
Fjölskyldumál

Að skilja og jafna sig á tilfinningalegu framhjáhaldi
Tilfinningalegt framhjáhald er tegund af framhjáhaldi sem meira er fjallað um eftir að samfélagsmiðlar og spjallforrit komu til sögunnar. Enda erum sítengd og getum falið „allt“ í símanum okkar.

Að vinna með fyrrverandi
Það getur verið flókið og sársaukafullt ferli að skilja. Áskoranir foreldra í tengslum við skilnað eru þekktar og er það staðfest með rannsóknum að líkamleg og andleg líðan fráskilinna foreldra fyrst á eftir skilnaðinn er almennt verri en annarra foreldra.

„Það er eiginlega ótrúlegt hvað fólk hefur rekist á“
Fjölmiðlakonan Sigrún Ósk Kristjánsdóttir hefur undanfarin ár hjálpað fólki að leita að uppruna sínum. Sigrún fer yfir leiðirnar sem hægt er að fara til að leita uppruna síns. Þá hefur hún heyrt lygilega margar sögur af fólki sem tekst það.

Freyja orðin fósturmamma: „Ég elska hann mjög mikið“
Freyja Haraldsdóttir, baráttukona og réttindagæslumaður fatlaðs fólks, er orðin fósturforeldri eftir margra ára baráttu við kerfið. Hún segir biðina hafa verið langa og stranga en það hafi verið þess virði og það sé magnað að vera móðir unglingsins Steve.

Frjósemi aldrei verið minni á Íslandi
Frjósemi hefur aldrei verið minni á Íslandi síðan mælingar hófust árið 1853. Frjósemistölur eru langt undir viðmiðum um þá frjósemi sem þarf til að viðhalda mannfjölda til lengri tíma litið. Frjósemi hefur ekki náð því viðmiði í yfir tíu ár.

Sigrún leitar að bróður sínum
Sigrún Sigurðardóttir var ættleidd þegar hún var tíu daga gömul. Hún ólst upp vitandi að hún ætti samfeðra bróður einhvers staðar þarna úti en það var ekki fyrr en í byrjun þessa árs að hún ákvað að setja allan sinn kraft í að hafa uppi á honum. Hún hefur þó úr takmörkuðum upplýsingum að moða og hefur meðal annars leitað eftir aðstoð fólks í gegnum samfélagsmiðla.

Þegar barn hafnar foreldri án raunverulegrar ástæðu
25. apríl, er alþjóðlegur dagur vitundarvakningar um foreldraútilokun. Foreldraútilokun á sér stað þegar barn hafnar foreldri sem það átti áður gott samband við, vegna neikvæðra áhrifa hins foreldrisins.

Dreymdi systur sína nóttina áður en hún lést: „Hún kemur og kveður mig“
„Þegar ég hitti fólk sem er fætt sama ár og hún byrja ég að spegla hana í þeim. Ef allt hefði farið vel, hvar væri hún þá núna? Hún var bara 25 ára þegar hún lést og það var svo mikið framundan,“ segir dagskrárgerðakonan Þórdís Valsdóttir.

Meðvirkni: „Þau vildu ekki fara að tala illa um mömmu sína“
Með einfaldri leit á veraldarvefnum má finna BA ritgerð sálfræðinema frá árinu 2014, Sveinbjörns G. Kröyer Guðmundssonar, sem ber yfirskriftina Hvað er meðvirkni í raun og veru? Í úrdrætti fremst í ritgerðinni segir:

Leiðrétta ofteknar innheimtuþóknanir vegna vangoldinna meðlagskrafa
Innheimtustofnun sveitarfélaga mun leiðrétta ofteknar innheimtuþóknanir vegna vangoldinna meðlagskrafna sem stofnunin innheimti frá nóvember 2018 til desembers 2021. Leiðréttingarnar eru alls 906 og nemur heildarupphæð endurgreiðslna um 70 milljónum króna.

Makamissir: Tilkynntu trúlofunina á Facebook og hann lést nokkrum stundum síðar
Það gekk allt upp eins og í sögu: Þau kynntust á Tinder, smullu saman þegar þau hittust. Urðu eiginlega strax kærustupar.

Þekkir þú þitt fjárhagslega björgunarnet?
Við andlát ættingja eru ýmis réttindi sem eftirlifandi geta átt rétt á, en hér er sjónarhorninu beint að réttindum vegna andláts maka. Eftirlifandi maki þarf að fóta sig í frumskógi réttinda á sama tíma og hann er að ganga í gegnum erfitt sorgarferli.

Erfðamálin: Hægt að komast undan skuldum og ábyrgðum lána með opinberum skiptum
„Með því að fara með dánarbú í opinber skipti eru lögerfingjar í raun að lýsa því yfir að þeir ætla ekki að taka ábyrgð á skuldum hins látna, hvorki núna né til framtíðar,“ segir Pétur Steinn Guðmundsson lögmaður hjá Deloitte Legal og sérfræðingur í skattamálum meðal annars þegar erfðamálin eru rædd.

Fór frá Íslandi til Víetnam í leit að blóðmóður sinni
Þann 25. mars síðastliðinn fór Iris Dager af landi brott. Áfangastaðurinn var Hanoi, höfuðborg Víetnam þar sem hún dvelur nú. Aðdragandinn að ferðalaginu er búinn að vera langur og tilgangur ferðarinnar er skýr: Iris vill finna blóðmóður sína sem gaf hana frá sér fyrir þremur áratugum.

Hart tekist á um erfðafjárskatt: „Er þetta í alvöru forgangsröðunin?“
Þrír þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að fyrstu tíu milljónir erfðafjár verði gerðar skattfrjálsar. Samkvæmt núgildandi lögum eru fyrstu 5,7 milljónir erfðafjár skattfrjálsar. Þingmaður Samfylkingar segir erfðafjárskattinn þann sanngjarnasta. Ekki sé rétt forgangsröðun að veita efnamesta fólki landsins skattaafslátt með þessari breytingu.

Gagnist ekki fátækum en þó þeim sem hafi milljónir á milli handanna
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins á Suðurkjördæmi leggja í nýju frumvarpi til að foreldrar fái að gefa börnum sínum tíu milljónir króna skattfrjálst í arf. Þó slík lög gagnist ekki tekjulágum hér á landi sé um að ræða lága fjárhæð sem gæti nýst fjölmörgum fjölskyldum. Þingmaður Samfylkingarinnar segir þingmenn Sjálfstæðisflokksins lifa í hliðarveruleika.

Hver á að borga fyrir ferminguna?
Það getur verið flókið að ganga í gegnum skilnað, sér í lagi þegar fólk á börn saman. Í daglegu lífi þegar sérstök útgjöld tengdu barni eru framundan líkt og til dæmis vegna fermingar getur ágreiningur skapast milli foreldra.

Áhrifin af því að ljúga að börnunum sínum
„Mamma verður búin eftir smá stund í símanum,“ eða „pabbi kemur aftur eftir smá stund,“ hljómar nú kannski sakleysislega fyrir okkur fullorðna fólkið sem skýringar.

Makamissir og veikindi: „Mér fannst aðalatriðið vera að hann kæmi heim“
„Ég var búin lifa það versta því það er ekkert verra en að missa barn. En munurinn var samt sá að þá héldum við Ási utan um hvort annað á næturnar og grétum saman. Núna var ég ein,“ segir Rúna Didriksen um sársaukann og sorgina sem fylgir því að missa maka sinn til áratuga, en Rúna missti einnig son í bílslysi árið 1987.

Samsett fjölskylda: Stjúpforeldrar oft óöryggir með hlutverk sitt
Í flestum stórfjölskyldum þekkjast dæmi um samsettar fjölskyldur. Þar sem par tekur saman með börn úr fyrra sambandi, ýmist frá öðrum aðilanum eða báðum.

Neikvæð áhrif foreldra á viðhorf barna til vinnu
Við viljum öll að börnunum okkar gangi sem best í lífi og starfi þegar þau eru orðin fullorðin. Óháð því hvaða menntun eða starfsferil þau velja sér.

Velferðarsamfélag í fremsta flokki eigi að vera komið lengra
Um tíu þúsund börn búa við fátækt á Íslandi og fjölgar þeim milli ára. Leiðtogi hjá Barnaheillum segir fólk festast í fátæktargildru, sem erfitt reynist að komast út úr og erfist jafnvel milli kynslóða. Mismunun eigi sér stað til að mynda þegar kemur að geðheilbrigðisþjónustu. Stjórnvöld þurfi að marka stefnu, sem hingað til hefur ekki verið til staðar, og uppræta fátækt í eitt skipti fyrir öll.

Kvíði og þunglyndi í framhaldsskólum: Erum ekki að aumingjavæða unga fólkið
Að upplifa kvíða, þunglyndi eða félagsfælni í framhaldsskóla er erfitt. Í ofanálag fá nemendur samviskubit og líður þá enn verr.

Móðir í fangelsi eftir forsjárdeilu
Móðir tveggja barna hefur verið dæmd í átta mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa farið með börn sín úr landi, haldið þeim þar í tvö ár, og þar með svipt föður forsjá barnanna.

„Ég man hvað það var gott að geta deilt þessari sameiginlegu reynslu af missi“
„Það er bara svo dýrmætt, þegar maður gengur í gegnum þessa hræðilegu lífsreynslu, að hafa þetta samfélag,“ segir Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, ein af stofnendum Gleym mér ei - styrktarfélags til stuðnings við foreldra sem missa barn á meðgöngu og í/eftir fæðingu.

Þunglyndi óspennandi en allir að greina sig með kulnun og þurfa í leyfi
Þunglyndi virðist ekki nógu spennandi umræða í netmiðlum á sama tíma og allir virðast vera að greina sig með kulnun og þurfa í leyfi. Helst langt leyfi.

„Ég held að engin móðir vilji nokkurn tímann upplifa þetta“
„Það sem mér finnst sárast í þessu er þegar fólk talar í kringum þetta, og vill ekki ræða þetta, af því að það heldur að það sé að særa mig. En það er akkúrat öfugt,“ segir Harpa Þöll Gísladóttir sem varð fyrir miklu áfalli þegar Þröstur sonur hennar fæddist andvana á tuttugustu viku meðgöngu. Hún segir reynsluna hafa verið lífsmarkandi.

Fjöldi barna í ótryggu húsnæði tvöfaldast milli ára
Ríflega 400 börn búa við ótryggar húsnæðisaðstæður í Reykjavík og eru nánast tvöfalt fleiri en árið áður. Borgarfulltrúi í minnihlutanum segir ekki hægt að fela sig bakvið stöðuna í samfélaginu og kallar eftir meiri skynsemi af hálfu meirihlutans. Forgangsraða þurfi verkefnum í þágu fólksins en ekki í skreytingu torga.

Heimgreiðslur, mannekla í leikskólum og viðbrögð skólayfirvalda vegna skólaforðunar
Næstu mál okkar Flokks fólksins í borgarstjórn 7. febrúar snúa annars vegar að tillögu um heimgreiðslu vegna alvarlegra manneklu í leikskólum og langs biðlista og hins vegar að umræðu um orsakir skólaforðunar og viðbrögð skólayfirvalda og fagfólks skóla þegar barn glímir við skólaforðun.

Íslenskum föður gert að skila börnum sínum til móðurinnar
Landsréttur hefur úrskurðað að faðir með íslenskt ríkisfang skuli skila tveimur börnum sínum á lögheimili þeirra erlendis, þar sem þau búa með erlendri móður sinni.