Seðlabankinn
15 16 17 18 19 20 21 22 23 … 48 ›
Baráttan við verðbólguna Ákvörðun Seðlabankans um stýrivaxtahækkun kom ef til vill ekki mjög á óvart miðað við undangengnar ákvarðanir hans. Eina ráð hans virðist vera að ráðast á kaupmátt launafólks til að reyna að hafa áhrif á kauphegðun þeirra sem hafa meira á milli handanna enda hafa hinir tekjulægri ekki borið uppi mikinn vöxt neyslunnar. Skoðun 26.5.2023 11:31
„Hættan við of samræmdar reglur á fjármálamarkaði er samræmið“ Ítrekaðar athugasemdir Seðlabanka Íslands og erlendra stofnana við stjórnarhætti lífeyrissjóða og áhættustýringu þeirra rista ekki nógu djúpt að sögn framkvæmdastjóra Birtu lífeyrissjóðs. Hann varar við því að tilraunir til að endurskoða reglur um áhættustýringu hjá sjóðunum – í því skyni að samræma regluverkið á fjármálamarkaði – geti leitt til þess að allir bregðist við áhættu á sama hátt og þannig magnað upp áhættu á markaði. Innherji 26.5.2023 10:45
Markaðssókn banka á íbúðamarkaði kynti undir verðbólgu Tilfærsla nýrra íbúðalána frá lífeyrissjóðum til banka, sem átti sér stað eftir að vextir voru lækkaðir verulega í upphafi heimsfaraldursins, hafði þau áhrif að peningamagn í umferð jókst og þar með verðbólguþrýstingur. Ólíkt útlánum lífeyrissjóða eru bankalán þess eðlis að nýtt fjármagn verður til við veitingu þeirra. Innherji 25.5.2023 15:01
Vaxtahækkanir og verðbólga í boði verkalýðshreyfingarinnar Viðbrögð við mikilli vaxtahækkun Seðlabankans í gær voru æði kunnugleg. Forysta verkalýðshreyfingarinnar sakaði bankann um að rústa íslenskum heimilum og sagði komandi kjarasamninga í algjöru uppnámi. Þar er um endurtekið efni að ræða frá þeim 12 vaxtahækkunum Seðlabanka sem á undan hafa komið. Skoðun 25.5.2023 14:01
Efnahagslífið á milli steins og sleggju vaxta og verðbólgu Formaður Samtaka atvinnulífsins segir efnahagslífið á milli steins og sleggju hárra vaxta og mikillar verðbólgu. Það hljóti að vera markmið bæði atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar að ná niður verðbólgu og vöxtum og gera þess vegna langtíma kjarasamninga á komandi vetri. Innlent 25.5.2023 11:47
Forysta SA þarf að „standa í lappirnar“ gegn óraunhæfum launakröfum Seðlabankastjóri gagnrýnir forsvarsmenn Samtaka atvinnulífsins og segir þá þurfa að „standa meira í lappirnar“ þegar kemur að óraunhæfum kröfum verkalýðsfélaganna um miklar nafnlaunahækkanir en síðustu vaxtahækkanir bankans sýni að það kosti atvinnurekendur að gera dýra kjarasamninga. Kjölfesta verðbólguvæntinga hefur laskast og seðlabankastjóri viðurkennir að bankinn hafi mögulega gert mistök síðasta haust með því að tala ekki skýrar að hann myndi halda áfram sínu striki óháð því hvað aðrir armar hagstjórnarinnar myndu gera. Innherji 25.5.2023 11:01
Geti ekki staðið með lúður og ráðist á Seðlabankann Seðlabankinn hækkaði vexti um 1,25 prósentustig í morgun. Um er að ræða þrettándu vaxtahækkunina í röð og eru meginvextir bankans nú komnir í 8,75 prósent. Hækkunin hefur vægast sagt fallin í grýttan jarðveg meðal landsmanna. Viðskipti innlent 24.5.2023 23:42
Ríkisstjórnin hafi hugað að tekjulágu fólki Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, segir nauðsynlegt að ráðast í rót verðbólgunnar og sýna aukið aðhald í ríkisfjármálum. Hann segir ríkisstjórnina hafa hugað að tekjulágu fólki en telur að það eigi ekki að reyna að lifa með verðbólguástandinu. Innlent 24.5.2023 23:30
Aðgerðir í húsnæðismálum forsenda langtímasamninga að mati Eflingar Sólveig Jónsdóttir formaður Eflingar segir félagið reiðubúið að gera langtíma kjarasamninga eins og seðlabankastjóri kalli eftir. Til þess að það megi verða þurfi stjórnvöld að hins vegar að koma að málum með vel útfærðar aðgerðir í húsnæðismálum. Verðbólgan og stjarnfræðilega há húsleiga vegna húsnæðisskorts væri að sliga láglaunafólk sem ætti varla fyrir helstu nauðsynjum. Innlent 24.5.2023 19:31
Peningastefnunefnd ætti að funda oftar í ljósi krefjandi aðstæðna Markaðurinn brást við meiri stýrivaxtahækkun en væntingar stóðu til með því að ávöxtunarkrafa ríkisskuldabréfa hækkaði og hlutabréf lækkuðu í verði. Verðbólguálag til skemmri tíma hækkaði um 20-30 punkta. Sérfræðingur á markaði bendir á að mögulega hafi stýrivaxtahækkunin verið hærri í ljósi þess hve langt er í næsta fund peningastefnunefndar og gagnrýnir að peningastefnunefnd skuli ekki funda mánaðarlega í ljósi krefjandi aðstæðna í hagkerfinu. Innherji 24.5.2023 18:39
Vilja sérstaka umræðu um efnahagsmál á þingi sem fyrst Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur óskað eftir því að haldin verði sérstök umræða um efnahagsmál sem fyrst í ljósi enn einnar stýrivaxtahækkunar peningastefnunefndar Seðlabankans. Meginvextir bankans standa nú í 8,75% og verðbólga mældist 9,9% í apríl. Innlent 24.5.2023 15:51
Hinn breiði pensill Seðlabankans Verðbólgan á Íslandi er mikil og þrálát um þessar mundir og sameiginlegt verkefni Seðlabankans, hins opinbera og aðila vinnumarkaðarins að ná henni niður. Verðbólgan jókst umtalsvert á síðasta ári m.a. vegna ójafnvægis á íbúðamarkaði. En árs verðhækkun íbúða fór mest í 25,5% á höfuðborgarsvæðinu í júlí í fyrra. Skoðun 24.5.2023 15:01
Fleiri sýningar í gamla vaxta sirkusnum Stóra spurningin eftir 1,25% stýrivaxtahækkun og þrettándu hækkunina í röð er þessi: Hvers vegna þarf margfalt hærri vexti á Íslandi til að berjast gegn svipaðri verðbólgu og annars staðar? Svarið er: Gjaldmiðillinn okkar. Skoðun 24.5.2023 14:30
Þegar Geiri fer í fríið Peningamarkaðsnefnd Seðlabankans er fara í langt frí. Hún kemur ekki saman á ný fyrr en í haust. Það kemur sér ágætlega þar sem nú standa yfir milljarðaframkvæmdir á húsnæði Seðlabankans á aðhaldstímum og eflaust mikill ófriður í byggingunni. Skoðun 24.5.2023 14:01
Spyr hvers vegna seðlabankastjóra sé leyft að grafa undan lífskjörum lágtekjufólks Formaður Eflingar segir ríkisstjórnina ekki gera neitt til að draga úr neyslu hátekjufólks og segir hana eftirláta Seðlabankanum að grafa undan lífskjörum þeirra sem minnst hafa á milli handanna. Sá hópur standi berskjaldaður gagnvart flæðandi „verðbólgu- og vaxtahrauni“. Innlent 24.5.2023 12:51
Geðshræring vegna stýrivaxtahækkunar Verulegrar geðshræringar gætti á samfélagsmiðlum í morgun þegar tilkynnt var um enn eina hækkun stýrivaxta, þá 13. í röðinni en hækkunin nam 1,25 stigum. Innlent 24.5.2023 12:16
Segir nauðsynlegt að gera hófsama kjarasamninga til langs tíma Seðlabankastjóri segir nauðsynlegt að gerðir verði hóflegir langtíma kjarasamningar og aðhald aukið í ríkisfjármálum til að ná verðbólgunni niður. Ef Seðlabankinn eigi einn að ná niður verðbólgu þurfi að hækka vexti enn frekar. Innlent 24.5.2023 12:12
Vonandi ekki þjóðarsátt um að Seðlabankinn bregðist einn við Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir gríðarlega mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins standi undir sinni ábyrgð og taki þátt í því að bregðast við verðbólgu og verðbólguvæntingum með Seðlabanka Íslands. Viðskipti innlent 24.5.2023 10:56
Stærsta vaxtastökkið frá hruni með 125 punkta hækkun Seðlabankans Peningastefnunefnd kom markaðsaðilum og greinendum á óvart með því að hækka vexti Seðlabankans úr 7,5 prósentum í 8,75 prósentum, sem var umfram væntingar, til að ná böndum á undirliggjandi verðbólgu sem heldur áfram að hækka samtímis því að horfur eru á enn meiri vexti í innlendri eftirspurn í ár. Þrátt fyrir að vaxtahækkunin nú upp á 125 punkta sé sú mesta í einu vetfangi frá því við fall bankanna haustið 2008 þá boðar nefndin enn frekari hækkun vaxta á næstunni. Innherji 24.5.2023 08:57
Bein útsending: Rökstyðja þrettándu stýrivaxtahækkunina í röð Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 1,25 prósentustig, í 8,75 prósent. Viðskipti innlent 24.5.2023 08:53
Enn hækkar Seðlabankinn stýrivexti og nú um 1,25 prósentustig Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 1,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 7,5 prósentum í 8,75. Viðskipti innlent 24.5.2023 08:31
Vilhjálmur segir kannski ekki skynsamlegt að gera langtíma kjarasamninga Formaður Starfsgreinasambandsins segir verkalýðshreyfinguna hljóta að endurskoða áætlanir um gerð langtíma kjarasamninga ef Seðlabankinn haldi áfram að hækka vexti. Bankarnir hagnist vel á vaxtahækkunum sem ýti heimilunum í landinu í verðtryggð lán. Ef til vill verði að skoða hvort ekki þurfi að skipta um gjaldmiðil þar sem vextir í Evrópu séu mun lægri en hér þrátt fyrir svipaða verðbólgu. Innlent 23.5.2023 12:02
Seðlabankinn nauðbeygður til að hækka vexti um hundrað punkta Yfirgnæfandi meirihluti markaðsaðila býst við því að Seðlabanki Íslands hækki vexti um 100 punkta á vaxtaákvörðunarfundi bankans á morgun. Meginstefið í svörum þeirra sem tóku þátt í könnun Innherja er að Seðlabankinn sé nauðbeygður enda er langt í næstu vaxtaákvörðun, raunvextir enn neikvæðir og bankanum hefur ekki tekist að ná stjórn á verðbólguvæntingum. Innherji 23.5.2023 08:00
Ríkisstjórnin verði að dempa áfallið sem hlýst af vaxtahækkunum Formanni Samfylkingarinnar finnst ekki ólíklegt að stýrivextir Seðlabankans verði hækkaðir á miðvikudag líkt og greiningaraðilar eru á einu máli um. Hún hefur ekki gefið upp von um að ríkisstjórnin dempi höggið sem heimilin finna fyrir þessar þrjár síðustu vikur þingsins. Auknar vaxtabætur og leigubremsa þurfi að koma til svo hægt verði að verja heimilin í þessu viðkvæma efnahagsástandi. Innlent 22.5.2023 13:01
Lýst eftir fjármálaráðherra Aukinnar svartsýni gætir nú á fjármálamörkuðum um þróun verðbólgu. Gert er ráð fyrir að hún verði enn yfir 6% eftir ár. Hið sama má sjá í áliti Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar sem segir að vextir gætu þurft að hækka enn frekar frá því sem nú er. Skoðun 20.5.2023 12:00
Blasi við að Seðlabankinn sé að verja fjármagnseigendur Formaður VR segir það blasa við að Seðlabankinn sé að verja fjármagnseigendur frekar en fólkið í landinu. Búist er við að Seðlabankinn hækki stýrivexti enn eina ferðina í næstu viku. Gerist það verður um að ræða þrettándu stýrivaxtahækkunina í röð. Innlent 19.5.2023 17:21
Verðtryggður flótti í boði Seðlabankans Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands situr nú á rökstólum og mun tilkynna næstu vaxtaákvörðun sína miðvikudaginn 24. maí. Flestir greiningaraðilar spá því að bankinn muni hækka stýrivexti, þrettánda skiptið í röð. Skoðun 19.5.2023 11:32
Efnahagsnefnd vill samþykkja Seðlabankafrumvarpið í óbreyttri mynd Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis hefur lagt til að frumvarp, sem felur meðal annars í sér að seðlabankastjóri gegni formennsku fjármálaeftirlitsnefndar bankans í stað varaseðlabankastjóra, verði samþykkt í óbreyttri mynd. Innherji 17.5.2023 15:20
Spá því að vextir hækki um heila prósentu Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækki stýrivexti um eitt prósentustig í næstu viku. Ef spá Landsbankans gengur eftir verða stýrivextir hærri en þeir hafa verið í rúm þrettán ár. Viðskipti innlent 17.5.2023 15:10
„Ekki reikna með að aðstæður séu að fara að lagast strax á næstunni“ Björn Berg Gunnarsson hefur starfað í bankakerfinu í vel á annan áratug, síðast sem deildarstjóri greiningar og fræðslu hjá Íslandsbanka. Nú hefur Björn látið af störfum í bankanum til að hefja sjálfstæðan rekstur sem fjármálaráðgjafi fyrir einstaklinga um sparnað, fjárfestingar, lánamál og annað. Viðskipti innlent 16.5.2023 09:20