
Reykjanesbær

Fjögurra hæða blokk reist á hálfum mánuði
Fjögurra hæða fjölbýlishús var reist í Reykjanesbæ á aðeins hálfum mánuði. Þetta er í fyrsta sinn sem byggð er blokk úr timbureiningum hér á landi, en þær komu til landsins í nóvember og fólk er þegar flutt inn í nokkrar íbúðir hússins.

Sjö af hverjum tíu innflytjendum vilja persónulega þjónustu
Sjö af hverjum tíu innflytjendum vilja fá persónulega þjónustu en ekki eingöngu þjónustu í gegnum síma eða tölvu. Þetta er meðal niðurstaðna í nýju meistaraverkefni um bætta innflytjendaþjónustu í Reykjanesbæ. Forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum segir þörf á því að geta veitt innflytjendum margvíslega þjónustu á einum stað.

Þrír saman á einni vespu óku gegn einstefnu og höfnuðu á bíl
Réttindalaus piltur er ók vespu gegn einstefnu í Keflavík um helgina endaði för sína með því að aka á bifreið sem kom úr gagnstæðri átt.

Alltaf fullt út úr dyrum hjá kaþólska prestinum á Ásbrú
Fjöldi barna sem ganga í fyrsta sinn til altaris í sóknarkirkju heilags Jóhannesar Páls II í Reykjanesbæ hefur tvöfaldast á fjórum árum. Sóknarpresturinn segir pólskum kaþólikkum á svæðinu alltaf verið að fjölga en hverja helgi er fullt út úr dyrum í messum hjá honum.

Jóhann Friðrik nýr framkvæmdastjóri Keilis
Jóhann Friðrik Friðriksson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri Keilis – miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs, í stað Hjálmars Árnasonar sem lætur af störfum í sumar eftir 12 ára starf.

Um þrjátíu manns nota vímuefni í æð á Suðurnesjum
Talið er að rúmlega þrjátíu manns á Suðurnesjum noti vímuefni í æð og er hópurinn að yngjast samkvæmt þarfagreiningu Rauða krossins á svæðinu. Í haust mun mun skaðaminnkunarverkefni, Fröken Ragnheiður, fara af stað á Suðurnesjum þar sem notendur geta sótt sér hreinar nálar.

Stór hópur fólks af erlendum uppruna á atvinnuleysisskrá á Suðurnesjum
252 hafa skráð sig á atvinnuleysisskrá á Suðurnesjum síðan WOW air féll þremur vikum. 35 prósent eru með erlent ríkisfang og stór hluti er barnafólk.

Reykjaneshöfn stendur ekki undir sér óbreytt
Þrátt fyrir að Reykjanesbær hafi sett tæplega tvö hundruð milljónir króna inn í rekstur Reykjaneshafnar í fyrra var reksturinn neikvæður um 44 milljónir króna. Hafnarstjóri segir höfnina ekki rekstrarhæfa í óbreyttri mynd.

Stefna að því að ræsa kísilverið á ný um mitt ár 2021
Unnið er eftir þeirri áætlun að kísilverksmiðjan í Helguvík hefji starfsemi að loknum endurbótum um mitt ár 2021. Framkvæmdir við verksmiðjuna þurfa að fara í umhverfismat með ellefu matsþáttum samkvæmt ákvörðun Skipulagsstofnunar sem var birt í dag.

Krefst mats á áhrifum kísilverksmiðjunnar í Helguvík á heilsu íbúa
Ein af þeim kröfum sem Skipulagsstofnun fer fram á er mat á áhrifum kísilverksmiðjunnar á heilsu íbúa.

Hefja uppbyggingu við Reykjanesvita
Ekki liggur fyrir hver kostnaðurinn verður við uppbyggingu ferðamannaaðstöðu við Reykjanesvita sem til stendur að ráðast í. Engin aðstaða fyrir ferðamenn er við vitann nú en talið er að á bilinu tvö til þrjú hundruð þúsund gestir heimsæki hann árlega.

Fundu stolin verkfæri við húsleit í Keflavík
Lögregla á Suðurnesjum hafði uppi á stofnum verkfærum við húsleit í íbúðarhúsnæði í Keflavík á miðvikudag.

Þungt hljóð í leigubílstjórum á Suðurnesjum
Afleiðingar falls WOW air er að koma niður á þeim af fullum þunga.

Fjársvikamál Magnúsar umfangsmeira en talið var í fyrstu
Eftir því sem vinnu skipstjóra þrotabús Sameinaðs sílicon hf. hefur undið fram hafa fleiri tilvik komið fram sem hafa verið tilkynnt til héraðssaksóknara.

Sýndi skeytingarleysi um líf annarra og fær ekki Tesluna aftur
Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu í dag að Magnús Ólafur Garðarsson, fyrrverandi forstjóri United Silicon, fái ekki aftur Tesla bifreið sína. Þá var fjögurra mánaða skilorðsbundinn dómur yfir Magnúsi úr héraðsdómi fyrir umferðarlagabrot.

Rapparar hella sér yfir lögguna á Suðurnesjum
Ólafur Helgi lögreglustjóri veit ekki hvaðan á sig stendur veðrið.

Handtóku sjö og lögðu hald á byssur við húsleit í Reykjanesbæ
Einnig var lagt hald á töluvert magn af kannabisefnum og amfetamíni.

Björguðu manni sem féll í höfnina í Keflavík
Var með meðvitund þegar honum var bjargað.

18 ára skósmiður sem elskar athygli
Helgi Líndal Elíasson, 18 ára nemandi í Fjölbrautaskóla Suðurlands í Reykjanesbæ, hannar og smíðar skó.

„Þetta mun líka skapa félagsleg vandamál sem þarf að taka á strax“
Þingmenn Suðurkjördæmis funduðu með sveitarstjórnarmönnum á Suðurnesjum í dag en fall WOW air hefur gríðarleg áhrif á fjölda starfa á svæðinu.

„Ekki loku fyrir það skotið að það komi fleiri uppsagnir á næstunni”
Andrúmsloftið er nokkuð þungt á Suðurnesjum eftir fall WOW air og fjölda uppsagna hjá fyrirtækjum á svæðinu að sögn forseta sveitarstjórnar í Reykjanesbæ.

„Við Suðurnesjamenn erum ýmsu vanir“
Yfirvöld Reykjanesbæjar hafa áhyggjur af störfum á svæðinu í kjölfar gjaldþrots WOW air.

Lífeyrissjóðir gætu eignast meirihlutann í HS Orku
Jarðvarmi, sem er í eigu fjórtán lífeyrissjóða, hefur um tvo mánuði til að beita forkaupsrétti sínum og ganga inn í kaup á meirihlutanum í HS Orku sem samið var um í gær að selja til MIRA.

Segir fjárhag Reykjanesbæjar viðkvæman vegna ytri aðstæðna
Margrét Þórarinsdóttir, fulltrúi Miðflokksins í bæjarstjórn Reykjanesbæjar, telur óheillavænlegt að setja hundruð milljóna í uppbyggingu í bænum á meðan óvissa ríkir um ytri efnahagsaðstæður sem muni bitna hart á Reykjanesbæ ef aðstæður þróast í neikvæða átt.

30 milljóna skuld WOW ekkert aðalatriði í stóra samhenginu
Hótelstjóri í Keflavík leyfir sér að vera bjartsýnn þrátt fyrir stöðuna í íslenskri ferðaþjónustu. Hann muni tímana tvenna og segist fullviss um að öll él stytti upp um síðir.

Stöðvuðu 150 bifreiðar á Reykjanesbraut
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði um 150 bíla á Reykjanesbraut við Innri-Njarðvík í gærkvöldi.

Fyrsti íslenski hamborgarinn gæti hafa verið seldur 1941
Leitin að fyrsta íslenska veitingastaðnum sem seldi Íslendingum hamborgara er að verða æsispennandi. Áhorfendur Stöðvar 2 og lesendur Vísis hafa sent fréttastofunni fjölda ábendinga síðastliðinn sólarhring.

Fyrsti hamborgarinn á Íslandi var ekki seldur í Staðarskála
Bara della, segir matreiðslubókahöfundur og áhugamanneskja um matarsögu Íslendinga.

Stöðvaður með fíkniefni í bílnum
Þá voru tíu ökumenn til viðbótar teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefnaakstur.

Ferðamanni á 157 km/klst veitt eftirför að Keflavíkurflugvelli
Maðurinn játaði hraðaksturinn og greiddi sekt á staðnum.