Ekki viss um að hægt sé að lappa upp á samband Evrópu og Bandaríkjanna Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, segist ekki sjá hvernig hægt sé að lagfæra samband Evrópu og Bandaríkjanna nú þegar þau deila ekki lengur sömu heimssýninni. Hann telur öll kurl ekki enn komin til grafar í deilum Bandaríkjanna við Evrópumenn um Grænland. Innlent 18.2.2026 10:31
Amaroq ætlar að færa sig yfir á Aðalmarkaðinn í London síðar á árinu Amaroq hefur ráðið alþjóðlega fjárfestingabankann Citigroup til að undirbúa skráningu á Aðalmarkað Kauphallarinnar í London síðar á árinu í því skyni að auðvelda félaginu að fá fjármögnun frá stórum erlendum stofnanafjárfestum og vísitölusjóðum. Aðalmarkaðurinn í London hýsir í dag flest af helstu námufyrirtækjum heimsins. Innherjamolar 18.2.2026 10:30
Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Opinber heimsókn Friðriks 10. Danakonungs til Grænlands hefst í dag, þegar konungurinn lendir í Nuuk klukkan 11.30. Hann mun meðal annars snæða hádegisverð og kvöldverð í húsi Hans Egede, sem er elsta hús landsins, og ræða við íbúa í menningarhúsinu Katuaq. Erlent 18.2.2026 06:48
Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Erlent 17.2.2026 22:16
Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Gullverð hefur lækkað nokkuð skarp á heimsvísu síðan á fimmtudag, þegar það náði sögulegum hæðum. Samhliða lækkun gullverðs hefur gengi íslenska námafélagsins Amaroq lækkað um rúmlega ellefu prósent. Viðskipti innlent 2. febrúar 2026 10:57
Að læra af fortíðinni Þegar ég tók mín fyrstu skref á Evrópuráðsþinginu fljótlega eftir síðustu kosningar fann ég fljótt að rödd mín á þessum vettvangi var ómótuð og oft á tíðum óörugg. Það tekur tíma að kynna sér reglur, hefðir og ferla sem hafa mótast allt frá stofnun þingsins fyrir rúmum sjötíu árum. Á vettvangi sem þessum er auðvelt að finna fyrir smæð sinni , bæði persónulega og pólitískt. Skoðun 31. janúar 2026 08:30
Segir Trump ekki reiðan Íslandi Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sé ekki reiður Íslandi. Trump talaði nokkrum sinnum í síðustu viku, á tveimur mismunandi dögum, um Ísland. Í einu tilfelli talaði hann um að vegna Íslands væri öðrum leiðtogum í Atlantshafsbandalaginu illa við sig og að Ísland hefði leitt til lækkana á mörkuðum vestanhafs. Erlent 28. janúar 2026 17:40
Markaðsvirði Amaroq rauk upp og rauf hundrað milljarða múrinn Markaðsvirði Amaroq rauf hundrað milljarða króna múrinn í gær þegar gengi bréfa Amaroq hækkaði skarpt, einkum eftir að markaðurinn opnaði í Kanada. Innherjamolar 24. janúar 2026 13:29
„Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Útlit er fyrir að ákveðinn vendipunktur hafi orðið á sambandi Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Þjóðarleiðtogar og embættismenn í Evrópu eru sagðir líta á tilraunir Trumps til að kúga Evrópu með tollum og hótunum til að eignast Grænland marka tímamót. Erlent 24. janúar 2026 11:58
Gervigreindin er risi á brauðfótum: Hve tæpt stöndum við í raun? Við tölum oft um gervigreind eins og hún sé andi sem svífur yfir vötnum, óháð efnislegum takmörkunum. Við köllum hana „skýið“ eða „algrímið“ en það er grundvallarmisskilningur því gervigreind er, þegar allt kemur til alls, þungaiðnaður. Skoðun 24. janúar 2026 08:00
„Við getum gert það sem við viljum“ Línur eru farnar að skýrast um innihald samkomulagsins sem náðist á fundi Marks Rutte, framkvæmdastjóra NATO, og Donalds Trump Bandaríkjaforseta í gær, þó enn sé margt á huldu. Forsetinn segir að Bandaríkin megi gera það sem þeim sýnist á Grænlandi „að eilífu.“ Enn er margt ófrágengið, að sögn heimildarmanna New York Times. Erlent 22. janúar 2026 22:41
Fengið svör frá Bandaríkjunum um Íslandsyfirlýsingar Trumps Of snemmt er að segja til um hvort viðræður Bandaríkjaforseta og framkvæmdastjóra NATO séu jákvætt skref í samskiptum Bandaríkjanna við Danmörku og Grænland á meðan lítið er vitað um innihald rammasamkomulagsins, að sögn utanríkisráðherra. Innlent 22. janúar 2026 18:09
Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Formaður landsstjórnar Grænlands segist lítið vita um innihald rammasamkomulags Bandaríkjaforseta og framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins (NATO). Viðræður þeirra hafa leitt til stiglækkunar í samskiptum Bandaríkjanna við Grænland, Danmörku og önnur bandalagsríki í Evrópu. Erlent 22. janúar 2026 17:11
Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Mikil óvissa ríkir varðandi meint samkomulag sem Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, gerðu í gær. Óljóst er um hvað þeir sömdu eða hvort þeir sömdu um eitthvað yfir höfuð. Erlent 22. janúar 2026 12:18
Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, ítrekar að Danir og Grænlendingar séu þeir einu sem geti tekið ákvarðanir um mál sem varða Danmörku og Grænland. Dönsk stjórnvöld séu í þéttu sambandi við Mark Rutte, framkvæmdastjóra NATO, sem sé fullmeðvitaður um afstöðu danska konungsríkisins en það sé gott og fullkomlega eðlilegt að framkvæmdastjóri bandalagsins ræði öryggi á Norðurslóðum við Bandaríkjaforseta. Þá fullyrðir varnarmálaráðherra Danmerkur að Rutte hafi ekki samið við Trump fyrir hönd landsins. Erlent 22. janúar 2026 08:41
Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Drög að samkomulagi Bandaríkjastjórnar við Atlantshafsbandalagið veitir Bandaríkjunum og bandalagsþjóðum í Evrópu aðgang að réttindum til jarðefnavinnslu í Grænlandi. Þá munu ríki vinna saman að þróun svokallaðrar Gullhvelfingar sem er viðurnefni á loftvarnarkerfi sem Trump vill að spanni hnöttinn og notist við gervihnetti. Erlent 22. janúar 2026 00:12
„Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Donald Trump Bandaríkjaforseti er hættur við að leggja refsitolla á Evrópu vegna Grænlands. Hann segist hafa átt góðan fund með Mark Rutte framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins og þar hafi þeir náð saman um „ramma framtíðarsamkomulags varðandi Grænland og raunar alls heimsskautsins.“ Erlent 21. janúar 2026 19:47
X fyllist af gríni um Ísland/Grænland Heimurinn fylgdist með ræðu Donalds Trump Bandaríkjaforseta á World Economic Forum í Davos í dag, þar sem hann ruglaði ítrekað saman Íslandi og Grænlandi. Háðfuglar á X voru fljótir að grípa gæsina. Erlent 21. janúar 2026 16:53
Verði að eignast þetta „stóra fallega stykki af ís“ Donald Trump Bandaríkjaforseti fór um víðan völl í ræðu sinni í Davos í dag. Hann ítrekaði enn og aftur að Bandaríkin „verði“ að eignast Grænland og að hann kalli eftir „tafarlausum viðræðum“ um kaup Bandaríkjanna á Grænlandi. Hann hyggist þó ekki beita til þess valdi. Alla veganna í tvígang virðist sem Trump hafi ruglast á nöfnum Íslands og Grænlands. Erlent 21. janúar 2026 15:52
Fyrstu viðbrögð við ræðu Donalds Trump: „Ég bíð enn eftir að mennirnir í hvítu sloppunum nái í hann“ Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda er einn þeirra sem tjáir sig um ræðu Donalds Trump Bandaríkjaforseta á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) en þar voru margir þjóðarleiðtogar heims staddir – í Davos í Sviss. Óhætt er að segja að viðbrögðin séu blendin; fólk veit eiginlega ekki hvaðan á sig stendur veðrið. Erlent 21. janúar 2026 15:27
Eldræða Carney: „Ef þú ert ekki við borðið þá ertu á matseðlinum“ Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, lýsti breyttri heimsskipan og biðlaði til ríkja, annarra en stórvelda, að taka þátt í að veita stórveldapólitík mótvægi og taka þátt í mótun nýs heimsskipulags. Hann varar við því að heimurinn sé staddur í miðjum umbrotum þar sem stórveldi hafi vopnavætt viðskipti og tolla og misnoti efnahagslega innviði sem kúgunartæki. Minni og meðalstór ríki þurfi að sýna mótvægi við stórveldapólitík og boða breytta heimsskipan sem byggi á öðrum gildum. Erlent 21. janúar 2026 10:22
Davos-vaktin: „Við fengum allt sem við vildum“ Mikil spenna hefur ríkt milli Bandaríkjanna og ríkja Evrópu vegna ásælni Trumps í Grænland og var ræðu hans á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins því beðið með mikilli eftirvæntingu í dag. Þar sagðist hann verða að eignast þetta „stóra fallega stykki af ís“ en nokkrum tímum síðar mátti greina meiri sáttatón hjá Bandaríkjaforseta. Erlent 21. janúar 2026 09:39
Vél Trump snúið við en ræðan enn á dagskrá Flugvél forseta Bandaríkjanna, Air Force One, var snúið við skömmu eftir flugtak í nótt eftir „lítilsháttar rafmagnsbilun“. Vélin var á leið til Davos í Sviss með Donald Trump innanborðs en hann skipti um vél skömmu eftir lendingu og engar fregnir hafa borist af því að töfin muni hafa áhrif á dagskrá World Economic Forum í dag. Erlent 21. janúar 2026 06:52
Telur Trump gera mistök Grænlenska landsstjórnin telur ólíklegt að Bandaríkjamenn beiti hervaldi til að leggja Grænland undir sig. Þjóðin þurfi þó að vera undirbúin fyrir óvæntar vendingar í samvinnu við aðrar þjóðir. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir hótanir Bandaríkjanna um tolla á lönd sem styðja Grænland, mistök. Erlent 20. janúar 2026 22:54
Varaði við lögmáli frumskógarins og hæddist að Trump Emmanuel Macron, forseti Frakklands, varar við því að heimurinn verði löglaus og að lögmál frumskógarins taki við af alþjóðasamþykktum og samvinnu. Sá sterki fái að ráða og sagði hann heimsvaldastefnu vera að stinga upp kollinum á nýjan leik. Erlent 20. janúar 2026 15:57