Spænski boltinn

Í beinni í dag: Manchester liðin í FA bikarnum og stórleikir á Ítalíu
Það verður nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag.

Börsungar töpuðu á Mestalla
Spánarmeistarar Barcelona heimsóttu bikarmeistara Valencia í spænska boltanum í dag. Líkt og í bikarúrslitunum á síðustu leiktíð höfðu Valencia betur, að þessu sinni 2-0.

Í beinni í dag: Enska bikarkeppnin og stórleikur á Hlíðarenda
Tólf viðburðir verða sýndir beint á sportrásum Stöðvar 2 í dag.

Atletico Madrid úr leik eftir óvænt tap
Atletico Madrid tapaði óvænt 2-1 á útivelli gegn Cultural Leonesa í spænska konungsbikarnum í kvöld.

„Af hverju ætti einn besti leikmaður jarðar að fara eitthvað á láni?“
Umboðsmaður Gareth Bale hlær af þeim sögusögnum að skjólstæðingur hans verði lánaðar frá Real Madrid á þessu tímabili.

Ronaldo skoraði í fjórða leiknum í röð | Griezmann bjargaði Barcelona gegn Ibiza
Stóru liðin voru á ferðinni í ítölsku og spænsku bikarkeppninni í kvöld.

Kylian Mbappe er hrifinn af Liverpool liðinu
Kylian Mbappe, framherji franska stórliðsins Paris Saint Germain og lykilmaður í heimsmeistaraliði Frakka, líkir Liverpool liðinu við vél í nýju viðtali við breska ríkisútvarpið.

Sportpakkinn: 27 mínútur á milli sigurmarka Messi og Ronaldo í gær
Knattspyrnusnillingarnir Lionel Messi og Cristiano Ronaldo voru enn á ný á skotskónum með liðum sínum í gær og þeir skoruðu báðir sigurmarkið og það með stuttu millibili. Guðjón Guðmundsson skoðaði sigurleiki Juventus og Barcelona í gær.

Ronaldo fór á mikið flug eftir að Messi fékk Gullboltann
Cristiano Ronaldo var frekar rólegur framan af tímabili með Juventus en frammistaða hans í síðustu leikjum hefur verið hreinlega mögnuð. Það lítur út fyrir að verðlaunahátíð í byrjun desember hafi eitthvað með þetta að gera.

Lionel Messi tryggði Börsungum sigur í fyrsta leik Quique Setién
Quique Setién getur þakkað Lionel Messi fyrir sigur í sínum fyrsta leik sem þjálfari Barcelona. Messi skoraði eina markið í 1-0 sigri liðsins gegn Granada á Camp Nou.

Í beinni í dag: Hvaða lið komast í Super Bowl?
Það verður nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag.

Tvö mörk frá Casemiro komu Real Madrid á toppinn
Real Madrid er komið á topp spænsku úrvalsdeildarinnar eftir sigur á Sevilla.

Í beinni í dag: Toppslagur í Garðabænum, ítalski, spænski og golf
Tíu viðburðir verða sýndir beint á sportrásum Stöðvar 2 í dag.

Hjartnæm kveðja Messi til Valverde
Lionel Messi sendi Ernesto Valverde, fyrrum stjóra Barcelona, kveðju í gær eftir að hann var rekinn frá félaginu fyrr í vikunni.

Tapaði einungis ellefu prósent af leikjunum sem hann stýrði en var samt rekinn
Tapið gegn Liverpool svíður enn í augum stuðningsmanna Barcelona.

Segir að nú muni Barcelona spila aftur „Barca fótbolta“
Barcelona skipti um þjálfara í gær, rak Ernesto Valverde og réði í staðinn hinn 61 árs gamla Quique Setien.

Maður leiksins fyrir að tækla Morata er hann var sloppinn einn í gegn
Real Madrid vann í gær Ofurbikarinn í spænska boltanum eftir að hafa haft betur gegn grönnum sínum í Atletico Madrid í vítaspyrnukeppni.

Valverde rekinn frá Barcelona og Setién tekur við
Barcelona hefur skipt um knattspyrnustjóra.

Segja Xavi hafa hafnað Barcelona og nú vilji þeir Pochettino
Ernesto Valverde, stjóri Barcelona, er undir gífurlegri pressu og ekki er ólíklegt að hann verði rekinn á næstu dögum.

Real Madrid unnið alla úrslitaleikina undir stjórn Zidane
Real Madrid vann spænska ofurbikarinn eftir sigur á Atlético Madrid í vítaspyrnukeppni.

Suarez frá í fjóra mánuði eftir aðgerð á hné
Úrugvæski markahrókurinn Luis Suarez mun líklega ekki spila meira á þessari leiktíð.

Xavi að yfirgefa Katar fyrir Barcelona?
Margt þykir benda til þess að Barcelona goðsögnin Xavi verði næsti þjálfari liðsins.

Endurkomusigur Atletico Madrid á Barcelona í VAR-leik
Það verður Madrídarslagur í úrslitaleik spænska Ofurbikarsins eftir að Atletico Madrid vann 3-2 sigur á Barcelona í síðari undanúrslitaleiknum í dag.

„Fótboltinn er orðinn viðskiptagrein og það er ástæðan fyrir því að við erum hér“
Ernesto Valverde, stjóri Barcelona, virðist ekki vera sáttur með að Ofurbikarinn á Spáni fari fram í Sádi-Arabíu.

Real komið í úrslit
Real Madrid er komið í úrslitaleik Ofurbikarsins í spænska boltanum en keppnin fer fram í Sádi-Arabíu.

Segja að spænska sambandið fái 5,5 milljarða fyrir að spila Ofurbikarinn í Sádí Arabíu
Spænski Ofurbikarnn, Super Cup, sem er meistarakeppni spænska fótboltans fer fram með breyttu sniði í ár en nú taka fjögur félög þátt og keppnin fer líka fram langt í burtu frá Spáni.

Segist hafa verið beittur fjárkúgun en var settur í bann: „Ég er fórnarlamb glæps“
Spænska knattspyrnufélagið Málaga hefur sett þjálfara sinn Victor Sanchez í bann eftir að vafasamt myndband með honum birtist á samfélagsmiðlum.

Ronaldo komst ekki í lið ársins hjá FIFA 20 en þar eru fimm Liverpool menn
Cristiano Ronaldo er ekki vinsæll meðal þeirra sem spila FIFA tölvuleikinn en allt aðra sögu er að segja af leikmönnum Evrópu- og heimsmeistara Liverpool.

Í beinni í dag: Barist um Bítlaborgina
14 íþróttaviðburðir í þráðbeinni útsendingu á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag.

Jafnt í borgarslagnum í Barcelona
Barcelona endurheimti toppsætið í spænsku úrvalsdeildinni með því að gera jafntefli við granna sína í Espanyol.