Innherji

Vilja á­fram auka vægi er­lendra eigna en minnka við sig í inn­lendum hluta­bréfum

Hörður Ægisson skrifar
Miklar sveiflur hafa einkennt innlendan hlutabréfamarkað á árinu en frá áramótum er Heildarvísitalan niður um liðlega tíu prósent. Á sama tíma hafa erlendar hlutabréfavísitölur  hækkað talsvert á árinu, meðal annars í Bandaríkjunum drifið áfram af góðu gengi stóru tæknifyrirtækjanna.
Miklar sveiflur hafa einkennt innlendan hlutabréfamarkað á árinu en frá áramótum er Heildarvísitalan niður um liðlega tíu prósent. Á sama tíma hafa erlendar hlutabréfavísitölur  hækkað talsvert á árinu, meðal annars í Bandaríkjunum drifið áfram af góðu gengi stóru tæknifyrirtækjanna. samsett

Engar stórar breytingar eru boðaðar í nýjum fjárfestingarstefnum tveggja af stærstu lífeyrissjóðum landsins, umsvifamestu fjárfestum landsins, en þær eiga það sammerkt að áfram er lögð áhersla á að auka vægi erlendra verðbréfa í eignasafninu á meðan útlit er fyrir minni áhuga á innlendum hlutabréfum. Óvissa hér heima og erlendis hefur aukist en verðlagning á helstu verðbréfamörkuðum utan Íslands, einkum í Bandaríkjunum, er há um þessar mundir sem gæti skilað sér í auknu flökti í verðlagningu sökum meiri undirliggjandi áhættu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×