Landsfundur Sjálfstæðisflokksins 2025

Þórdís vill ekki fresta landsfundi
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir varaformaður Sjálfstæðisflokksins vill ekki fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Það segir hún í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingkona flokksins, sagði í aðsendri grein í gær að nauðsynlegt væri að slá ekki kynslóðaskiptum í flokknum á frest og að flokkurinn myndi sér stefnu til framtíðar.

Nauðsynlegt að slá ekki kynslóðaskiptum í Sjálfstæðisflokknum á frest
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir mikilvægt að framtíð forystu Sjálfstæðisflokksins verði ekki slegið á frest. Hún segir mikilvægt að Sjálfstæðismenn taki höndum saman og vinni „farsællega að þeim kynslóðaskiptum sem nauðsynleg eru til að flokkurinn verði á ný öflugasta stjórnmálaafl landsins“. Þetta segir Áslaug Arna í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Bjarni misst stuðning úr sínum kjarnahópi
„Að hann geri þetta akkúrat núna, gefur þeim kenningum byr undir báða vængi, að hann hafi verið búinn að missa einhvern úr sínum kjarnastuðningshópi. Það fólk sem staðið hefur þéttast að baki honum, með honum í gegnum þessa mörgu storma, hafi verið búið að missa trúna.“

„En við losnum aldrei við Jón Gunnarsson“
Óhætt er að segja að kveðjum hafi rignt yfir Bjarna Benediktsson eftir að hann tilkynnti í gær að hann myndi ekki gefa kost á sér aftur sem formaður Sjálfstæðisflokksins og að hann hyggðist ekki taka sæti á þingi. Ýmsir fyrrverandi samherjar og andstæðingar hans hafa lagt orð í belg.

Farið yfir feril Bjarna: Spáði því að hann ætti nóg eftir fyrir átján árum
Tímamótafréttir bárust af sviði stjórnmálanna í gær. Bjarni Benediktsson tilkynnti að hann væri að kveðja pólitíkina þar sem hann hefur verið í aðalhlutverki um langa hríð. Bjarni tók sæti á Alþingi árið 2003 og hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins síðan 2009. Þangað til í nýliðnum desember hafði Bjarni, í forystu Sjálfstæðisflokksins, setið í ríkisstjórn með mörgum mismunandi flokkum í hinum ýmsum ráðherraembættum.

Bjarni farsæll en hefur alltaf átt sér óvildarmenn
Stefanía Óskarsdóttir stjórnmálafræðingur telur að Bjarni Benediktsson muni fá góða dóma í sögubókunum. Hann tilkynnti í dag að hann hygðist ekki taka sæti á þingi né gefa kost á sér í áframhaldandi setu sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Hún telur að Bjarni hafi sjálfur viljað halda áfram, en ákveðið að gera það ekki eftir samtöl við flokksmenn og fjölskyldumeðlimi.

Hver tekur við af Bjarna? Þetta eru nöfnin sem oftast eru nefnd
Nokkur nöfn hafa verið nefnd þegar talið berst að hugsanlegum arftaka Bjarna Benediktssonar sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Bjarni tilkynnti í dag að hann muni ekki sækjast eftir endurkjöri á næsta landsfundi flokksins, en hann hefur verið formaður í tæp sextán ár og er einn þaulsetnasti formaður Sjálfstæðisflokksins í sögunni. Sjálfstæðismenn bæði innan og utan þingflokksins hafa verið orðaðir við embættið.

Ekki búinn að taka ákvörðun um formannsframboð
Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir tilkynningu Bjarna Benediktssonar hafa komið á óvart. Hann vill ekkert gefa upp um það hvort hann ætli að bjóða sig fram til formanns. Hann segist þó hugsa um það og að fólk hafi komið að máli við sig. Mikilvægast sé þó að Sjálfstæðismenn stilli saman sína strengi.

Tár féllu þegar Bjarni sagði þingflokknum frá ákvörðun sinni
Formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins segir að mörgum þingmönnum hafi verið brugðið þegar Bjarni Benediktsson tilkynnti að hann ætlaði að hætta sem formaður og þingmaður í dag. Nokkur tár hafi fallið.

Tekur sætið og útilokar ekki formannsframboð
Jón Gunnarsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, mun taka sæti á Alþingi, þar sem ljóst er orðið að Bjarni Benediktsson afsala sér þingmennsku þegar þing kemur saman. Hann segist ekki hafa leitt hugann að formannsframboði en útilokar ekkert.

„Helsti valdamaður landsins í meira en áratug“
Stjórnmálafræðiprófessor segir það ekki koma á óvart að Bjarni Benediktsson ætli sér nú að kveðja stjórnmálin, eftir 12 ára setu í ráðherrastólum. Það sé alveg opin spurning í hvaða átt nýr formaður muni leiða flokkinn.

Dagurinn eigi að snúast um ákvörðun Bjarna
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, vill ekki ræða mögulegt formannsframboð sitt eftir að Bjarni Benediktsson tilkynnti að hann ætlaði ekki að gefa kost á sér áfram í dag. Hún segir að dagurinn eigi að snúast um ákvörðun Bjarna.

Allir sem hafi íhugað formannsframboð hljóti að gera það í dag
Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Ölfusi, segir að honum hafi til þessa ekki staðið hugur til að gefa kost á sér til forystu í Sjálfstæðisflokknum þótt nafn hans hafi oft komið upp í umræðunni um það hverjir kynnu að taka við formennsku af Bjarna Benediktssyni. Bjarni greindi frá því í dag að hann sé á förum úr forystu flokksins og af Alþingi.

Bjarni gefur ekki kost á sér og afsalar sér þingsæti
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar ekki að gefa kost á sér í formannskjöri á komandi landsfundi flokksins. Hann ætlar ekki að taka sæti á þingi síðar í mánuðinum.

Kannast ekkert við ólgu innan flokksins vegna landsfundar
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi mögulega frestun landsfundar flokksins sem á að fara fram í febrúar en verður mögulega færður fram á haust í Kryddsíld Stöðvar 2 sem stendur nú yfir. Hann sagðist ekki kannast við meinta ólgu innan Sjálfstæðisflokksins vegna málsins sem hann vísaði til sem „blaðamanna blaðurs“ og lenti í orðaskaki við ríkisstjórnina.

Vilja ekki fresta fundi í ljósi nýs raunveruleika í pólitík
Stjórn Heimdallar, Félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjavík, segir nýjan raunveruleika blasa við í stjórnmálum hér á landi og að ekki eigi að fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Þegar landsfundinum sem átti að halda í haust var frestað til febrúar hafi sömu forsendur um veðurfar á Íslandi í febrúar legið fyrir og gera nú.

Stefnir ótrauð á landsfund að austan og segir veðrið ekki vandamál
Fulltrúi Sjálfstæðismanna á Seyðisfirði telur möguleikann á vondu veðri í febrúar ekki vera ástæðu til að fresta landsfundi, þrátt fyrir að eiga langt ferðalag fyrir höndum. Hún telji annað búa að baki hugmyndum um frestun. Bæjarstjóri Ölfuss segir frestun gáfulegasta kostinn.

Tillagan eðlileg og gagnrýnendur einungis frá höfuðborgarsvæðinu
Fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins biður fólk um að vera málefnalegt í umræðu sem snýr að landsfundi flokksins og mögulegri frestun hans. Tillagan sé eðlileg og gagnrýni á hana komi eingöngu af höfuðborgarsvæðinu.

Þeir sem vilji moka yfir niðurstöðuna vilji fresta fundinum
Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki vita um nein góð rök fyrir því að fresta fyrirhuguðum landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Umræða um frestun fundarins fram á haust hefur verið áberandi síðustu daga.

„Allt tal um baktjaldamakk er tóm þvæla“
Formaður utanríkismálanefndar Sjálfstæðisflokksins gefur lítið fyrir gagnrýni flokksfélaga á mögulega frestun landsfundar flokksins fram í haust. Allt tal um baktjaldamakk sé þvæla og jafnvel grunnskólabörn viti hvernig tíðarfarið sé í febrúar.

Fleira en veðrið sem mæli með umdeildum hugmyndum um frestun
Hugmyndir um að fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins hafa vakið upp harðar umræður innan flokksins. Fyrrverandi ráðherra og formannsframbjóðandi segir mikilvægt að tímasetning fundarins standist, en nýr þingmaður telur skynsamlegast að fresta honum.

„Kirsuberið ofan í lygakokteilinn sem hefur verið framreiddur“
Stjórnarmaður SUS gefur lítið fyrir hugmyndir um að fresta landsfundi Sjálfstæðisflokksins fram á haust af veðurfarslegum ástæðum. Lygasagan um paradísina sem er íslenskt haustveður sé ekki nógu góð.

„Þetta er dæmigert baktjaldamakk“
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir nýbreytni ef vont veður yrði notað sem ástæða til að fresta landsfundi. Leiðtogi eldri sjálfstæðismanna segir tíma formannsins liðinn og að umræða um frestun fundarins beri einkenni baktjaldamakks.

Veðurstofa Sjálfstæðisflokksins frestar fundi
Í gær bárust vægast sagt furðulegar fregnir um að óformlegur hittingur formanna málefndanefnda Sjálfstæðisflokksins hefði að vel ígrunduðu máli komist að þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt sé að fresta fyrirhuguðum landsfundi flokksins fram á haust. Þrátt fyrir að hópurinn búa að því er virðist yfir einhverjum leyni/töfragögnum um veðurfar þá sér hann sér ekki fært að deila með okkur hinum hver sé hin fullkomna dagsetning veðurfarslega séð nema bara “líklega bara í haust.”

Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar
Svo virðist sem ólga ríki meðal Sjálfstæðismanna vegna mögulegrar frestunar landsfundar sem til stóð að yrði haldinn í febrúar. Formanni Varðar og Samtaka eldri Sjálfstæðismanna er brugðið yfir fréttunum og segja þau enga ástæðu til að fresta þegar frestuðum landsfundi.

Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta
Til alvarlegar skoðunar er í innsta kjarna Sjálfstæðisflokksins að fresta landsfundi flokksins sem fyrirhugaður er í lok febrúar. Slæm tímasetning með tilliti til veðurs og færðar er nefnd sem lykilástæða en samkvæmt heimildum fréttastofu leikur yfirvofandi brotthvarf Bjarna Benediktssonar formanns flokksins og hver eigi að taka við sem leiðtogi lykilhlutverk.