Ísrael
8 9 10 11 12 13 14 15 16 … 43 ›
Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Hamas það eina sem stendur á milli íbúa Gasa og vopnahlés. Hann hvetur samtökin til að ganga að „ótrúlega rausnarlegum“ tillögum Ísraelsmanna. Erlent 30.4.2024 06:58
Vopnahlé í sjónmáli? Háttsettur embættismaður innan Hamas hefur sagt við AFP að samtökin geri engar meiriháttar athugasemdir við nýjar tillögur Ísraelsmanna um vopnahlé á Gasa. Erlent 29.4.2024 06:54
Rekin vinalega á brott en vonast til að fá að vera áfram Hópur háskólanema kom saman í veðurblíðunni í gærkvöldi og sló upp tjöldum fyrir framan aðalbyggingu Háskóla Íslands til stuðnings Palestínu. Lögregla vísaði hópnum á brott en forsvarsmaður hans segir það hafa verið gert af mestu vinsemd. Innlent 26.4.2024 10:40
Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Öldungadeild bandaríska þingsins samþykkti í gær að veita samtals 95 milljörðum Bandaríkjadala til Úkraínu, Ísrael og Taívan. Frumvarpið var samþykkt með 79 atkvæðum gegn 18. Erlent 24.4.2024 06:38
Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Volker Türk, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, hefur lýst yfir miklum áhyggjum af fregnum af því að hundruð líka hafi fundist í fjöldagröfum við tvö stærstu sjúkrahús Gasastrandarinnar. Erlent 23.4.2024 18:24
Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Ísraelsk yfirvöld hafa enn ekki komið fram með sönnunargögn sem bendla starfsmenn Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna við aðild að áhlaupi Hamasliða á Ísrael þann sjöunda október síðasta árs. Erlent 22.4.2024 20:26
Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Ráðamenn í Ísrael ætluðu sér að gera mun umfangsmeiri árásir á Íran en þeir ákváðu svo á endanum að gera. Pólitískur þrýstingur frá Joe Biden og nokkrum ráðamönnum í Evrópu er sagður hafa átt stóran þátt í því að þess í stað gerðu Ísraelar minni árás sem klerkastjórn Íran gat sleppt að svara með frekari árásum. Erlent 22.4.2024 18:58
Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Yfirmaður ísraelsku herleyniþjónustunnar sagði af sér í dag. Hann er fyrsti hátt setti embættismaðurinn sem lætur af starfi vegna afglapa leyniþjónustunnar sem gerðu vígamönnum Hamas kleift að ráðast á Ísrael 7. október. Erlent 22.4.2024 08:35
Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraela hefur heitið því að berjast gegn því með kjafti og klóm að Bandaríkjamenn beiti einstaka deildir innan Ísraelska hersins þvingunum og hætti fjárstuðningi við þær sérstaklega. Erlent 22.4.2024 07:36
Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Ísraelskir flugmenn skutu þremur eldflaugum að ratsjárstöð í Íran í nótt. Eldflaugunum var skotið utan lofthelgi Írans en þetta er í fyrsta sinn sem Ísraelar gera loftárás af þessu tagi í Íran frá 1979. Erlent 19.4.2024 16:40
Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Allt stefndi í að frumvörp um hernaðaraðstoð frá Bandaríkjunum til Úkraínu, Ísrael og bandamanna Bandaríkjanna í Austur-Asíu myndu festast í nefnd í gær, þar til Demókratar komu Mike Johnson, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, til aðstoðar. Erlent 19.4.2024 14:04
Ísraelar gera árás á Íran Ísraelar gerðu árás á Íran í morgun samkvæmt tveimur ísraelskum og þremur írönskum embættismönnum. Árásin er sögð hafa beinst gegn herstöð nærri borginni Isfahan. Erlent 19.4.2024 06:11
Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Stjórnvöld í Katar segjast vera að endurskoða hlutverk sitt sem sáttasemjarar í deilum Ísraelsmanna og Hamas. Friðarviðræður hafa nú staðið yfir í margar vikur án árangurs. Erlent 18.4.2024 06:54
Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, hafnaði því að segja af sér og ítrekaði vilja sinn til þess að afgreiða frumvörp um aðstoð við Úkraínu, Ísrael og fleiri bandamenn í gær. Þrýstingur á Johnson innan eigin þingflokks eykst. Erlent 17.4.2024 15:34
Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Utanríkisráðherra Bretlands segir ljóst að ísraelsk stjórnvöld séu búin að ákveða að grípa til aðgerða gegn Íran eftir drónaárásina um helgina. Erlendir erindrekar hvetja Ísraela til að sýna hófsemd til þess að kveikja ekki frekara ófriðarbál í heimshlutanum. Erlent 17.4.2024 14:09
Ísraelsher staðráðinn í að bregðast við árás Írana Herráð Ísraelsmanna hittist í gær til þess að ræða viðbrögð við drónaárás Írana sem gerð var um helgina. Erlent 16.4.2024 07:34
Guterres hvetur til stillingar en Ísraelar vilja hefndir Antonio Guterres aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna varar stríðandi fylkingar í Miðausturlöndum við því að auka við spennuna á svæðinu, sem hafi verið yfirdrifin fyrir. Erlent 15.4.2024 07:00
Umfang árásarinnar kom á óvart Albert Jónsson alþjóðastjórnmálafræðingur segir að umfang árásar Írana á Ísrael sem gerð var í gær komi honum á óvart. Árásin sem slík hafi þó ekki komið á óvart. Albert segir ljóst að Ísraelsmenn muni bregðast við en telur litlar líkur á því að allsherjarstríð brjótist út. Erlent 14.4.2024 19:46
Munu láta Írana gjalda þegar þeim hentar Ísraelar munu svara fyrir sig og láta Íran gjalda fyrir árásina í gærkvöldi, þegar slíkt hentar Ísrael. Þetta sagði Benny Gantz, ráðherra í stríðsráði Ísrael og fyrrverandi varnarmálaráðherra, í yfirlýsingu sem birt var skömmu áður en hann fór á fund stríðsráðs ríkisins í dag. Erlent 14.4.2024 14:48
Fylgjast með hvernig næsti sólarhringur þróast Þórdís Kolbrún Reykjafjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segir íslensk stjórnvöld fordæma árás Írana á Ísrael. Hún vonar að árásum linni tafarlaust og allir aðilar sýni stillingu. Innlent 14.4.2024 12:15
Hættu við eftir símtal frá Biden Stríðsráð Ísrael mun koma saman seinna í dag til að ræða möguleg viðbrögð við umfangsmikilli árás Írana á landið í gærkvöldi og í nótt. Ísraelar ætluðu sér að bregðast við árásinni í gærkvöldi en eru sagðir hafa hætt við. Erlent 14.4.2024 11:25
Skutu nánast alla dróna og eldflaugar niður Ráðamenn í Ísrael segja að um 99 prósent af þeim þrjú hundruð drónum og eldflaugum sem Íranar skutu að landinu í gærkvöldi og í nótt hafi verið skotnar niður. Skaðinn er tiltölulega lítill, miðað við umfang árásarinnar. Erlent 14.4.2024 09:49
Ísland fordæmir árásina Ísland fordæmir árás Írana á Ísrael. Þetta kemur fram í færslu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra í færslu á samfélagsmiðlinum X. Utanríkisráðuneytið hefur beðið Íslendinga í Ísrael að láta vita af sér. Erlent 14.4.2024 09:25
Neyðarfundur hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna Boðað hefur verið til neyðarfundar hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í dag vegna árásar Íran á Ísrael. Fundurinn fer fram síðdegis. Þá mun þjóðstjórn í ríkisstjórn Netanjahús funda með morgninum. Erlent 14.4.2024 07:21
Útkoman sem allir óttuðust Beint stríð milli Írans og Ísraels er niðurstaða langdreginna átaka, sem óttast var mest. Íranir hafa undirbúið hefndaraðgerðir frá því að loftárás, sem Ísraelar voru bendlaðir við, var gerð á ræðismannsskrifstofu Íran í Damaskus í Sýrlandi. Erlent 14.4.2024 01:00
Íranir gera umfangsmikla árás á Ísrael Íranir hafa hafið drónaárásir sem beinast gegn Ísrael. Þetta er haft eftir upplýsingafulltrúa ísraelska hersins. Erlent 13.4.2024 20:52
Landtökumenn ganga berserksgang á Vesturbakkanum Ísraelskir hermenn fundu í dag lík fjórtán ára fjárhirðis sem sagður er hafa verið myrtur en hvarf hans leiddi til mannskæðra árása landtökufólks á Palestínumenn á Vesturbakkanum. Erlent 13.4.2024 15:59
Íranskir sérsveitarmenn tóku stjórn á flutningaskipi Hermenn frá Byltingarvörðum Írans tóku í morgun stjórn á flutningaskipi nærri Hormuz-sundi. Skipinu var í kjölfarið siglt inn í landhelgi Írans en skipið er sagt tengjast Ísrael, þó því sé siglt undir fána Portúgal. Erlent 13.4.2024 14:44
Óttast að Íran gæti ráðist á Ísrael á allra næstunni Bandaríkjastjórn segir meiriháttar árás Írana á Ísrael gæti verið yfirvofandi. Spenna á milli ísraelska og íranskra stjórnvalda hefur stigmagnast eftir að íranskur herforingi var felldur í loftárás í Sýrlandi fyrir hálfum mánuði. Erlent 12.4.2024 21:52
Bandaríkjastjórn setur ferðahömlur á sendifulltrúa í Ísrael Bandaríkjastjórn hefur sett ferðahömlur á bandaríska emættismenn í Ísrael en áhyggjur eru uppi um að Íranir geri árás á landið innan tíðar. Erlent 12.4.2024 06:54