Golf
135 136 137 138 139 140 141 142 143 … 178 ›
Mickelson heldur sínu striki | til alls líklegur á Masters Phil Mickelson virðist vera í miklu stuði þessa dagana en bandaríski kylfingurinn er með fimm högga forskot eftir fyrsta keppnisdaginn á Northern Trust-meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi. Mickelson fagnaði sigri á Pepple Beach s.l. sunnudag og er hann til alls líklegur fyrir fyrsta stórmót ársins, Mastersmótið á Augusta sem fram fer 5.-8. apríl. Golf 17.2.2012 10:45
Mickelson valtaði yfir Tiger | Tiger dregur fram það besta í mér Phil Mickelson var sex höggum á eftir Charlie Wi og fimm höggum á eftir Tiger Woods fyrir lokadaginn á Pebble Beach í gær. Mickelson átti stórkostlegan lokadag á meðan spilamennska Tiger hrundi en Mickelson spilaði lokadaginn á 11 færri höggum en Tiger og vann frábæran sigur. Golf 13.2.2012 11:45
Tiger byrjaði vel á Pebble Beach | Spilar með Tony Romo Tiger Woods hóf keppnistímabilið á nýju ári nokkuð vel en hann skilaði sér í hús á 68 höggum á fyrsta PGA-móti ársins sem fer fram í Pebble Beach um helgina. Golf 10.2.2012 10:30
John Daly fékk keppnisbann og sekt í Ástralíu | í fjórða sæti í Katar Bandaríski kylfingurinn John Daly náði sér loksins á strik á golfvellinum en hann endaði í fjórða sæti á Katar meistaramótinu sem lauk um helgina. Daly er ekki með keppnisrétt á PGA eða Evrópumótaröðinni og hefur hann stólað á að vera boðið á mótin af styrktaraðilum. Það verður einhver bið á því að Daly leiki á ný í Ástralíu því þar hefur hann verið úrskurðaður í keppnisbann. Golf 6.2.2012 18:30
Paul Lawrie stimplaði sig inn með sjaldgjæfum sigri Skoski kylfingurinn Paul Lawrie hefur ekki látið fara mikið fyrir sér á atvinnumótum frá því hann landaði sigri á opna breska meistaramótinu árið 1999. Hinn 43 ára gamli kylfingur sigraði á Katar meistaramótinu á Evrópumótaröðinni um helgina og með sigrinum komst Lawrie í hóp 50 efstu á heimslistanum í fyrsta sinn frá árinu 2003. Golf 6.2.2012 14:00
Stanley kom sterkur til baka og sigraði í Phoenix Kyle Stanley sigraði á Farmers Insurance meistaramótinu á PGA mótaröðinni í golfi sem lauk í gær. Þetta er fyrsti sigur Stanley á sterkustu atvinnumótaröð heims en hann er 24 ára gamall Bandaríkjamaður. Fyrir viku var Stanley í efsta sæti þegar aðeins nokkrar holur voru eftir á lokakeppnisdeginum á Torrey Pines en þar gerði hann afdrifarík mistök sem kostuðu hann sigurinn. Hann tapaði í bráðabana gegn Brandt Snedeker á því móti. Golf 6.2.2012 11:30
Fjórtán ára sigurvegari á atvinnumannamóti Lydia Ko fjórtán ára gömul stúlka frá Nýja-Sjálandi varð í dag yngsti kylfingurinn til að sigra atvinnumannamót í golfi þegar hún sigraði New South Wales Open kvenngolfmótið á áströlsku mótaröðinni. Golf 29.1.2012 18:30
Rock hafði betur gegn Tiger Tiltölulega lítt þekktur kylfingur Robert Rock gerði sér lítið fyrir og sigraði Abu Dhabi HSBC golfmótið á evrópskumótaröðinni í golfi og stóðst pressuna á að vera með Tiger Woods í lokahollinu. Golf 29.1.2012 13:45
Tiger Woods í stuði - efstur að loknum þriðja degi Tiger Woods er í fyrsta sæti að loknum þriðja keppnisdegi á HSBC Golfmótinu í Abu Dhabi. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni. Golf 28.1.2012 20:00
Stefán Már og Þórður Rafn komust áfram - þriðji hringur leikinn í dag Kylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur komust í gegnum niðurskurðinn á Gloria Old Course Classic mótinu í Tyrklandi í gær. Þriðji og síðasti hringurinn verður leikinn í dag. Golf 25.1.2012 10:00
Stefán Már og Þórður Rafn á fjórum yfir pari á fyrsta hring Kylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson úr Golfklúbbi Reykjavíkur léku fyrsta hringinn á Gloria Old Course Classic mótinu í Tyrklandi á 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari. Þetta kemur fram á kylfingur.is. Golf 23.1.2012 16:15
Erfitt hjá Tinnu á Spáni Tinna Jóhannsdóttir, kylfingur úr GK, er meðal neðstu keppenda í lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi eftir fyrstu þrjá keppnishringina. Golf 17.1.2012 14:57
Tinna byrjar ekki vel á lokaúrtökumótinu á Spáni Tinna Jóhannsdóttir úr Keili náði ekki að spila sitt besta golf á fyrsta hringnum í lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröð kvenna sem fram fer á La Manga á Spáni. Tinna lék fyrstu 18 holurnar á mótinu á 76 höggum eða fimm höggum yfir pari. Golf 15.1.2012 15:47
Tinna komin áfram á lokaúrtökumótið Tinna Jóhannsdóttir úr GK er komin áfram á lokaúrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina í golfi þrátt fyrir að hafa spilað sinn versta hring á mótinu í dag. Golf 11.1.2012 16:44
Tinna í góðri stöðu fyrir lokahringinn Tinna Jóhannsdóttir úr golfklúbbnum Keili er í mjög sterkri stöðu fyrir lokahringinn í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröð kvenna í golfi sem nú stendur yfir á Spáni. Golf 10.1.2012 17:28
Stricker sigraði á fyrsta PGA móti ársins Steve Stricker sigraði á fyrsta PGA golfmóti ársins sem fór fram á Kapalua á Hawaii en þar áttust við þeir kylfingar sem náðu að sigra á PGA móti á síðasta keppnistímabili. Golf 10.1.2012 12:15
Fjórir meðlimir í Team Iceland í golfinu | Breytt skipulag afrekshópa Úlfar Jónsson nýráðinn landsliðsþjálfari í golfi hefur að undanförnum vikum verið að skipuleggja æfingardagskrá fyrir afrekshópa GSÍ. Úlfar hefur skipt hópnum upp í samræmi við stöðu og markmið hvers kylfings og nefnast hóparnir Team Iceland, A hópur og B hópur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Golfsambandinu. Golf 9.1.2012 16:30
Tiger Woods er langtekjuhæsti íþróttamaður veraldar Þrátt fyrir afleitt gengi á undanförnum tveimur árum er bandaríski kylfingurinn Tiger Woods enn tekjuhæsti íþróttamaður heims. Tekjur Woods hafa lækkað um allt að 6,5 milljarða kr. á ári en engu að síður er hann langtekjuhæsti íþróttamaður ársins 2011. Talið er að Woods sé með um 9,1 milljarða kr. í árslaun. Þrír fótboltamenn eru á listanum yfir 10 tekjuhæstu íþróttamenn heims, tveir körfuboltamenn og tveir kylfingar. Golf 25.12.2011 20:00
Heimsþekktir kylfingar vilja hanna ólympíugolfvöllinn í Ríó Golf verður keppnisíþrótt á Ólympíuleikunum í Rio de Janeiro í Brasilíu árið 2016 og verður það í fyrsta sinn frá árinu 1904 sem keppt verður í golfi á ÓL. Keppnisvöllurinn í Rio de Janeiro er ekki tilbúinn og í febrúar verður greint frá því hvaða aðilar fá það hlutverk að teikna og hanna völlinn. Alls eru átta tillögur til skoðunar hjá Alþjóða ólympíunefndinni og framkvæmdanefnd ÓL í Brasilíu 2016. Golf 25.12.2011 10:00
Donald kylfingur ársins á Bretlandseyjum | Clarke og McIllroy jafnir Enski kylfingurinn Luke Donald hefur verið útnefndur kylfingur ársins á Bretlandseyjum en það eru samtök golfíþróttafréttamanna sem standa að kjörinu. Norður-Írinn Darren Clarke varð annar í kjörinu og landi hans Rory McIlroy deildi því sæti með Clarke. Donald er efstur á heimslistanum en Clarke og McIlroy náðu báðir að vinna stórmót á árinu 2011, Clarke á opna breska meistaramótinu og McIllroy á opna bandaríska meistaramótinu. Golf 25.12.2011 06:00
McIlroy spilar golf í hæstu hæðum - myndir Hinn 22 ára gamli Norður-Íri, Rory McIlroy, hefur átt frábært ár innan sem utan vallar. Hann var sigursæll á vellinum og nældi sér í kærustu sem er besta tenniskona heims. Golf 21.12.2011 17:30
McIlroy grét eftir klúðrið á Masters Kylfingurinn Rory MCIlroy hefur viðurkennt að hafa grátið eins og barn eftir að hann kastaði frá sér sigrinum á Masters-mótinu. Golf 17.12.2011 19:15
Westwood grátlega nálægt því að koma í hús á 59 höggum Englendingurinn Lee Westwood lék ótrúlegt golf á tælenska meistaramótinu í dag og var aðeins einu höggi frá því að koma í hús á 59 höggum. Hann lék holurnar 18 sem sagt á 60 höggum eða 11 undir pari. Hann er með fimm högga forskot eftir daginn. Golf 15.12.2011 17:15
Donald segist vanta risatitil Besti kylfingur heims um þessar mundir, Luke Donald, er ekki fullkomlega sáttur þó svo hann hafi átt ótrúlegt ár á vellinum. Hann rakaði inn mestum peningum bæði í Bandaríkjunum og Evrópu. Golf 14.12.2011 12:00
Sögulegur árangur hjá Luke Donald Enski kylfingurinn Luke Donald varð í dag fyrstur í sögunni til að verða tekjuhæsti kylfingurinn á bæði bandarísku og evrópsku mótaröðinni í golfi. Golf 11.12.2011 11:32
Birgir Leifur komst ekki áfram Birgir Leifur Hafþórsson komst ekki áfram á næsta stig úrtökumótaraðarinnar fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Hann lék á einu höggi undir pari í dag og lauk keppni í 42.-49. sæti. Golf 5.12.2011 14:27
Tiger Woods vann sinn sitt fyrsta mót í 749 daga Tiger Woods tryggði sér í kvöld sigur á Chevron World Challege mótinu í golfi sem fór fram í Kaliforníu. Zach Johnson var með eins högg forskot á Woods fyrir lokadaginn en Woods lék á þremur höggum undir pari í dag og tryggði sér langþráðan sigur. Golf 4.12.2011 23:28
Birgir Leifur þarf að spila frábærlega til að komast áfram Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er í 59. sæti af 74 kylfingum á úrtökumótinu á öðru stigi sem fram fer á Spáni þessa helgi. Birgir Leifur hoppaði upp um þrettán sæti eftir að hafa spilað annan hringinn á einu höggi undir pari. Golf 4.12.2011 11:49
Tiger missti forystuna en heldur í vonina Tiger Woods á enn möguleika á því að vinna sitt fyrsta mót í tvö ár þrátt fyrir að hafa misst niður þriggja högga forystu á þriðja degi á Chevron World Challege mótinu sem fram fer í Kaliforníu. Golf 4.12.2011 11:00
Tiger í stuði og kominn með þriggja högga forskot Tiger Woods sýndi snilli sína í nótt og var í miklu stuði á öðrum hringnum á Chevron World Challege mótinu sem fram fer í Kaliforníu. Woods lék annan hringinn á 67 höggum eða fimm höggum undir pari. Hann hefur þriggja högga forskot þegar mótið er hálfnað. Golf 3.12.2011 11:00