Kópavogur
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 54 ›
Vildi ekki kanna hvort bílnum hefði verið stolið vegna kulda Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um að bíl hefði verið stolið við verslun í Kópavogi. Eigandi bílsins vildi ekki fara út og ganga úr skugga um að bílnum hefði verið stolið vegna þess hve kalt var, samkvæmt dagbók lögreglu. Innlent 14.12.2022 18:45
Tvö börn fótbrotin og Rush breytti reglunum Trampólíngarðurinn Rush hefur tilkynnt breytingar á reglum sínum til að auka öryggi gesta. Eldri systkini barna fimm ára og yngri mega ekki fylgja þeim í krakkatíma án forráðamanns. Þar að auki mega börn á þessum aldri einungis sækja garðinn þegar fyrrnefndir krakkatímar eru. Innlent 14.12.2022 12:56
Kaldavatnslaust á Kársnesi og heitavatnslaust í Laugarnesi Kaldavatnslaust er víða á Kársnesi og truflana á vatnsflæði gætir víðar í Kópavogi eftir að kaldavatnslögn við Kársnesbraut rofnaði. Þá er heitavatnslaust á Laugarnesvegi í Laugardalnum vegna bilunar. Innlent 14.12.2022 11:14
Flæddi inn í tvö hús þegar vatnslögn rofnaði á Kársnesi Slökkvilið höfuðborgarsvæðinu var kallað út eftir að vatnslögn rofnaði á Kársnesi í Kópavogi á sjötta tímanum í morgun. Kaldavatnslaust er á Kársnesi. Innlent 14.12.2022 08:14
Kaldir og blautir eftir svaðilför við Elliðavatn Betur fór en á horfðist í gær þegar tíu og ellefu ára drengir lentu í vandræðum á Elliðavatni þegar þeir fóru út á ísilagt vatnið og ísinn brotnaði undan þeim. Þeir komust í land, kaldir og blautir með aðstoð slökkviliðsins. Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir aldrei óhætt að fara út á ísilagt vatn. Innlent 6.12.2022 21:00
Lögregla varar við ísilögðum vötnum og tjörnum Ungir drengir voru hætt komnir þegar þeir féllu í Elliðavatn síðdegis í gær þegar ísinn undir þeim brotnaði. Lögregla varar við ísilögðum vötnum, lækjum og tjörnum. Innlent 6.12.2022 12:16
Bjargað eftir að hafa orðið strandaglópar á Elliðavatni Þrír ungir drengir urðu strandaglópar úti á Elliðavatni um klukkan fjögur í dag. Innlent 5.12.2022 20:08
Fimm réðust á gest veitingahúss í Kópavogi Veitingahússgestur í Kópavogi hlaut áverka á höndum og fótum þegar ráðist var á hann á öðrum tímanum í nótt. Fimm manns eru sagðir hafa tekið þátt í árásinni en þeir voru farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði. Innlent 4.12.2022 07:38
Dómur mildaður fyrir manndráp af gáleysi í Vindakór Landsréttur mildaði í dag dóm yfir Dumitru Calin fyrir að hafa af gáleysi banað Daníel Eiríkssyni fyrir utan heimili Daníels í Vindakór árið 2021. Dumitru var dæmdur í tveggja ára fangelsi en hafði áður hlotið þriggja og hálfs árs fangelsi í héraði. Innlent 25.11.2022 14:50
„Gamla skammtíma- og óskilvirka loforðapólitíkin ræður nú aftur ríkjum í Kópavogi“ Fulltrúar í minnihluta í bæjarstjórn Kópavogs eru allt annað en ánægðir með verklag við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins fyrir árið 2023. Segja þeir að mikil afturför hafi orðið hvað þetta varðar með nýjum meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknarmanna sem myndaður var eftir kosningarnar í vor og að nú hafi vinnan ekki verið unnin í þverpólitískri sátt líkt og síðustu ár. Innlent 23.11.2022 11:02
Spilar á 20 kílóa hljóðfæri í tveimur lúðrasveitum Það er heilmikil vinna og fyrirhöfn hjá 15 ára strák í Kópavogi að koma sér á lúðrasveitaæfingu í þeim tveimur lúðrasveitum, sem hann spilar með, því hljóðfærið hans er það allra stærsta í lúðrasveitum, eða túba. Hljóðfærið vegur um 20 kíló. Innlent 21.11.2022 20:05
Fólkið sem fann draumaheimilið við þjóðveginn austur úr borginni Þegar við fylgjum Hólmsá og Suðurlandsvegi austur úr borginni, upp með vatnasviði Elliðavatns, má finna leyndar perlur og áhugavert mannlíf. Svæðið geymir sögu nýbýla frá vaxtarárum Reykjavíkurbæjar eftir fyrri heimsstyrjöld og einnig stríðsminjar úr síðari heimsstyrjöld. Lífið 20.11.2022 09:30
Iðinn sjálfsafgreiðslusvindlari gripinn glóðvolgur Maður sem virðist hafa stundað það að nýta sér sjálfsafgreiðslukassa til þess að greiða lægra verð fyrir vörur var gripinn glóðvolgur við iðjuna í verslun í Kópavogi í gær. Innlent 19.11.2022 07:39
Handtekinn fyrir að ganga berserksgang í apóteki Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók einstakling sem var sagður hafa gengið berserksgang í apóteki í Kópavogi í dag. Þá stóð lögregla innbrotsþjóf að verki í Hlíðahverfi. Innlent 17.11.2022 21:32
Spurt hvort fjarlægja ætti stíflu Elliðavatns eftir lokun virkjunar Spurningar hafa vaknað um hvort fjarlægja eigi stíflu Elliðavatns og koma vatninu í upprunalegt horf, eftir að rekstri Elliðaárstöðvar var hætt. Líffræðingur sem vaktar Elliðavatn segir að slíkt þyrfti að hugsa vandlega og að söknuður yrði af vatninu. Innlent 17.11.2022 21:11
Njóta sveitalífs við niðinn í ánni en búa samt í jaðri borgarinnar Elliðavatn og vatnasvið þess upp með ánum Bugðu og Hólmsá geymir leyndar perlur og áhugavert mannlíf. Því kynnumst við í þættinum Um land allt á Stöð 2 í kvöld. Lífið 14.11.2022 15:54
Guðmundur í Víði bjó sér til fossnið við Elliðavatn „Það blundaði alltaf í honum svo mikill bóndi. Hann hafði svo gaman af náttúrunni,“ segir Ólafur Kr. Guðmundsson, þegar hann útskýrir hversvegna faðir hans, Guðmundur Guðmundsson, forstjóri Trésmiðjunnar Víðis, valdi að byggja upp heimili fjölskyldunnar í sveit við Elliðavatn. Lífið 13.11.2022 12:36
Hundruð bíða eftir áritun David Walliams í Smáralind Nokkur hundruð manna bíða nú í röð í Smáralind eftir því að fá áritun frá leikaranum, grínistanum og höfundinum David Walliams. Markaðsstjóri Smáralindar segir þetta vera lengstu röðina síðan H&M opnaði í verslunarmiðstöðinni. Lífið 12.11.2022 13:47
Faðirinn alvarlega vanræktur á Sunnuhlíð og móðirin lést úr sorg Dóttir manns sem lést í kjölfar alvarlegrar vanrækslu og mistaka á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi fyrir fimm árum lýsir kaldranalegu viðmóti forstjóra heimilisins. Ekki hafi verið tekið mark á fjölskyldumeðlimum sem upplifðu manninn sárkvalinn og oflyfjaðan. Hún segir móður sína aldrei hafa jafnað sig á meðferðinni á eiginmanni sínum og hafi í raun látist úr sorg. Innlent 12.11.2022 07:00
Bóndinn í borginni minnir á hvar stór hluti landbúnaðarvara er framleiddur Bóndi sem stundar landbúnað á lögbýli í einu af nýjustu hverfum Kópavogs segir fólk almennt ekki átta sig á því hversu stór hluti af landbúnaðarvörum Íslendinga sé framleiddur á Reykjavíkursvæðinu. Innlent 11.11.2022 22:44
Loka að næturlagi til að koma í veg fyrir bílahittinga Búið er að setja upp hlið við bílaplanið við Norðurturn Smáralindar. Hliðið kemur í veg fyrir að bílahittingar eigi sér stað þar í skjóli nætur. Innlent 9.11.2022 12:09
Áhersla á velferð og skólamál í Kópavogi í fjárhagsáætlun 2023 Meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Kópavogs hefur nú lagt fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2023. Skoðun 9.11.2022 11:31
Opna fyrsta fótboltaskemmtigarð landsins í Smáralind Fótboltaland, fyrsti fótboltaskemmtigarður landsins, verður opnað í Smáralind í janúar. Tæplega tuttugu mismunandi þrautabrautir verða í garðinum. Viðskipti innlent 9.11.2022 09:38
Skógariðnaður vex upp af trjánum í Heiðmörk Sjötíu árum eftir að fyrstu trén voru gróðursett í Heiðmörk er svæðið farið að gefa af sér umtalsverðar skógarnytjar. Borðviður, veggklæðningar og gólffjalir eru meðal afurða sem verða til í sögunarmyllu Skógræktarfélags Reykjavíkur. Innlent 7.11.2022 21:21
Fólk sem býr og starfar við Elliðavatn lýsir dásemdum útvistarperlunnar „Það er alveg dásamlegt að vinna hérna. Þessi kyrrð og nánd við náttúruna. Þetta er ólýsanlegur vinnustaður. Þetta eru forréttindi að fá að vinna á þessum stað,“ segir Auður Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur, en skrifstofa félagsins er í Elliðavatnsbænum. Auður býr auk þess í Norðlingaholti, en hún segir það meðal lífsgæða hverfisins hvað það er nálægt Heiðmörk. Lífið 7.11.2022 14:53
Jón Gunnarsson segist ekki hafa haft í hótunum við Unni Berglindi Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefur birt pistil þar sem hann svarar ásökunum sem Unnur Berglind Friðriksdóttir setti fram í morgun. Hann vísar því alfarið á bug að hafa haft í hótunum við hana. Innlent 3.11.2022 15:16
Kjörbréfanefndarmenn telja illa að starfsfólki Valhallar vegið Lögfræðingarnir þrír sem skipa kjörbréfanefnd Sjálfstæðisflokksins hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir harma að hafa mátt sitja undir ásökunum frá formanni Sjálfstæðisfélagsins í Kópavogi þess efnis að þeir gangi erinda formanns flokksins í störfum sínum. Innlent 3.11.2022 13:17
Sakar menn Bjarna um að fara offari í kosningabaráttunni Unnur Berglind Friðriksdóttir, formaður Sjálfstæðisfélags Kópavogs, segir stuðningsmenn Bjarna Benediktssonar formanns fara offari í kosningabaráttunni. Innlent 3.11.2022 11:27
Bleikar sjálfstæðiskonur í Kópavogi Félag sjálfstæðiskvenna í Kópavogi, Edda, hélt fyrsta viðburð starfsársins í gær. Ræðumenn og heiðursgestir kvöldsins voru Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs. Lífið 28.10.2022 11:01
Kópavogur verður ekki Menningarborg Evrópu 2028 Ljóst er að Kópavogur verður ekki Menningarborg Evrópu árið 2028. Þetta varð ljóst í morgun þegar bæjarráð Kópavogsbæjar samþykkti með fimm atkvæðum að „ekki [væri] tímabært að taka þátt í verkefninu Menningarborg Evrópu að þessu sinni“. Menning 27.10.2022 13:44