Lífið

Fimm dýrustu eignirnar sem seldust árið 2024

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Fjögur af fimm dýrustu eignum ársins 2024 eru staðsett  í Garðabæ.
Fjögur af fimm dýrustu eignum ársins 2024 eru staðsett  í Garðabæ.

Páll Heiðar Pálsson fasteignasali tók saman fimm dýrustu eignirnar sem seldar voru á Íslandi árið 2024. Ódýrasta eignin seldist á 395 milljónir á meðan sú dýrasta seldist á 850 milljónir. 

Eignirnar eiga það sameiginlegt að vera allar sérbýli staðsettar á höfuðborgarsvæðinu. Fjórar af þessum fimm eignum eru í Garðabæ og ein í Reykjavík. 

„Það er einmitt áhugavert að sjá ákveðin kynslóðaskipti þar sem margir af þeim sem byggðu sér hús á sínum tíma eru að minnka við sig og nýjar kynslóðir af efnuðum, yngri íslendingum eru að kaupa þessar eignir. Á listanum fyrir ári síðan var aðeins eitt hús í Garðabæ og flestar af hinum eignunum miðsvæðis í Reykjavík,“ segir Páll og nefnir að Garðabær, sérstaklega Akrahverfið, hafi verið með dýrustu hverfum landsins alla tíð lítið og framboðið á eignum í hverfinu lítið síðastliðin ár.

Páll Pálsson er fasteignasali tók saman lista með fimm dýrustu eignunum sem seldust árið 2024 miðað við þinglýsta kaupsamninga.Vísir/Vilhelm

Grindavík ástæða fyrir aukinni sölu

Páll segir fasteignaverð hafi hækkað töluvert milli ára, mest á stærri sérbýlum. „Það var um 8,5 prósent hækkun á fasteignaverði heilt yfir en sérbýli hækkuðu töluvert meira, eða um tíu prósent milli ára. Mesta hækkunin átti sér stað á fyrstu sex mánuðum ársins, en meðal fermetraverð á sérbýli á höfuðborgarsvæðinu er í kringum 684 þúsund, en 767 þúsund á eignum í fjölbýli,“ segir Páll.

„Það var um 44% meiri sala á árinu 2024 en á árinu 2023, Markaðurinn árið 2024 var í raun  tvískiptur þar sem var það var töluvert meiri sala á eignum fyrri hluta árs, frá janúar til 1. júlí. Ástæðan fyrir því er að það kom gríðarlega mikið af nýjum kaupendum inn á markaðinn sökum eldsumbrota í Grindavík og heilt bæjarfélag þurfti að finna sér annað húsnæði á frekar stuttum tíma,“ segir Páll. 

Hér að neðan má sjá fimm dýrustu eignirnar sem seldust á árinu 2024.

Mávanes 17

Dýrasta eignin sem seldist á árinu var 760 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum við Mávanes 17 á Arnarnesi í Garðabæ. Húsið seldist á 850 milljónir króna. 

Húsið var byggt árið 2012 og hannað af arkitektastofunni Gláma Kím. Húsið snýr að sjónum í suðurátt og er með stórbortið útsýni yfir hafið en arkitektarstofan hefur birt myndir af húsinu á vef sínum.

Hann­es Hilm­ars­son, einn af eigendum flugfélagsins Atlanta, og eig­in­kona hans, Guðrún Þrá­ins­dótt­ir keyptu húsið af sjónvarpskonunni og eiganda Skot Production, Ingu Lind Karlsdóttur í marsmánuði.

Ljósmynd/ Nanne Springer

Vesturbrún 22

Næst dýrast eignin sem seldist á síðasta ári var einbýlishús við Vesturbrún 22 í Reykjavík. Húsið seldist á 540 milljónir. Eignin 527 fermetrar að stærð og þykir með glæsilegri húsum í Reykjavík.

Björgólfur Guðmundsson athafnamaður seldi húsið til sendiráð Japans í marsmánuði, en Björgólfur og eiginkona hans heitin, Þóra Hallgrímsdóttir keyptu húsið árið 1994. 

Vísir/Arnar

Votakur 1

Þar á eftir kemur reisulegt einbýlishús við Votakur 1 í Akrahverfinu í Garðabæ. Húsið seldist á 430 milljónir. 

Um er að ræða 500 fermetra hús á tveimur hæðum sem var byggt árið 2014, teiknað og hannað af Sigurði Hallgrímssyni arkitekt. Húsið er búið öllum nútíma þægindum og má þar nefna, lík­ams­rækt­ar­her­bergi, vín­her­bergi, heitum potti, gufu og bíóherbergi.

Kornakur 8

Við Kornakur 8 í Arkahverfinu í Garðabæ stendur 535 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum sem var byggt árið 2007. Baldur H. Svavarsson arkitekt teiknaði húsið og Rut Káradóttir innanhússarkitekt sá um innanhússhönunina. 

Eignin var seld á 410 milljónir í febrúarmánuði, en það voru þau Saga Ýrr Jónsdóttir lögmaður og Sturla B. Johnsen heimilislæknir sem keyptu húsið.

Hjálmakur 6

Ódýrasta eignin af þessum fimm glæsihúsum er glæsilegt einbýlishús við Hjálmakur 6 í Akrahverfinu í Garðabæ. Húsið er 293 fermetrar á tveimur hæðum, byggt árið 2006, en það seldist á 395 milljónir. Eigandi hússins er Óttar Þórarinsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.