Viðskipti
153 154 155 156 157 158 159 160 161 … 223 ›
Glitnir var til ráðgjafar í Ameríku Glitnir banki var ráðgjafi bandaríska fisksölufyrirtækisins F.W. Bryce Inc. í söluferli fyrirtækisins, en það var í vikunni selt Nissui USA, dótturfyrirtæki Nippon Suisan Kaisha Ltd. í Japan. Viðskipti innlent 7.4.2006 10:26
FL Group stofnar dótturfélag í Danmörku FL Group tilkynnir í dag um stofnun dótturfélags í Danmörku, FL Group Denmark Aps. Í tilkynningu frá fyrirtækinu til Kauphallarinnar segir að FL Group hafi á síðustu misserum fjárfest umtalsvert í Danmörku og í ljósi þeirra fjárfestinga hafi félagið ákveðið að koma á fót skrifstofu í Kaupmannahöfn. Viðskipti innlent 6.4.2006 12:28
Eimskip kaupir Farmaleiðir P/F Heri Thomsen, dótturfélag Eimskips í Færeyjum, hefur keypt Farmaleiðir, sem verið hefur landflutningahluti Strandfaraskipa. Strandfaraskip er í eigu færeyska ríkisins og hefur sinnt vöru- og fólksflutningum á sjó og landi í Færeyjum. Sala Farmaleiða er stærsta einkavæðingaverkefni Færeyinga til þessa. Viðskipti innlent 6.4.2006 11:01
Olíuverð fór yfir 67 dollara Olíuverð fór yfir 67 Bandaríkjadali á tunnu á helstu mörkuðum í dag eftir að ríkisstjórn Bandaríkjanna greindi frá því að eldsneytisbirgðir í landinu hefðu minnkað. Viðskipti erlent 6.4.2006 10:19
Visa og FIFA sögð í samningaviðræðum Líkur er sagðar á að greiðslukortafyrirtækið Visa verði styrktaraðili heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu frá og með næsta ári. Styrktarsamningur Visa er sagður hljóða upp á 150 til 200 milljónir punda, jafnvirði 19 til rúmlega 25 milljarða íslenskra króna. Viðskipti erlent 6.4.2006 09:23
Nálgast metverð á laxi Verð á laxi á alþjóðlegum fiskmörkuðum hefur hækkað verulega upp á síðkastið og nálgast nú sögulegt hámark. Kíló af laxi er komið í 40 norskar krónur, jafnvirði rúmra 400 íslenskra króna og hefur það ekki verið hærra í sex ár. Verð á laxi getur umtalsverð áhrif á afkomu Alfesca. Viðskipti erlent 5.4.2006 16:56
Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,96 prósent Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hækkaði um 1,96 prósent í viðskiptum dagsins eftir lækkanir síðustu tvo viðskiptadaga. Mest hækkuðu bréf í Flögu, Actavis, FL Group og Glitni. Gengi bréfa í Flögu lækkaði mest í gær, eða um rúm 20 prósent. Eina félagið sem lækkaði í viðskiptum dagsins var Dagsbrún. Viðskipti innlent 5.4.2006 16:48
NTL kaupir Virgin Mobile Stjórn breska fjárfestingafyrirtækisins Virgin Group hefur samþykkt yfirtökutilboð breska kapalfyrirtækisins NTL á farsímasviði fyrirtækisins, Virgin Mobile. Yfirtökutilboðið hljóðar upp á 962,4 milljónir punda, jafnvirði rúmlega 122 milljarða íslenskra króna. Eftir kaupin verður til fyrsta fyrirtækið á Bretlandseyjum sem býður jafn kapalsjónvarpsstöðvar, netveitu, fastlínusamband og farsímaþjónustu. Viðskipti erlent 5.4.2006 15:52
Hagnaður Sparisjóðs Vestmannaeyja rúmar 180 milljónir Hagnaður Sparisjóðs Vestmannaeyja nam 180,4 milljónum króna á síðasta ári. Heildarrekstrartekjur námu 789,2 milljónum króna og gjöld námu 570,6 milljónum króna að meðtöldum afskriftum. Reksturinn gekk vel á árinu, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sparisjóði Vestmannaeyja. Viðskipti innlent 5.4.2006 15:30
Hagnaður Nýsis 1,6 milljarðar króna Hagnaður Nýsis hf. nam rúmum 1,6 milljörðum króna á síðasta ári. Fastafjármunir voru 15.285 milljónir króna og veltufjármunir 1.064 milljónir kr. Eignir námu 16.349 milljónum króna. Þá námu skuldir og skuldbindingar Nýsis hf. og dótturfélaga 12.464 milljónum kr. en eigið fé var í árslok 3.885 milljónir króna að meðtaldri hlutdeild minnihluta. Viðskipti innlent 5.4.2006 14:34
FL Group kaupir Dreamliner farþegaþotur FL Group hefur samið um kaup á tveimur Boeing 787-8 Dreamliner farþegarþotum fyrir hönd Icelandair Group. Flugvélarnar verða afhentar vorið 2012, en tveimur árum fyrr, eða á árinu 2010 fær Icelandair afhentar tvær fyrstu Boeing 787 breiðþoturnar sem pantaðar voru fyrir rúmu ári. Viðskipti innlent 5.4.2006 13:43
Hagnaður FL Group um 12 milljarðar króna FL Group hefur selt tæplega 17 prósenta hlut sinn í lággjaldaflugfélaginu easyJet fyrir um það bil þrjátíu milljarða króna. Félagið hagnast um 12 milljarða miðað við kaupverð bréfanna á sínum tíma. Innlent 5.4.2006 11:28
Bresk skattayfirvöld viðurkenna Kauphöll Íslands Sameinað embætti ríkisskattstjóra og tollstjóra á Bretlandi (HM Revenue and Customs, HMRC) veitti Kauphöll Íslands viðurkenningu 31. mars síðastliðinn sem kauphöll skv. kafla 841(1)(b) í lögum um tekju- og fyrirtækjaskatt frá 1988 (The Income and Corporation Taxes Act 1988, ICTA). Viðskipti innlent 5.4.2006 12:14
Gengi bréfa hækkaði í Taílandi Hlutabréfavísitalan í Taílandi hækkaði um tæpt 3,1 prósent eftir að Thaksin Shinawatra, forsætisráðherra landsins, tilkynnti í gær að hann ætli að segja af sér. Hann lét hann af embætti í morgun. Vísitalan hefur hækkað um 7 prósent á árinu og hefur ekki verið hærri síðan í janúar 2004. Viðskipti erlent 5.4.2006 11:51
Skógræktarfélagið ekki markaðshindrandi Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að þrátt fyrir að viss mismunum felist í starfi Skógræktarfélags Íslands þá sé það ekki markaðshindrun þegar nýir aðilar vilja starfa við grisjun sumarhúsalóða og skipulagsvinnu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Starfi félagið ekki á samkeppnismarkaði og vinni það eingöngu að grisjun eða ráðgjöf vegna skógarreita aðildarfélaga Skógræktarfélagsins. Viðskipti innlent 5.4.2006 10:14
FL kaupir í Finnair FL Group hefur aukið við hlut sinn í finnska flugfélaginu Finnair og á eftir kaupin 10,025 prósenta hlut í félaginu. Að sögn Alberts Jónssonar, framkvæmdastjóra FL Group, hefur fyrirtækið aukið við hlut sinn í Finnair jafnt og þétt. Viðskipti innlent 4.4.2006 20:23
Kemur Finnum í opna skjöldu Kaup Roberts Tchenguiz á yfir átta prósenta hlut í finnska fjármálafyrirtækinu Sampo, fyrir 60 milljarða króna, hafa komið verulega á óvart í finnskum fjármálaheimi, enda Tchenguiz algjörlega óþekkt nafn þarlendis. Hollenska eignarhaldsfélagið Exafin, sem er í eigu Tchenguiz, er þar með orðið þriðji stærsti hluthafinn í Sampo á eftir finnska ríkinu og Varma lífeyrissjóði.. Viðskipti erlent 4.4.2006 20:23
Danske leiðir lán til BN Verið er að ganga frá sambankaláni til BN bank í Noregi. Danske Bank leiðir lánið. BN bank er í eigu Glitnis banka. Viðskipti innlent 4.4.2006 20:23
Greinendur Danske mæta Höfundar neikvæðra skýrslna Danske Bank um íslenskt efnahagslíf munu standa fyrir máli sínu hérlendis í næstu viku. Viðskipti innlent 4.4.2006 20:23
Moodys segir stöðuna góða Matsfyrirtækið Moody's segir að ekki steðji hætta að greiðsluhæfi og lausafjárstöðu Íslands. Í skýrsku sem fyrirtækið birti í gær er komist að þeirri niðurstöðu að landið standi ekki frammi fyrir óhóflegum greiðsluhæfis- eða lausafjárvandræðum vegna óstöðugleika sem gætt hefur í viðskipta- og fjármálaumhverfinu. Lánshæfiseinkunn ríkissjóðs er Aaa. Viðskipti innlent 4.4.2006 20:23
Felldur úr stjórn sparisjóðsins Magnús Kristinsson, útgerðarmaður og einn stærsti hluthafinn í Straumi-Burðarási, náði ekki endurkjöri í stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja á aðalfundi sparisjóðsins á dögunum. Gísli G. Guðlaugsson, Skæringur Georgsson og Þór Í. Vilhjálmsson voru hins vegar kosnir. Viðskipti innlent 4.4.2006 20:23
Össur innkallar þrjú þúsund gervihné Framleiðslugalli í pinna kom í ljós við skoðun. Forstjórinn segir velferð sjúklinga hafða í fyrirrúmi. Viðskipti innlent 4.4.2006 20:23
Úrvalsvísitala hefur lækkað um rúmt fjögur og hálft prósent Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hefur lækkað um rúmt fjögur og hálft prósent það sem af er degi. Mest er lækkunin í Flögu en hlutabréf í Flögu hafa lækkað um rúm tuttugu prósent. Næst mest er lækkunin í Landsbankanum og KB-banka eða tæp sex prósent. Innlent 4.4.2006 18:19
Óbreytt lánshæfismat Glitnis banka Lánshæfismatsfyrirtækið Moody´s staðfesti lánshæfiseinkunnir þriggja stærstu banka landsins í dag. Langtímaeinkunn Glitnis banka er A1 en skammtímaeinkunn er P1. Þá segir Moody´s horfur Glitnis banka stöðugar. Viðskipti innlent 4.4.2006 16:18
Lánshæfiseinkunnir KB banka staðfestar Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's staðfesti lánshæfiseinkunnir KB banka í dag og gefur langtímaeinkunnina A1 og skammtímaeinkunnina P-1. Einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika C+ verður tekin til endurskoðunar til hugsanlegrar lækkunar. Viðskipti innlent 4.4.2006 16:11
Lánshæfiseinkunn Landsbankans staðfest Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody’s staðfesti í dag A-2 og P-1 lánshæfismatseinkunnir Landsbankans. Samhliða þessu hefur Moody’s breytt horfum á lánshæfismatseinkunn á fjárhagslegum styrkleika, sem í dag er C, úr stöðugum í neikvæðar. Viðskipti innlent 4.4.2006 16:01
FL Group kaupir í Finnair FL Group hefur bætt við hlut sinn í finnska flugfélaginu Finnair og á eftir kaupin 10,025 prósent í félaginu. Að sögn Alberts Jónssonar, framkvæmdastjóra FL Group, hefur Finnair skilað góðri afkomu og er það góður fjárfestingakostur. Viðskipti innlent 4.4.2006 13:57
Velti nær fjórfalt meira en fyrir ári Hlutabréf seldust fyrir nær fjórum sinnum hærri upphæð í Kauphöll Íslands fyrstu þrjá mánuði þessa árs en á fyrsta fjórðungi síðasta árs. Alls jókst veltan í Kauphöllinni um nær 160 prósent. Innlent 4.4.2006 13:34
Fjarskiptafyrirtæki samþykkja samruna Bandaríska fjarskiptafyrirtækið Alcatel og franska fyrirtækið Lucent hafa samþykkt samruna fyrirtækjanna en tekjur fyrirtækjanna beggja nema 21 milljarði evra. Viðskipti erlent 3.4.2006 13:40
Tryggingamiðstöðin vildi NEMI Eftir lokun kauphallarinnar í Noregi föstudaginn 31. mars lýsti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) formlega við stjórn Nemi forsikring ASA (NEMI) vilja til að gera kauptilboð í allt hlutafé NEMI. TM á 9,77 prósenta hlut í NEMI. Viðskipti innlent 3.4.2006 13:22