr 452 milljörðum niður í 381 milljarð. Eignarhlutur Eyrir Invest, stærsta hluthafinn í Marel, rýrnaði um 19,5 milljörða króna vegna lækkunarinnar. Hlutur tveggja stærsta eigenda Eyris, feðganna Þórðar Magnússonar og Árna Odds Þórðarsonar rýrnaði um 7,5 milljarða vegna lækkana gærdagsins. Viðskipti innlent 5.5.2023 10:33
Vekja Hringbraut upp frá dauðum með nýjum sjónvarpsþáttum Framleiðsla á sjónvarpsþáttum undir merkjum Hringbrautar hefst aftur um helgina, aðeins rúmum mánuði eftir að útsendingum samnefndrar sjónvarpsstöðvar var hætt við gjaldþrot útgáfufélags Fréttablaðsins. Þættirnir verða meðal annars aðgengilegir í sjónvarpi Símans. Viðskipti innlent 4.5.2023 14:50
Landsbankinn hagnaðist um 7,8 milljarða króna á fyrstu mánuðum ársins Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2023 nam 7,8 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 3,2 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2022. Viðskipti innlent 4.5.2023 13:37
María tekur við af Birni Sveinbjörns hjá NTC María Greta Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fataverslunarinnar NTC. Hún tekur við af Birni Sveinbjörnssyni sem verður fjármálastjóri NTC. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri félagsins síðan 2007. Viðskipti innlent 4.5.2023 12:58