Kópavogur

Kópavogur

Mannfjöldi: 40.041 (2025). Flatarmál: 110 ferkílómetrar.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Kór­stjórinn sem ól upp kyn­slóðir Kársnesbúa: „Sönglaus skóli er hjarta­laus skóli“

Kórstjórinn Þórunn Björnsdóttir, Tóta eins og hún er yfirleitt kölluð, stofnaði Skólakór Kársness fyrir fimmtíu árum síða, 7. mars 1976. Næstu fjóra áratugina eftir það ól hún upp heilu kynslóðirnar af börnum gegnum kórstarfið. Meðal þeirra sem stigu sín fyrstu skref hjá Tótu eru Emilíana Torrini, Halla Tómasdóttir, Gissur Páll Gissurarson og Erpur. Tóta er fyrsti íslenski grunnskólakennarinn sem fékk kórstarfið inn í stundarskrá og segir sönglausa skóla vera hjartalausa skóla.

Lífið
Fréttamynd

Gular við­varanir á suð­vestur­horninu

Spáð er austan og suðaustan 13-20 m/s sunnan- og vestantil í dag og fer að snjóa þar upp úr hádegi en von á rigningu eða slyddu síðdegis. Vindur verður hægari og úrkomulítið um landið norðaustanvert. Veður fer hlýnandi og hiti víða núll til átta stig síðdegis, hlýjast sunnan heiða.

Veður
Fréttamynd

Kveikt í trú­verðug­leika Sam­fylkingarinnar – slökkvi­liðið er sem betur fer á leiðinni

Kjósendur eiga betra skilið en upphrópanir og rangfærslur. Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi hljóp aðeins á sig þegar hann hélt því fram í grein hér á Vísi sl. mánudag að uppbygging slökkvistöðvari í efri byggðum væri föst „í gíslingu“ Kópavogsbæjar en lét hjá líðast að nefna að stöðin er fjármögnuð og á áætlun og verður tilbúin 2030. Hvers konar gíslataka er það eiginlega – lélegasta gíslataka sögunnar?

Skoðun
Fréttamynd

„Valsreiturinn... í Pyongyang“

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, birti mynd á Facebook af Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu í höfuðborginni Pyongyang og segir sjást „glöggt“ að Kim-stjórnin hafi „skammlaust stolið íslenskri byggingarlist í heilu lagi“. Umræður hafa spunnist um líkindi milli norður-kóresku bygginganna við Valsreitinn og Borgartúnið.

Lífið
Fréttamynd

Krafa að fá slökkvi­stöð í bæinn

Mikilvægt er að næsta slökkvistöð á höfuðborgarsvæðinu rísi í efri byggðum Kópavogs að mati bæjarstjórans til að stytta viðbragðstíma slökkviliðsins á svæðinu. Ef áform ganga eftir verður hún að veruleika árið 2030.

Innlent
Fréttamynd

Hefði þótt skrítið að senda alla sjúkrabíla með vatnsbrúsa

Reynir Freyr Pétursson, þyrluflugstjóri hjá Heliair, vill að keyptar séu skjólur og samið við þyrlufyrirtæki til að bregðast við þegar upp koma gróðureldar. Minni skjólur á minni þyrlum séu töluvert afkastameiri en stór skjóla á stórum þyrlum Landhelgisgæslunnar. 

Innlent
Fréttamynd

„Mikið á­fall að vera allt í einu komin með eld í bak­garðinn“

Gróðureldarnir við Elliðavatn í gær eru meðal þeirra stærstu sem komið hafa upp á höfuðborgarsvæðinu. Hestamenn í Kópavogi óttuðust um tíma að eldarnir bærust í hesthúsin og segja það áfall að vera með eld í bakgarðinum. Fjöldi fólks flykktist á staðinn sem gerði rýmingu hesthúsa erfiðari svo og slökkviliðsmönnum að komast á staðinn.

Innlent
Fréttamynd

Erfitt að segja til um upp­tök gróðureldanna

Þrjátíu og tveggja hektara svæði brann í gróðureldunum við Elliðavatn í gær en svæðið er torsótt og reyndist erfitt að koma slökkvibílum að. Mikil sina er víða eftir frost og töluverðan þurrk undanfarið og biðlar slökkviliðið til fólks að fara varlega með eld og láta vita strax ef það verður vart við gróðurelda.

Innlent
Fréttamynd

Sinueldur við Elliða­vatn

Sinueldur kviknaði við suðvesturhorn Elliðavatns í Reykjavík rétt eftir klukkan þrjú í dag. Slökkviliðið réði niðurlögum eldsins um sjöleytið.

Innlent
Fréttamynd

Skilar Kópa­vogur auðu í húsnæðis­málum?

Það vakti athygli að bæjarráð Kópavogs hafnaði í síðustu viku umsókn Bjargs Íbúðafélags um 220 milljón króna stofnframlag til byggingar á 24 íbúðum fyrir tekjulágar og eignalitlar fjölskyldur í sveitarfélaginu.

Skoðun
Fréttamynd

„Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur nú til rannsóknar að karlmaður á miðjum aldri hafi reynt í gær að lokka fjórar níu ára gamlar stúlkur upp í sendiferðabíl sinn í stað fyrir súkkulaði. Júlíana Sara Gunnarsdóttir, leikkona og móðir einnar stúlkunnar, segir atvikið áminningu til foreldra um að fræða börn sín.

Innlent
Fréttamynd

„Fjöl­skyldur eru margar í al­gjörri spenni­treyju“

Oddviti Sjálfstæðisflokksins og formaður Eflingar telja nýjar tillögur Reykjavíkurleiðarinnar betri en þær sem voru kynntar í haust. Formaður Eflingar hefur áhyggjur af því að ekki sé nóg gert til að bregðast við alvarlegri stöðu innan leikskóla en er vongóð. Oddviti Sjálfstæðisflokksins hefur áhyggjur af áhrifum breytinganna á fjölskyldur og er ekki hrifin af tekjutengingu í gjaldskrá.

Innlent
Fréttamynd

Hafnar því að strandað hafi á honum að bregðast við menguninni

Oddviti Framsóknar segir af og frá að aðgerðir vegna mengunar á höfuðborgarsvæðinu hafi strandað á honum. Hann segir Pírata og Samfylkingu með fullkomlega óraunhæfar hugmyndir til að bregðast við. Kjörnir fulltrúar segjast í svörum til fréttastofu í dag líta málið alvarlegum augum, flestir segja í þetta skiptið nagladekk vera meginorsakavaldinn.

Innlent
Fréttamynd

Á­rásar­maðurinn á blótinu með langan brotaferil á bakinu

Karlmaður á fimmtugsaldri liggur enn alvarlega slasaður á Landspítalanum eftir að ráðist var á hann á þorrablóti HK í Kórnum í Kópavogi föstudagskvöldið 30. janúar. Maðurinn er með alvarlega höfuðáverka. Árásarmaðurinn á sér sögu fyrir ofbeldisbrot.

Innlent