
HM 2026 í fótbolta

Pablo fékk útkall frá landsliðsþjálfara El Salvador
Víkingurinn Pablo Punyed er á leiðinni í langt ferðalag eftir að hafa verið valinn í landsliðhóp El Salvador.

Hvetja fólk til að sækja um vegabréfsáritun núna: „Gæti orðið hörmung“
777 dagar eru þangað til HM karla í fótbolta hefst í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Þrátt fyrir að svo langur tími sé til stefnu hafa áhyggjur gert vart við sig í bandaríska stjórnkerfinu í kringum skipulag mótsins.

„Rosalega mikið af hæfileikaríkum leikmönnum í þessum hóp“
Jóhannes Karl Guðjónsson framlengdi samning sinn sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla í fótbolta í vikunni. Hann var orðaður við störf í Skandinavíu í vetur en er spenntari fyrir komandi verkefnum í Laugardalnum.

„Allt í einu er maður farinn að heyra að hann geti verið næsti Pele“
Spænski landsliðsþjálfarinn Luis de la Fuente hefur fengið góða reynslu á síðustu mánuðum að vera með kornunga leikmenn í sínu liði og hann varar Brasilíumenn við því að setja ekki of mikla pressu á hinn sautján ára gamla Endrick.

Frestuðu leik í undankeppni HM vegna bakteríuhræðslu
Ekkert varð að leik Norður Kóreu og Japans í undankeppni HM karla í fótbolta. Engar formlegar ástæður voru gefnar fyrir því en erlendir fréttamenn hafa reyna að komast að hinu sanna.

Richarlison: Þetta bjargaði lífi mínu
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Richarlison hjá Tottenham er afar þakklátur fyrir sálfræðimeðferðina sem hann fékk sjálfur á sínum tíma og er því mjög ánægður með að brasilíska landsliðið sé nú komið með sálfræðing til starfa hjá sér.

Úrslitaleikur HM 2026 verður spilaður í New Jersey
Alþjóða knattspyrnusambandið hefur ákveðið það hvar leikirnir verða spilaðir á næsta heimsmeistaramóti karla í fótbolta sem fer fram í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada sumarið 2026.

Fjórði febrúar 2024 stór dagur fyrir gestgjafa HM 2026
Alþjóða knattspyrnusambandið ætlar að gefa út leikjadagskrána fyrir næstu heimsmeistarakeppni karla 4. febrúar næstkomandi.

Byggja HM 2034 leikvang á klettabrún
Sádi-Arabar kynntu í gær nýjan framtíðar knattspyrnuleikvang sem verður byggður fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta sem á að fara fram í landinu árið 2034.

Brassar búnir að finna nýjan landsliðsþjálfara
Dorival Júnior hefur verið ráðinn nýr þjálfari brasilíska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann tekur við starfinu af Fernando Diniz sem var rekinn á föstudaginn.

Enginn fær að spila í tíunni á eftir Messi
Tían verður tekin úr umferð hjá argentínska karlalandsliðinu í fótbolta þegar Lionel Messi hættir að spila með landsliðinu.

Ronaldo hefur augastað á 250 landsleikjum
Cristano Ronaldo virðist hvergi nærri hættur að láta að sér kveða með landsliði Portúgal þrátt fyrir að verða 39 ára í febrúar á næsta ári. Hann ku hafa augastað á að rjúfa 250 leikja múrinn að sögn Roberto Martinez, landsliðsþjálfara Portúgal.

Rodrygo segir Real Madrid banna honum að ræða rifrildið við Messi
Brasilíski knattspyrnumaðurinn Rodrygo segir að Real Madrid hafi þvertekið fyrir það að hann ræði uppákomu í leik Brasilíu og Argentínu í síðasta landsliðsglugga.

Di María hrækti á stuðningsmenn Brasilíu
Ángel Di María hrækti á stuðningsmenn Brasilíu eftir að þeir helltu bjór yfir hann í leiknum gegn Argentíu fyrr í vikunni.

Stjórnvöld í Venesúela: Þeir rændu fótboltalandsliðinu okkar
Perú og Venesúela gerðu 1-1 jafntefli í undankeppni HM í vikunni í leik sem fór fram í Lima í Perú. Venesúelamenn hafa nú sakað Perú um að ræna fótboltalandsliði þjóðarinnar.

Suárez segir Núnez einn besta framherja heims
Luis Suárez fór fögrum orðum um Darwin Núnez eftir að sá síðarnefndi skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Úrúgvæ á Bólivíu í undankeppni HM 2026.

Þjálfari heimsmeistaranna gæti hætt
Þjálfari argentínsku heimsmeistaranna, Lionel Scaloni, segir að hann gæti hætt eftir fimm ár í starfi. Hann vakti máls á þessu eftir sigurinn á Brasilíu.

Martínez reyndi að taka kylfu af löggu
Emiliano Martínez, markvörður argentínska fótboltalandsliðsins, reyndi að taka kylfu af lögreglumanni í átökunum sem brutust út fyrir leikinn gegn Brasilíu.

Messi: Þetta hefði getað endað sem harmleikur
Lionel Messi var harðorður þegar hann tjáði sig um slagsmálin og aðgerðir brasilísku lögreglunnar á leik Argentínu og Brasilíu í undankeppni HM í nótt.

Slagsmál og reiður Messi þegar Argentína vann sögulegan sigur í Brasilíu
Síðasti landsleikur Lionel Messi í Brasilíu varð sögulegur í nótt þegar Argentína vann 1-0 sigur á nágrönnum sínum og erkifjendum í undankeppni HM 2026. Messi var samt reiður eftir leikinn.

Luis Díaz skoraði tvö mörk fyrir framan pabba sinn grátandi í stúkunni
Liverpool-maðurinn Luis Díaz var á skotskónum þegar Kólumbía vann 2-1 sigur á Brasilíu í undankeppni HM í nótt.

Úrúgvæ fyrst til að vinna Argentínu eftir heimsmeistaratitilinn
Úrúgvæ sótti tvö stig til Buenos Aires í Argentínu í nótt í leik þjóðanna í undankeppni HM 2026. Þetta er fyrsti tapleikur argentínska landsliðsins síðan að liðið tryggði sér heimsmeistaratitilinn í Katar í lok síðasta árs.

Valið á Endrick minnir á vorið þegar Ronaldo skoraði á móti Íslandi
Hinn sautján ára gamli Endrick var í gær valinn í brasilíska landsliðið í fótbolta í fyrsta sinn en fram undan eru leikir hjá Brasilíumönnum í undankeppni HM.

Gagnrýnir forseta FIFA fyrir ólýðræðisleg vinnubrögð í bakherbergjum
Hin röggsama Lise Klavenes frá Noregi er vön því að láta forystumenn Alþjóða knattspyrnusambandsins heyra það og hún er mjög ósátt með fyrirkomulagið við valið á næstu gestgjöfum HM.

FIFA gæti þurft að borga Al-Hilal svimandi háa upphæð vegna meiðsla Neymars
Meiðsli brasilíska fótboltamannsins Neymars gætu kostað FIFA 6,5 milljónir punda.

Heimir með HM-drauma í allt öðrum kúltúr: Þú getur ekki breytt öllum í Íslendinga
Heimir Hallgrímsson hefur nú verið eitt ár í starfi sem landsliðsþjálfari Jamaíka. Hann er nú heima á Íslandi áður en hann fer aftur yfir Atlantshafið til að hjálpa jamaíska landsliðinu að tryggja sér sæti í Suður-Ameríkukeppni karla í knattspyrnu.

Neymar: „Versta augnablik ævinnar“
Brasilíska fótboltamanninum Neymar segist aldrei hafa liðið verr en núna.

Neymar fór grátandi af velli þegar Brasilía tapaði fyrir Úrúgvæ
Brasilía tapaði fyrir Úrúgvæ, 2-0, í undankeppni HM 2026 í gær. Til að bæta gráu ofan á svart fór stórstjarnan Neymar meiddur af velli í fyrri hálfleik.

Beckham var þunglyndur og algjörlega niðurbrotinn
David Beckham og eiginkona hans Victoria hafa nú tjáð sig opinberlega um það sem gekk á bak við tjöldin eftir HM í Frakklandi 1998.

Messi og félagar fengu súrefniskúta
Lionel Messi og argentínsku heimsmeistararnir búa sig nú undir leik gegn Bólivíu sem fer fram við afar erfiðar aðstæður.