Erlent Landgöngulið Ísraela komið inn í Líbanon Ísraelskir skriðdrekar og landgöngulið réðust í nótt inn í Suður-Líbanon. Hingað til hafa Ísraelar einungis gert loftárásir á Líbanon. 277 líbanskur borgari hefur nú látist í árásunum, þar af 42 í árásum í nótt en 25 Ísraelar hafa látist á rúmri viku í sprengjuárásum Hisbollah. Bush Bandaríkjaforseti ásakar nú Sýrlendinga um að kynda undir átökum milli Hisbollah og Ísraelshers til að styrkja áhrif sín í Líbanon. Ísraelskir hermenn réðust einnig inn í flóttamannabúðir í Gaza en þar létust tveir Palestínumenn í skotárásum og fimm í sprengjuárás Ísraela. Innlent 19.7.2006 07:16 Níðingar í framboð Hollenskur dómstóll neitaði á mánudag að banna stjórnmálaflokk barnaníðinga, sem berst fyrir því að kynlífsaldur verði lækkaður niður í tólf ár úr sextán árum. Dómarinn sagði það vera rétt kjósenda að dæma um lögmæti stjórnmálaflokka. Erlent 18.7.2006 23:04 Búist við langvinnu stríði Níu af hverjum tíu Ísraelum telja árásir ísraelska hersins á Líbanon eiga fullan rétt á sér, samkvæmt ísraelskri skoðanakönnun sem birt var í gær. Sextíu prósent aðspurðra Ísraela eru þeirrar skoðunar að herinn eigi að halda árásunum áfram þangað til Hizbollah-samtökunum í Líbanon hefur verið tortímt. Erlent 18.7.2006 23:04 350 létust í flóðbylgjunni Tala þeirra sem létust í flóðbylgjunni sem reið yfir Jövu á Indónesíu á mánudag er komin yfir 340 og vara yfirvöld við því að fleiri muni líklega finnast látnir á næstu dögum. Meðal hinna látnu var sænskur karlmaður, en tvö sænsk börn fundust á lífi í gær. Erlent 18.7.2006 23:04 Ungar konur illa upplýstar Nýlegar rannsóknir sýna að konur virðast illa upplýstar um þá lifnaðarhætti sem geta valdið brjóstakrabbameini, að því er segir á fréttavef BBC. Erlent 18.7.2006 23:04 Varar við þróuninni í Afríku Forseti Frakklands, Jacques Chirac, varaði við því í viðtali á föstudag að Afríkubúar myndu flæða yfir jörðina ef ekkert yrði að gert til að þróa efnahag heimsálfunnar. Í sjónvarpsviðtalinu sagði forsetinn að um helmingur allra 950 milljóna Afríkubúa væri undir sautján ára aldri og að árið 2050 yrðu Afríkubúar orðnir tveir milljarðar talsins. Erlent 18.7.2006 23:04 Bjargaði barni af húsþaki Erlent 18.7.2006 23:04 Breska lögreglan ákærð Manoel Gomes Perreira, sendiherra Brasilíu í Bretlandi, hefur sagt breskum stjórnvöldum að hann sé undrandi á því að enginn breskur lögreglumaður verði ákærður vegna drápsins á Brasilíumanninum Jean Charles de Menezes, sem lét lífið af völdum byssukúlna frá breskum lögreglumönnum á jarðlestastöðinni Stockwell í London hinn 22. júlí á síðasta ári. Erlent 18.7.2006 23:04 Bætur hvetji til barneigna Mörg Evrópulönd hafa gripið til þess ráðs að hækka barnabætur til að hvetja fólk til að eignast fleiri börn. Ísland trónir á toppnum í Evrópu með 2,03 börn á hverja konu. Erlent 18.7.2006 23:04 Fólksflótti frá Líbanon Íbúar Líbanons eru tæplega fjórar milljónir en í landinu býr jafnframt nokkur fjöldi útlendinga víðs vegar að úr heiminum sem nú vill komast burt. Þorri þeirra kemur frá nágrannaríkjunum og kemst því heim af eigin rammleik en tugþúsundir þegna fjarlægari landa hafa verið strandaglópar síðustu daga. Erlent 18.7.2006 19:41 Jarðskjálfinn á Jövu Jarðskjálftar eru tíðir í og við Indónesíu enda gengur þar Indó-Ástralíuflekinn undir Evrasíuflekann. Erlent 18.7.2006 19:35 Átök Ísraelshers og skæruliða Hizbollah-samtakanna ekki í rénun Hafi einhver búist við að átök Ísraelshers og skæruliða Hizbollah-samtakanna væru í rénun þá skjátlast hinum sama hrapalega. Erlent 18.7.2006 19:24 Brugðust ekki við þrátt fyrir viðvörun Þrátt fyrir að stjórnvöld á Indónesíu hafi fengið viðvörun um að jarðskjálftinn við eynna Jövu í gær, gæti valdið flóðbylgju, þá voru ekki gerðar neinar ráðstafanir til að vara fólk við á þeim svæðum sem voru í hættu. Erlent 18.7.2006 17:35 Japanir leggja drög að viðskiptahindrunum Japönsk yfirvöld eru nú að leggja drög að sérstökum viðskiptahindrunum gegn Norður-Kóreumönnum, til viðbótar við takmarkað viðskiptabann sem Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti á laugardaginn. Erlent 18.7.2006 17:29 Vottuðu fórnarlömbum virðingu sína Indverjar vottuðu 207 fórnarlömbum sprengjuárásanna á lestakerfið í Mumbai virðingu sína í dag með einnar mínútu þögn. Forseti Indlands, Abdul Kalam, lagði blómsveig á staðinn þar sem fyrsta sprengjan sprakk þegar nákvæmlega vika var frá fyrstu sprengingunni, rétt fyrir eitt að íslenskum tíma. Erlent 18.7.2006 17:24 Coca Cola skilaði methagnaði Viðskipti erlent 18.7.2006 15:54 Í það minnsta 327 manns látnir á Jövu Tala látinna eftir flóðbylgju á eynni Jövu í Indónesíu er nú komin upp í 327 og 160 til viðbótar er enn saknað. Flóðbylgjan skall á suðurströnd Jövu eftir að jarðskjálfti upp á 7,7 á Richter varð fyrir utan suðurströnd eyjarinnar í gærmorgun. Erlent 18.7.2006 10:48 Olíuverð nálægt 78 dölum á tunnu Heimsmarkaðsverð á olíu lá við 78 dali á tunnu í fyrstu viðskiptum dagsins á helstu mörkuðum og stendur verðið nálægt sögulegu hámarki. Ástæðan fyrir svo háu verði skrifast fyrst og fremst á loftárásir Íslaelsmanna á Líbanon en árásir skæruliðahópa á olíuvinnslustöðvar erlendra fyrirtækja í Nígeríu og vaxandi spenna vegna kjarnorkuáætlunar Írana á einnig hlut að máli. Viðskipti erlent 17.7.2006 10:03 Verðmæti útfluttra sjávarafurða dróst saman Verðmæti sjávarafurða til útflutnings á síðasta ári nam 112 milljörðum króna en það er 5,7 prósentum minna en árið á undan. Verðið hélst lítið breytt á heildina litið í íslenskum krónum og dróst framleiðslan, mæld á föstu verði ársins 2004, því saman um 5,6 prósent. Viðskipti erlent 17.7.2006 09:42 Alþjóðlegt friðargæslulið til Líbanon Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hvetja nú til að alþjóðlegt friðargæslulið verði sent til Líbanons til að freista þess að stöðva sprengingar Hezbollah í Ísrael. Segja þeir að þetta sé árangursríkast til friðar, því ef næst að binda endi á sprengingar í Ísrael, hafi Ísraelar ekki lengur ástæðu til að ráðast á Líbanon Erlent 17.7.2006 09:34 Íslenskt götuheiti í Svartfjallalandi Stjórnmálaflokkur í Svartfjallalandi hefur lagt fram tillögu um að breyta götuheiti þar í landi. Ætlunin er að gatan beri heiti eftir Íslandi en með því á að heiðra Íslendinga fyrir að hafa fyrstir orðið til þess að viðurkenna Svartfjallaland sem sjálfstætt ríki í maí á þessu ári. Erlent 17.7.2006 09:06 Öryggisráðið dragi fæturna Forseti Líbanon sakar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna um að draga fæturna í stað þess að grípa til aðgerða til að stöðva loftárásir Ísraela í Líbanon. Hann segir þetta með vilja gert til að gefa Ísrael meiri tíma til að knésetja Líbanon. Erlent 16.7.2006 17:27 Einn leiðtoga Rauðu kmeranna liggur fyrir dauðanum Einn af herforingjum Rauðu kmeranna í Kambódíu liggur nú í dauðadái og eiga læknar ekki von á bata. Ta Mok hlaut viðurnefnið slátrarinn í þjóðernishreinsunum khmeranna i Kambódíu á áttunda áratugnum, sem eru með þeim verstu sem áttu sér stað í heiminum á síðustu öld. Óttast er að flestir ábyrgðarmanna þjóðarmorðanna verði látnir áður en næst að dæma þá fyrir glæpina sem þeir frömdu, en réttarhöld yfir þeim hafa enn ekki hafist. Málin hafa þó mjakast í rétta átt í mánuðinum þegar embættismenn voru kosnir til að skipuleggja réttarhöldin yfir þeim. Erlent 16.7.2006 15:41 Fundur ríkja sunnan Sahara Nokkur hundruð manns eru nú saman komin í Goa í Malí til að kljást við ýmis vandamál sem hrjá Afríkuríki sunnan Sahara-eyðimerkurinnar. Fundurinn er settur á sama tíma og fundur átta helstu iðnríkja heims til þess að vekja athygli á ýmsum umræðuefnum sem forsvarsmenn ráðstefnunnar segja ekki hljóta neina umfjöllun á G8-fundinum, svo sem vopnuð átök sunnan Sahara, eyðni, skuldastaða Afríkuríkja og viðskiptahættir vestrænna fyrirtækja í Afríku. Erlent 16.7.2006 15:28 Leiðtogi Hezbollah sagður slasaður Ísraelsk sjónvarpsstöð heldur því nú fram að Nasrallah, leiðtogi Hezbollah-samtakanna, hafi slasast í loftárásum Ísraelsmanna. Þetta hefur hins vegar ekki enn fengist staðfest frá yfirvöldum en vitað er að sprengjuárásir Ísraela hafa meðal annars beinst gegn höfuðstöðvum Hezbollah. Erlent 16.7.2006 15:12 Fjölmenn mótmæli í Indónesíu gegn árásum Ísraela Þúsundir manna komu saman á götum Jakarta, höfuðborgar Indónesíu í dag til að mótmæla árásum Ísraela á Líbanon og palestínsku sjálfstjórnarsvæðin. Margir báru spjöld sem sögðu Ísrael stunda hryðjuverk en aðrir báru palestínska fána. Ísraelski fáninn var fótum troðinn til að sýna fyrirlitningu mótmælendanna á ríkinu. Mótmælin eru þau stærstu í Indónesíu síðan árásir Ísraela á Líbanon hófust á miðvikudaginn. Indónesía hefur lengi stutt Palestínu að málum og neitar að viðurkenna Ísraelsríki. Erlent 16.7.2006 13:50 Einn látinn í skógareldum í Kaliforníu Enn er ekki búið að ná tökum á skógareldum í Kalirforníu í Bandaríkjunum. Um fjögur þúsund slökkviliðsmenn unnu að því að slökkva eldana í gær. Lögreglumenn fundu í gær lík manns sem saknað hefur verið síðan á þriðjudag þegar hann bjóst til að yfirgefa heimili sitt á flótta undan eldunum. Slökkviliðsmenn hafa náð einhverjum tökum á eldunum sem geisa við Sawtooth en ekki eldum við Millard. Erlent 16.7.2006 13:14 Hátt í sextíu manns hafa látist í flóðum í Asíu Náttúruhamfarir víða um heim hafa tekið sinn toll í Asíu síðustu daga. Um sextíu manns hafa látist í flóðum í suðausturhluta Kína og í Suður-Kóreu. Erlent 16.7.2006 13:09 Norður-Kóreumenn ætla ekki að hætta tilraunum sínum Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða í nótt að setja takmarkað viðskiptabann á Norður-Kóreu vegna tilraunaskota þeirra á langdrægum eldflaugum. Norður-Kóreumenn svöruðu umsvifalaust að ekki kæmi til greina að falla frá frekari eldflaugaprófunum. Erlent 16.7.2006 13:03 Öryggisráðið kallar ekki til vopnahlés í Líbanon Ekki náðist samkomulag í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um að kalla til vopnahlés milli Ísraela og Hezbollah, eins og forsætisráðherra Líbanons bað um í gær. Líbanskir diplómatar kenna Bandaríkjamönnum um að hafa stöðvað tillöguna í ráðinu. Erlent 16.7.2006 12:55 « ‹ 308 309 310 311 312 313 314 315 316 … 334 ›
Landgöngulið Ísraela komið inn í Líbanon Ísraelskir skriðdrekar og landgöngulið réðust í nótt inn í Suður-Líbanon. Hingað til hafa Ísraelar einungis gert loftárásir á Líbanon. 277 líbanskur borgari hefur nú látist í árásunum, þar af 42 í árásum í nótt en 25 Ísraelar hafa látist á rúmri viku í sprengjuárásum Hisbollah. Bush Bandaríkjaforseti ásakar nú Sýrlendinga um að kynda undir átökum milli Hisbollah og Ísraelshers til að styrkja áhrif sín í Líbanon. Ísraelskir hermenn réðust einnig inn í flóttamannabúðir í Gaza en þar létust tveir Palestínumenn í skotárásum og fimm í sprengjuárás Ísraela. Innlent 19.7.2006 07:16
Níðingar í framboð Hollenskur dómstóll neitaði á mánudag að banna stjórnmálaflokk barnaníðinga, sem berst fyrir því að kynlífsaldur verði lækkaður niður í tólf ár úr sextán árum. Dómarinn sagði það vera rétt kjósenda að dæma um lögmæti stjórnmálaflokka. Erlent 18.7.2006 23:04
Búist við langvinnu stríði Níu af hverjum tíu Ísraelum telja árásir ísraelska hersins á Líbanon eiga fullan rétt á sér, samkvæmt ísraelskri skoðanakönnun sem birt var í gær. Sextíu prósent aðspurðra Ísraela eru þeirrar skoðunar að herinn eigi að halda árásunum áfram þangað til Hizbollah-samtökunum í Líbanon hefur verið tortímt. Erlent 18.7.2006 23:04
350 létust í flóðbylgjunni Tala þeirra sem létust í flóðbylgjunni sem reið yfir Jövu á Indónesíu á mánudag er komin yfir 340 og vara yfirvöld við því að fleiri muni líklega finnast látnir á næstu dögum. Meðal hinna látnu var sænskur karlmaður, en tvö sænsk börn fundust á lífi í gær. Erlent 18.7.2006 23:04
Ungar konur illa upplýstar Nýlegar rannsóknir sýna að konur virðast illa upplýstar um þá lifnaðarhætti sem geta valdið brjóstakrabbameini, að því er segir á fréttavef BBC. Erlent 18.7.2006 23:04
Varar við þróuninni í Afríku Forseti Frakklands, Jacques Chirac, varaði við því í viðtali á föstudag að Afríkubúar myndu flæða yfir jörðina ef ekkert yrði að gert til að þróa efnahag heimsálfunnar. Í sjónvarpsviðtalinu sagði forsetinn að um helmingur allra 950 milljóna Afríkubúa væri undir sautján ára aldri og að árið 2050 yrðu Afríkubúar orðnir tveir milljarðar talsins. Erlent 18.7.2006 23:04
Breska lögreglan ákærð Manoel Gomes Perreira, sendiherra Brasilíu í Bretlandi, hefur sagt breskum stjórnvöldum að hann sé undrandi á því að enginn breskur lögreglumaður verði ákærður vegna drápsins á Brasilíumanninum Jean Charles de Menezes, sem lét lífið af völdum byssukúlna frá breskum lögreglumönnum á jarðlestastöðinni Stockwell í London hinn 22. júlí á síðasta ári. Erlent 18.7.2006 23:04
Bætur hvetji til barneigna Mörg Evrópulönd hafa gripið til þess ráðs að hækka barnabætur til að hvetja fólk til að eignast fleiri börn. Ísland trónir á toppnum í Evrópu með 2,03 börn á hverja konu. Erlent 18.7.2006 23:04
Fólksflótti frá Líbanon Íbúar Líbanons eru tæplega fjórar milljónir en í landinu býr jafnframt nokkur fjöldi útlendinga víðs vegar að úr heiminum sem nú vill komast burt. Þorri þeirra kemur frá nágrannaríkjunum og kemst því heim af eigin rammleik en tugþúsundir þegna fjarlægari landa hafa verið strandaglópar síðustu daga. Erlent 18.7.2006 19:41
Jarðskjálfinn á Jövu Jarðskjálftar eru tíðir í og við Indónesíu enda gengur þar Indó-Ástralíuflekinn undir Evrasíuflekann. Erlent 18.7.2006 19:35
Átök Ísraelshers og skæruliða Hizbollah-samtakanna ekki í rénun Hafi einhver búist við að átök Ísraelshers og skæruliða Hizbollah-samtakanna væru í rénun þá skjátlast hinum sama hrapalega. Erlent 18.7.2006 19:24
Brugðust ekki við þrátt fyrir viðvörun Þrátt fyrir að stjórnvöld á Indónesíu hafi fengið viðvörun um að jarðskjálftinn við eynna Jövu í gær, gæti valdið flóðbylgju, þá voru ekki gerðar neinar ráðstafanir til að vara fólk við á þeim svæðum sem voru í hættu. Erlent 18.7.2006 17:35
Japanir leggja drög að viðskiptahindrunum Japönsk yfirvöld eru nú að leggja drög að sérstökum viðskiptahindrunum gegn Norður-Kóreumönnum, til viðbótar við takmarkað viðskiptabann sem Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti á laugardaginn. Erlent 18.7.2006 17:29
Vottuðu fórnarlömbum virðingu sína Indverjar vottuðu 207 fórnarlömbum sprengjuárásanna á lestakerfið í Mumbai virðingu sína í dag með einnar mínútu þögn. Forseti Indlands, Abdul Kalam, lagði blómsveig á staðinn þar sem fyrsta sprengjan sprakk þegar nákvæmlega vika var frá fyrstu sprengingunni, rétt fyrir eitt að íslenskum tíma. Erlent 18.7.2006 17:24
Í það minnsta 327 manns látnir á Jövu Tala látinna eftir flóðbylgju á eynni Jövu í Indónesíu er nú komin upp í 327 og 160 til viðbótar er enn saknað. Flóðbylgjan skall á suðurströnd Jövu eftir að jarðskjálfti upp á 7,7 á Richter varð fyrir utan suðurströnd eyjarinnar í gærmorgun. Erlent 18.7.2006 10:48
Olíuverð nálægt 78 dölum á tunnu Heimsmarkaðsverð á olíu lá við 78 dali á tunnu í fyrstu viðskiptum dagsins á helstu mörkuðum og stendur verðið nálægt sögulegu hámarki. Ástæðan fyrir svo háu verði skrifast fyrst og fremst á loftárásir Íslaelsmanna á Líbanon en árásir skæruliðahópa á olíuvinnslustöðvar erlendra fyrirtækja í Nígeríu og vaxandi spenna vegna kjarnorkuáætlunar Írana á einnig hlut að máli. Viðskipti erlent 17.7.2006 10:03
Verðmæti útfluttra sjávarafurða dróst saman Verðmæti sjávarafurða til útflutnings á síðasta ári nam 112 milljörðum króna en það er 5,7 prósentum minna en árið á undan. Verðið hélst lítið breytt á heildina litið í íslenskum krónum og dróst framleiðslan, mæld á föstu verði ársins 2004, því saman um 5,6 prósent. Viðskipti erlent 17.7.2006 09:42
Alþjóðlegt friðargæslulið til Líbanon Kofi Annan, aðalritari Sameinuðu þjóðanna og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hvetja nú til að alþjóðlegt friðargæslulið verði sent til Líbanons til að freista þess að stöðva sprengingar Hezbollah í Ísrael. Segja þeir að þetta sé árangursríkast til friðar, því ef næst að binda endi á sprengingar í Ísrael, hafi Ísraelar ekki lengur ástæðu til að ráðast á Líbanon Erlent 17.7.2006 09:34
Íslenskt götuheiti í Svartfjallalandi Stjórnmálaflokkur í Svartfjallalandi hefur lagt fram tillögu um að breyta götuheiti þar í landi. Ætlunin er að gatan beri heiti eftir Íslandi en með því á að heiðra Íslendinga fyrir að hafa fyrstir orðið til þess að viðurkenna Svartfjallaland sem sjálfstætt ríki í maí á þessu ári. Erlent 17.7.2006 09:06
Öryggisráðið dragi fæturna Forseti Líbanon sakar Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna um að draga fæturna í stað þess að grípa til aðgerða til að stöðva loftárásir Ísraela í Líbanon. Hann segir þetta með vilja gert til að gefa Ísrael meiri tíma til að knésetja Líbanon. Erlent 16.7.2006 17:27
Einn leiðtoga Rauðu kmeranna liggur fyrir dauðanum Einn af herforingjum Rauðu kmeranna í Kambódíu liggur nú í dauðadái og eiga læknar ekki von á bata. Ta Mok hlaut viðurnefnið slátrarinn í þjóðernishreinsunum khmeranna i Kambódíu á áttunda áratugnum, sem eru með þeim verstu sem áttu sér stað í heiminum á síðustu öld. Óttast er að flestir ábyrgðarmanna þjóðarmorðanna verði látnir áður en næst að dæma þá fyrir glæpina sem þeir frömdu, en réttarhöld yfir þeim hafa enn ekki hafist. Málin hafa þó mjakast í rétta átt í mánuðinum þegar embættismenn voru kosnir til að skipuleggja réttarhöldin yfir þeim. Erlent 16.7.2006 15:41
Fundur ríkja sunnan Sahara Nokkur hundruð manns eru nú saman komin í Goa í Malí til að kljást við ýmis vandamál sem hrjá Afríkuríki sunnan Sahara-eyðimerkurinnar. Fundurinn er settur á sama tíma og fundur átta helstu iðnríkja heims til þess að vekja athygli á ýmsum umræðuefnum sem forsvarsmenn ráðstefnunnar segja ekki hljóta neina umfjöllun á G8-fundinum, svo sem vopnuð átök sunnan Sahara, eyðni, skuldastaða Afríkuríkja og viðskiptahættir vestrænna fyrirtækja í Afríku. Erlent 16.7.2006 15:28
Leiðtogi Hezbollah sagður slasaður Ísraelsk sjónvarpsstöð heldur því nú fram að Nasrallah, leiðtogi Hezbollah-samtakanna, hafi slasast í loftárásum Ísraelsmanna. Þetta hefur hins vegar ekki enn fengist staðfest frá yfirvöldum en vitað er að sprengjuárásir Ísraela hafa meðal annars beinst gegn höfuðstöðvum Hezbollah. Erlent 16.7.2006 15:12
Fjölmenn mótmæli í Indónesíu gegn árásum Ísraela Þúsundir manna komu saman á götum Jakarta, höfuðborgar Indónesíu í dag til að mótmæla árásum Ísraela á Líbanon og palestínsku sjálfstjórnarsvæðin. Margir báru spjöld sem sögðu Ísrael stunda hryðjuverk en aðrir báru palestínska fána. Ísraelski fáninn var fótum troðinn til að sýna fyrirlitningu mótmælendanna á ríkinu. Mótmælin eru þau stærstu í Indónesíu síðan árásir Ísraela á Líbanon hófust á miðvikudaginn. Indónesía hefur lengi stutt Palestínu að málum og neitar að viðurkenna Ísraelsríki. Erlent 16.7.2006 13:50
Einn látinn í skógareldum í Kaliforníu Enn er ekki búið að ná tökum á skógareldum í Kalirforníu í Bandaríkjunum. Um fjögur þúsund slökkviliðsmenn unnu að því að slökkva eldana í gær. Lögreglumenn fundu í gær lík manns sem saknað hefur verið síðan á þriðjudag þegar hann bjóst til að yfirgefa heimili sitt á flótta undan eldunum. Slökkviliðsmenn hafa náð einhverjum tökum á eldunum sem geisa við Sawtooth en ekki eldum við Millard. Erlent 16.7.2006 13:14
Hátt í sextíu manns hafa látist í flóðum í Asíu Náttúruhamfarir víða um heim hafa tekið sinn toll í Asíu síðustu daga. Um sextíu manns hafa látist í flóðum í suðausturhluta Kína og í Suður-Kóreu. Erlent 16.7.2006 13:09
Norður-Kóreumenn ætla ekki að hætta tilraunum sínum Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti samhljóða í nótt að setja takmarkað viðskiptabann á Norður-Kóreu vegna tilraunaskota þeirra á langdrægum eldflaugum. Norður-Kóreumenn svöruðu umsvifalaust að ekki kæmi til greina að falla frá frekari eldflaugaprófunum. Erlent 16.7.2006 13:03
Öryggisráðið kallar ekki til vopnahlés í Líbanon Ekki náðist samkomulag í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um að kalla til vopnahlés milli Ísraela og Hezbollah, eins og forsætisráðherra Líbanons bað um í gær. Líbanskir diplómatar kenna Bandaríkjamönnum um að hafa stöðvað tillöguna í ráðinu. Erlent 16.7.2006 12:55