Átök í Ísrael og Palestínu
37 38 39 40 41 42 … 42 ›
Ísraelski herinn undirbýr allsherjarárás Þúsundir Palestínumanna flúðu norðurhluta Gasastrandarinnar í dag á meðan Ísraelar undirbjuggu innrás og létu loftárásir dynja á Gasasvæðinu. Benjamín Netanjahú sagði „næsta stig yfirvofandi“ og ísraelski herinn ætlar að ráðast á svæðið úr lofti, landi og legi. Erlent 14.10.2023 19:18
Áskorun á Forseta Íslands og Ríkisráðsfund Bessastöðum 14.10.23 Tvö þúsund manns liggja í valnum eftir að fjölmargir leiðtogar Vesturlanda lýstu yfir afdráttarlausum stuðningi við hernaðaraðgerðir Benjamin Netanyahu gegn Gaza fyrir viku síðan. Það er mjög vanhugsað að standa með Ísrael á þennan hátt. Skoðun 14.10.2023 13:00
Segjast ekki hafa endurheimt lík fallinna borgara Ísraelsher hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem því er hafnað að herinn hafi náð að endurheimta lík tugi borgara sem fallið hafi í árás Hamas liða í suðurhluta Ísrael. Erlent 14.10.2023 09:12
Hundrað ára saga landnáms og aðskilnaðar Vika er liðin síðan stríð hófst í Ísrael og Palestínu. Dagurinn hófst þegar samtökin Hamas skutu eldflaugum frá Gasaströndinni á Ísrael og brutu stuttu síðar niður múrinn sem skilur Gasaströndina frá Ísrael. Við tóku blóðugar og hryllilegar árásir á landnemabæi Ísraelsmanna í suðri og svo gagnsókn Ísraelsmanna á Palestínumenn. Átökin eru þau blóðugustu í 75 ára deilu þjóðanna tveggja um þetta helga land. Hér verður stiklað á stóru í þessari löngu og flóknu sögu þjóðanna tveggja síðustu hundrað ár. Erlent 14.10.2023 07:00
Palestínumenn flýja í massavís áður en innrás Ísraela hefst Palestínumenn hafa flúið í massavís frá norðurhluta Gasastrandar í dag eftir að Ísrael sagði rúmlega milljón íbúum svæðisins að rýma það áður en innrás ísraelska hersins hefst í fyrramálið. Erlent 14.10.2023 00:11
„Tvískinnungur“ að fordæma stríðsglæpi Rússa en ekki Ísraelsmanna Lögmaður, sem hefur sérhæft sig í mannréttindum, segir allt stefna í þjóðernishreinsanir eða jafnvel þjóðarmorð á Gasaströndinni. Vestræn stjórnvöld sýni tvískinnung með því að hlaupa upp til handa og fóta til að fordæma stríðsglæpi Rússa en ekki Ísraela. Erlent 13.10.2023 20:53
Læknar án landamæra fordæma Ísraela: „Verið er að fletja út Gasaströndina“ Læknar án landamæra segja Ísraela hafa gefið læknum einungis tvo klukkutíma til að rýma sjúkrahús í Al Awda á Gasaströndinni. Læknar samtakanna fordæma aðgerðirnar og áframhaldandi árásir á innviði heilbrigðiskerfisins á Gasaströndinni. Erlent 13.10.2023 20:45
Börn en ekki pólitík Nú er barist af mikilli heift fyrir botni Miðjarðarhafsins. Íslendingar sjá þessi átök frá ólíkum sjónarhornum. Tilfinningar blossa upp og skoðanir eru heitar. Skoðun 13.10.2023 16:00
Opið bréf til ríkisstjórnarinnar vegna árása Ísraels á Gaza Kæru þingmenn, valdhafar. Á undanförnum dögum hafa linnulausar loftárásir ísraelska hersins ollið gríðarlegu mannfalli. Yfir 1800 Palestínumenn hafa verið drepnir á miskunnarlausan hátt - þar af yfir 500 börn, mörg þeirra ungabörn. Gríðarleg eyðilegging á innviðum í Palestínu hefur átt sér stað sem hefur algjörlega lamað samfélagið. Skoðun 13.10.2023 14:30
Evrópuríki banna samkomur til stuðnings Palestínumönnum Þrjú Evrópulönd hafa bannað fólki að koma saman til að sýna Palestínumönnum stuðning og innanríkisráðherra Breta segir palestínska fánann jafn mikið hatursmerki og hakakrossinn. Formaður utanríkismálanefndar gerir ráð fyrir að þarna sé um vel ígrundaðar öryggisákvarðanir að ræða þó það sé alvarlegt að afskipti séu höfð af tjáningarfrelsinu. Innlent 13.10.2023 12:57
Bandaríkin geti „gengið og tuggið tyggjó á sama tíma“ „Bandaríkin geta gengið og tuggið tyggjó á sama tíma,“ sagði Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, á blaðamannafundi með Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, nú fyrir stundu. Erlent 13.10.2023 12:22
Hyggjast eyðileggja umfangsmikið gangakerfi Hamas undir Gasa Ísraelsher hyggst uppræta Hamas-samtökin í þeim aðgerðum sem nú standa yfir, sem munu meðal annars miða að því að eyðileggja umfangsmikil göng sem liggja undir Gasaborg. Erlent 13.10.2023 08:11
Íbúum og hjálparsamtökum sagt að rýma norðurhluta Gasa Sameinuðu þjóðirnar segjast hafa fengið viðvörun frá Ísraelsher um að rýma norðurhluta svæðisins, það er að segja allt svæðið fyrir norðan Wadi Gaza. Erlent 13.10.2023 06:36
Ákvað að ganga ekki í herinn heldur halda sig á Íslandi Ekkert lát virðist vera á átökum Ísraela og Hamas-liða. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna hefur lofað Ísraelum eilífum stuðningi. Ísraeli sem búsettur er hér á landi segir samlanda sína þurfa að standa saman. Innlent 12.10.2023 21:01
Segja 338 þúsund á vergangi og ástandið mjög alvarlegt Sameinuðu þjóðirnar segja fjölda þeirra sem eru á vergangi á Gasaströndinni hafa aukist um þriðjung á einum sólarhring. 338 þúsund manns hafa misst heimili sín í árásum Ísraelsmanna frá því á laugardaginn en ísraelski herinn hefur varpað rúmlega sex þúsund sprengjum á Gasaströndina á síðustu sex dögum. Erlent 12.10.2023 17:56
Dularfulli maðurinn sem skipulagði árásina sagður hafa níu líf Mohammed Deif hefur verið eftirlýstur af Ísraelsríki í þrjá áratugi og virðist oft hafa sloppið með skrekkinn frá ísraelskum stjórnvöldum. Erlent 12.10.2023 14:29
Óttast að spítalinn breytist í líkhús Átök Ísraela og Hamas-liða héldu áfram í nótt og í morgun. Palestínumenn segja að stærsti spítali Gasasvæðisins verði rafmagnslaus eftir fjóra daga fái þeir ekki eldsneyti til að halda rafstöðvum gangandi. Ákveðin upplýsingaóreiða ríkir vegna átakanna. Erlent 12.10.2023 12:28
Fordæmdi tvístígandi þjóðarleiðtoga og hét eilífum stuðningi „Ég stend hér fyrir framan ykkur ekki aðeins sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna heldur einnig sem gyðingur,“ sagði Antony Blinken þegar hann ávarpaði Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, og ísraelsku þjóðina á blaðamannafundi fyrir stundu. Erlent 12.10.2023 11:53
„Stríð er ekki róleg skógarferð“ Í dag fór ég í óvissuferð. Ekki um skemmtiferð var að ræða, heldur keyrði ég með nauðsynjarvörur til bæjarins Ashkelon, eins af röð bæja í suður Ísraels þar sem Hamasliðar hafa síðustu daga gengið—og sums staðar eru enn að ganga—berserksgang. Skoðun 12.10.2023 11:01
Friður og réttlæti Heimsbyggðin horfir nú inn í áður óþekktar víddir mannlegrar grimmdar. Eftir hundrað ár munu fræðimenn fjalla um þá atburði sem nú eiga sér stað í Ísrael og Palestínu í viðleitni til að skilja eðli haturs í mannlegu félagi. Hvernig það er ræktað og að því hlúð í skjóli fálætis. Skoðun 12.10.2023 10:30
Ummæli Biden skýrð og enn óljóst hvort börn voru afhöfðuð Talsmenn Hvíta hússins í Washington hafa neyðst til að skýra ummæli Joe Biden Bandaríkjaforseta, sem sagði í gær að hann hefði aldrei trúað því að hann myndi fá þær fregnir að börn hefðu verið afhöfðuð og þurfa að sjá myndir því til staðfestingar. Erlent 12.10.2023 10:21
Þegar vondur málstaður verður verri Það verður alltaf augljósara með hverjum degi sem líður hve alvarlegir atburðir eiga sér stað Í Palestínu. Stöðugar loftárásir með mannfalli þúsund palestínskra borgara er staðreynd sem við verðum að horfast í augu við og bregðast við á viðeigandi hátt. Skoðun 12.10.2023 08:01
Umfangsmiklar loftárásir standa yfir og enn líkur á innrás Umfangsmiklar loftárásir Ísraela á Gasasvæðið standa nú yfir en talsmenn hersins greindu frá þessu í morgun. Tugir eru taldir hafa fallið í árásum Ísraela í nótt og fleiri særst. Erlent 12.10.2023 06:44
Óttast um líf vina sinna Íslensk-palestínskur kennari við Háskóla Íslands óttast um líf vina sinn á Gasasvæðinu. Þjóðstjórn hefur tekið við í Ísrael til að bregðast við neyðarástandinu og virðist allt stefna í að herinn þar í landi ráðist inn á Gasasvæðið. Innlent 11.10.2023 21:13
Vaktin: „Hver einasti Hamas-liði mun deyja“ Leiðtogar Ísraels heita því að drepa hvern og einn einasta Hamas-liða og að þurrka Hamas af yfirborði jarðarinnar. Ástandið á Gasaströndinni verður sífellt alvarlegra og þúsundir hafa fallið og særst á báða bóga. Erlent 11.10.2023 09:14
Fjölmennt á samstöðufundi með palestínsku þjóðinni Fjölmennur samstöðufundur fór fram á Austurvelli seinni partinn í dag. Þar kom saman fólk sem vildi sýna samstöðu með palestínsku þjóðinni og fordæma stríðsglæpi. Innlent 11.10.2023 19:41
Samkomulag hefur náðst um þjóðstjórn Samkomulag hefur náðst milli Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra og Benny Gantz, pólitísks andstæðings hans og leiðtoga stjórnarandstöðunnar, um að stjórnmálabandalag hans Þjóðareiningarbandalagið gangi til liðs við ríkisstjórnina til að mynda þjóðstjórn. Erlent 11.10.2023 14:21
Stríð um tilveru og grunngildi Samfélag Gyðinga um allan heim er í áfalli. Bergmál Gyðingamorða fortíðarinnar heyrist nú í Ísrael, eina þjóðríki Gyðinga í heiminum. Stríði hefur verið lýst yfir. Þetta er stríð sem hefur lengi verið í uppsiglingu og snýst um sjálfa tilveru Ísraelsríkis. Skoðun 11.10.2023 13:01
Innrás virðist yfirvofandi Ísraelski herinn hefur safnað herliði við landamörkin að Gaza, þar á meðal 300.000 varaliðum. Svo virðist sem innrás sé yfirvofandi ef marka má Jonathan Conricus, talsmann hersins. Erlent 11.10.2023 08:19
Illmenni nútímans Í bernsku lærði ég um illmenni fyrri tíma. Það voru karlmenn með skrítna sjálfsmynd sem töldu sig vita betur en aðrir um skipan heimsmála. Þeir söfnuðu liði og reyndu að útrýma þeim sem voru ekki að þeirra skapi. Skoðun 11.10.2023 07:32