Spænski boltinn
252 253 254 255 256 257 258 259 260 … 266 ›
Morientes ekki orðinn leikmaður Valencia Yfirmaður knattspyrnumála hjá Valencia tók það fram í dag að þó félagið hefði náð samkomulagi við Liverpool um kaup á spænska framherjanum Fernando Morientes, sé hann ekki orðinn leikmaður Valencia ennþá, því enn sé nokkuð í land með að semja um kaup og kjör við leikmanninn sjálfan. Sport 26.5.2006 15:09
Pires semur við Villarreal Franski miðjumaðurinn Robert Pires hjá Arsenal hefur gert tveggja ára samning við spænska liðið Villarreal. Pires hefur verið hjá Arsenal í sex ár, en hann var með lausa samninga í sumar og komst ekki að samkomulagi við forráðamenn Arsenal um nýjan samning. Sport 25.5.2006 15:21
Ákveður sig eftir HM Bakvörðurinn magnaði Roberto Carlos hjá Real Madrid segist ekki ætla að taka ákvörðun um framtíð sína fyrr en að loknu heimsmeistaramóti í sumar, en hinn 33 ára gamli Carlos á í samningaviðræðum við Real Madrid um að framlengja samning sinn við félagið. Chelsea hefur þegar gert tilboð í kappann og segir hann fjárhagslegan ávinning ekki spila inn í ákvörðun sína, heldur ætli hann að skoða hve lengi hann vill spila í viðbót. Sport 24.5.2006 16:35
Laudrup hættir hjá Bröndby Danska knattspyrnugoðsögnin Michael Laudrup tilkynnti í dag að hann muni ekki framlengja samning sinn sem knattspyrnustjóri danska liðsins Bröndby. Þessi tíðindi hafa nú kynt undir þrálátan orðróm sem uppi hefur verið í Danmörku undanfarna mánuði þess efnis að Laudrup sé að fara að taka við spænska stórliðinu Real Madrid. Fótbolti 21.5.2006 21:31
Ég á meiri virðingu skilið en að komið sé fram við mig eins og skít Frönsku knattspyrnumennirnir Ludovic Giuly og Nicolas Anelka eru afar óhressir með framkomu franska landsliðsþjálfarans Raymond Domenech í sinn garð en hann valdi hvorugan þeirra í landsliðshópinn fyrir HM sem fer fram í Þýskalandi í næsta mánuði. Sport 21.5.2006 16:34
Etoo markakóngur á Spáni Kamerúninn Samúel Etoo varð markakóngurinn í spænska fótboltanum. Evrópu og Spánarmeistarar Barcelona máttu þola ósigur, 3-1 fyrir Athletic Bilbao í síðasta leiknum í spænsku úrvalsdeildinni. Sport 21.5.2006 14:31
Fer til Villarreal í næstu viku Fernando Roig, forseti spænska knattspyrnufélagsins Villarreal, hélt því fram í sjónvarpsviðtali að franski leikmaðurinn Robert Pires hjá Arsenal myndi ganga í raðir Villarreal í næstu viku. Sport 17.5.2006 14:23
Real hélt öðru sætinu þrátt fyrir tap Real Madrid tryggði sér í kvöld annað sætið í spænsku deildinni í knattspyrnu þrátt fyrir 4-3 tap fyrir Sevilla á útivelli í frábærum leik sem sýndur var beint á Sýn. Franski miðjumaðurinn Zinedine Zidane spilaði sinn síðasta leik fyrir Real í kvöld og skoraði mark, en það nægði liðinu ekki til sigurs. Sport 16.5.2006 21:16
Flugeldasýning í Sevilla Leikur Sevilla og Real Madrid í lokaumferð spænsku deildarinnar í kvöld hefur svo sannarlega staðið undir væntingum, en sex mörk eru þegar komin í fyrri hálfleik. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. Sport 16.5.2006 19:38
Sevilla - Real Madrid í beinni Nú er ný hafinn leikur Sevilla og Real Madrid í lokaumferð spænsku deildarinnar og er hann í beinni útsendingu á Sýn. Real Madrid verður að vinna í kvöld til að tryggja sér annað sætið í deildinni og þar með öruggt sæti í meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Sport 16.5.2006 19:00
Nýr forseti kosinn 2. júlí Spænska knattspyrnufélagið Real Madrid tilkynnti í dag að nýr forseti yrði kjörinn þann 2. júlí næstkomandi, en mikil upplausn hefur verið í herbúðum liðsins á leiktíðinni. Real getur tryggt sér öruggt sæti í meistaradeildinni með sigri í lokaleik sínum í deildinni gegn Evrópumeisturum félagsliða í Sevilla. Real hefur nú ekki unnið titil í þrjú ár, sem er lengsta gúrkutíð í sögu félagsins. Sport 11.5.2006 20:44
Ronaldo sáttur við að vera áfram Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid segist vel geta hugsað sér að vera áfram í herbúðum félagsins á næsta tímabili, en talið var víst að hann yrði jafnvel seldur í sumar. Ronaldo segir hlutina væntanlega koma betur í ljóst eftir HM í sumar og þá þegar nýr forseti hefur verið kosinn hjá spænska liðinu. Sport 10.5.2006 22:32
Engar auglýsingar á búningum Barcelona Spænska knattspyrnustórveldið Barcelona ætlar að halda í gamlar hefðir sínar og bera ekki auglýsingu styrktaraðila framan á treyju sinni á næstu leiktíð. Barcelona er eina stórliðið í Evrópu sem ekki ber auglýsingar á treyjunum, en þó samningaviðræður við hugsanlega stuðningsaðila hafi staðið yfir undanfarið, var ákveðið að bakka út úr þeim. Sport 9.5.2006 15:01
Barcelona spænskur meistari Barcelona varð í kvöld spænskur meistari í knattspyrnu annað árið í röð eftir að helstu keppinautar liðsins, Valencia, tapaði óvænt 2-1 fyrir Real Mallorca á útivelli. Nú stendur yfir leikur Celta de Vigo og Barcelona og staðan í hálfleik er 0-0. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Sport 3.5.2006 19:58
Real Madrid lagði Osasuna Real Madrid styrkti stöðu sína í efri hluta spænsku úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið vann mikilvægan útisigur á Osasuna 1-0. Það var Brasilíumaðurinn Julio Baptista sem skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiksins, en Iker Casillas var vikið af leikvelli með sitt annað gula spjald 10 mínútum fyrir leikslok. Sport 30.4.2006 21:09
Reiknar með að Henry til Barcelona Ludovic Giuly, leikmaður Barcelona og fyrrum félagi Thierry Henry hjá Monaco í Frakklandi, segist viss um að Henry gangi til liðs við spænsku meistarana í sumar. Henry ætlar að tilkynna um ákvörðun sína áður en HM hefst í sumar, en Giuly segist oft tala við hann í síma og sagði í samtali við bresku pressuna að sér þætti afar líklegt að Henry færi til Spánar þar sem mikill áhugi væri fyrir að fá hann. Sport 30.4.2006 20:10
Barca verður að bíða lengur Liðsmenn Valencia voru ekki á þeim buxunum að gefa Barcelona færi á því að landa deildarmeistaratitlinum í dag og tryggðu það að sigurhátíð Katalóníumannanna verður ekki strax með öruggum 3-0 sigri á botnliði Alaves á heimavelli sínum Mestalla. Barcelona hefur nú 8 stiga forskot á toppnum þegar þrjár umferðir eru eftir og getur tryggt sér titilinn með sigri á Celta á miðvikudaginn. Sport 30.4.2006 20:03
Osasuna - Real Madrid í beinni Leikur Osasuna og Real Madrid verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn nú klukkan 18:50, en þar er baráttan um annað sætið í spænsku deildinni í hámarki. Real Madrid hefur valdið nokkrum vonbrigðum í vetur, á meðan Osasuna hefur verið spútniklið ársins. Sport 30.4.2006 18:41
Barcelona lagði Cadiz Barcelona vann í kvöld tilþrifalítinn 1-0 sigur á botnliði Cadiz í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og er nú aðeins hársbreidd frá því að tryggja sér annan meistaratitilinn í röð. Það var snillingurinn Ronaldinho sem skoraði eina mark Barcelona á 9. mínútu leiksins sem sýndur var í beinni útsendingu á Sýn og ef Valencia verður á í messunni á morgun er Barcelona orðið meistari. Sport 29.4.2006 22:07
Barcelona - Cadiz í beinni Nú klukkan 19:50 hefst leikur Barcelona og Cadiz í spænska boltanum og er hann sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Börsungar geta með sigri í kvöld farið ansi langt með að verja deildarmeistaratitil sinn, en eiga erfitt verkefni fyrir höndum gegn Cadiz sem er í fallbaráttunni og hefur ekki tapað í þremur leikjum í röð. Barcelona getur tryggt sér titilinn á morgun ef Valencia verður á í messunni í sinni viðureign við fallkandidata Alaves. Sport 29.4.2006 19:48
Forsetinn sagði af sér Fernando Martin sagði af sér sem forseti Real Madrid eftir stjórnarfund í gærkvöldi eftir að í ljós kom að hann naut ekki stuðnings stjórnarinnar. Martin tók við í lok febrúar þegar Florentino Perez sagði af sér og hefur aflað sér takmarkaðra vinsælda með störf sín síðan. Það verður hinn 83 ára gamli Luis Gomez-Montejano sem tekur við stöðunni í stað Martin fram í júní þegar kosið verður aftur. Sport 27.4.2006 04:45
Leggur skóna á hilluna eftir HM Franski miðjumaðurinn Zinedine Zidane hjá Real Madrid staðfesti í samtali við Canal+ í dag að hann ætli að leggja knattspyrnuskóna á hilluna eftir heimsmeistaramótið í Þýskalandi í sumar. Hinn 33ja ára gamli Zidane hefur átt við þrálát meiðsli að stríða í allan vetur og ætlar að láta HM verða sitt síðasta verkefni, þar sem hann fer fyrir sterku liði Frakka. Sport 25.4.2006 18:07
Leik Sevilla og Barcelona frestað Leik Sevilla og Barcelona í spænsku deildinni sem fram átti að fara í kvöld hefur verið frestað vegna vatnselgs á vellinum. Mikil rekistefna var á vellinum í Sevilla í meira en klukkutíma á meðan verið var að ákveða hvort leikurinn ætti að fara fram. Sport 23.4.2006 20:06
Real náðu að bjarga andlitinu Real Madrid rétt náðu að bjarga andlitinu á heimavelli á móti botnliði Malaga með marki frá Sergio Ramos á 90. mínútu. Malaga komst yfir snemma leiks með marki frá Bovio og héldu þeirri forystu allt fram á 67. mínútu þrátt fyrir mikla pressu frá Madrid. Þá skoraði Zidane úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Raúl innan teigs. Madrid fengu fjölmörg færi til að gera út um leikinn en Arnau í marki Malaga átti stórleik. Sergio Ramos náði hinsvegar að skalla í netið hjá Arnau undir lokin og fagnaði hann vel og innilega. Enginn meistarabragur var á stjörnum prýddu liði Madridinga í dag. Sport 23.4.2006 18:54
David Villa með þrennu fyrir Valencia David Villa skoraði öll mörkin í 3-0 útisigri Valencia á böskunum í Athletic Bilbao í spænska boltanum í dag. Valencia treysti þar með stöðu sína í öðru sæti deildarinnar. Espanyol vann Real Betis 2-0 þrátt fyrir að Raúl Tamudo tækist að klúðra tveimur vítum í leiknum. Osasuna vann Mallorca 1-0 á útivelli, Getafe vann Racing Santander 3-1, sömuleiðis á útivelli og Cádiz og Deportivo gerðu 1-1 jafntefli. Sport 23.4.2006 17:36
Real Madrid er að hrynja til grunna Ramon Calderon, framkvæmdastjóri Real Madrid, vandar settum forseta félagsins ekki kveðjurnar í nýlegu viðtali og segir félagið vera að hrynja. Hann segir forseta félagsins ekki starfi sínu vaxinn og bendir á að áríðandi sé að nýr forseti verði kjörinn sem fyrst og þá af yfirlögðu ráði af stjórn félagsins. Sport 20.4.2006 17:11
Real hefur augastað á Steven Gerrard Benito Floro, yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid, hefur gefið út að Steven Gerrard fyrirliði Liverpool sé einn þeirra leikmanna sem félagið ætli sér að reyna að kaupa í sumar. Gerrard skrifaði sem kunnugt er undir nýjan samning við Liverpool síðasta sumar, en nú hefur Floro gefið það út að hann og brasilíski framherjinn Adriano hjá Inter séu þeir leikmenn sem efstir séu á óskalista spænska félagsins. Sport 19.4.2006 17:21
Real niður í fjórða sætið Stórlið Real Madrid er komið niður í fjórða sætið í spænsku úrvalsdeildinni eftir leiki dagsins. Helstu keppinautar Real um Meistaradeildarsætið, Osasuna og Valencia, héldu sínu striki um helgina - en Real varða að láta sér nægja jafntefli gegn spútnikliði Getafe í kvöld. Það var Julio Baptista sem kom Real yfir í leiknum sem sýndur var á Sýn, en heimamenn jöfnuðu metin undir lokin. Sport 16.4.2006 18:51
Barcelona með aðra höndina á titlinum Barcelona hélt sínu striki í titilvörninni á Spáni með góðum 1-0 sigri á Villareal í gær og hefur því 14 stiga forystu á Valencia og Real Madrid, sem þó eiga leik til góða. Aðeins fimm umferðir eru eftir í spænsku úrvalsdeildinni. Það var Kamerúninn Samuel Eto´o sem skoraði sigurmark Barcelona á 11. mínútu leiksins í gær, hans 24. í vetur. Sport 15.4.2006 08:27
Óvæntur stórsigur Espanyol Espanyol varð í kvöld spænskur bikarmeistari eftir að liðið vann stórsigur á Real Zaragoza 4-1 á Santiago Bernabeu vellinum í Madrid. Espanyol komst yfir strax á annari mínútu leiksins og sigur liðsins var í raun aldrei í hættu eftir það, þó ekki hefði liðið áberandi yfirburði á vellinum. Sigurinn tryggir Espanyol sæti í Evrópukeppni félagsliða á næstu leiktíð. Leikurinn var sýndur beint á Sýn Extra. Sport 12.4.2006 21:48