
Næturlíf

Grunuð um að ráðast á gesti og starfsfólk
Neitaði að gefa upp nafn og kennitölu.

Grunur um að brotið hafi verið gegn konu sem var byrlað ólyfjan á skemmtistað
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum en þar segir að lögreglu hafi borist af því spurnir að fleiri konur hafi lent í sömu aðstæðum á skemmtistöðum í umdæminu að undanförnu án þess að kærur hafi borist vegna þeirra tilvika.

Íslenskur lögreglumaður dæmdur í þriggja ára farbann til Færeyja
Fundinn sekur um líkamsárás gegn öðrum Íslendingi í Þórshöfn.

Skemmtistaðurinn Shooters innsiglaður
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur innsiglað skemmtistaðinn Shooters í Austurstræti. Lögreglan staðfestir þó ekki að húsleit hafi verið gerð á skemmtistaðnum í aðgerðum lögreglu í miðborginni í tengslum við umfangsmikla brotastarfsemi.

Gerard Butler fór mikinn á djamminu í Reykjavík
Skoski leikarinn Gerard Butler hefur verið hér á landinu síðustu daga og fagnaði hann tilkomu nýja ársins í Reykjavík.

Loka á djamm ungmenna við Hvaleyrarvatn
Að beiðni Skógræktarfélagsins verður veginum að Hvaleyrarvatni lokað um áramótin og að kvöldi þrettánda dags jóla.

Tíðar ferðir á barinn og nokkrar í spilavíti gerðu Aroni erfitt fyrir á yngri árum
Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson hleypir fólki nær sér en áður í nýrri ævisögu.

Dagbók Bents: Krúttlegt mosh-pit og skyrpandi risaeðlur í Júragarðinum
Upp með'etta! - Markús vinur minn æpir á mig í World Class á meðan mynd af Bjössa starir á mig eins og frekja. Upp með'etta!

Bjórþyrstir dátar þurrkuðu upp miðborg Reykjavíkur
Vertar í miðborg Reykjavíkur höfðu vart undan við að hella bjór ofan í botnlausa bandaríska hermenn.

Katrín bannar djamm á tíu ára afmæli hrunsins
Halda átti árshátíð Stjórnarráðsins 6. október næstkomandi. Forsætisráðherra stöðvaði þau áform eftir samtal við menntamálaráðherra. Nokkurrar óánægju gætir í starfsliðinu með afskiptasemi og meinta viðkvæmni ráðherranna.

Rúrik fær mestmegnis að vera í friði en á djamminu kemur fólkið
"Eins og ég tala um í viðtalinu þá er svolítið gert grín að mér hvað þetta allt varðar,“ segir knattspyrnumaðurinn Rúrik Gíslason í samtali við Brennsluna á FM957 í morgun.

Nú eru dópistarnir úti um allt og bara á djamminu
Baldvin Z kvikmyndaleikstjóri og ung kona í bata frá fíkniefnaneyslu lýsa ferlinu við gerð kvikmyndarinnar Lof mér að falla. Raunverulegar sögur ungra stelpna í neyslu eru uppistaða myndarinnar.

Strákarnir okkar og Jamie Foxx hittust á djamminu
Leikmenn íslenska landsliðsins eru allir komnir í smá frí eftir heimsmeistaramótið í Rússlandi en liðið komst ekki upp úr sínum riðli.

Sirkus fær framhaldslíf á Seyðisfirði
Skemmtistaðurinn Sirkus verður opnaður á ný og nánast í upprunalegri mynd á Seyðisfirði innan tíðar. Græjunar, barborðið og stólarnir frá gamla staðnum sitja í gámi við hafnarbakkann.

Jordan átti næturlífið í Reykjavík um helgina
Körfuboltamaðurinn DeAndre Jordan fór mikinn á næturlífinu í Reykjavík um helgina.

Fyrsta ferðin með næturstrætó ævintýri líkust
Frændur hittast óvænt, vinir spjalla, pör kúra og fólk með strætókort eins og ég fer frítt heim af djamminu. Allir ánægðir, segir Miriam Petra Ómarsdóttir Awad.

„Endalaust margir samkynhneigðir túristar hér á landi“
"Ég hef lent í stælum frá fólki fyrir það að vera samkynhneigður og það er aðallega fólk sem er búið að fá sér eitthvað aðeins meira en áfengi á djamminu.“

Ísland enginn griðastaður fyrir konur
Alþjóðlega fréttaveitan AP beinir sjónum sínum að baráttu Íslendinga gegn kynbundnu ofbeldi í myndbandi sem veitan birti í gær.

Kara segir kynlíf með ferðamönnum dautt
Kara Kristel Ágústsdóttir hefur vakið töluverða athygli eftir að hún hóf að rita pistla á bloggsíðunni sinni þar sem hún tjáir sig opinskátt um kynlífið sitt.

Hafa karlmenn að féþúfu á öldurhúsum
Mál þriggja Rúmena er til rannsóknar hjá lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en öll þrjú eru grunuð um að hafa með skipulögðum hætti haft fé af karlmönnum sem þau hittu fyrir á öldurhúsum í miðborg Reykjavíkur og á Akureyri um nokkurra mánaða skeið, eða frá því í sumar.

Pítsusendlar segja frá
Pítsusendlar gægjast inn í líf fólks í gegnum þrönga dyragættina. Þeir fá að kynnast öllum hliðum mannlífsins og lenda oft í spaugilegum aðstæðum. Nokkrir núverandi og fyrrverandi pítsusendlar segja sögur af ævintýralegum uppákomum.

Glamúr og næturlíf í haustherferð H&M
Naomi Campbell er aðalnúmerið í annars stjörnuprýddri herferð hjá H&M

Sumarið er tíminn fyrir brúðkaup, Solstice og djamm
Í Poppkasti vikunnar er farið yfir víðan völl en þar ber helst að nefna tónlistarhátíðina Secret Solstice, stjörnubrúðkaup hér á landi og einstaka hefð hjá Menntaskólanum á Akureyri að halda upp á stúdentsafmæli með pompi og prakt.

Afþakkar allar lundabúðir
Rýmið sem auglýst er er ætlað til verslunarreksturs og það vekur athygli að eigandinn minnist sérstaklega á að svokallaðar "lundabúðir“ séu afþakkaðar – en þar á hann auðvitað við minjagripabúðir ætlaðar ferðafólki.

Akureyska lögreglan segir þróunina neikvæða
Á annað hundrað mála voru færð í bækur lögreglu þessa helgi sem eru mun fleiri mál en á venjulegri helgi í apríl að mati lögreglu.

Dólgur elti Hafrúnu niður Laugaveg og ógnaði henni
Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur lenti í hremmingum úti á lífinu um helgina.

Þetta eru ástæðurnar fyrir því að þú eyðir svona miklu á djamminu
Það kannast eflaust margir við það að eyða miklum peningi þegar það fer út að skemmta sér og neytir í leiðinni áfengis.

Salka Sól áreitt á árshátíð: „Ég vona að konan hans lesi þetta“
Sjónvarpsmaðurinn og söngkonan Salka Sól Eyfeld var í gær áreitt af gesti á árshátið Icelandair sem fram fór í Laugardalshöll.

Vonlaust að halda partí án rappara
Rapparinn Herra Hnetusmjör er einn þeirra sem munu halda uppi stuðinu á Þjóðhátíð í Eyjum í sumar. Hann lofar einstökum tónleikum þar sem hann muni flytja slatta af nýju efni.

Spenntur fyrir næturlífinu
Måns Zelmerlöw, sem vann Eurovision-keppnina fyrir tveimur árum, situr í dómnefnd sem velur framlag Íslands í ár. Þetta er fyrsta ferð hans til Íslands og hann er ákaflega spenntur fyrir rómuðu reykvísku næturlífi.