Eldgos og jarðhræringar
72 73 74 75 76 77 78 79 80 … 132 ›
Ekki útilokað að landsmenn fái eldgos í jólagjöf Enn er mikil skjálftavirkni í Geldingadölum en skjálftarnir koma nú í lotum. Gert er ráð fyrir að kvika sé á hreyfingu á svæðinu. Náttúruvársérfræðingur segir ekkert hægt að útiloka með tilliti til eldgoss og gæti sú atburðarrás verið hröð. Innlent 23.12.2021 12:06
Gengur upp og niður með um klukkutíma löngum þyrpingum Jarðskjálftavirknin í og við Fagradalsfjall hefur gengið upp og niður með um klukkutíma löngum þyrpingum á nokkurra klukkustunda fresti. Vísindamenn eru sammála um að ekki sé hægt að útiloka að kvika gæti komist upp á yfirborð með skömmum fyrirvara. Innlent 23.12.2021 10:16
Þrjár myndarlegar hviður af skjálftum í nótt „Virknin hefur gengið svolítið upp og niður,“ segir Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um skjálftavirkni á Reykjanesskaga í nótt. „Það hafa komið svona þrjár myndarlegar hviður af jarðskjálftum í nótt en inn á milli róast.“ Innlent 23.12.2021 06:55
Atburðarásinni svipar til aðdraganda gossins Jarðskjálftahrinan á Reykjanesi er enn í fullum gangi þó stórum skjálftum hafi farið fækkandi með deginum. Skjálftavirknin á Reykjanesi er að færast til suðvesturs og er núna á nákvæmlega sama stað og kvikugangurinn sem myndaðist í vor áður en gos hófst í Geldingadölum. Innlent 22.12.2021 20:09
Skjálftarnir líkjast undanfara eldgoss Jarðskjálftahrinan á Reykjanesi er mjög svipuð undanfara eldgossins sem hófst í Geldingadölum í vor. Prófessor í jarðeðlisfræði telur líklegt að kvika sé að brjóta sér leið upp að jarðskorpunni en segir alls ekki víst að hún muni skila sér á yfirborðið í eldgosi. Innlent 22.12.2021 11:51
Óþægilegt að fá skjálftahrinu rétt fyrir jól Grindvíkingar taka skjálftahrinunni sem nú gengur yfir á Reykjanesinu með ró og reyna að halda sinni rútínu fyrir hátíðirnar. Hún vekur þó upp óþægilegar minningar frá stóru hrinunni í byrjun árs og vöknuðu margir upp við vondan draum í nótt að sögn bæjarstjórans. Innlent 22.12.2021 10:25
Óvissustig vegna skjálftanna við Fagradalsfjall Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýsir yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall. Hrinan hófst í gær og stendur enn yfir. Innlent 22.12.2021 10:08
Snarpir skjálftar við Fagradalsfjall og sá stærsti 4,9 stig Þrír snarpir jarðskjálftar fundust vel á höfuðborgarsvæðinu upp úr klukkan 9 í morgun. Sá stærsti varð klukkan 9.23 og mældist 4,9 að stærð. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna skjálftanna. Innlent 22.12.2021 09:16
Tíu skjálftar yfir 3 að stærð og flugkóða breytt í appelsínugulan Veðurstofa hefur breytt fluglitakóða í appelsínugulan sökum skjálftavirkni um tveimur til fjórum kílómetrum norðaustur af Geldingadölum sem jókst til muna um klukkan 18 í gærkvöldi. Innlent 22.12.2021 06:15
Skjálfti að stærð 3,3 fannst á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ Jarðskjálfti að stærð 3,3 varð 3,1 kílómetra suðsuðvestur af Keili klukkan 23:21 í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Innlent 21.12.2021 23:38
Hrina lítilla skjálfta mælst við Fagradalsfjall en ekki merki um gosóróa Um klukkan fimm í dag hófst hrina smáskjálfta norðaustur af Geldingadölum og voru skjálftarnir orðnir um 340 talsins klukkan 22:30. Um er að ræða frekar litla skjálfta á um það bil sjö til átta kílómetra dýpi en sá stærsti mældist 1,8 að stærð klukkan 20:28. Innlent 21.12.2021 22:33
Þrír skjálftar yfir 3 að stærð í Vatnafjöllum á sjö mínútna tímabili Þrír skjálftar yfir 3 að stærð mældust í Vatnafjöllum á fimmta tímanum nú síðdegis. Sá stærsti var 3,5 að stærð. Innlent 13.12.2021 17:19
Skjálfti 3,1 að stærð við Grindavík Jarðskjálfti 3,1 að stærð varð norðaustur af Grindavík klukkan 10:44 í dag. Innlent 8.12.2021 11:16
Minnkandi líkur á gosi í Grímsvötnum Veðurstofan hefur fært fluglitakóða fyrir Grímsvötn niður á gult. Í kjölfar aukinnar skjálftavirkni í gærmorgun, þar sem meðal annars mældist skjálfti af stærð 3,6 sem er óvenjustór fyrir Grímsvötn, var fluglitakóðinn settur á appelsínugult í gær. Innlent 7.12.2021 11:20
Búa sig undir að flugumferð raskist ef gýs í Grímsvötnum Flugmálayfirvöld búa sig undir að eldgos í Grímsvötnum geti valdið verulegum truflunum á flugumferð, bæði hérlendis og víðar í Evrópu. Eldstöðin er komin á appelsínugula viðvörun gagnvart alþjóðaflugi, sem táknar vaxandi líkur á gosi. Innlent 6.12.2021 20:40
Ekkert hægt að útiloka varðandi Grímsvötn næstu mánuðina Viðvörunarstig vegna Grímsvatna hefur verið fært yfir í appelsínugulan lit fyrir alþjóðaflug vegna skjálftavirkni sem hófst á svæðinu í morgun. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni segir engan gosóróa mælast á svæðinu að svo stöddu en ekki sé hægt að útiloka neitt þegar kemur að Grímsvötnum. Innlent 6.12.2021 12:16
Eldstöðin Grímsvötn sett á appelsínugula viðvörun Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðvörunarstig vegna Grímsvatna úr gulum lit í appelsíngulan lit fyrir alþjóðflug, sem táknar vaxandi líkur á eldgosi. Þetta var gert klukkan níu í morgun eftir jarðskjálftahrinu í eldstöðinni fyrr um morguninn. Innlent 6.12.2021 10:33
Skjálfti 3,6 að stærð í Grímsvötnum Skjálfti 3,6 að stærð varð í Grímsvötnum klukkan 6:16 í morgun. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið, sá stærsti 2,3 að stærð. Ekki hefur mælist gosórói á svæðinu. Innlent 6.12.2021 07:28
Hlaupið náð hámarki og á hraðri niðurleið: Sjáðu myndir RAX frá Grímsvötnum Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið um 75 metra og hlaupið þar náði að öllum líkindum hámarki liðna nótt. Ragnar Axelsson ljósmyndari, þekktur undir nafninu RAX, flaug yfir svæðið í gær og myndaði sprungur ofan í Grímsvötnum, undir klettabeltum við skálana á Grímsfjalli. Innlent 5.12.2021 21:15
Fjórtán látnir í eldgosinu í Indónesíu Fjórtán eru látnir og sjö er saknað eftir að fjallið Semeru á eyjunni Java í Indónesíu byrjaði að gjósa. Öskustrókurinn frá eldgosinu náði fleiri kílómetra upp í loftið. Erlent 5.12.2021 15:09
„Grímsvötn eru orðin ófrísk“ Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið um 70 metra og búist er við því að hlaupið nái hámarkií dag. Enginn sjáanlegur gosórói er á svæðinu. Innlent 5.12.2021 13:01
RAX Augnablik: Gos í Grímsvötnum og Gjálp Mikið er fjallað um Grímsvötn þessa dagana og möguleikana á gosi. Ljósmyndarinn Ragnar Axelsson hefur myndað mörg eldgos á ferlinum, þar á meðal í Grímsvötnum árið 2011. Menning 5.12.2021 07:01
Íbúar flýja undan öskufalli úr Semeru Íbúar á indónesísku eyjunni Java flýja nú heimili sín eftir að eldfjallið Semeru byrjaði að gjósa. Mikið öskufall hefur fylgt eldgosinu en þetta er annað eldgosið á eyjunni á aðeins nokkrum mánuðum. Erlent 4.12.2021 14:33
Stuttir aðventudagar við Grímsvötn og Heklu Grímsvötn eru í limbói þessa dagana. Hekla er að springa, öll bólgin og þennst út. Ragnar Axelsson veltir fyrir sér hvort Hekla eða Grímsvötn muni gjósa fljótlega. Lífið 4.12.2021 14:00
Aflýsa óvissustigi en vara fólk við að fara inn á hraunbreiðuna Ríkislögreglustjóri hefur aflýst óvissustigi vegna eldgoss í Geldingadölum. Þetta er gert í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum. Ekki hefur sést til hraunflæðis frá gígnum frá 18. september síðastliðnum. Innlent 3.12.2021 12:50
Gosið sem stal öllum fyrirsögnum af faraldrinum Skjálftar, óróapúls og eldgos. Almannavarnir fengu nýja krísu í fangið í upphafi ársins þegar Reykjanesskaginn nötraði og skalf þar til eldgos hófst að lokum í Fagradalsfjalli. Innlent 3.12.2021 07:01
Íshellan í Grímsvötnum hefur lækkað um 23 metra Íshellan í Grímsvötnum hélt áfram að síga í nótt og hefur nú sigið um rúma 23 metra frá því að hún mældist hæst. Innlent 3.12.2021 06:42
Gígjukvísl orðin tíföld og grannt fylgst með merkjum um gosóróa Hlaupið úr Grímsvötnum brýst núna fram á Skeiðarársandi með vaxandi þunga og var vatnsrennsli í Gígjukvísl í dag orðið tífalt miðað við árstíma. Veðurstofan segir í tilkynningu nú síðdegis að vísindamönnum komi saman um að Grímsvötn séu tilbúin að gjósa. Engin merki hafa þó enn sést um eldsumbrot. Innlent 2.12.2021 20:55
Vatnsflæðið úr Grímsvötnum komið í þrefalt rennsli Ölfusár Kraftur Grímsvatnahlaupsins fer stigvaxandi og er flæðið úr vötnunum núna á við þrefalt rennsli Ölfusár. Þá hefur íshellan yfir vötnunum sigið um sex metra frá því í gær og alls um sextán metra frá því hlaup hófst þar fyrir hálfum mánuði. Engin merki sjást enn um eldsumbrot. Innlent 2.12.2021 12:07
Íshellann í Grímsvötnum sigið um fjórtán metra Íshellan í Grímsvötnum heldur áfram að síga og hefur sigið um fjórtán metra frá því að hún mældist hæst. Vatn úr Grímsvötnum hefur verið að mælast í Gígjukvísl og hefur vatnshæð þar hækkað sem og rennslið. Innlent 2.12.2021 06:29