Skóla- og menntamál
37 38 39 40 41 42 43 44 45 … 137 ›
Færri leikskólabörn innrituð í Reykjavík í haust vegna framkvæmda Úthlutun leikskólaplássa í Reykjavík hefst á morgun. Einn leikskóli mun ekki taka við nýjum börnum og endurbætur á húsnæði munu hafa áhrif á innritun sex annarra leikskóla. Innlent 13.3.2023 13:51
„Hvað svo?“ – Nám í þjóðfræði Nú þegar Háskóladagurinn er nýbúinn eru líklega mörg að velta fyrir sér að fara í nám og skoða hvað er í boði. Þegar ég lauk framhaldsskóla fékk ég oft spurninguna hvað ég ætlaði svo að gera næst. Oft fannst mér ætlast til þess að næsta skref væri háskólanám, þar sem ég þyrfti að velja námið út frá því hvað ég ætlaði svo að verða. Skoðun 10.3.2023 12:01
Krafði Katrínu og Bjarna um skýr svör Stúdentar við Háskóla Íslands mótmæltu fyrir utan Ráðherrabústaðinn í dag, vegna þess sem þeir telja vera vanfjármögnun hins opinbera háskólakerfis. Forseti Stúdendaráðs HÍ afhenti forsætis- og fjármálaráðherra áskorun stúdenta og lét ráðherra vinna fyrir kaupinu sínu með krefjandi spurningum. Innlent 10.3.2023 11:33
Hvernig kennara þurfum við? Börnin okkar alast upp í öðru samfélagi en við gerðum. Á uppvaxtarárunum skipa skólar veigamikinn sess. Markmið leik-, grunn- og framhaldsskóla er að veita börnum og nemendum menntun og umönnun, búa þeim hollt og hvetjandi námsumhverfi, stuðla að alhliða þroska þeirra og virkri þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Skoðun 10.3.2023 10:30
Kennarinn er ekki lengur uppfræðarinn með bókina! Í nútíma þjóðfélagi hnattvæðingar og tækniþróunar, þar sem nálgast má allar upplýsingar, þekkingu og afþreyingu með einum smelli, hafa kröfur á kennara breyst. Þetta verða þeir varir við daglega og margir hverjir troða marvaða til að haldast á floti, en starfslýsingar kennara hafa lítið breyst og aðlögun að nýjum áherslum og starfsháttum ekki verið kynntar. Skoðun 9.3.2023 23:00
„Er þetta ekki styrkt af því að þetta eru aðallega stúlkur?“ Skólastjóri Listdansskólans sakar stjórnvöld um að mismuna börnum eftir vali á tómstundum en framtíð skólans er í algjörri óvissu vegna fjárhagsörðugleika. Þá spyr hann hvort áhugaleysi ráðamanna skrifist á það að námið stunda aðallega stúlkur. Nemendur vilja að skólanum verði bjargað. Innlent 9.3.2023 19:30
Börnin á Laufásborg geta það sem fæstir fullorðnir hafa tök á Fréttastofa leit við í Iðnó þar sem verið var að setja á stofn með formlegum hætti Kvæðabarnafjelag Laufásborgar. Athöfnin fólst í sannfærandi flutningi leikskólabarna á sígildum íslenskum rímnakveðskap, en sú mæta listgrein hefur eins og þekkt er áratugum saman legið nokkuð óbætt hjá garði. Hér gengur hún í löngu tímabæra endurnýjun lífdaga. Innlent 9.3.2023 08:00
Sex ráðherrar ekki leyst vandann Fráfarandi formaður Félags íslenskra listdansara (FÍLD) gagnrýnir það að listdans sé langt á eftir öðrum listgreinum innan styrkveitingakerfisins. Í sautján ár hefur listdansinn fengið litla sem enga fjárhagsaðstoð og hver ráðherrann á eftir öðrum nær ekki að afgreiða málið. Innlent 8.3.2023 16:41
Takk! Í haust lýkur yngsta dóttir mín leikskólagöngu sinni og ákveðnum kafla í bók fjölskyldunnar lokið. Því fylgja blendnar tilfinningar, enda hefur margt gerst á þessum árum; margt sem maður myndi vilja endurtaka og annað ekki. En ég finn hjá mér djúpa þörf fyrir að segja takk. Skoðun 8.3.2023 12:00
Hvað lærðum við af fjöldatakmörkunum í leikskólastarfi? Þann 28. febrúar árið 2020 var fyrsta tilfelli COVID-19 greint á Íslandi, fyrsta tilfellið var staðfest, nýr veruleiki blasti við okkur sem þjóð. Það leið ekki á löngu áður en að þessi nýi veruleiki rataði inn í skólastofnanir, starfsfólk í skólum og stjórnendur upplifðu síkvikan veruleika, dagsskipulag riðlaðist og að morgni hvers dags þurfti að „reisa skóla frá grunni“. Skoðun 8.3.2023 11:01
Öllum starfsmönnum Listdansskóla Íslands sagt upp Öllum fastráðnum starfsmönnum Listdansskóla Íslands hefur verið sagt upp og framtíð skólans er í óvissu. Skólastjórinn segir skólann hafa átt í fjárhagslegum erfiðleikum en vonir standa til að hægt verði að tryggja áframhaldandi rekstur. Innlent 8.3.2023 06:39
Mygludraugabanar geti fundið myglu þar sem þeir vilja Hilmar Þór Björnsson arkitekt segir það vera vandamál að verkfræðistofan EFLA skuli bæði sjá um að greina myglu og bjóða upp á ráðgjöf við að fjarlægja hana. Sérfræðingur í myglu segir ekkert vera athugavert við það þar sem verkefnið sé flókið. Innlent 7.3.2023 14:13
Háskólann vantar milljarð, núna! Þrátt fyrir ítrekuð áköll stúdenta og starfsfólks til yfirvalda um að bregðast við versnandi fjárhagsvanda opinberra háskóla, er ljóst að stjórnvöld hafa trekk í trekk látið háskólastigið sitja á hakanum og þar með brugðist skyldu sinni hvað varðar eina af grunnstoðum íslensks samfélags. Skoðun 7.3.2023 08:00
Stöðugur óstöðugleiki í leikskólamálum Vaxandi óstöðugleiki hefur plagað leikskólakerfið í það minnsta síðustu tuttugu árin að mati sérfræðinga eins og t.d. Haraldar F. Gíslasonar formanns félags leikskólakennara, Harðar Svavarssonar leikskólastjóra Aðalþings og Dr. Guðrúnar Öldu Harðardóttur doktors í menntavísindum. Skoðun 7.3.2023 08:03
Sérstöku landsteymi ætlað að bregðast við erfiðari málum strax Á fimmta hundruð manns tóku þátt í svokölluðum þjóðfundi um framtíð skólaþjónustu í Hörpu í dag, þar sem ný heildarlöggjöf í málaflokknum er væntanleg. Mennta- og barnamálaráðherra segir þau hafa skort löggjöf og stofnun til að aðstoða kerfið við að bregðast við áskorunum en við því sé verið að bregðast. Hann mun koma á fót landsteymi á næstu dögum sem er ætlað er að taka á erfiðum málum. Innlent 6.3.2023 21:12
„Það liggur alveg fyrir að við þurfum sterkara kerfi“ Þörf er á sterkara kerfi til að mæta auknum þörfum skólasamfélagsins að sögn verkefnastjóra hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu. Margir skólar og nemendur séu ekki að fá þá þjónustu sem þau þurfa til að dafna eins og staðan er í dag. Tilkoma miðlægrar stofnunar sé skref í rétta átt en mörg úrlausnarefni standi eftir. Innlent 6.3.2023 13:32
Áhyggjur leikskólakennara Í töluverðan tíma hef ég haft gríðarlegar áhyggjur af máltöku ungra barna í leikskólum. Eftir 37 ára starf með börnum veit ég hversu mikilvæg máltakan er..hversu mikið vægi hún hefur í daglega lífi lítilla barna og hversu mikill grunnur hún er að framtíð þeirra. Skoðun 6.3.2023 10:01
Bein útsending: Þjóðfundur um framtíð skólaþjónustu Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, stendur fyrir þjóðfundi um framtíð skólaþjónustu á Íslandi sem fram fer í Silfurbergi í Hörpu milli klukkan 9 og 16 í dag. Hægt verður að fylgjast með ávörpum í beinu steymi í spilara að neðan. Innlent 6.3.2023 08:38
Svar til Eyjólfs Ármannssonar v. greinarinnar Brjótum lestrarkóðann í lestrarkennslu Eyjólfur Ármannsson skrifar grein sem birtist í Morgunblaðinu laugardaginn 4. mars og fjallar þar um lestrarkennslu. Það er jákvætt að alþingismaður skuli veita málaflokknum athygli og má taka undir sumt í greininni. Þó eru þar rangfærslur sem nauðsynlegt er að leiðrétta. Skoðun 6.3.2023 08:00
Of ung til að stíga ekki reglulega út fyrir þægindaramman „Mér fannst ég of ung til að vera ekki að takast á við nýjar áskoranir og stíga reglulega út fyrir þægindaramman,,“ segir María Guðjónsdóttir og hlær þegar hún skýrir út hvers vegna hún ákvað í fyrra að sækja um starf framkvæmdastjóra viðskiptaskrifstofu Breska sendiráðsins í Reykjavík. Sem einmitt í þessari viku, þann 9.mars, stendur fyrir viðburði fyrir íslensk fyrirtæki og hagaðila sem hafa áhuga á viðskiptum við og í Bretlandi. Atvinnulíf 6.3.2023 07:00
Brjótum lestrarkóðann í lestrarkennslu Flokkur fólksins er með tillögu til þingsályktunar um að Alþingi feli mennta- og barnamálaráðherra að setja í aðalnámskrá grunnskóla að lögð skuli áhersla á bókstafa-hljóðaaðferð við lestrarkennslu; innleiða í stað leshraðamælinga stöðumatspróf með bókstafa-hljóðaaðferð, lesskilningspróf og mat á skriflegum texta; og leggja áherslu á að hver nemandi fái áskoranir miðað við færni. Skoðun 4.3.2023 15:31
Ýmislegt annað í boði en viðskiptafræði Háskóladagurinn verður haldinn með prompi og prakt á milli 12 og 15 í dag. Allir háskólar landsins kynna starfsemi sína fyrir gestum og gangandi. Verkefnastjóri segir tilganginn fyrst og fremst vera að láta fólk vita af því að mun meira sé í boði en flestir geri sér grein fyrir. Innlent 4.3.2023 11:32
Foreldrar krafist úrbóta áður en myglan greindist en talað fyrir daufum eyrum Unnið er að leiðum til að bregðast við myglu í Melaskóla og framkvæmdir gætu hafist í vor. Deildarstjóri viðhalds hjá Reykjavíkurborg segir bestu leiðina vera að endurnýja innra og ytra byrði hússins en til þess þurfi að aflétta friðunarákvæði. Formaður foreldrafélags skólans segir félagið lengi hafa kallað eftir því að brugðist verði við slæmu ástandi hússins en talað fyrir daufum eyrum. Innlent 2.3.2023 23:51
Skólasamfélagið í Háteigsskóla slegið eftir áflog Tveimur nemendum í unglingadeild Háteigsskóla í Reykjavík lenti saman í unglingaálmu skólans í dag. Á sama tíma voru tvö ungmenni sem eru ekki nemendur við skólann á svæðinu. Innlent 2.3.2023 16:06
Þarf að aflétta friðun Melaskóla til að leysa mygluvanda til lengri tíma Langbesta leiðin til þess að leysa raka- og mygluvandamál í Melaskóla kallar á að friðun á ytri hjúp hússins verði aflétt. Reykjavíkurborg stefnir að því að kynna grófa áætlun um endurbætur á skólanum í vor. Innlent 2.3.2023 13:28
Byggja við alla þá framhaldsskóla sem sinna verknámi Viðbyggingar við alla þá framhaldsskóla sem bjóða upp á verknám munu rísa á næstu fimm til sex árum til að mæta þeirri fjölgun nemenda sem viðbúið er að muni leggja stund á verknám. Innlent 2.3.2023 13:10
Bein útsending: Meira og betra verknám Mennta- og barnamálaráðherra stendur fyrir morgunverðarfundi um stórtæka uppbyggingu starfsnáms í framhaldsskólum landsins í Nauthóli milli klukkan 8:45 og 10 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilara að neðan. Innlent 2.3.2023 08:30
Ryðjum menntabrautina Á Íslandi hefur hugmyndin um jafnrétti til náms verið til grundvallar í menntakerfinu. Enda er jafn réttur til náms ein besta leiðin til að jafna stöðu þegna í þjóðfélaginu. Margt hefur verið gert í íslensku þjóðfélagi til að tryggja þennan rétt til dæmis með því að hafa hófstillt skólagjöld í háskóla og með því að veita nemendum aðgang að námslánum. Þannig hafa allir hópar þjóðfélagsins aðgang að námi og má því segja að í raun sé Ísland land tækifæranna. Skoðun 27.2.2023 09:32
Kvíði og þunglyndi í framhaldsskólum: Erum ekki að aumingjavæða unga fólkið Að upplifa kvíða, þunglyndi eða félagsfælni í framhaldsskóla er erfitt. Í ofanálag fá nemendur samviskubit og líður þá enn verr. Áskorun 26.2.2023 09:00
Er VoN? Kæra Áslaug Arna, ráðherra háskólamála. Við erum nemendur á Verkfræði- og náttúruvísindasviði við Háskóla Íslands og höfum fylgst með þér tala ítrekað um frelsi, nýsköpun og tækifæri. Skoðun 24.2.2023 09:01