Hernaður
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 53 ›
Í basli með að senda hlébarða til Úkraínu Úkraínumönnum hefur verið lofað tugum vestrænna skriðdreka á næstu vikum og mánuðum. Minnst fjórir hafa þegar verið sendir til landsins og er verið að þjálfa hermenn á skriðdrekana í nokkrum löndum. Ríki Evrópu eiga þó í basli með að standa við stóru orðin og gengur erfiðlega að finna skriðdreka. Erlent 1.3.2023 15:00
Xi sagður efast um getu Kínverja til að taka Taívan Xi Jinping, forseti Kína, efast um getu kínverska hersins til að hertaka Taívan en þær efasemdir eiga rætur í slæmu gengi Rússa í Úkraínu. Þetta sagði William Burns, yfirmaður Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA), í viðtali í gær. Erlent 27.2.2023 12:17
Ár eyðileggingar og hörmunga Ár er liðið frá því Rússar hófu innrásina í Úkraínu. Á þessum degi í fyrra lýsti Vladimír Pútín, forseti Rússlands, því yfir að Rússar væru að hefja „sértæka hernaðaraðgerð í Úkraínu. Erlent 24.2.2023 06:00
Tók sjálfu yfir njósnabelgnum Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur gert opinbera svokallaða „sjálfu“ (e. selfie) flugmanns sem tekin var fyrir ofan kínverska njósnabelginn sem var skotinn niður á dögunum. Erlent 22.2.2023 23:47
Kokkur Pútíns sakar yfirmenn hersins um landráð Rússneski auðjöfurinn Yevgeny Prigozhin, sem gjarnan er kallaður „kokkur Pútíns“, sakaði Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra, og Valery Gerasimov, formann herforingjaráðs Rússlands og yfirherforingja innrásarinnar í Úkraínu, um að reyna að gera út af málaliðahópinn Wagner Group. Prigozhin sagði Shoigu og Gerasimov vera seka um landráð. Erlent 21.2.2023 13:02
Norður-Kóreumenn skutu eldflaug inn í lofthelgi Japana Norður-Kóreumenn skutu langdrægri eldflaug í hafið við Vesturströnd Japans í morgun. Í gær vöruðu þeir nágranna sína til Suðurs og Bandaríkjamenn við því að þeir myndu bregðast harkalega við æfingum herja þjóðanna tveggja á næstu dögum. Erlent 18.2.2023 11:59
„Davíð sigraði ekki Golíat með orðum“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði í dag öryggisráðstefnuna í München þar sem hann kallaði eftir því að Vesturlönd flýttu vopnasendingum til Úkraínu og útveguðu Úkraínumönnum þau vopn sem þeir þyrftu til að sigra Rússa. Erlent 17.2.2023 15:43
Ítrekar að Úkraínumenn munu ekki gefa eftir land fyrir frið Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir útilokað að Úkraínumenn munu gefa eftir land til Rússa til að koma á friði. Að láta undan myndi aðeins gera það að verkum að Rússar kæmu aftur og vildu meira. Vopn frá Vesturlöndum færðu Úkraínu nær friði. Erlent 17.2.2023 07:50
Nánast allur rússneski herinn sagður í Úkraínu Nærri því allur rússneski herinn, eða um 97 prósent hans, er nú í Úkraínu að sögn varnarmálaráðherra Bretlands. Hann segir Rússa hafa orðið fyrir miklu mannfalli og að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og leiðtogar hersins áttuðu sig ekki á raunveruleikanum og væri sama um það hve marga menn þeir misstu. Erlent 16.2.2023 12:39
Eldflaugum rignir áfram yfir Úkraínu á meðan diplómatar ræða um frið Mikilvægir innviðir skemmdust í Lviv í vesturhluta Úkraínu í morgun, í loftárásum Rússa. Yfirvöld þar sögðu eld hafa kviknað í kjölfarið en greiðlega virðist hafa gengið að slökkva hann. Íbúar hafa verið hvattir til að leita skjóls ef og þegar loftvarnaflautur fara í gang. Erlent 16.2.2023 08:30
Gagnrýndi aðra bakhjarla fyrir hægagang með skriðdreka Boris Pistorius, varnarmálaráðherra Þýskalands, gagnrýndi aðra bakhjarla Úkraínu á fundi í Brussel í gær. Gagnrýnin sneri að því að þeir hefðu um margra vikna skeið þrýst á Þjóðverja um að heimila sendingar Leopard skriðdreka til Úkraínu og í kjölfarið væru þeir sjálfir með hægagang varðandi hergagnaflutninga. Erlent 15.2.2023 14:23
Að minnsta kosti 6.000 börn send í „endurmenntunarbúðir“ í Rússlandi Að minnsta kosti 6.000 börn frá Úkraínu hafa verið send í svokallaðar „endurmenntunarbúðir“ í Rússlandi, með það að markmiði að heilaþvo þau með rússneskum áróðri. Hundruð barna var haldið í búðunum í margar vikur eða mánuði. Erlent 15.2.2023 06:54
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Geta ekki bæði varið Bakhmut og undirbúið gagnárásir Bandaríkjamenn hafa varað ráðamenn í Úkraínu við því að næstu mánuðir verði mikilvægir og að þeir eigi að einbeita sér að undirbúningi gagnárása í vor, frekar en að verja Bakhmut. Úkraínumenn skortir skotfæri og varahluti við varnir gegn umfangsmiklum árásum Rússa, sem hafa litlum árangri skilað hingað til. Erlent 14.2.2023 14:00
Ýmsir kostir við njósnabelgi en vont að vera nappaður Þrátt fyrir að tæknin sé ef til vill gamaldags geta stórþjóðir hagnýtt sér ýmsa kosti loftbelgja til að njósna um keppinauta sína á alþjóðavettvangi. Gallinn er þó sá að það getur verið vont ef upp kemst um njósnabelgina, þar sem ekki sé ólíklegt að það gerist fyrir augum almennings, eins og gerðist yfir Bandaríkjunum á dögunum. Erlent 14.2.2023 11:08
Segja Rússa hafa misst heilt stórfylki við Vuhledar Úkraínumenn segja Rússa hafa misst mikinn fjölda atvinnuhermanna í árásum á bæinn Vuhledar í Dónetsk héraði. Í raun hafi Rússar misst heilt stórfylki (Brigade) landgönguliða í árásum á bæinn en árásirnar hafa litlum sem engum árangri skilað. Erlent 13.2.2023 15:17
Skutu niður óþekktan hlut í fjörutíu þúsund feta hæð yfir Alaska Bandarísk yfirvöld skutu niður óþekktan hlut í um fjörutíu þúsund feta hæð yfir Alaska. Hluturinn er sagður hafa verið á stærð við lítinn bíl. Erlent 10.2.2023 20:18
Loftvarnaflautur hljóma og íbúum um allt land sagt að leita skjóls Loftvarnaflautur hafa hljómað út um alla Úkraínu í morgun og íbúar hvattir til að leita skjóls. Yfirvöld hafa varað við því að Rússar hyggist gera umfangsmiklar loftárásir á landið í dag. Erlent 10.2.2023 08:34
Kokkur Pútíns hættur að ráða fanga í Wagner Yevgeny Prigozhin, eigandi rússneska málaliðahópsins Wagner Group, sagði frá því í dag að hann væri hættur að ráða málaliða úr fangelsum Rússlands. Föngum hefur um nokkurra mánaða skeið boðist að ganga til liðs við Wagner og þjóna í sex mánuði í Úkraínu í skiptum fyrir frelsi. Erlent 9.2.2023 22:34
Komu höndum yfir áætlun um yfirtöku Rússa í Moldóvu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í dag að Úkraínumenn hefðu komist á snoðir um áætlun leyniþjónusta Rússlands sem sneru að því að gera árásir á Moldóvu. Leyniþjónusta Moldóvu hefur staðfest þessar fregnir. Erlent 9.2.2023 20:06
Alræmdur málaliðaforingi skotinn í höfuðið á stuttu færi Hinn alræmdi herforingi og málaliði Igor Mangushev er látinn eftir að hafa verið skotinn í höfuðið af stuttu færi við varðstöð í Kadiivka. Eiginkona hans segir um aftöku að ræða og ýjað hefur verið að því að yfirmaður Wagner-hópsins hafi fyrirskipað morðið. Erlent 9.2.2023 08:58
Mikilvægar vikur í vændum í Úkraínu Ráðamenn í Úkraínu búast við umfangsmiklum árásum Rússa í austurhluta landsins á næstu vikum. Þeir segja Rússa hafa komið tugum og jafnvel hundruð þúsund hermönnum fyrir á svæðinu og þeir séu þegar byrjaðir að reyna að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur með því að senda hermenn fram í bylgjum. Erlent 8.2.2023 23:06
Vilja eigin kjarnorkuvopn af ótta við Norður-Kóreu Sífellt fleiri íbúar Suður-Kóreu eru þeirrar skoðunar að ríkið eigi að koma upp eigin kjarnorkuvopnum, til móts við vopn nágranna þeirra í Norður-Kóreu. Þá efast margir um að ríkið geti reitt sig á að Bandaríkjamenn komi þeim til varnar komi til stríðs á Kóreuskaganum. Erlent 7.2.2023 23:56
Úrvinda hermenn búast við enn harðari átökum Úrvinda úkraínskir hermenn kvarta yfir því að eiga við ofurefli að etja í austurhluta Úkraínu, þrátt fyrir að Rússar hafi ekki enn sent alla þá hermenn sem skikkaðir voru til herþjónustu á víglínurnar. Úkraínskir læknar segja mannfall hafa aukist að undanförnu en hart er barist víða á víglínunum í Úkraínu. Erlent 6.2.2023 22:41
Segir Pútín hafa lofað sér því að láta ekki drepa Selenskí Naftali Bennett, fyrrverandi forsætisráðherra Ísrael, hefur greint frá því að Vladimir Pútín Rússlandsforseti hafi heitið honum því skömmu eftir innrás Rússa í Úkraínu að hann myndi ekki láta drepa Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu. Erlent 6.2.2023 07:36
Norðmenn sinna loftrýmisgæslu við Ísland með öflugustu orrustuflugvélum heims Áttatíu manna norskt herlið auk fjögurra orustuþota af gerðinni F-35 sinna nú loftrýmisgæslu á Íslandi á vegum Atlandshafsbandalagsins. F-35 eru með öflugustu herflugvélum heims en ein slík kostar á bilinu þrettán til fimmtán milljarða íslenskra króna. Innlent 5.2.2023 10:00
Skutu niður njósnabelginn Bandaríkjaher hefur skotið niður loftbelg, sem talinn er vera njósnabelgur frá Kína, utan strönd Suður-Karólínu. Erlent 4.2.2023 19:59
Herflugvélar hringsóla um njósnabelginn Fjórar orrustuþotur hringsóla nú um kínverskan njósnabelg sem svífur skammt utan við Myrtle Beach í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Bandarísk yfirvöld íhuga nú að skjóta belginn niður. Erlent 4.2.2023 18:55
Búast við stórsókn Rússa í lok febrúar Varnarmálaráðherra Úkraínu fullyrðir að Rússar séu að undirbúa nýja stórsókn sem gæti hafist í lok þessa mánaðar eða í kringum 24. febrúar. Erlent 2.2.2023 07:09
Biden segir „nei“ við þotum til handa Úkraínumönnum „Nei,“ svaraði Joe Biden Bandaríkjaforseti einfaldlega þegar hann var spurður að því í Hvíta húsinu í gær hvort Bandaríkjamenn myndu senda F-16 herþotur til Úkraínu. Úkraínumenn kalla nú eftir herþotum eftir að hafa verið lofað skriðdrekum. Erlent 31.1.2023 06:38
Mossad beitti sjálfsprengidrónum í Íran Ísraelar gerðu um helgina drónaárás á skotmörk í borginni Isfahan í Íran. Árásin er sögð hafa verið framkvæmd af leyniþjónustu Ísraels og hafa mögulega beinst gegn eldflaugaframleiðslu Írans. Erlent 30.1.2023 10:29
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent