
Fjarðabyggð

Vara við fjölda hreindýra á vegum
Lögreglan á Austurlandi varar við fjölda hreindýra sem sést hafa á vegum víðsvegar um landshlutann. Ökumenn eru hvattir til að vera á varðbergi og aka á löglegum hraða.

Fernando Costa nýr forstjóri Alcoa Fjarðaáls
Fernando Costa hefur verið ráðinn forstjóri Alcoa Fjarðaáls og tekur við af Smára Kristinssyni sem hefur gegnt forstjórastarfinu tímabundið eftir að Einar Þorsteinsson lét af störfum fyrr á þessu ári. Smári fer á sama tíma aftur í starf framkvæmdastjóra framleiðslu.

„Staðan á Austurlandi er mjög viðkvæm“
Víðtækt rafmagnsleysi varð á Austurlandi í gærkvöldi og nótt þegar tvær aðalraflínurnur á Austurlandi löskuðust vegna ísingar. Rafmagn er komið aftur á eftir bráðabirgðaviðgerð í nótt en staðan er og verður áfram viðkvæm í landshlutanum á meðan á viðgerð stendur og rafmagnstruflanir gætu orðið.

Rafmagn komið á fyrir austan
Rafmagnið fór af stórum hluta Austurlands í gærkvöldi og í nótt. Fljótsdalslína 2 og Hólasandslína 3 voru úti í gær sem og Kröflulína 1.

Sigurður Álfgeir frá Deloitte til Síldarvinnslunnar
Síldarvinnslan hefur ráðið Sigurð Álfgeir Sigurðarson, endurskoðanda, til starfa hjá fyrirtækinu. Sigurður verður firmaður reikningshalds hjá Síldarvinnslusamstæðunni og kemur þaðan frá Deloitte.

Hommahöllin komin á sölu
Listamennirnir Hákon Hildibrand, frumkvöðull, menningarfrömuður og dragdrottning, og Hafsteinn Hafsteinsson, myndlistarmaður og rithöfundur hafa sett hið sögufræga stórhýsi, Sigfúsarhús, á Neskaupstað til sölu. Húsið gengur í dag undir nafninu Hommahöllin.

Sótti þrjú hundruð tonna línuveiðiskip
Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar var kölluð út um hálf eitt í nótt til að aðstoða þrjú hundruð tonna línuveiðiskip sem var á veiðum út af Norðfjarðarhorni. Bilun hafði þá komið upp í skrúfubúnaði skipsins.

Banaslys í Norðfjarðarsveit
Maður á sjötugsaldri lést í vinnuslysi í dag á sveitabæ í Norðfjarðarsveit.

Fann mannakúk í regnhlíf í bílnum sínum
Íbúi á Eskifirði fann heldur ókræsilegan glaðning í bifreið sinni seinnipartinn í gær. Einhver hafði laumast inn í bílinn, kúkað í regnhlíf og haldið á brott. Regnhlífin var skilin eftir í aftursæti bifreiðarinnar.

Leið vítiskvalir með áldós fasta í gogginum
Aflífa þurfti unga grágæs sem fannst illa á sig komin við andapollinn á Reyðarfirði í síðustu viku. Gæsin hafði verið með áldós fasta í gogginum í tvo sólarhringa og liðið vítiskvalir.

Lýsa yfir óvissustigi og síðar hættustigi vegna mikilla rigninga
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Austurlandi lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna mikilla rigninga á Austfjörðum. Farið verður yfir á hættustig klukkan 18.

Aukin hætta á aurskriðum fyrir austan
Úrhellisrigningu er spáð á Austurlandi, Austfjörðum og Ströndum á Norðurlandi vestra í dag. Gera má ráð fyrir að mesta úrkoman falli til fjalla og valdi vatnavöxtum í farvegum fyrir austan, en líkur á aurskriðum aukast við þær aðstæður.

Ætlar að láta af störfum sem forstjóri Ice Fish Farm
Guðmundur Gíslason ætlar að stíga til hliðar sem forstjóri fiskeldisfyrirtækisins Ice Fish Farm á Austfjörðum og snúa sér að markaðsstörfum fyrir fyrirtækið. Hann heldur áfram sem forstjóri á meðan eftirmanns hans er leitað.

Björguðu ungum manni í sjálfheldu í Fáskrúðsfirði
Björgunarsveitarmenn á Austurlandi og þyrlusveit Landhelgisgæslunnar björguðu ungum manni sem hafði lent í sjálfheldu í Tungutröð, klettabelti milli Daladals og Tungudals inn af Fáskrúðsfirði, í gærkvöldi.

Lögregla bíður eiturefnagreiningar vegna hundadauða
Skyndilegur dauði tíu hunda á bænum Engihlíð í Norðurdal í Breiðdal er nú til rannsóknar hjá lögreglu. Beðið eiturefnagreiningar á tveimur hræjunum.

Landsbankinn kveður Háskólabíó og opnunartími styttist
Opnunartími í sjö útibúum Landsbankans styttist um þrjár klukkustundir þann 13. september. Útibúi bankans í Háskólabíói í Vesturbæ Reykjavíkur verður lokað. Engar uppsagnir fylgja breytingunum.

„Af því verður maður ríkastur“
Þýskur listmálari og íslenskur æðarbóndi sem skilja ekki tungumál hvors annars láta það ekki setja stein í götu vinskaparins. Síðan þeir kynntust hefur æðarbóndinn orðið að aðalgagnrýnanda listmálarans sem lætur nú ekkert frá sér nema bóndinn sé búinn að sjá það.

Búið að hreinsa fjöruna af sígarettustubbunum
Þúsundir sígarettustubba sem rak á land í fjöru nærri Eskifirði hafa verið fjarlægðir. Talið er að stubbarnir hafi komið úr skipi.

Þúsundir sígarettustubba ráku upp í fjöru: „Þetta er algjört ógeð“
Ófögur sjón blasti við Svanbjörgu Pálsdóttur og öðrum sem áttu leið sína um fjöruna skammt frá Eskifirði í dag. Þúsundir sígarettustubba lágu í fjörunni.

Aðstoðuðu hóp göngufólks í sjálfheldu
Björgunarsveitarfólk aðstoðaði hóp göngufólks í gærkvöldi sem taldi sig vera komið í sjálfheldu í brattlendi í hlíð milli Skarðstinds og Nípukolls í Norðfirði.

Vel heppnað fjölskylduverkefni sem tvöfaldaði íbúafjöldann
Bæjarhátíðin Neistaflug í Neskaupstað fór mjög vel fram um helgina og telja skipuleggjendur að metfjöldi fólks hafi lagt leið sína í bæinn. Haldið var upp á þrjátíu ára afmæli hátíðarinnar í ár og því áhersla lögð á að hafa hana sérstaklega veglega að þessu sinni.

Botna ekkert í dauða tíu hunda á Austurlandi
Yfirdýralæknir MAST segir óútskýrðan dauða tíu hunda á Austurlandi einstakt mál sem stofnunin botni ekki í að svo stöddu. Málið er nú á borði lögreglu.

Hundadauðinn kominn á borð lögreglu
Mál tíu hunda sem fundust dauðir fyrr í mánuðinum án skýringar er komið á borð lögreglu. Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir hjá Matvælastofnun, segir að verið sé að rannsaka hvort eitrað hafi verið fyrir þeim.

Fann tíu hunda sína dauða og grunar ódæði: „Allt sem ég stefndi að í lífinu var tengt hundunum“
Laugardaginn 8. júlí síðastliðinn kom Askur Bárðdal Laufeyjarson að tíu hundum sínum dauðum. Askur bíður eftir niðurstöðu krufninga en grunar að hundunum hafi verið unnið mein.

Fundu 21 geitungabú í vegg: „Við vorum grenjandi úr hlátri að halda tölunni“
Íbúi í Neskaupstað auglýsti nýverið eftir einhverjum sem gæti fjarlægt geitungbú af bílskúr hennar. Fráfluttur sonur Neskaupstaðar bauð fram þjónustu sína og fékk aðstoð frá dönskum mjólkurfræðingi. Saman fjarlægðu þeir minnst 21 geitingabú innan úr vegg bílskúrsins.

Réðu reynslubolta frá Brim sem flytur fjölskylduna til Fáskrúðsfjarðar
Garðar Svavarsson hefur verið ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar hf. Fáskrúðsfirði. Garðar tekur við starfinu af Friðriki Mar Guðmundssyni sem lætur af störfum á haustmánuðum eftir 19 ára starf hjá félögunum, þar af sem framkvæmdastjóri undanfarin 10 ár.

Tík bjargað úr klettum
Síðdegis í gær voru tíkin Mýsla og eigandi hennar á ferð um Einstakafjall þar sem eigandi Mýslu var að taka ljósmyndir. Á meðan hann tók myndir hljóp Mýsla frá honum og hvarf niður fyrir klettabrún.

Hringtenging með göngum nauðsynleg
Nauðsynlegt er að ráðast í göng milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar og Mjóafjarðar og Norðfjarðar um leið og göng yfir Fjarðarheiði líta dagsins ljós, svo hægt sé að ná hringtengingu á Austurlandi, ellegar sé erfitt að líta á svæðið sem eitt sameiginlegt atvinnusvæði. Þetta segir sveitastjóri Múlaþings. Skynsamlegast væri að fylgja Færeyingum í gangagerð.

Viðbragðsaðilar kallaðir út vegna flugvélar á Austurlandi
Umfangsmiklar aðgerðir eru í gangi á Austurlandi eftir að boð barst frá neyðarsendi um borð í flugvél nálægt Breiðdalsheiði. Ekki hefur náðst samband við vélina en um er að ræða fjögurra sæta Cessna 172 flugvél. Ekki liggur fyrir hve margir eru um borð.

Fjarskiptatruflanir á Austfjörðum
Upp kom bilun í fjarskiptabúnaði Mílu á Fáskrúðsfirði sem hafði áhrif á fjarskipti á sunnanverðum Austfjörðum, á Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði, Breiðdalsvík og svæðum þar í kring.