
Halla Tómasdóttir

„Sigur MBA-gráðunnar, leiðtogafræða og mannauðsstjórnunar“
Þeir eru hálf dasaðir áhugamenn um þjóðmálin sem tjá sig á Facebook í dag en hvergi nærri af baki dottnir. Þar er sigur Höllu Tómasdóttur skoðaður frá ýmsum vinklum. Þar keppast menn við að benda á að ekkert sé að taktískum sigri.

Björn lagði línuna og kjósendur svöruðu kallinu
Varla er um það deilt að sigur Höllu Tómasdóttur er ekki síst taktískur. Þegar fyrir lá að baráttan stóð á milli hennar og Katrínar Jakobsdóttur sveiflaðist fylgið til hennar sem aldrei fyrr.

Batt á sig klút til heiðurs Höllu
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hélt ekki kosningavöku líkt og venjan er hjá þeim sem eru í forsetaframbjóðendum. Þess í stað fór hún heim til vinar síns og hafði það rólegt. Slökkt var á sjónvarpinu og rauluðu gestir Kumbaya, My Lord.

Fólk hafi kosið taktískt gegn Katrínu
Friðjón Friðjónsson borgarfulltrúi og starfsmaður í kosningateymi Katrínar Jakobsdóttir segist telja alveg ljóst að ákveðinn hópur hafi kosið taktískt í forsetakosningunum í ár. Þá telur hann mögulegt að stór hópur kjósenda hafi ekki hugnast átökin í kringum Katrínu sem hafi þó alltaf keyrt sína baráttu á jákvæðni.

Augljóst að kjósendur vilja konu sem næsta forseta
„Mín viðbrögð eru mjög góð. Mér finnst skilaboðin skýr. Kjósendur vilja augljóslega fá konu sem næsta forseta og ég sætti mig auðmjúkur við það.“

Myndaveisla: Rosaleg stemming í kosningavökunum
Það er mikil spenna fyrir úrslitum forsetakosninganna og spennan er ef til vill mest í kosningavökum frambjóðendanna.

Segir allt stefna í að Halla Tómasdóttir verði forseti
Katrín Jakobsdóttir segist ekki tilbúin að lýsa yfir ósigri í forsetakosningunum, hins vegar bendi allt til þess að Halla Tómasdóttir verði næsti forseti lýðveldisins. Hún segir að mikið þyrfti að gerast svo þau úrslit breytist.

Fyrstu tölur úr Suðvesturkjördæmi: Minnsti munurinn á Höllu og Katrínu hingað til
Halla Tómasdóttir leiðir í Suðvesturkjördæmi eftir að fyrstu atkvæðin hafa verið talin með 27,66 prósent atkvæðum. Katrín Jakobsdóttir er þar rétt á eftir með 25,93 prósent atkvæða og er um að ræða minnsta muninn þeirra á milli á landsvísu.

Fyrstu tölur úr Norðvesturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst
Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í fyrstu tölum atkvæða sem talin hafa verið í Norðvesturkjördæmi. Hún mælist með 33,07 prósent fylgi en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 26,13 prósent fylgi. Halla Hrund Logadóttir er þriðja með 19,62 prósent fylgi.

Fyrstu tölur úr Reykjavík norður: Halla Tómasdóttir er efst
Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í Reykjavík norður með 31,9 prósent en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 27,9 prósent. Þetta var tilkynnt rétt í þessu.

Fyrstu tölur úr Reykjavík suður: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði
Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði eftir fyrstu tölur úr Reykjavík Suður. Hún er með 32,5 prósent fylgi en á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með 28,9 prósent. Halla Hrund Logadóttir er með 12,95 prósenta fylgi.

Segir klútabyltinguna vera hafna
„Ég er ótrúlega þakklát ekki síst í ljósi þess að þetta var brekka hjá okkur,“ segir Halla Tómasdóttir og vísar þar til upphafs kosningabaráttunnar þegar fylgi hennar mæltist í lágmarki.

Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómasdóttir með flest atkvæði
Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði samkvæmt fyrstu tölum úr Suðurkjördæmi. Hún er með 37 prósenta fylgi. Á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með rúm 19 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 16 prósent.

Fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi: Halla Tómasdóttir efst
Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði í fyrstu tölum úr Norðausturkjördæmi. Halla mælist með 35,42 prósent fylgi. Næst á eftir kemur Katrín Jakobsdóttir með 27 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 17 prósent. Talin hafa verið 3000 atkvæði. Auðir seðlar 12. Ógildir 4.

„Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“
Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi kaus í ráðhúsinu ásamt fjölskyldu sinni í dag. Hún segir ljóst að unga fólkið velji hennar framboð og vonar að það skili sér á kjörstað í dag.

Forsetavaktin: Halla Tómasdóttir kjörin forseti
Nú er orðið ljóst að Halla Tómasdóttir verður sjöundi forseti lýðveldisins. Áfram verður þó fylgst með gangi mála í forsetavaktinni.

Auður í krafti karla
Fyrir 25 árum fór ég fyrir verkefninu Auður í krafti kvenna, átaki til að valdefla konur og virkja frumkvæði þeirra og kraft til efnahags- og samfélagslegra framfara. Til urðu tugir fyrirtækja og hundruð nýrra starfa á meðan á átakinu stóð.

Gjöf sem gefur
Fjölmenn kynslóð eftirstríðsáranna nær nú hefðbundnum eftirlaunaaldri. Meðalaldur og lífslíkur aukast og því fylgja ýmsar breytingar sem huga verður að. Hvernig gerum við eftirlaunaárin innihaldsrík og gefandi? Pabbi varði síðustu árunum sem húsvörður í Sunnuhlíð í Kópavogi.

„Kastaði upp um nóttina áður en ég fór á sviðið“
Hún hefur aldrei setið auðum höndum, stofnað fleiri fyrirtæki en eitt, elskar fólk og fallega hönnun svo ekki sé talað um matinn sem maðurinn hennar býr til.

Spurðu fólkið
Gildir lýðræðið bara á fjögurra ára fresti? Eru kjósendur utan þjónustusvæðis þess á milli? Eftir fjármálahrunið 2008 leið mörgum eins og þeir væru leiksoppar ráðamanna, engu skipti hvað hinum „venjulega manni“ fyndist, hann væri ekki með á leikvellinum. Sjálfsmynd þjóðarinnar var brotin – eða hreinlega ekki til. Ekkert sameiningarafl. Enginn spegill að horfa í.

Andleg heilsa unga fólksins og áhrif samfélagsmiðla
Fyrir nokkrum árum hringdi dóttir mín í mig, þá á fyrsta ári í háskólanámi og sagði mér að hún hygðist skipta um námsbraut. Hún ætlaði að læra sálfræði því átta af hverjum tíu vinum hennar væru að kljást við kvíða, þunglyndi og aðrar áskoranir hvað varðaði andlega heilsu.