Íslenski boltinn

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - KR 0-3 | Meistararnir hrifsuðu toppsætið til sín í Árbænum
Íslandsmeistarar KR tylltu sér á topp Pepsi Max deildarinnar með öruggum sigri á Fylki í Árbænum í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Þór/KA 2-1 | Selfoss kom til baka og lagði Þór/KA
Selfoss vann 2-1 sigur á Þór/KA eftir að hafa lent undir og brennt af vítaspyrnu.

„Ætlast til að Blikarnir stígi upp og sýni að þeir séu meistarakandídatar“
Máni Pétursson hefur tröllatrú á verkefni Óskars Hrafns Þorvaldssonar í Kópavogi.

Gary skaut föstum skotum: „Dómarinn hlýtur að hafa verið með sólgleraugu því hann virtist ekki sjá neitt“
Enski framherjinn, Gary Martin, fór mikinn í viðtali við Fótbolti.net eftir 1-1 jafntefli ÍBV gegn Þór á Akureyri í Lengjudeildinni í gær.

Kristinn framlengir samning sinn við Breiðablik
Kristinn Steindórsson hefur framlengt samning sinn við Pepsi-Max deildarlið Breiðabliks en hann gekk í raðir félagsins í vetur eftir dvöl hjá FH.

Sjáðu mörkin úr leikjum gærdagsins í Pepsi Max deildinni
Tveir leikir fóru fram í Pepsi Max deild karla í fótbolta í gær en í báðum leikjum voru nýir þjálfarar að þreyta frumraun sína.

Eiður Smári: Það mega allir dagar vera eins og í dag, þá verður þetta fínt
Annar þjálfari FH var skiljanlega ánægður með það að hafa landað sigri í móti Fjölni í dag í 7. umferð Pepsi Max deildinni í knattspyrnu ásamt því að vera ánægður með að hafa haldið hreinu.

Umfjöllun og viðtöl: Fjölnir - FH 0-3 | Öruggur sigur í fyrsta leik Loga og Eiðs
FH vann öruggan sigur á Fjölni í fyrsta leiknum undir stjórn Loga Ólafssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen.

Leiknir kom til baka og lagði Magna að velli
Leiknir Reykjavík fékk Magna Grenivík í heimsókn í síðasta leik dagsins í Lengjudeild karla. Liðin hafa byrjað deildina á afar ólíkan hátt þar sem Leiknismenn eru í efri hluta deildarinnar á meðan Magnamenn mættu stigalausir til leiks í dag.

Umfjöllun og viðtöl: KA - Grótta 1-0 | Dramatískur sigur í fyrsta leik Arnars
Arnar Grétarsson stýrði KA í fyrsta sinn í dag þegar liðið bar sigurorð af Gróttu með einu marki gegn engu.

Annað jafntefli Eyjamanna í röð - Vestri hafði betur í nýliðaslag
Tvær landsbyggðaorrustur fóru fram í Lengjudeild karla í dag þar sem Þór fékk ÍBV í heimsókn á Þórsvöll á Akureyri á meðan Vestri var í heimsókn hjá Leikni F. í Fjarðabyggðahöllinni á Reyðarfirði.

David James aðstoðaði Hermann í Vogunum
Það vantaði ekki reynsluna í þjálfarateymi Þróttar úr Vogum í 2. deildinni í gær.

Guðjón: Erum í þessu til að vinna mótið og það hefur ekkert breyst
Guðjón Baldvinsson skoraði tvívegis er Stjarnan lagði HK af velli með fjórum mörkum gegn einu í gærkvöld. Hann segir markmið Stjörnunnar ekkert hafa breyst þó liðið hafi farið í sóttkví.

Brynjar Björn segir varnarleik HK ekki boðlegan leik eftir leik
Brynjar Björn Gunnarsson var ekki sáttur með varnarvinnu sinna manna er liðið tapaði 4-1 fyrir Stjörnunni í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - HK 4-1 | Garðbæingar taplausir en vandræði HK halda áfram
Gott gengi Stjörnunnar heldur áfram á meðan staða HK er orðin vægast sagt slæm.

Tveir sigrar í fyrstu tveimur leikjunum hjá Hermanni
Hermann Hreiðarsson byrjar heldur betur af krafti með 2. deildarlið Þróttar Vogum en hann hefur unnið tvo fyrstu leikina sína með félagið.

Skelfilegt gengi Þróttara heldur áfram og breytingarnar skiluðu núll stigum í Ólafsvík
Þróttu er án stiga í fallsæti Lengjudeildarinnar og hefur skorað eitt mark í fyrstu sex leikjunum. Þeir fengu 4-0 skell gegn Keflavík á heimvaelli í kvöld.

Rauða spjaldið algjörlega galin ákvörðun að mati Margrétar Láru
Sérfræðingar Pepsi Max marka kvenna skildu hvorki upp né niður í rauða spjaldinu sem KR-ingurinn Ana Victoria Cate fékk í leik gegn Stjörnunni.

Fær ekki að spila meira með Skallagrími á þessu ári
Knattspyrnudeild Skallagríms hefur tekið ákvörðun um að Atli Steinar Ingason muni ekki spila meira með liðinu í sumar eftir að hafa orðið uppvís að kynþáttaníði.

Pepsi Max mörkin: Elín Metta „brjóstaði“ gamlan liðsfélaga og fékk hrós fyrir vinnusemina
Pepsi Max mörk kvenna voru ánægðar með að sjá markahæsta leikmann deildarinnar vera með smá dólg og láta finna fyrir sér í varnarleiknum í leik Vals og Fylkis í 6. umferð Pepsi Max deild kvenna.

Þjálfarinn sem getur ekki hætt
Logi Ólafsson hefur margoft sagst vera hættur í þjálfun en alltaf kemur hann aftur. Bak við létta lund Loga er klókur þjálfari sem lætur menn hafa fyrir hlutunum.

Logi hefur stýrt 188 leikjum í deildinni síðan Eiður Smári spilaði þar síðast
Eiður Smári Guðjohnsen tók síðasta þátt í íslensku deildinni fyrir 22 árum en nokkrum dögum síðar var hann kominn út í atvinnumennsku á Englandi.

Keflavík og Tindastóll skilja sig frá öðrum
Keflavík og Tindastóll hafa byrjað leiktíðina vel í Lengjudeild kvenna í fótbolta og eru nú með fimm stiga forskot á næstu lið eftir fimm umferðir af átján.

Eiður mun áfram starfa fyrir KSÍ
Eiður Smári Guðjohnsen, nýráðinn þjálfari karlaliðs FH í fótbolta, verður áfram aðstoðarþjálfari U21-landsliðs karla líkt og undanfarin misseri.

„Hefði ekki stokkið til nema í þessu tilviki“
„Ég held að ég hefði ekki stokkið til nema í þessu tilviki,“ segir hinn 65 ára gamli Logi Ólafsson sem eftir 21 mánaðar hlé frá þjálfun er tekinn við FH. Þeir Eiður Smári Guðjohnsen munu stýra FH að minnsta kosti út tímabilið.

Eiður segir margt hægt að bæta hjá FH: „Fannst þetta kjörið tækifæri fyrir mig“
„Þetta kom náttúrulega svolítið snöggt og óvænt upp á en ég er bara fullur tilhlökkunar,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen en þeir Logi Ólafsson hafa verið ráðnir þjálfarar karlaliðs FH í fótbolta og munu stýra því út tímabilið.

„Gat ekki sagt nei endalaust“
Ólafur Kristjánsson segir að árangurinn hafi ekkert með það að gera að hann hætti hjá FH til að taka við Esbjerg í Danmörku. Hann langaði að prófa sig aftur á dönskum vettvangi.

Eiður: Sá þetta ekki gerast í náinni framtíð
„Ég hafði nú ekki endilega séð þetta gerast í náinni framtíð, að ég myndi fara að þjálfa á Íslandi,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen, nýráðinn þjálfari karlaliðs FH í fótbolta.

Logi og Eiður Smári taka við FH
Logi Ólafsson og Eiður Smári Guðjohnsen eru teknir við FH í Pepsi Max-deild karla.

Ólafur hættur hjá FH og tekur við Esbjerg
Ólafur Kristjánsson hefur yfirgefið uppeldisfélagið og er mættur í starf í Danmörku.