Ástralía

Ástralía

Höfuðborg: Canberra. Mannfjöldi: 26,3 milljónir (2025). Flatarmál: 7.692.024 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ís­land

Robert Irwin átti nokkra frídaga inni og gerði sér ferð alla leið frá heimalandinu, Ástralíu, og til Íslands til að svala ferðaþorstanum. Hann heimsótti Yoda-hellinn, Reynisfjöru og Seljalandsfoss ef marka má myndir sem hann birti frá ferðinni á samfélagsmiðlum.

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Sveppamorðingi fær enga reynslu­lausn

Þrír dómarar við áfrýjunardómstól Viktoríuríkis í Ástralíu vísuðu í dag frá áfrýjun Erin Patterson, ástralska sveppamorðingjans svokallaða, og þyngdu refsingu hennar með því að fjarlægja möguleikann á því að hún yrði einhvern tímann látin laus úr fangelsi.

Erlent
Fréttamynd

Gervi­greind hakkaði sig inn á vef stjórn­valda

Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, greindi frá því í dag að gervigreindarfulltrúi sem var þróaður af OpenAI hafi hakkað sig inn á vefsíðu ástralskra stjórnvalda í júní og komist í óopinberar skrár.

Erlent
Fréttamynd

Sér­stakt veiði­leyfi gefið út eftir að há­karl banaði sundmanni á sjö­tugs­aldri

Maðurinn sem lést í hákarlaárás undan ströndum Ástralíu í vikunni hefur verið nafngreindur og nú hefur leyfi fyrir því að veiða og drepa hvítháfinn sem banaði honum verið gefið út. Enn er leitað að líki mannsins en málið hefur vakið mikla athygli enda umdeilt að gefa út svokallaða „catch-and-kill“ skipun þar sem hvítháfurinn er friðuð tegund.

Erlent
Fréttamynd

Há­karl banaði sundmanni

Hákarl réðst á og banaði sundmanni undan ströndum Perth í Ástralíu í morgun. Maðurinn var á sundi með öðrum þegar hákarlinn réðst á þá en eingöngu annar þeirra komst í land. Vitni segjast hafa séð mikið af blóði í sjónum.

Erlent
Fréttamynd

Eitt alræmdasta saka­mál Ástralíu: Raðmorðingja sleppt úr fangelsi

Einum af fjórum mönnum sem myrtu að minnsta kosti ellefu menn yfir sjö ára tímabili í Suður-Ástralíu verður sleppt úr fangelsi. Málið er eitt alræmdasta sakamál Ástralíu en lík flestra fórnarlamba mannanna fundust í sýrutunnum í Snowtown í suðurhluta Ástralíu árið 1999. Önnur fundust grafin í jörðu.

Erlent
Fréttamynd

Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu

Rúgbýkappinn Jai Arrow átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hann fékk að leika sinn hundraðasta leik fyrir félag sitt í Ástralíu eftir að hafa greinst með MND. Sérstaka undanþágu þurfti til og það var falleg stund þegar hann gekk til vallar.

Sport
Fréttamynd

„Ég er konan sem kýldi há­karl í and­litið“

Leah Stewart, 34 ára, kona frá Sydney sem lifði af hákarlaárás lýsti í sjónvarpsviðali því augnabliki þegar hún stóð augliti til auglitis við fjögurra metra langan hvíthákarl og kýldi hann þangað til hann hörfaði. 

Erlent
Fréttamynd

Staðgöngumóðir eignast „tví­bura“ með sitt­hvora for­eldrana

Fordæmalaus staða kom upp í Queensland í Ástralíu í fyrra, þegar staðgöngumóðir eignaðist „tvíbura“ sem áttu sitt hvora foreldrana. Konan fæddi dreng, sem var sonur hennar og eiginmanns hennar, og stúlku, sem var líffræðileg dóttir pars hvers barn hún hafði samþykkt að ganga með.

Erlent
Fréttamynd

Lag sem enginn söng á toppnum í Ástralíu

Dansútgáfa af Madonnu smellinum Like a Prayer hefur orðið eitt vinsælasta lag Ástralíu, þótt enginn söngvari hafi flutt lagið. Röddin og trommurnar voru búnar til með gervigreind og velgengni lagsins hefur nú orðið kveikjan að nýjum reglum um ástralska vinsældalista.

Tónlist
Fréttamynd

Nicole er fyrir norðan

Síðustu daga og vikur hafa fjölmargar stórstjörnur lagt leið sína til landsins en meðal þeirra er ástralsk-bandaríska leikkonan Nicole Kidman. Hún er stödd í sólinni á Akureyri ef marka má Instagram-færslu í hringrás hennar.

Lífið
Fréttamynd

Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan

„Maður verður að treysta fólkinu í kringum sig, öðrum leikurum, og mér líkar sá hluti starfsins, að geta horft í augun á einhverjum og veist svo að þeim, á öruggan hátt,“ segir Ólafur Darri í nýlegu viðtali en hann fer með eitt aðalhlutverkið í spennuþáttunum The Tourist. Þættirnir eru framleiddir fyrir BBC og HBO Max en á móti honum leikur meðal annars írski leikarinn Jamie Dornan.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ber­skjölduð og ótta­slegin eftir skilnaðinn og fram­tíðin ó­ráðin

Leikkonan Nicole Kidman segir síðasta ár lífs síns hafa verið erfitt en hún skildi við kántrístjörnuna Keith Urban í september síðastliðnum. Það hafi engu breytt að hafa skilið einu sinni áður og upplifunin væri alveg jafn ný fyrir henni. Hún giftist Tom Cruise þegar hún var 23 ára gömul og man varla hvernig lífið var fyrir frægðina.

Lífið
Fréttamynd

„Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu

Ástralskur maður sem gekk til liðs við Íslamska ríkið árið 2015 vill snúa aftur heim. Maðurinn, sem heitir Tareq Kamleh en gekk undir nafninu „Doctor Jihad“ þar sem hann var barnalæknir, hefur lengi verið talinn hafa fallið. Hann stakk þó nýverið upp kollinum í íröksku fangelsi og vill hann komast aftur til Ástralíu.

Erlent
Fréttamynd

Fjöl­skyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir

Eigandi áfengisverksmiðju í Laos hefur verið ákærður eftir að fjöldi fólks lést úr metanól-eitrun í borginni Vang Vieng, þar á meðal áströlsku bakpokaferðalangarnir Bianca Jones og Holly Morton-Bowles. Þær voru einungis nítján ára gamlar þegar þær létust eftir að hafa verið fluttar fárveikar á sjúkrahús í Tælandi. Foreldrar stúlknanna gefa lítið fyrir viðbrögð í Laos.

Erlent
Fréttamynd

Tóku sýni úr munni móðurinnar og rann­saka mögu­legt mann­át

Móðir fjögurra ára gamals drengs sem fannst látinn í bænum Wyong í suðvesturhluta Ástralíu á laugardag, þann 4. júlí, hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald og ákærð fyrir morðið á syni sínum. Lögregla rannsakar nú hvort mannát hafi átt sér stað í tengslum við atvikið en barnaverndaryfirvöld í fylkinu hafa einnig hafið sjálfstæða rannsókn vegna tilkynninga sem þeim bárust fyrir andlátið.

Erlent
Fréttamynd

Baðst af­sökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue

Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla um áströlsku poppstjörnuna Kylie Minogue í hlaðvarpsviðtali í síðustu viku. Albanese spilaði útgáfu af Ríða, drepa, giftast þar sem hann sagðist vilja giftast, deita og ríða Minogue.

Lífið
Fréttamynd

Stór hluti barna enn á sam­félags­miðlum hálfu ári eftir bannið

Hálfu ári eftir innleiðingu samfélagsmiðlabanns barna yngri en 16 ára í Ástralíu er stór hluti þeirra enn á einhverjum samfélagsmiðlum. Ástralska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að hún muni tvöfalda hámarkssekt fyrir brot á lögum landsins um lágmarksaldur á samfélagsmiðlum í 99 milljónir ástralskra dala. Það samsvarar um 9,1 milljarði íslenskra króna. 

Erlent
Fréttamynd

Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðan­jarðar­byrgi í Ástralíu

Lögreglan í Ástralíu hefur lagt hald á 2,7 tonn af kókaíni. Um er að ræða mesta magn kókaíns sem hefur verið lagt hald á í Ástralíu. Í frétt BBC segir að það hafi fundist í neðanjarðarbyrgi í vestanverðri Sidney. Götuvirði efnanna er um 500 milljónir evra eða 72 milljarðar íslenskra króna.

Erlent