
Kjaraviðræður 2023-25

Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí
Samninganefndir Sameykis og FFR, félags flugmálastarfsmanna ríkisins, hafa efnt til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun félagsfólks sem starfar hjá ISAVIA ohf. Verkfallsaðgerðirnar hefjast 9. maí verði þær samþykktar, en atkvæðagreiðslunni um þær lýkur 2. maí.

Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti
Formaður Starfsgreinasambandsins segir Seðlabankann ekki geta annað en lækkað vexti um að minnsta kosti hálft prósentustig nú þegar verðbólga mælist sex prósent. Verkalýðshreyfingin hafi farið að tilmælum bankans um hógværa kjarasamninga og nú væri komið að Seðlabankanum.

Öryrkjar auglýsi eftir harðorðum mótmælum!
Eiga öryrkjar borga fyrir kjarasamninga? Skammastu þín Sigurður Ingi Jóhannsson!

Eyjólfur vill halda formennsku áfram
Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka atvinnulífsins hefur gefið kost á sér til áframhaldandi formennsku samtakanna. Aðalfundur SA fer fram þann 15. maí og fer formannskjörið fram í aðdraganda hans.

Fresta gildistöku kjarabóta til öryrkja til að slá á þenslu
Ein af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að slá á þenslu í efnahagslífinu er að fresta gildistöku væntanlegra laga um gagngerar breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Þetta sparar ríkissjóði um 10 milljarða á næsta ári. Varaformaður Öryrkjabandalagsins segir ljóst að ekki væri hægt að rekja þensluna til öryrkja.

Enginn niðurskurður í síðustu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar
Gert er ráð fyrir áframhaldandi halla á rekstri ríkissjóðs á næstu árum samkvæmt fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Fjármálaráðherra segir mikilvægt að ná jafnvægi í ríkisfjármálum í stað þess að taka dýfur með miklum niðurskurði.

Eðlilegt að bankarnir taki þátt í að fjármagna gjaldeyrisforðann
Seðlabankinn hefur skikkað viðskiptabankanna til að auka vaxtalausar innistæður sínar hjá Seðlabankanum til að auka traust á peningastefnunni. Þetta vinnur gegn tapi Seðlabankans vegna neikvæðs vaxtamunar á tekjum hans og gjöldum.

Bjartsýn á að samningar náist
Katrín Jakobsdóttir forætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabanka Íslands sem fór fram í Hörpu í dag. Í ávarpi sínu segist hún vera bjartsýn á að hópar á almennum vinnumarkaði og starfsfólk hins opinbera muni fylgja á eftir og gera langtímakjarasamninga á borð við þá sem gerðir voru af aðilum á vinnumarkaði við Samtök atvinnulífsins í mars.

Samningar yfir 40 þúsund opinberra starfsmanna lausir
Formaður BSRB vonar að aukinn þungi færist í kjaraviðræður við ríki og sveitarfélög (LUM) eftir að samningar ríflega fjörtíu þúsund félagsmanna bandalagsins og BHM losnuðu nú um mánaðamótin.

Enn ósamið við tugi þúsunda opinberra starfsmanna og samningar lausir
Kjarasamningar við aðildarfélög rúmlega fjörutíu þúsund opinberra starfsmanna runnu út nú um mánaðamótin. Formaður BSRB segir viðræðum um nýja samninga miða ágætlega en helst væri tekist á um jöfnun launa á almenna- og opinbera vinnumarkaðnum.

Hvar eru kjarasamningar öryrkja?
Íslenskum verkalýðsfélögum hefur gengið ágætlega að ná fram launahækkunum og ýmsum öðrum kjarabótum í samningum upp á síðkastið. Það er mikið fagnaðarefni.

Fríar máltíðir grunnskólabarna - merkur samfélagslegur áfangi
Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að í nýjum kjarapakka er kveðið á um gjaldfrjálsar máltíðir fyrir nemendur í grunnskólum. Sitt sýnist hverjum og rétt að grunnskólinn er á forræði sveitarfélaga svo hvers vegna er ríkið á þáttast um og leggja áherslu á að nemendur á grunnskólaaldri standi til boða hádegismatur þeim að kostnaðarlausu?

Ólíklegt að öll aðildarfélög BHM gangi saman til viðræðna
Kjarasamningar aðildarfélaga BHM losna þann 1. apríl. Formaður telur ólíklegt að öll 24 aðildarfélög gangi saman til viðræðna. Ekki hefur verið boðað til funda við viðsemjendur en hún á von á því að það skýrist eftir páska.

Sjálfstæðisflokkurinn, the party of hungry children
Now that some time has passed since the new collective agreement was signed between the broad alliance of trade unions, Samtök Atvinnulífsins and the Icelandic government. The dust has settled, people have had the chance to read and understand the substance of the agreement and how it will help working people over the coming years.

Umdeilt afurðastöðvafrumvarp samþykkt á Alþingi í gær
Frumvarp matvælaráðherra um breytingar á búvörulögum var samþykkt á Alþingi í gær, þrátt fyrir hörð mótmæli Samkeppniseftirlitsins, Neytendasamtakanna, Alþýðusambands Íslands, VR, Félags atvinnurekenda og fleiri.

Félagsmenn VR samþykktu kjarasamning við SA
Félagsmenn VR hafa samþykkt nýgerða kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda. Samningurinn var samþykktur með 78,56 prósent atkvæða í kosningu sem lauk á hádegi í dag.

Bankarnir geti lækkað eigin vexti án aðkomu Seðlabankans
Finnbjörn Hermannsson forseti ASÍ segir vonbrigði að Seðlabankinn hafi ákveðið að halda meginvöxtum óbreyttum. Forsendur hafi verið fyrir því að lækka vexti í dag. Markmið nýgerðra samninga standi þó enn og væntanlega verði myndarlegrar vaxtalækkunar í maí. Viðskiptabankarnir geti hins vegar lækkað sína vexti.

Uppgangur og þensla halda uppi verðbólgu og vöxtum
Gríðarlegur uppgangur í íslensku atvinnulífi með tilheyrandi miklum innflutningi á vinnuafli er einn aðaldrifkraftur verðbólgunnar. Seðlabankastjóri segir algert grundvallaratriði að hægja á eftirspurninni til ná niður verðbólgu og markmiðum nýgerðra kjarasamninga um lækkun vaxta.

Leigjendur afar ósáttir við nýgerða kjarasamninga
Stjórn Leigjendasamtakanna segja framlag stjórnvalda óboðlegt og forsendur fyrir kjarasamningi, sem forysta launafólks kvittar undir þar sem leigjendur skuli axla frekari byrðar til að styðja við lægri greiðslubyrði til handa þeim sem eru með húsnæðislán, vera að sama skapi fullkomlega óboðlegt.

Félagsmenn í félögum SGS samþykkja kjarasamning
Kjarasamningur SGS og SA hefur verið samþykktur með miklum meirihluta, eða 82,72 prósent atkvæða. Nei sögðu 12,85 prósent og 4,43 prósent tóku ekki afstöðu. Kjarasamningurinn hefur nú verið samþykktur hjá öllum 18 aðildarfélögum SGS.

Eflingarfólk samþykkir kjarasamning með miklum meirihluta
Um 76 prósent þeirra félagsmanna Eflingar sem greiddi atkvæði um Stöðugleikasamninginn svokalla greiddi atkvæði með samþykkt samningsins. Um 13 prósent greiddi atkvæði gegn samþykkt samningsins og 10 prósent skilaði auðu. Kosningaþátttakan var tíu prósent.

Líklegt að kjarasamningum verði fleytt út í verðlag í ljósi hárra verðbólguvæntinga
Seðlabankastjóri telur líklegt að launahækkanir sem samið var um í kjarasamningum verði fleytt út í verðlag í ljósi hárra verðbólguvæntinga. Þess vegna verði erfiðara að ná fram markmiðum kjarasamninga um lægri verðbólgu. „Um leið og skrifað var undir síðustu samninga hækkaði vöruverð strax í kjölfarið.“

Verðbólga enn of mikil til að lækka vexti að mati Seðlabanka
Björninn er ekki unninn í baráttunni við verðbólguna þótt samið hafi verið um hóflegar launahækkanir að mati Seðlabankans. Enn þurfi að draga úr þenslu og tryggja að launahækkunum verði ekki velt út í verðlagið.

Undrast að það séu hreinlega ekki óeirðir á Íslandi
Formaður VR segist verulega hugsi yfir því hvað landsmenn séu tilbúnir að láta bjóða sér. Þrátt fyrir nýundirritaða kjarasamninga ákvað peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands að halda stýrivöxtum óbreyttum. Ragnar Þór segir að annaðhvort verði Alþingi að grípa inn í eða fólkið í landinu að rísa upp.

„Greinilegt að peningastefnunefnd hefur ákveðið að skjóta langt fram hjá“
Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, segir ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að halda stýrivöxtum óbreyttum valda sér miklum vonbrigðum. Stór hluti vinnumarkaðar hefur náð kjarasamningum, en þeir snerust að miklu leyti um að ná verðbólgu og vöxtum niður.

Vöxtum haldið óbreyttum fjórða fundinn í röð en óvissa minnkað eftir kjarasamninga
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum óbreyttum í 9,25 prósent, sem er í samræmi við væntingar meirihluta markaðsaðila og greinenda, en segir að óvissa hafi minnkað eftir að kjarasamningar kláruðust á almennum vinnumarkaði. Nefndin varar hins vegar við hættu á launaskriði vegna spennu í þjóðarbúinu og að verðbólga kunni að reynast þrálát.

Fólk í fagfélögunum sagði upp til hópa já
Félagsfólk í Fagfélögunum Matvís, VM og RSÍ hefur samþykkt kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögunum.

Samningar Samiðnar samþykktir
Mikill meirihluti félagsmanna Samiðnar greiddi atkvæði með nýlegum kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins. Atkvæðagreiðslu lauk í dag en samningarnir náðu til tæplega 8700 manns.

Hvað þolir þú mikið högg?
Það vita allir sem inn á spítala hafa komið að sjúkraliðar vinna krefjandi starf. Starfið krefst bæði líkamlegrar og andlegrar færni sem óneitanlega getur tekið sinn toll. Sjúkraliðar vinna oft í aðstæðum sem eru einstakar í lífi sjúklinga sinna og skjólstæðinga.

Lítil stemning fyrir rafrænni undirritun
Þó undirritun kjarasamninga sé tímafrek og krefjist mikillar pappírsvinnu stendur ekki til að gera aðilum kleift að skrifa undir samningana með rafrænum skilríkjum, enda segja sáttasemjarar að um rótgróna hefð sé að ræða.