Íslendingar erlendis

Fréttamynd

„Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“

Áhrifavaldurinn og verkfræðingurinn Katrín Edda er dugleg að ögra sjálfri sér og hvetur fylgjendur sína til slíks hins sama. Katrín Edda er stödd í austurrísku ölpunum þar sem hún er að læra á skíði og þrátt fyrir blóð og meiðsli heldur hún ótrauð áfram.

Lífið
Fréttamynd

Ís­lenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef

Íslenskt par í Kaupmannahöfn bjó nýverið til leikjavefinn Morgunstund.net vegna eigin leikjaáhuga. Þar er hægt að spila fréttaleik þar sem maður giskar á ártal dagblaða og leik þar sem maður finnur tengingar milli ólíkra orða. Til stendur að bæta fleiri leikjum við.

Lífið
Fréttamynd

Lauf­ey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun

Laufey Lín Jónsdóttir hlaut sín önnur Grammy-verðlaun í kvöld. Breiðskífa hennar A Matter of Time var verðlaunuð í flokki hefðbundinna poppplatna. Hún hlaut verðlaun í sama flokki árið 2024.

Lífið
Fréttamynd

Ís­lenskur tón­listar­maður í lykil­hlut­verki

Samstarf sem hófst í Reykjavík varð kveikjan að endurkomu einnar þekktustu jaðarrokkhljómsveitar Bretlands, Arcane Roots. Þar er íslenski tónlistarmaðurinn Bjarni Biering í lykilhlutverki en blaðamaður tók púlsinn á honum og hljómsveitinni.

Tónlist
Fréttamynd

Ævin­týri á slóðum Vestur­fara

Ég fékk þann heiður að fara sem einskonar sendiherra Snorra-verkefnisins til Manitoba í Kanada síðasta sumar. Snorraverkefnið, í nánu samstarfi við ÞFÍ, leitast við að styrkja tengslin á milli Íslendinga og Vestur-Íslendinga með ferðum fyrir ungt fólk þar sem það fær að kynnast sögunni og mynda tengsl við ættingja.

Skoðun
Fréttamynd

Hlín á láni til Fiorentina

Íslenska landsliðskonan í fótbolta, Hlín Eiríksdóttir, hefur verið lánuð í ítölsku úrvalsdeildina frá enska liðinu Leicester City út yfirstandandi tímabil þar sem hún mun spila fyrir lið Fiorentina.

Fótbolti
Fréttamynd

Robyn í hönnun Sólar Hansdóttur

Sænska súperstjarnan Robyn er með rosalega endurkomu inn í tónlistarheiminn um þessar mundir með splunkunýrri plötu sem nýtur mikilla vinsælda. Robyn er mikill tískuspegúlant og hefur greinilega frábæran smekk en hún rokkaði bol frá íslenska hönnuðinum Sól Hansdóttur á dögunum.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

For­ritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu

Íris E. Gísladóttir og Mathieu Grettir Skúlason eru liðlega þrítug og dvelja þessi misserin í París ásamt börnum sínum tveimur, þeim Evu 13 ára og Eric 4 ára. Ekki bara af því að þeim finnst frönsku vínin svo ljúffeng eða croissanturnar svo kræsilegar heldur var það samdóma niðurstaða fjölskyldunnar að í París gætu þau lifað betra lífi sem frumkvöðlar en á Íslandi.

Lífið
Fréttamynd

Þrír fullir Ís­lendingar lausir úr haldi

Sænska lögreglan hafði afskipti af þremur íslenskum karlmönnum fyrir drykkjulæti í Kristianstad í Svíþjóð á laugardaginn var. Mennirnir voru í haldi lögreglu í nokkrar klukkustundir en voru síðan látnir lausir. Þetta staðfestir upplýsingafulltrúi lögreglunnar í Kristianstad í samtali við Vísi.

Innlent
Fréttamynd

Eldri bróðir lagði línur að lífinu í New York

„Ég hélt alltaf að það væri einhver leikþáttur hjá kananum að vera svona „næs“ en það kom mér á óvart að hann er yfirleitt einlægt bara svona,“ segir forritarinn Árni Freyr Magnússon sem flutti til New York til að fara í meistaranám við hinn virta háskóla Columbia. Í kjölfarið fékk hann vinnu hjá sprotafyrirtæki í Brooklyn og þá var ekki aftur snúið.

Lífið
Fréttamynd

Krútteyjurnar Ischia og Sikil­ey: Ástu leist ekki á einnar evru húsin

Ásta Sigurðardóttir ævintýrakona fór fyrir fáeinum árum til Sikileyjar til að skoða einnar evru hús, en endaði á því að kaupa sér ekki hús á eina evru. Enda sá hún fram á að það yrði á endanum dýrara og tímafrekara að gera einnar evru hús íbúðarhæft, heldur en að kaupa dýrari eign. Sem hún gerði og hefur nú gert upp stórt hús í hjarta Salemi, sem er fjallaþorp á miðri Sikiley.

Lífið
Fréttamynd

Stór mis­tök Al­freðs reyndust Þjóð­verjum dýr­keypt

Alfreð Gíslason og lærisveinar hans í þýska landsliðinu í handbolta þurftu að sætta sig við svekkjandi tap gegn Serbum á EM í handbolta í kvöld. Á ögurstundu gerði Alfreð mistök sem reyndust Þjóðverjum dýrkeypt. 30-27 urðu lokatölurnar, þriggja marka sigur Serbíu.

Handbolti
Fréttamynd

Átta ís­lensk mörk í svekkjandi tapi

Átta íslensk mörk litu dagsins ljós þegar að Íslendingalið Blomberg Lippe laut í lægra haldi gegn Esztergomi í Evrópudeildinni í handbolta. Lokatölur 33-32 sigur Esztergomi.

Handbolti
Fréttamynd

Elvar öflugur í mikil­vægum sigri

Íslenski landsliðsmaðurinn í körfubolta, Elvar Már Friðriksson, átti öflugan leik fyrir Anwil Wloclawek þegar að liðið hafði betur gegn Górnik Walbrzych í pólsku deildinni í dag. Loktaölur 86-61 sigur Anwil.

Körfubolti
Fréttamynd

Ragn­heiður fékk heila­blóð­fall á Spáni

Leikkonan Ragnheiður Steindórsdóttir fékk heilablóðfall á Spáni milli jóla og nýárs og hefur legið á spítala í Málaga síðan. Hún kemur heim til Íslands í læknisfylgd í dag og hefur í kjölfarið endurhæfingu.

Lífið
Fréttamynd

„Besti tími lífs míns hingað til“

„Ef maður hóar góðu fólki saman með nóg af góðum mat og góðum drykkjum þá getur þetta ekki klikkað,“ segir hinn nýlega gifti Davíð Þorláksson. Hann og ástin hans Daniel Barrios Castilla giftu sig síðastliðið sumar á Akureyri og fögnuðu því svo með stæl í borginni Medellín í Kólumbíu.

Lífið