Fjármálamarkaðir
4 5 6 7 8 9 10 11 … 11 ›
Indó sparisjóður metinn á 2,1 milljarð króna Indó sparisjóður var metinn á 2,1 milljarð króna við síðustu áramót í ársreikningi fjárfestingafélagsins Iceland Venture Studios sem Bala Kamallakharan fer fyrir. Eignasafn félagsins, sem fjárfestir í sprotafyrirtækjum, er metið á um 800 milljónir. Innherji 9.10.2023 16:36
Það sé hluthöfum Kviku til hagsbóta að selja TM úr samstæðunni Eftir mikla lækkun á hlutabréfaverði Kviku að undanförnu er ljóst að TM er orðið verulega undirverðlagt innan samstæðu bankans og því eru það hagsmunir hluthafa að selja eininguna frá sér, að sögn greinanda á markaði, en líklegustu kaupendurnir verða að teljast Íslandsbanki og Landsbankinn. Sé litið á efnislegt eigið fé TM er markaðsvirði félagsins, miðað verðlagningu hinna tryggingafélaganna á markaði, líklega nokkuð vel undir 30 milljörðum um þessar mundir. Innherji 5.10.2023 14:36
Virðist vera „kappsmál“ sumra verkalýðsfélaga að tala upp verðbólguvæntingar Greinendur og markaðsaðilar spáðu rangt fyrir um vaxtaákvörðun peningastefnunefndar af því að þeir voru að einblína um of á skammtímamælikvarða en ekki heildarmyndina, að sögn seðlabankastjóra, sem segir það „einnar messu virði“ að leyfa talsvert háum raunvöxtum að vinna sitt verk. Óvænt ákvörðun um að halda vöxtunum óbreyttum var ekki gerð til að friða verkalýðshreyfinguna í aðdraganda kjaraviðræðna en mikilvægt er að hún geri sér grein fyrir að það sé á „hennar valdi að flýta fyrir vaxtalækkunum.“ Innherji 5.10.2023 09:56
Allgóðar líkur á því að botninn hafi verið sleginn í vaxtahækkunarferlið Þótt alls ekki sé hægt að útiloka frekari hækkun stýrivaxta á næstunni eru allgóðar líkur á því að botninn hafi verið sleginn í vaxtahækkunarferlið í bili, að mati aðalhagfræðings Íslandsbanka. Seðlabankastjóri segir þörf á hærri raunvöxtum, sem væntingar eru um að muni nást með lækkandi verðbólguvæntingum, en kjarasamningar á vinnumarkaði eiga eftir að ráða mestu um þróunin á skuldabréfamarkaði. Innherji 4.10.2023 17:24
„Alltof snemmt að tala um vaxtalækkanir“ Seðlabankastjóri segir alltof snemmt að tala um vaxtalækkanir. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að eftir fjórtán stýrivaxtahækkanir í röð væri tímabært að halda vöxtunum óbreyttum. Viðskipti innlent 4.10.2023 13:58
Seðlabankinn „staldrar við“ og ákveður óvænt að halda vöxtum óbreyttum Eftir að hafa hækkað meginvexti Seðlabankans fjórtán sinnum í röð hefur peningastefnunefnd ákveðið, sem er á skjön við spár nánast allra greinenda og markaðsaðila, að halda vöxtum óbreyttum í 9,25 prósent. Vísar hún til þess að óvissa sé um framvindu efnahagsmála og hvort aðhaldið sé nægjanlegt – raunvextir hafi hækkað nokkuð á árinu – og því vilji nefndin „staldra við.“ Innherji 4.10.2023 08:54
Markaðurinn spáir enn annarri hækkun og raunvextir verði „háir lengi“ Þrátt fyrir vísbendingar um kólnun í hagkerfinu eftir miklar vaxtahækkanir þá er líklegt að peningastefnunefnd Seðlabankans vilji ná raunvöxtum enn hærra í því skyni að auka taumhaldið frekar, að mati markaðsaðila og hagfræðinga í könnun Innherja, sem spá fimmtándu vaxtahækkun bankans í röð – en mikil óvissa er hversu langt verður gengið í þetta sinn. Þeir sem vilja taka minna skref, eða 25 punkta hækkun, benda á að jákvæðir raunvextir séu ekki byrjaðir að bíta en aðrir segja nauðsynlegt að halda háum raunvöxtum lengi eigi að ná tökum á verðbólguvæntingum. Innherji 2.10.2023 09:59
Ávöxtunarkrafa ríkisbréfa tók snarpa dýfu eftir kaup erlends sjóðs Markaðsvextir á ríkisskuldabréfum lækkuðu talsvert á síðustu tveimur dögum vikunnar, sem tók sömuleiðis niður verðbólguálagið, samhliða kaupum erlends fjárfestis á óverðtryggðum bréfum og var veltan á markaði sú mesta frá því snemma árs 2020. Nýjar hagtölur sýna að verðbólguvæntingar fyrirtækja og heimila, bæði til skamms og lengri tíma, hafa lækkað talsvert sem peningastefnunefnd mun vafalaust líta til við ákvörðun vaxta í næstu viku. Innherji 30.9.2023 16:48
Háir langtímavextir vestanhafs minnka áhuga fjárfesta á „framandi“ mörkuðum Þegar það kemst á meiri vissa um að vextir hafi náð hámarki og verðbólgan sé á niðurleið ætti það að skila sér í meira innfæði fjármagns í íslensk ríkisbréf, að sögn seðlabankastjóra, en háir langtímavextir í Bandaríkjunum valda því að skuldabréfafjárfestar sýna framandi mörkuðum núna lítinn áhuga. Eftir nánast ekkert innflæði í ríkisbréf um margra mánaða skeið kom erlendur sjóður inn á markaðinn í gær sem átti sinn þátt í því að ávöxtunarkrafan féll skarpt. Innherji 29.9.2023 09:42
Verðbólguálagið á markaði féll þótt bólgan hafi verið yfir spám greinenda Viðsnúningur varð á skuldabréfamarkaði þegar leið á daginn og fjárfestar sóttust eftir því að kaupa óverðtryggð ríkisskuldabréf í mikilli veltu sem varð til þess að verðbólguálagið, sem hefur hækkað mikið frá síðustu vaxtahækkun Seðlabankans, lækkaði töluvert. Skuldabréfafjárfestar virðast því sumir hverjir hafa átt von á enn verri verðbólgumælingu í morgun enda þótt hún hafi reynst hærri en greinendur gerðu ráð fyrir. Innherji 28.9.2023 18:25
Fjárfestingafélag Heiðars hagnast um nærri hálfan milljarð Fjárfestingafélag Heiðars Guðjónssonar, fyrrverandi forstjóra Sýnar, skilaði tæplega 470 milljóna króna hagnaði í fyrra en Ursus seldi þá allan eignarhlut sinn í fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækinu. Góð afkoma Ursus í fyrra skýrist einkum af uppfærslu á óbeinum eignarhlut félagsins í HS Veitum. Innherji 28.9.2023 15:09
Landsbréf: Lífeyrissjóðir ættu að mega eiga stærri hlut í sjóðum Landsbréf, sjóðastýring Landsbankans, segir óþarfi að banna lífeyrssjóðum, eins og lög geri, að eiga meira en 25 prósent af hlutdeildarskírteinum verðbréfasjóða og stærri hluta en 20 prósent í öðrum sjóðum eða félögum. Innherji 27.9.2023 14:01
Hagnaður Kviku eignastýringar minnkaði um nærri tvo þriðju milli ára Afkoma Kviku eignastýringar, sem er í eigu samnefnds banka, versnaði verulega á fyrstu sex mánuðum ársins frá fyrra ári samhliða erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum. Samanlagður hagnaður fjögurra stærstu sjóðastýringarfélaga landsins minnkaði um liðlega tíu prósent á tímabilinu. Innherji 24.9.2023 17:48
Sjóðurinn IS Haf fjárfestir í Thor Landeldi og eignast yfir helmingshlut Fjárfestingarsjóður sem einblínir á haftengda starfsemi hefur gengið frá samningum um fjárfestingu í Thor Landeldi sem mun tryggja honum yfir helmingshlut í eldisfyrirtækinu sem áformar uppbyggingu á tuttugu þúsund tonna laxeldi í Þorlákshöfn. Ásamt sjóðnum IS Haf munu reynslumiklir norskir fjárfestar úr laxeldi koma að fjárfestingunni. Innherji 21.9.2023 15:18
„Mun taka tíma“ að byggja upp heimamarkað fyrir ótryggðar útgáfur bankanna Fjármálakerfið hefur sýnt að það er sumpart í sterkari stöðu en margir bankar erlendis, með því að geta þolað tímabundið hátt vaxtastig og meira fjármálalegt aðhald, og vaxtaálagið á erlendar skuldabréfaútgáfur bankanna hefur lækkað skarpt að undanförnu. Seðlabankastjóri segir að horft fram á við megi hins vegar áfram búast við sveiflum í vaxtakjörum bankanna á erlendum mörkuðum en fjarvera íslenskra stofnanafjárfesta þegar kemur að kaupum á ótryggðum útgáfum stendur þeim fyrir þrifum. Innherji 21.9.2023 10:13
Blackrock eignast yfir fimmtungshlut eftir niðurfellingu á milljarða skuldum Bandaríski sjóðastýringarrisinn BlackRock eignaðist meira en fimmtungshlut af útgefnu almennu hlutafé Icelandic Water Holdings, sem starfrækir vatnsverksmiðju í Ölfusi, gegn eftirgjöf skulda upp á nærri fjóra milljarða þegar endurskipulagning á fjárhag íslenska fyrirtækisins var kláruð í sumar. BlackRock er í hópi ráðandi hluthafa sem geta beitt neitunarvaldi ef til stendur meðal annars að selja fyrirtækið eða gefa út nýja hluti sem verðmetur það á undir jafnvirði 25 milljarða króna. Innherji 19.9.2023 17:44
Aukinn vaxtamunur hefur ekki ýtt undir innflæði fjármagns í ríkisbréf Miklar hækkanir á vöxtum Seðlabankans vegna þrálátrar verðbólgu og mikilla verðbólguvæntinga hefur valdið því að skammtímavaxtamunur Íslands gagnvart stærstu myntsvæðum heimsins hefur sjaldan verið meiri um langt skeið. Þrátt fyrir að vaxtamunurinn hafi meðal annars liðlega tvöfaldast á móti Bandaríkjunum frá áramótum hefur það ekki haft í för með sér innflæði fjármagns í ríkisbréf svo neinu nemur. Innherji 18.9.2023 09:06
Lán verða dýrari ef auknar eiginfjárkröfur á bandaríska banka taka gildi Kröfur um að bandarískir bankar bindi meira eigið fé í útlánum mun hafa í för með sér að lán verða dýrari, hagvöxtur verður minni án þess að fjármálastöðugleiki eflist svo nokkru nemi, skuggabankastarfsemi fer vaxandi og hætta skapast á að fjárfestar hunsi hlutabréf banka, segja forstjórar bandarískra banka. Innherji 15.9.2023 15:45
Eyrir færði sprotafjárfestingar niður um milljarða eftir erfitt ár á mörkuðum Eignasafn Eyris Invest, eitt stærsta fjárfestingafélagsins landsins, tengt sprotafyrirtækjum var fært niður fyrir samtals á fimmta milljarð króna á liðnu ári samhliða því að markaðsaðstæður og fjármögnunarumhverfi versnaði verulega. Nýtt stjórnendateymi tók við stýringu eignasafnsins í sumar en það er yfir níu milljarðar króna að stærð. Innherji 13.9.2023 12:01
Ekki verið að „rifa seglin nærri nógu mikið“ til að ná niður verðbólgunni Þrátt fyrir að verðbólguvæntingar á skuldabréfamarkaði hafi lækkað lítillega í gær eftir framlagningu frumvarps til fjárlaga þá hefði aðhaldið sem þar birtist þurft að vera meira til að ná böndum á þenslu og þrálátri verðbólgu, að sögn skuldabréfafjárfesta. Mikil hækkun á ávöxtunarkröfu ríkisbréfa síðustu vikur er meðal annars sögð mega rekja til vantrúar markaðsaðila í garð ríkisfjármálanna, einkum eftir harða gagnrýni fjármálaráðherra á Seðlabankann fyrir að beina ábyrgðinni á verðstöðugleika á aðra en bankann sjálfan. Innherji 13.9.2023 10:14
Afturkippur í verðlagningu hlutabréfa Eftir að Úrvalsvísitala Kauphallarinnar var byrjuð að vera betur verðlögð miðað við hagnað þeirra félaga sem standa að baki henni, borið saman við ávöxtunarkröfu ríkisbréfa, þá hefur hún tekið afturkipp á síðustu tveimur mánuðum. Umræðan 12.9.2023 15:00
Kristinn nýr framkvæmdastjóri Eyrir Venture Management Eyrir Venture Management (EVM) hefur ráðið Kristinn Pálmason sem framkvæmdastjóra. Kristinn kemur til félagsins frá Silfurbergi og tekur við starfinu af Erni Valdimarssyni. Viðskipti innlent 12.9.2023 11:14
Vilja fella niður margar takmarkanir á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða Seðlabankastjóri tekur undir með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) um að rétt sé að afnema margar af þeim magnbundnu takmörkunum sem gilda um íslensku lífeyrissjóðanna, eins og meðal annars hámark á eignarhald í einstökum félögum, samhliða auknu eftirliti með starfsemi þeirra og bættri áhættustýringu. Starfshópur sem vinnur að grænbók um lífeyrissjóðakerfið er nú með til skoðunar að leggja til slíkar breytingar. Innherji 11.9.2023 10:42
Landsbankinn með 300 milljón evra útgáfu eftir að hafa setið af sér „storminn“ Landsbankinn lauk í gær sölu í fyrsta sinn frá nóvember 2021 á ótryggðum almennum skuldabréfum í evrum. Fjármálamarkaðir hafa verið þungir á undanförnum misserum en aðgengi og fjármagnskjör hafa batnað mikið á undanförnum mánuðum, segir framkvæmdastjóri hjá bankanum. Innherji 6.9.2023 13:01
Segir stjórnendur og stjórnir enn of einsleitan hóp og svigrúm til nýliðunar „Að mínu mati eru stjórnendur og stjórnir á Íslandi enn of einsleitur hópur, við þurfum fleira ungt fólk og almennt meiri breidd,“ segir Helga Hlín Hákonardóttir lögfræðingur og einn eigenda Strategíu. Atvinnulíf 6.9.2023 07:00
Þeir sem velji aukið frelsi í viðbótarlífeyrissparnaði beri aukinn kostnað Framkvæmdastjórar lífeyrissjóða og sjóðastýringar fagna því að fjármála- og efnahagsráðherra sé að skoða leiðir til að auka valfrelsi fólks í viðbótarlífeyrissparnaði. Breytingar geta aukið áhuga fólks á fjárfestingum og lífeyrissparnaði. Sjóðfélagar sem vilja meira frelsi við að stýra sínum viðbótarsparnaði þurfa væntanlega að bera af því meiri kostnað en sjóðfélagar í hefðbundnum ávöxtunarleiðum. Innherji 6.9.2023 07:00
Akta tapar 50 milljónum samtímis því að eignir í stýringu minnka um fimmtung Sjóðastýringarfélagið Akta var rekið með tæplega 50 milljóna króna tapi á fyrri árshelmingi en eignir í stýringu minnkuðu um liðlega fimmtung samhliða erfiðum aðstæðum á mörkuðum og áframahaldandi innlausnum fjárfesta í helstu fjárfestingasjóðum í rekstri fyrirtækisins. Kaup Akta sjóða á eigin bréfum á tímabilinu verðmeta félagið á liðlega einn og hálfan milljarð króna. Innherji 4.9.2023 08:00
Sænskur vísisjóður tekur þátt í ríflega 300 milljóna fjármögnun Snerpu Power Sprotafyrirtækið Snerpa Power sótti 2,2 milljónir evra, eða sem nemur 314 milljónum króna, í sinni fyrstu fjármögnunarlotu sem lauk dögunum. Vísisjóðirnir Crowberry Capital og hinn sænski BackingMinds leiddu fjármögnunina. Innherji 30.8.2023 12:32
Fjárfestar stækkuðu við sig í hlutabréfasjóðum í fyrsta sinn um langt skeið Eftir viðvarandi útflæði úr innlendum hlutabréfasjóðum í nærri eitt ár varð viðsnúningur í liðnum mánuði þegar meira en einn milljarður króna flæddi inn í slíka sjóði samhliða verðhækkunum í félaga Kauphöllinni. Ekkert lát var hins vegar á sama tíma á áframaldandi innlausnum fjárfesta í skuldabréfa- og blönduðum sjóðum. Innherji 28.8.2023 12:24
„Skref í rétta átt“ en þarf meira aðhald til að ná niður verðbólguvæntingum Þótt boðaðar aðgerðir fjármála- og efnahagsráðherra um aukið aðhald í ríkisrekstrinum á komandi ári, sem nemur samtals um sautján milljörðum króna, séu jákvæðar þá eru þær ólíklega að hafa einhver áhrif til lækkunar á verðbólguvæntingum, að sögn sjóðstjóra á skuldabréfamarkaði. Síðasta vaxtahækkun Seðlabankans um 50 punkta var einkum rökstudd með vísun til hárra verðbólguvæntinga til lengri tíma en þær hafa lítið lækkað að undanförnu. Innherji 27.8.2023 11:58