Hefja aftur leit að MH370 Samgönguráðuneyti Malasíu hefur tilkynnt að leit muni hefjast á ný að MH370 þann 30. desember næstkomandi. MH370 er flugnúmer Boeing 777-200 þotu Malaysia Airlines sem hvarf á dularfullan hátt þann 8. mars 2014, á leið frá Kuala Lumpur til Pekíng. Erlent 3.12.2025 06:57
Ársbann frá fótbolta fyrir skjalafals Sjö leikmenn sem spiluðu landsleik fyrir Malasíu gegn Víetnam í sumar hafa verið dæmdir í eins árs langt bann frá allri fótboltaiðkun eftir að hafa fundist sekir um skjalafals. Fótbolti 27.9.2025 09:02
Semja um vopnahlé Ráðamenn í Taílandi og Kambódíu hafa samþykkt skilyrðislaust vopnahlé sín á milli, sem taka mun gildi seinna í dag. Að minnsta kosti 33 hafa fallið og tugir þúsunda hafa þurft að flýja heimili sín frá því átök brutust út milli ríkjanna í síðustu viku. Erlent 28.7.2025 10:33
Einn alræmdasti veiðiþjófur heims í fangelsi Hinn malasíski Teo Boon Ching hefur verið dæmdur í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa skipulagt smygl á hundruðum kílóa af nashyrningahornum. Talið er að hann hefði grætt tæpar þrjú hundruð milljónir króna á viðskiptunum. Erlent 22. september 2023 13:14
Malasíska ríkið uggandi vegna flugslysagríns Stjórnvöld í Malasíu hafa óskað eftir liðsinni alþjóðalögreglunnar Interpol við að lýsa eftir bandarískum uppistandara sem gantaðist að flugslysum Malaysian Airlines í uppistandi sínu sem hún birti á veraldarvefnum í síðustu viku. Erlent 13. júní 2023 21:37
Íslandsvinur dæmdur fyrir pólitískt misferli í Bandaríkjunum Bandaríski rapparinn Prakazrel „Pras“ Michel úr hiphopsveitinni Fugees var dæmdur sekur um ólöglega áhrifaherferð gagnvart bandarískum stjórnvöldum í þágu malasísks kaupsýslumanns og kínverskra stjórnvalda. Rapparinn sagðist ekki hafa vitað að það sem hann gerði væri ólöglegt. Erlent 27. apríl 2023 10:46
Pútín hafi ákveðið að senda eldflaugina sem notuð var gegn MH17 Alþjóðlegt teymi rannsakenda segist hafa fundið sterkar vísbendingar um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefði persónulega heimilað sendingu loftvarnarkerfis til aðskilnaðarsinna í Úkraínu sem notað var árið 2014 til að skjóta niður farþegaþotu frá Malasíu. Ólíklegt sé þó að hægt verði að sækja hann til saka. Erlent 8. febrúar 2023 19:15
Mannskæð aurskriða í Malasíu Að minnsta kosti sextán eru látnir og fleiri er saknað eftir að aurskriða hreif með sér tjaldsvæði í Selangor héraði í Malasíu í gær. Erlent 16. desember 2022 08:24
Breyta nafni hótelkeðju Icelandair og Flugleiða Nafnabreytingu á Flugleiðahótelum hf. og keðju Icelandair Hótela er lokið, en nýir eigendur félagsins, Berjaya Land Berhard (Berjaya), gerðu samkomulag við fyrri eigendur, Icelandair Group, um að láta af notkun vörumerkis þess síðarnefnda að lokinni sölu hótelfélagsins. Viðskipti innlent 21. september 2022 11:50
Erindrekar í Malasíu reknir heim til Norður-Kóreu Erindrekar Norður-Kóreu hafa yfirgefið sendiráð ríkisins í Malasíu og setja stefnuna heim á leið eftir að ríkin tvö slitu opinberum samskiptum. Það var gert eftir að Malasía framseldi grunaðan glæpamann frá Norður-Kóreu til Bandaríkjanna. Erlent 21. mars 2021 13:12
Malasískur prins vill kaupa Valencia Stuðningsmenn spænska fótboltafélagsins vilja fá nýjan eiganda til að rífa upp félagið og sá gæti komið úr einni af konungsfjölskyldum heimsins. Fótbolti 3. mars 2021 12:01
Stærsti latexhanskaframleiðandi heims lokar verksmiðjum vegna Covid-19 Stærsti framleiðandi latexhanska í heiminum hefur neyðst til að loka helmingi verksmiðja sinna eftir að rúmur helmingur starfsliðsins greindist með Covid-19. Erlent 24. nóvember 2020 08:09
Forsætisráðherrann sakfelldur í ævintýralegu fjárdráttarmáli Fyrrverandi forsætisráðherra Malasíu, Najib Razak, var í morgun dæmdur sekur um margþætta spillingu á meðan hann sat í embætti. Erlent 28. júlí 2020 06:36
Holland stefnir Rússlandi vegna hraps MH17 Hollensk yfirvöld hyggjast stefna Rússlandi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu vegna aðildar Rússa að hrapi vélar Malaysia Airlines MH17 yfir Úkraínu árið 2014. Erlent 10. júlí 2020 17:57
Fjölskyldubingó frestað vegna tæknilegra örðugleika Fjölskyldubingó sem var á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld gekk ekki upp að þessu sinni sökum tæknilegra örðugleika. Lífið 24. apríl 2020 20:10
Er fyrst núna að geta talað um gosið án þess að fara að gráta Íbúar undir Eyjafjöllum, fulltrúar almannavarna og lögreglu, fólk sem vann að hjálparstarfi og forystumenn í ferðaþjónustu rifja upp eldgosið í Eyjafjallajökli í tveimur þáttum sem sýndir verða á Stöð 2. Innlent 5. apríl 2020 08:10
Konum í útgöngubanni ráðlagt að hætta að nöldra í eiginmönnum sínum Eins og víða annars staðar í heiminum eru íbúar Malasíu mikið heima fyrir þessa dagana og sendi ríkisstjórnin frá sér ráðleggingar fyrir fólk en þær þykja óviðeigandi og asnalegar. Erlent 2. apríl 2020 10:17
Streymisveiturnar: Nóg til í gömlu hillunni Sumir halda að þeir séu búnir með allt á Netflix og Maraþon, en það er ekki endilega satt. Það er alltaf hægt að finna eitthvað í gömlu hillunni Bíó og sjónvarp 21. mars 2020 09:30
Forsætisráðherra Malasíu segir af sér Mahathir Mohamad, forsætisráðherra Malasíu, hefur sagt af sér. Erlent 24. febrúar 2020 07:36
Segir nær öruggt að flugmaður Malaysian Air MH370 hafi grandað vélinni af ásettu ráði Fyrrverandi forsætisráðherra Ástralíu segir það nærri öruggt að flugstjóri Malaysian Airlines MH370 flugvélarinnar hafi framið morð og sjálfsvíg. Það hafi leitt til hvarfs vélarinnar árið 2014 sem enn hefur ekki fundist. Erlent 19. febrúar 2020 23:26
Besti badminton spilari heims í bílslysi þar sem bílstjórinn lést Kento Momota, sem sumir ganga svo langt að kalla langbesta badminton spilara heims, slapp lifandi úr hörðu bílslysi í Kuala Lumpur í Malasíu morgun. Sport 13. janúar 2020 13:15
Borga tíu milljarða fyrir Icelandair hótelin Gert er ráð fyrir því að gengið verði frá sölu Icelandair Group á Icelandair Hotels til dótturfélags malasíska félagsins Berjaya Land Berhad í lok febrúar árið 2020 en ekki árslok 2019 líkt og áður var stefnt að. Viðskipti innlent 20. desember 2019 20:00
Hættir við hótel í hjarta Nuuk vegna mótmæla Aðaleigandi Icelandair Hotels, malasíska hótelkeðjan Berjaya Corporation Berhad, hefur fallið frá áformum sínum um að reisa lúxushótel víð Nýlenduhöfn í Nuuk. Ástæðan er hávær mótmæli gegn staðsetningunni. Viðskipti erlent 18. desember 2019 16:38
Eigandi Icelandair Hotels vill reisa lúxushótel í hjarta Nuuk Aðaleigandi Icelandair-Hotels, malasíski auðkýfingurinn Vincent Tan, hefur kynnt áform um að reisa lúxushótel í hjarta Nuuk, höfuðstaðar Grænlands. Viðskipti erlent 8. desember 2019 22:49