Borgarstjórn
40 41 42 43 44 45 46 47 48 … 73 ›
Rótin hlýtur Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar Mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2021 voru afhent í dag í tengslum við mannréttindadag Reykjavíkurborgar. Að þessu sinni var það Rótin, félag um konur, áföll og vímugjafa, sem hlaut verðlaunin. Innlent 17.5.2021 18:14
Alexandra Briem næsti forseti borgarstjórnar Alexandra Briem mun taka við embætti forseta borgarstjórnar Reykjavíkur þriðjudaginn 18. maí næstkomandi af Pawel Bartozek sem hefur gegnt embættinu frá árinu 2019. Alexandra verður fyrsta trans konan til þess að gegna embættinu. Innlent 14.5.2021 13:37
Átök og eldræða í borgarstjórn: „Sjálfstæðisflokkurinn er kýli á samfélaginu“ Átök brutust út á fundi borgarstjórnar í kvöld þegar rætt var um nýbirtan ársreikning Reykjavíkurborgar. Mikil spenna var milli fulltrúa minnihluta og meirihluta þar sem þeir fyrrnefndu gagnrýndu harðlega rekstrarniðurstöðu borgarinnar. Innlent 11.5.2021 23:32
Enginn skilinn eftir Undanfarið ár hefur Borgarstjórn verið samtaka í því að huga þurfi að áhrifum Covid 19 á geðheilbrigði og vellíðan borgarbúa. Við settum af stað Borgarvaktina þar sem við fylgjumst með stöðu mála, mánuð frá mánuð, og höfum tekið til umfjöllunar inn í Velferðarráði niðurstöður kannana landlæknis og rannsóknar og greininga, á áhrifum á andlega líðan íbúa. Skoðun 7.5.2021 08:30
Borgarráð rígheldur í berin: „Hvort á maður að hlæja eða gráta yfir svona stjórnsýslu?“ Guðmundur Heiðar Helgason, markaðsstjóri Strætó og íbúi í Vogabyggð, neyðist til að gróðursetja berjarunna á tíu fermetra sérafnotareit við íbúð sína eftir að meirihluti borgarráðs hafnaði því í gær að breyta deiliskipulagi á svæðinu. Innlent 7.5.2021 07:04
Leikskóla á Hagatorg Reykjavíkurborg hefur augastað á Hagatorgi í Vesturbæ sem ákjósanlegri staðsetningu fyrir nýjan færanlegan leikskóla. Þar er lagt til að koma fyrir leikskóla fyrir um 60 börn. Innlent 6.5.2021 13:19
Margt annað að gera en að nýta lagalega smugu til að keyra á göngugötum Heimilt hefur verið samkvæmt lögum að keyra niður Laugaveginn á milli Frakkarstígs og Klapparstígs frá upphafi mánaðarins, eftir að tímabundin heimild til göngugötufyrirkomulags á umræddum kafla féll úr gildi. Þá heimild á að endurnýja á morgun. Innlent 3.5.2021 19:05
Fjölga mislæg gatnamót bílum? Borgarstjórn Reykjavíkur kynnti nýlega snilldaráætlun til bjargar borgarlínunni. Hún er að lækka hámarkshraða niður í 30 km/klst, sem er sami aksturshraði og hjá stætó að jafnaði. Samkeppnisstaðan við einkabílinn hefur þar með verið leiðrétt. Skoðun 3.5.2021 08:01
Sigurborg hættir í borgarstjórn vegna veikinda Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, borgarfulltrúi Pírata og formaður skipulags- og samgönguráðs, hyggst hætta í borgarstjórn vegna veikinda. Hún er þessa stundina í gigtarrannsóknum en engin niðurstaða hefur fengist varðandi veikindi hennar enn sem komið er. Innlent 1.5.2021 07:51
Reykjavíkurborg upplýsti ekki strax um myglu Meirihlutinn í Reykjavíkurborg hefur verið duglegur við að taka ákvarðanir um milljarða verkefni. Verkefni líkt og að hressa upp á Grófarhúsið, kostnaður er áætlaður fjórir til fimm milljarðar. Skoðun 30.4.2021 11:30
Rekstrarniðurstaðan neikvæð um nærri þrjá milljarða Rekstrarniðurstaða samstæðu A- og B-hluta Reykjavíkurborgar árið 2020 var neikvæð um tæpa 2,8 milljarða króna en áætlanir gerðu ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu upp á tæpa tólf milljarða króna. Viðskipti innlent 29.4.2021 13:54
Sjálfstæðismenn skamma Mörtu: „Alltaf gamla nornin sem tapar“ Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins og fleiri þekktir Sjálfstæðismenn hafa gert ummæli Mörtu Guðjónsdóttur, borgarfulltrúa flokksins, um Gísla Martein Baldursson að umræðuefni á samfélagsmiðlum í dag þar sem orð Mörtu í garð Gísla eru harðlega gagnrýnd. Grein eftir Mörtu sem birtist á Vísi í morgun hefur vakið mikla athygli en þar kallar hún Gísla meðal annars „pjakk“ og „prinsessu“ og sakar hann um að fara með ítrekuð ósannindi. Innlent 28.4.2021 18:36
Marta segir Gísla Martein fyrrverandi prinsessu flokksins nú prinsessu RÚV Marta Guðjónsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins birtir pistil á Vísi þar sem hún skammast með miklum tilþrifum í sjónvarpsmanninum Gísla Marteini Baldurssyni. Innlent 28.4.2021 14:36
Lókal er leiðin Á dögunum var greint frá áformum tólf stærstu knattspyrnuliða Evrópu um stofnun svokallaðrar Ofurdeildar. Hugðust liðin sneiða hjá skipulögðum keppnum á vegum Evrópska knattspyrnusambandsins, en keppa þess í stað á eigin vegum - í keppni þar sem þeim yrði tryggð þátttaka á grundvelli sögu og fjárhagsstöðu, ekki árangurs. Skoðun 28.4.2021 10:30
Gísli Marteinn í bakaríinu Gísli minn Marteinn! Þú hefur verið óvenju drjúgur með þig þessa dagana, pjakkurinn þinn, og er þá mikið sagt. Þriðjudaginn 20. apríl sl. réðist þú á borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á Facebooksíðu þinni með ósannindum og vísbendingum um að þú sért farinn að tapa minni meira en góðu hófi gegni. Skoðun 28.4.2021 08:30
Umsókn lífsskoðunarfélagsins DíaMats um lóð án endurgjalds hafnað á ný Borgarráð samþykkti á dögunum að synja umsókn DíaMats, lífsskoðunarfélags um díalektíska efnishyggju, um lóð í Reykjavík án endurgjalds. Félagið hefur barist fyrir því í fjögur ár að fá úthlutað lóð, líkt og önnur trú- og lífsskoðunarfélög. Innlent 23.4.2021 06:47
Herra Hnetusmjör hættur við mótmæli í bili Ekkert verður af áformum rapparans Herra Hnetusmjör um að stífla Reykjanesbrautina í mótmælaskyni í bili. Innlent 22.4.2021 13:05
Hugmyndir Herra Hnetusmjörs „ógeðfelldar“ Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar og forseti borgarstjórnar, gagnrýnir harðlega áform rapparans Herra Hnetusmjörs um að loka landamærunum í mótmælaskyni. Innlent 21.4.2021 17:19
Snjöll um alla borg Við erum komin inn í 21. öldina. Breytingar eru hraðar og Reykjavíkurborg þarf að vera þeim viðbúin. Við þurfum og viljum gera betur en að halda í skottið á 4. iðnbyltingunni. Þess vegna ákváðum við að leggja 10 milljarða í stafræna þróun til að umbylta þeirri þjónustu sem borgin er að veita. Skoðun 21.4.2021 15:01
Telur Gísla Martein brotlegan við siðareglur RÚV Þórdís Pálsdóttir varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins telur víst að sjónvarpsmaðurinn Gísli Marteinn Baldursson hafi gerst brotlegur við hina umdeildu 3. grein siðareglna RÚV í heitum umræðum um umferðarmál í Vesturbænum. Gísli Marteinn segist hafa fengið leyfi útvarpsstjóra til að tjá sig um umhverfi sitt. Innlent 21.4.2021 11:10
„Nei, mér er ekki í nöp við Dag B. Eggertsson“ Ólafur Guðmundsson varaborgarfulltrúi botnaði skopmynd hins snjalla Gunnars Karlsson með því að segja að best væri að setja túrbó í bíl Vigdísar Hauksdóttur þar sem hún hefur verið stöðvuð á sínum kappakstursbíl af Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Innlent 19.4.2021 11:37
Skora á borgarstjórn að falla frá áformum um lækkun hámarkshraða Vörður, fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, mótmælir harðlega áformum meirihluta borgarstjórnar um að lækka hámarkshraða á öllum götum í umsjá borgarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Verði. Fulltrúaráðið heldur því fram að áformin muni að óbreyttu ýta umferðinni frekar inn í íbúðahverfi sem verði til þess að ógna umferðaröryggi allra vegfarenda, líkt og það er orðað í tilkynningunni. Innlent 18.4.2021 15:07
Hraðalækkanir: Fyrir hvern? Snemma á níunda áratug síðustu aldar hafði fólk tekið eftir aukningu í umferðaróhöppum og slysum áratugina á undan. Skoðun 17.4.2021 16:31
Telur ósennilegt að Reykvíkingar muni finna mikinn mun Formaður Félags íslenskra bifreiðaeigenda segir boðaða lækkun hámarkshraða á götum í eigu borgarinnar mikla afturför sem lengja muni ferðatíma Reykvíkinga. Samgönguverkfræðingur telur hins vegar að áhrif á ferðatíma verði hverfandi. Innlent 15.4.2021 20:00
Forgangur Strætó á gatnamótum eina svarið við mögulegum áhrifum Verið er að greina hvort boðuð lækkun hámarkshraða á götum í Reykjavík hafi neikvæð áhrif á ferðatíma og rekstrarkostnað Strætó. Eina mótvægisaðgerðin við mögulegum áhrifum væri þó forgangur strætisvagna á umferðarljósum, að sögn framkvæmdastjóra. Innlent 15.4.2021 12:46
Eyþór um lækkun hámarkshraða: „Umferðin getur hreinlega leitað frekar inn í íbúðabyggð“ Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, hugnast ekki áform meirihlutans um að hámarkshraði á mörgum af helstu samgönguæðum borgarinnar verði lækkaður. Hann telur að lækkun hámarkshraða muni tefja fyrir almenningssamgöngum auk þess sem það geti skapað hættu á aukinni umferð um íbúðagötur. Innlent 14.4.2021 21:11
Lífi og heilsu verður ekki fórnað fyrir minni umferðartafir Hámarkshraði á götum í eigu borgarinnar verður hvergi yfir fimmtíu kílómetrum á klukkustund samkvæmt nýsamþykktri áætlun borgarinnar. Formaður skipulags- og samgönguráðs segir öryggi ganga framar mögulegum umferðartöfum. Innlent 14.4.2021 18:41
Hámarkshraði verði hvergi yfir 50 km/klst á borgargötum Dregið verður úr umferðarhraða á götum í eigu Reykjavíkurborgar og verður hámarkshraði hvergi yfir 50 km/klst samkvæmt tillögu að hámarkshraðaáætlun sem var samþykkt í skipulags- og samgönguráði borgarinnar í dag. Stefnt er að því að enginn slasist alvarlega eða látist í umferðarslysum í borginni. Innlent 14.4.2021 15:10
Borgarfulltrúi stýrir Icelandic Startups Kristín Soffía Jónsdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandic Startups. Hún tekur við starfinu af Salóme Guðmundsdóttur sem lætur af störfum í júní. Viðskipti innlent 14.4.2021 11:50
Vill opna sundlaug fyrir bólusetta og segir „uppgjafartón“ í sóttvarnalækni Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hyggst eftir helgi leggja fram formlega tillögu í borgarstjórn um að Reykjavíkurborg leiti leiða til að opna minnst eina sundlaug fyrir bólusettum eldri borgurum. Hún er ósammála sóttvarnalækni um að opnun gæti reynst erfið í framkvæmd. Innlent 10.4.2021 11:48