Innherji

Af frönskum ríkis­skuldum, skamm­vinnri stjórnar­setu og gildi kaup­auka

Ritstjórn Innherja skrifar
Spennan í frönsku samfélagi ásamt stöðu ríkisfjármála hefur smitast yfir á skuldabréfamarkaðinn. Kannski er lausnin sú að Frakkar taki upp evru – aftur – til þess að koma böndum á vaxtakostnaðinn og vantrú skuldabréfamarkaðarins á sjálfbærni ríkisfjármálanna.
Spennan í frönsku samfélagi ásamt stöðu ríkisfjármála hefur smitast yfir á skuldabréfamarkaðinn. Kannski er lausnin sú að Frakkar taki upp evru – aftur – til þess að koma böndum á vaxtakostnaðinn og vantrú skuldabréfamarkaðarins á sjálfbærni ríkisfjármálanna.

Mikil mótmælaalda gengur nú yfir suðurhluta Evrópu. Mestar voru rósturnar í Frakklandi um helgina en af fréttum fjölmiðla að dæma eru mótmælendur að brjóta allt og bramla til þess að mótmæla, svo fátt eitt sé nefnt, aðgerðarleysi í loftslagsmálum, hækkandi mjólkurverði og lélegu viðhaldi við framhaldsskóla.

Spennan í samfélaginu ásamt stöðu ríkisfjármála hefur smitast yfir á skuldabréfamarkaðinn. Þannig fór ávöxtunarkrafan á frönsk ríkisskuldabréf til tíu ára yfir fimm prósent í vikunni og er það í fyrsta sinn í tæpan aldarfjórðung sem hún hefur risið svo hátt. Krafan á fimm ára bréfin er að nálgast 4,5 prósent og hefur hækkað um nærri 150 punkta frá því snemma í sumar.

Millistjórnandinn ákvað að gá – svona til að sjá – og komst að því að íslenska ríkið gaf út skuldabréf í evrum til fimm ára í maí á þessu ári og var krafan í útboðinu 3,352 prósent. Hún hefur fremur lítið hreyfst síðan þá og stendur núna í 3,73 prósent á eftirmarkaði. Það sama gildir um önnur evrubréf ríkissjóðs, meðal annars tíu ára bréf sem var gefið út 2024, en á sama tíma leitar ávöxtunarkrafan á franskar ríkisskuldir hratt upp á við.

Kannski ættu Frakkar frekar en Íslendingar að taka upp evru – aftur – til þess að koma böndum á vaxtakostnaðinn og vantrú skuldabréfamarkaðarins á sjálfbærni ríkisfjármálanna. Það eru samt ekki bara ríkisskuldirnar sem eru að sliga Frakka heldur er einkagerinn orðinn mjög skuldsettur á sama tíma og hagvöxtur hefur staðnað. Ofurskuldsetning einkageirans er auðvitað eitthvað sem Íslendingar þekkja en hún náði hæstu hæðum fram að fjármálakreppunni 2008 og eru flestir sammála um að sjálfstæð peningamálastefna skipti miklu máli við að komu böndum á hana áratuginn á eftir.

Landsvirkjun og lítil samfella í stjórnarháttum

Það verður seint sagt að þeir sem hafa valist til að gegna stjórnarstörfum hjá Landsvirkjun í gegnum tíðina hafi verið þaulsetnir. Á síðustu tuttugu árum hefur alls 31 einstaklingur átt sæti í stjórn langverðmætasta fyrirtækis landsins og meðalsetutíminn verið rétt rúm þrjú ár. Á þessu tímabili hefur öll stjórnin verið endurnýjuð í tvígang og sex sinnum hefur meirihluti hennar verið látinn víkja. Lengst hefur sama stjórn setið óbreytt í þrjú ár. Það hefur aðeins gerst þrisvar.

Þessar tölur segja sennilega mest um pólitísk afskipti af Landsvirkjun. Ríkisstjórnir hafa komið og farið, einkum núna á síðari tímum, og með þeim fulltrúar þeirra í stjórn fyrirtækis sem þarf að taka ákvarðanir um risavaxnar fjárfestingar og orkusamninga sem geta haft áhrif á afkomu þess áratugi fram í tímann. Það er ekki beinlínis uppskrift að samfellu í stjórnarháttum og lítur sjaldnast vel út í augum erlendra fjárfesta, lánveitenda og alþjóðlegra matsfyrirtækja.

Hörður Arnarson fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar og Brynja Baldursdóttir stjórnarformaður Landsvirkjunar.Samsett Mynd

Við svo ör mannaskipti má raunar velta því fyrir sér hvort forstjóri og framkvæmdastjórn Landsvirkjunar hafi verið í þeirri stöðu að verja meiri tíma í að sinna fræðsluhlutverki gagnvart stjórnarmönnum fremur en að bera undir þá mikilvægar ákvarðanir. Þegar stjórnarfólkið er loksins komið með nægilega yfirsýn yfir flókinn rekstur og langtímahagsmuni félagsins er hætt við að næsta pólitíska uppstokkun sé handan við hornið. Ákvörðun Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra á vormánuðum síðasta árs, grundvölluð á nýju fyrirkomulagi valnefnda til að meta hæfni umsækjenda í stjórnir ríkisfyrirtækja, um að skipta út allri fimm manna stjórn Landsvirkjunar á einu bretti er í þessu ljósi umhugsunarverð – og gerir stjórnvöld því ekki stikkfrí á þeirri stöðu sem nú er upp komin með brotthvarfi lykilstjórnenda orkufyrirtækisins.

Þetta á ekki síst við þegar haft er í huga að fyrirtækið hefur aldrei staðið sterkar þegar kemur að bæði rekstri og efnahag. Ef eigandinn taldi að stjórnarháttum hefði ábótavant á þessum tímapunkti væri fróðlegt að fá að vita í hverju það fólst. Að öðrum kosti verður erfitt að líta á uppstokkunina sem annað en enn eina birtingarmynd þeirrar pólitísku afskiptasemi sem hefur oft einkennt stjórnarskipan Landsvirkjunar.

Það er ágætt að tala um mikilvægi faglegra stjórnarhátta, eins og Landsvirkjun segist gera í samræmi við leiðbeiningar Viðskiptaráðs, SA og Kauphallarinnar, en betra væri samt ef þeim sé raunverulega fylgt í framkvæmd. Millistjórnandanum var hugsað til þessa þegar hann sótti fjölmennan fund með öðrum millistjórnendum í vikunni þar sem kynntar voru uppfærðar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja. Ef það er ágreiningur um stjórnarhætti, eins og hefur komið skýrt fram í máli Harðar Arnarsonar fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar og Brynju Baldursdóttur stjórnarformanns, ætti helst að greina frá honum við hluthafa, setja í samhengi við leiðbeiningar um stjórnarhætti og draga um leið réttan lærdóm.

Leigubremsan og lækkandi leiguverð

Leiguverð stefnir lóðbeint niður í kjölfar verðlækkunar á fasteignamarkaði. Samkvæmt tölum HMS lækkaði vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu um 0,92 prósent milli ágúst og september og hefur nú lækkað tvo mánuði í röð. Vísitala leiguverðs hefur því lækkað um 2,6 prósent að raunvirði síðastliðið ár. Raunlækkun leiguverðs á ársgrundvelli hefur ekki mælst meiri síðan á vormánuðum ársins 2023 þegar verðbólga stóð í tæpum tíu prósentum.

Erfitt er að sjá að breyting verði á þessari þróun í fyrirsjáanlegri framtíð. Um fátt annað er rætt meðal millistjórnenda en þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að bremsa leigumarkaðinn af við þessar aðstæður með löggjöf.

Frumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar félagsmálaráðherra, sem jafn ólíkir umsagnaraðilar hafa lagst gegn eins og Seðlabankinn og óhagnaðardrifna leigufélagið Brynja, felur í sér þá breytingu að aðeins verður heimilt að hækka leigu einu sinni á tólf mánaða fresti. Miðað við stöðu og horfur á markaði er því ekki annað að sjá en að stjórnvöld ætli að tryggja að leigusalar geti ekki hækkað leiguna í takt við verðbólgu þegar markaðurinn sjálfur er farinn að þrýsta leiguverði niður.

Þetta minnir marga á þegar kvartanir vegna áhrifa húsnæðisliðarins á verðbólguna leiddu til þess að ráðist var í breytingar á vísitölunni einmitt á sama tíma og markaðurinn var að snúast við. Áhrifin urðu á endanum þveröfug við það sem lagt var upp með.

Kálfurinn og ofeldið

Málefni Húsdýragarðsins voru í brennidepli á borgarstjórnarfundi í vikunni. Þá mælti Bjarni Guðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, fyrir tillögu Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar um að borgin athugaði möguleika á útvistun rekstrarins.

Bjarni Guðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.Vísir/Vilhelm

Það er ekki nema von að slíkt sé skoðað. Fram kom í máli Bjarna að útsvarsgreiðendur í Reykjavík hafi þurft að borga tæpan hálfan milljarð með rekstrinum í fyrra. Sjaldan launar kálfurinn ofeldið.

En lausnin á rekstrarvanda Húsdýragarðsins kann að vera í augnsýn. Það hlýtur að koma til framkvæmdar að útvista reksturinn, eins og borgarmeirihlutinn leggur til, og þá er augljóst að horft sé til Minigarðsins í næsta nágrenni í leit að rekstraraðila. Sem kunnugt er hefur verið tap á rekstri Minigarðsins undanfarin tvö ár og vafalaust gætu húsdýrin og selirnir gagnast við að skjóta fleiri og fjölbreyttari tekjustoðum undir reksturinn.

Jón, Svejk og Yossarian

Grein Jóns Gnarr sem birtist í Morgunblaðinu á miðvikudaginn hefur vakið mikla athygli, ekki síst vegna líkingamálsins sem þingmaðurinn grípur til við að lýsa veru sinni í þingflokki Viðreisnar.

Jón Gnarr ávarpar Alþingi og kveður þingflokk Viðreisnar.Vísir/Anton Brink

Hann lýsir sjálfum sér sem hermanni sem hafi verið sendur í glórulausan bardaga án stuðnings frá herforingjunum. Jafnvel illa lesnir millistjórnendur átta sig á að þarna kallast Jón á við góða dátann Svejk. Ólíkt honum hlýðnast Jón hins vegar ekki yfirboðurum sínum.

Þarna minnir Jón meira á Yossarian, söguhetjuna í bókinni Catch-22 eftir Joseph Heller. Hann er ekki huglaus, hefur ekki misst trúna á sjálfan sig og er ekki endilega hættur að trúa á málstaðinn. Hann hefur aftur á móti misst trúna á stofnunina sem segist berjast fyrir honum.

Hrókar alls fagnaðar

Hverju sem því líður halda hrókeringarnar áfram í þingflokki Viðreisnar. Sandra Sigurðardóttir hefur tekið sæti Ingvars Þóroddssonar í fjárlaganefnd en hann færir sig yfir í velferðarnefnd.

Þessi skipti munu ekki hafa verið Ingvari á móti skapi en þeir millistjórnendur norðan heiða sem hittu hann í síðustu kjördæmaviku höfðu á orði að hann talaði nú eins og svarinn stjórnarandstæðingur.

Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar í Norðausturkjördæmi. vísir/vilhelm

Sandra var varaþingmaður Viðreisnar en datt inn þegar Guðbrandur Einarsson sagði af sér þingmennsku í byrjun þessa árs. Hún hefur setið í velferðarnefnd en tekst nú við nýjar áskoranir í þinginu.

Væntanlega hefur félögum hennar í þingflokknum þótt hún hafa rétta hugarfarið í það vandasama gigg. Þannig lýsti hún því yfir á samfélagsmiðlum í byrjun september að markmiði ríkisstjórnarinnar um hallalaus fjárlög árið 2027 hefði nú þegar verið náð. Verður gaman að fylgjast með færslum hennar um störf fjárlaganefndar þegar óskirnar um útgjaldaaukningu fara að hrúgast inn.

Um gildi breytilegra starfskjara

Millistjórnendur á fjármálamarkaði hafa lengi þurft að sætta sig við séríslenskar reglur um kaupauka sem eru mun strangari en tíðkast í nágrannalöndunum. Nú hefur fjármálaráðherra lagt fram frumvarp sem viðheldur áfram 25 prósenta hámarki á breytileg laun hjá verðbréfafyrirtækjum þrátt fyrir að upphaflega hafi staðið til að hækka það í 50 prósent, sem væri samt langt umfram það sem þekkist í öðrum nágranna ríkjum.

Þetta er nokkuð sérstök nálgun á áhættustýringu hjá félögum með lítinn efnahagsreikning. Þegar tekjur fyrirtækja sveiflast er nefnilega ágætt að kostnaðurinn geti sveiflast með. Því hærra sem hlutfall fastra launa er, þeim mun erfiðara verður að bregðast við samdrætti án uppsagna. Í Finnlandi og Noregi er ekkert sambærilegt tölulegt hámark á kaupaukum verðbréfafyrirtækja.

Millistjórnandinn telur raunar að stjórnvöld ættu að kynna sér betur kosti breytilegra starfskjara í eigin rekstri. Utanríkisráðuneytið greiddi til að mynda félagi Heiðu Kristínar Helgadóttur 14 milljónir króna fyrir minna en sex mánaða ráðgjöf vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið.

Hefði verið samið um árangurstengda þóknun með niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar sem mælikvarða hefðu breytileg starfskjör ekki endilega þjónað hagsmunum ráðgjafa utanríkisráðuneytisins. Þau hefðu hins vegar getað þjónað hagsmunum skattgreiðenda – rétt eins og breytileg laun geta þjónað hagsmunum hluthafa í litlum verðbréfafyrirtækjum sem taka ekki við innlánum almennings og erfitt er að sjá að möguleg áhættusækni þeirra geti með nokkrum hætti ógnað fjármálastöðugleika.


Millistjórnandinn er vikulegur pistill og á ábyrgð ritstjórnar Innherja. Millstjórnandinn hefur um áratuga skeið starfað í íslensku atvinnulífi fæstum til gagns og flestum til ama. Hann eygir þó enn von til þess að fá starf hjá hinu opinbera.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×