Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Elskar að djamma en fær ekki að djamma
Álfgrímur Aðalsteinsson hefur gert gott mót á samfélagsmiðlinum TikTok undanfarið. Þar er hann með um 11 þúsund fylgjendur og hafa vinsældir hans farið sívaxandi undanfarið. Hann hefur nú gefið út lag, sérstaklega tileinkað djamminu, sem hann fær þó ekki að stunda af eins miklum móði og hann hefði sjálfur viljað.

Óttast um þátttöku í mikilvægri klíniskri tilraun og vilja bólusetningu sem fyrst
Foreldrar ellefu ára gamals drengs með Duchenne-sjúkdóminn hafa kallað eftir því að hann fái bólusetningu gegn Covid-19 hér á landi svo hann komist sem fyrst til Kanada, til þess að þátttaka þeirra í klíniskri tilraun á lyfi sem þau segja að hafi stórbætt lífsgæði drengsins og bróður hans, sem einnig er með Duchenne, sé ekki í hættu. Málið er í skoðun hjá sóttvarnaryfirvöldum.

Stytta einangrun bólusettra niður í 10 daga
Sóttvarnalæknir hefur tekið ákvörðun um að stytta einangrunartíma þeirra sem hafa smitast af Covid-19 ef þeir eru bólusettir og geta talist til „hraustra einstaklinga“. Þeir verða framvegis aðeins að vera í einangrun í tíu daga en ekki tvær vikur eins og hefur verið hingað til.

Sjúklingur á krabbameinsdeild fékk falska niðurstöðu
Sjúklingur og starfsmaður á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítala sem greindust með Covid-19 í fyrradag eru lausir úr einangrun eftir að neikvæð niðurstaða kom úr seinni sýnatöku.

Ætla að rannsaka áhrif Covid-19 bóluefna á tíðahring kvenna
Til stendur að hefja rannsókn á áhrifum bóluefna gegn Covid-19 á tíðahring kvenna hér á landi. Rannsóknin verður unnin undir forystu Lyfjastofnunar og í samvinnu við landlækni og sóttvarnalækni.

Delta-afbrigðið jafn smitandi og hlaupabóla
Delta-afbrigði kórónuveirunnar virðist vera meira smitandi en veirurnar sem valda venjulegu kvefi, árlegum flensum, ebólu og MERS-sjúkdómnum, að mati Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna (CDC). Talið er að delta-afbrigðið sé eins smitandi og hlaupabóla, sem er afar smitandi sjúkdómur.

„Það er grátið heima hjá mér“
Eyjamenn reyna ekki að leyna því að frestun á Þjóðhátíð er gríðarlegur skellur, ekki bara fjárhagslega heldur ekki síður tilfinningalega.

„Við eigum að halda áfram að njóta góðs af því að vera vel bólusett“
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins segir lítið meðalhóf felast í að ráðast í harðar aðgerðir á meðan lítill hluti bólusettra veikist alvarlega af Covid-19. Ljóst væri að án bólusetninga væri staðan allt önnur hér á landi.

Covid-smitaðir fá ekki pláss í einangrun
Farsóttarhús hins opinbera eru sprungin og Covid-smitaðir komast ekki að, á sama tíma og fjöldi ferðamanna dvelur í sóttkví en ekki einangrun. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir að þar gæti komið til álita að hefja gjaldtöku fyrir sóttkvíardvöl, enda myndi það létta álagið á húsunum.

Vona að þriðji skammtur Pfizer hefti útbreiðsluna
Ísraelsmenn munu byrja að gefa þriðja skammt af bóluefni Pfizer til allra þeirra sem eru sextíu ára og eldri næsta sunnudag. Vonast er til að með þriðja skammtinum náist enn betri vörn gegn delta-afbrigði veirunnar og þannig verði hægt að stöðva útbreiðslu faraldursins í landinu, sem hefur verið að ná sér aftur á strik.

Metfjöldi greindist í fyrradag
Nú liggur fyrir endanleg tala þeirra sem greindust með kórónuveiruna innanlands í fyrradag, 129 manns. Er það mesti fjöldi sem greinst hefur á einum degi hér á landi. Fyrra met nýgreindra var 123, en sá fjöldi greindist á mánudag og aftur á þriðjudag.

112 greindust innanlands
Í gær greindust 112 einstaklingar innanlands með Covid-19. Þar af voru 35 óbólusettir og tveir hálfbólusettir. 73 voru fullbólusettir. Áttatíu voru utan sóttkvíar við greiningu.

Útvíkka neyðarráðstafanir í Tókýó
Stjórnvöld í Japan hafa ákveðið að útvíkka neyðarráðstafanir í Tókýó vegna kórónuveirufaraldursins til nágrannabyggðarlaga vegna mikillar fjölgunar smitaðra að undanförnu.

Starfsmaður á hjúkrunarheimilinu Ási greindist smitaður
Starfsmaður á hjúkrunarheimilinu Ási í Hveragerði hefur greinst smitaður af kórónuveirunni. Starfsmaðurinn var síðast í vinnu á miðvikudag.

Senda hermenn til að framfylgja útgöngubanni í Sydney
Áströlsk stjórnvöld hafa ákveðið að senda hundruð hermanna til Sydneyborgar til að aðstoða lögreglu við að framfylgja útgöngubanni í borginni vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.

Nýtt upphaf í miðjum heimsfaraldri?
Eftir verslunarmannahelgi fara margir að hugsa til haustsins. Fólk snýr aftur til vinnu, það fer að verða kertaljósahæft og rútínan tekur aftur yfir. Sumir leikskólar opna að nýju eftir sumarfrí í þeirri viku og undirbúningur grunnskólanna er að hefjast.

Aflétta einangrunarskyldu fyrir Covid-smitaða
Íbúar Alberta fylkis í Kanada sem greinast smitaðir af Covid-19 munu ekki þurfa að fara í einangrun eftir að þeir greinast. Þetta tilkynnti yfirmaður heilbrigðismála í fylkinu í gær en breytingarnar taka gildi eftir tæpar þrjár vikur.

Örfáum án Covid-prófs vísað frá hjá Play í dag
Örfáum hefur verið vísað frá flugi á vegum flugfélagsins Play í dag, þar sem þeir gátu hvorki sýnt fram á PCR-próf né antigen hraðpróf við Covid við innritun.

Stærsta bylgja faraldursins í aðsigi
Hlutfall bólusettra sem veikjast alvarlega eftir að hafa smitast af kórónuveirunni er það sama hér á landi og í Ísrael eða eitt prósent. 122 greindust smitaðir af veirunni innanlands í gær, þar af einn sem lá á krabbameinslækningadeild Landspítalans auk tveggja starfsmanna. Deildinni hefur verið lokað tímabundið fyrir innlögnum á meðan allir sjúklingar og starfsfólk bíða eftir niðurstöðum skimunar.

Hundrað þúsund króna sekt skili ferðamenn ekki neikvæðu prófi fyrir komu
Ferðamenn sem eru á leið til Íslands geta átt von á 100 þúsund króna sekt við komuna til landsins skili þeir ekki inn neikvæðu PCR-prófi eða antigen hraðprófi þegar farið er um borð í flugvél eða skip.

Hátt í 800 konur hafa fundið fyrir breytingum á tíðarhring eftir bólusetningu
Rebekka Ósk Sváfnisdóttir stofnaði nýlega hóp á Facebook fyrir konur sem hafa fundið fyrir aukaverkunum tengdum tíðarhringnum í kjölfar bólusetningar við Covid-19. Rebekka hafði sjálf fundið fyrir miklum einkennum en hún var á blæðingum í 53 sólarhringa í kjölfar bólusetningarinnar.

Mikael greindist með Covid-19
Mikael Anderson, landsliðsmaður Íslands í fótbolta, var ekki í leikmannahópi liðs síns Midtjylland er það mætti Celtic í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í gærkvöld. Danska félagið hefur tilkynnt um að það sé vegna þess að Mikael hafi smitast af kórónuveirunni.

Hafnar því alfarið að hafa verið með óspektir við bólusetningaröðina
Lögregla var í morgun kölluð til vegna mótmæla konu við Heilsugæslustöð Reykjavíkur við Suðurlandsbraut því að verið væri að bólusetja þungaðar konur. Sú kona heitir Sólveig Lilja Óskarsdóttir og hún segir enga kæru liggja fyrir á hendur sér.

Þröngt á deildinni eins og annars staðar á spítalanum
Blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítalans við Hringbraut hefur verið lokað tímabundið fyrir innlögnum á meðan allir sjúklingar og starfsfólk deildarinnar bíða eftir niðurstöðum skimunar. Þrír hafa greinst smitaðir á deildinni, einn sjúklingur og tveir starfsmenn.

Kennarar sem fengu Janssen fá örvunarskammt
Að tillögu sóttvarnalæknis er öllum kennurum og starfsmönnum skóla sem fengu Janssen bólusetningu í vor boðinn örvunarskammtur með bóluefni frá Pfizer í næstu viku og vikunni þar á eftir.

Sjúklingur á krabbameinsdeild er smitaður
Sjúklingur sem er inniliggjandi á blóð- og krabbameinslækningadeild 11EG á Landspítalanum greindist óvænt með Covid-19 smit í gær. Tveir starfsmenn deildarinnar eru einnig smitaðir.

„Ekki jafn hræðilegt og við héldum fyrir viku“
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, virðist heilt yfir ekki hafa teljandi áhyggjur af því að Ísland sé komið á lista yfir appelsínugul ríki á litakorti Sóttvarnarstofnunar Evrópu.

Misvísandi skilaboð frá ferðaþjónustunni valda furðu
Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, taldi fyrir fáeinum dögum það öllu skipta að Ísland yrði ekki rautt en nú er skiptir það engu máli.

Ný bóluefni gegn delta eru okkar helsta von
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, segir óvíst hvort og þá hvenær hægt verði að líta kórónuveiruna sömu augum og venjulega inflúensuveiru, eins og menn höfðu vonast eftir að yrði staðan eftir að bólusetningum hjá meirihluta þjóðarinnar væri lokið.

Inga Sæland krefst þess að Alþingi komi saman vegna faraldursins
Inga Sæland formaður Flokks fólksins krefst þess að Alþingi verði þegar kallað saman vegna þeirrar stöðu sem komin er upp í kórónuveirufaraldrinum. Neyðarástand ríki í samfélaginu og styrkja þurfi sóttvarnaráðstafanir og heilbrigðiskerfið.