
Nagladekk

Sektum verður beitt vegna nagladekkja frá og með morgundeginum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tilkynnt á Facebook síðu sinni að frá og með 11. maí, á morgun verði ökumenn á nagladekkjum sektaðir.

Allt að 159 prósenta munur á hæsta og lægsta verði
Yfir 100% munur er á hæsta og lægsta verði á dekkjaskiptum, umfelgun og jafnvægisstillingu hjá 48 fyrirtækjum víðs vegar um landið. Þar sem hann er hlutfallega mestur munar um 159% á verði eða 9.510 krónum.

Skora á borgarstjórn að falla frá áformum um lækkun hámarkshraða
Vörður, fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, mótmælir harðlega áformum meirihluta borgarstjórnar um að lækka hámarkshraða á öllum götum í umsjá borgarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Verði. Fulltrúaráðið heldur því fram að áformin muni að óbreyttu ýta umferðinni frekar inn í íbúðahverfi sem verði til þess að ógna umferðaröryggi allra vegfarenda, líkt og það er orðað í tilkynningunni.

Gætu slegið nokkrar flugur í einu höggi með lægri hámarkshraða
Áform borgaryfirvalda um að lækka hámarkshraða til að útrýma alvarlegum umferðarslysum gæti einnig dregið umtalsvert úr loftmengun. Hagsmunasamtök bíleigenda eru ósátt við áformin en samgönguverkfræðingur segir annað en hámarkshraða ráða meiru um ferðatíma bíla í borginni.

Nagladekkjadagurinn á morgun, ekki sektað strax
Frá og með morgundeginum 15. apríl er notkun negldra hjólbarða óheimil á Íslandi. Þessi regla er þó háð tíðarfari og því undir löggæsluyfirvöldum komið hvenær nákvæmlega er hafist handa við að sekta fyrir notkun slíkra hjólbarða.

Tuð á twitter
Í upphafi kjörtímabils Borgarstjórnar Reykjavíkur var yfirlýsing samþykkt þess efnis að svifryk færi aldrei yfir heilsuverndarmörk. Sú yfirlýsing í byrjun kjörtímabils var góð, metnaðarfull.

„Víðar vegir heldur en hér í Reykjavík“
Samgöngurráðherra segir mikilvægt að vinna gegn svifryki í Reykjavík án þess að skerða umferðaröryggi.

Vill fækka nagladekkjum með gjaldtöku
„Mér finnst það ákveðinn veruleikaflótti hjá þeim sem halda að þetta snúist bara um að borgin geti þrifið göturnar betur og að enginn þurfi að breyta sinni hegðun,“ segir Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar og starfandi formaður umhverfis- og samgöngunráðs Reykjavíkurborgar.

Nagladekk spila langstærstan þátt í myndun svifryks
Greining nýrrar rannsóknar bendir til þess að nagladekkjanotkun spili langstærstan þátt í myndun svifryks frá umferð á höfuðborgarsvæðinu en aðrir áhrifaþættir eru vegyfirborð, umferðarmagn, hraði og þjónusta; söltun og skolun. Ein af niðurstöðum rannsóknarinnar er að draga þurfi verulega úr nagladekkjanotkun.

Svifryksmengun nærri tvöfalt yfir mörkum í borginni í gær
Styrkur svifryks var nærri tvöfalt hærri en heilsuverndarmörk gera ráð fyrir á mælistöð við Grensásveg í gær. Mengun hefur áfram verið viðvarandi í frosti og stillu í borginni í dag þrátt fyrir að borgin hafi látið rykbinda götur. Nagladekk eru sögð vega þungt í svifryksmengun af þessu tagi.

Hlutfall nagladekkja hærra í vetur en síðustu ár
Skýringarnar á því hversu hægt gekk núna að skipta er að leita í COVID 19 en sömu sóttvarnarreglur gilda á dekkjaverkstæðum eins og annars staðar.

Nagladekk margfalda svifryksmengun
Ráðist var í það verkefni að nota svifryk úr Hvalfjarðargöngum til að kanna uppruna umferðartengdar svifryksmengunar. Auðvelt er að nálgast sýni af svifryki í göngunum og utanaðkomandi þættir eins og veður hafa lítil áhrif á samsetningu þess.

Vilja leyfa ferðamönnum að keyra um á nagladekkjum níu mánuði á ári
Samtök ferðaþjónustunnar vilja rýmka heimild til að nota nagladekk á bílaleigubílum af öryggissjónarmiðum. Snýr tillagan að því að reglugerð verði breytt og negldir hjólbarðar verði leyfðir á bílaleigubílum frá 1. september til 31. maí eða þrjá og hálfan mánuð umfram aðra bíla.

Vilja ekki nagladekk
„Auðvitað togast þetta alltaf á, það er öryggismál og umhverfismál,“ segir Guðríður Erla Friðriksdóttir, sviðstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs Akureyrarbæjar.