Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Lovísa Arnardóttir skrifar 28. júní 2026 08:12 Grípa á til frekari ráðstafana til að reyna að framfylgja banninu betur. Vísir/Getty Hálfu ári eftir innleiðingu samfélagsmiðlabanns barna yngri en 16 ára í Ástralíu er stór hluti þeirra enn á einhverjum samfélagsmiðlum. Ástralska ríkisstjórnin hefur tilkynnt að hún muni tvöfalda hámarkssekt fyrir brot á lögum landsins um lágmarksaldur á samfélagsmiðlum í 99 milljónir ástralskra dala. Það samsvarar um 9,1 milljarði íslenskra króna.
Börnum yngri en 16 ára hefur verið meinaður aðgangur að tíu helstu samfélagsmiðlunum í Ástralíu síðan 10. desember 2025, en það er almennt viðurkennt að mörg þeirra geti enn nálgast og notað bönnuðu smáforritin. Í umfjöllun BBC segir að Ástralir ætli því að uppfæra löggjöf sína og samkvæmt því geti netöryggisstofnun þeirra geta krafið samfélagsmiðlafyrirtæki um sönnunargögn fyrir því hvaða ráðstafanir þau hafi gripið til til að framfylgja banninu. Í fréttinni segir að fimm miðlar, og meint brot þeirra, séu til rannsóknar í dag. Það eru Facebook, Instagram, Snapchat, TikTok og YouTube. Í frétt BBC segir að þó svo að bannið hafi verið tilkynnt með fyrirvara og látum hafi yfirvöldum reynst erfitt að framfylgja því. Í febrúar heimsótti BBC skóla í Sydney þar sem meirihluti nemenda sem notuðu samfélagsmiðla fyrir bannið sögðust enn hafa aðgang. Sjö af hverjum tíu enn á samfélagsmiðlum Þá er í fréttinni vísað í skýrslu netöryggisnefndar, sem er óháð eftirlitsstofnun þjóðarinnar, um að sjö af hverjum tíu börnum undir 16 ára aldri sem voru með reikning á samfélagsmiðlum fyrir bannið hefðu enn „einhvern aðgang“. Í yfirlýsingu sinni á laugardag viðurkenndi ríkisstjórnin sumar þessara áskorana og sagði að harðari viðurlög væru sönnun þess að hún væri að „herða róðurinn gegn miðlum sem gera ekki nóg“. Aukin eftirlitsvöld netöryggisstofnunarinnar ættu að styðja við „skilvirkari rannsóknir og hugsanlegar aðgerðir“. Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, sagði í yfirlýsingu í gær að breytt umræða í bæði Ástralíu og alþjóðlega vekti hjá honum von en að ljóst væri að stóru samfélagsmiðlafyrirtækin væru ekki að gera nóg til að framfylgja lögunum. „Það eru enn of mörg börn á samfélagsmiðlum.“ Frá því að Ástralía tilkynnti um og innleiddi sitt bann hafa fleiri lönd gefið út að þau muni fylgja í kjölfarið. Til dæmis Bretland en í júní á þessu ári tilkynnti Keir Starmer, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands, að hann myndi setja á svipað bann fyrir börn yngri en 16 ára, með áformum um að það tæki gildi vorið 2027. Næturbann við skruni Ekki hefur enn verið gefinn út tæmandi listi yfir þá miðla sem verða fyrir áhrifum, en ríkisstjórnin sagði að bannið myndi ná yfir þá miðla „sem hafa þann tilgang að gera félagsleg samskipti möguleg og leyfa notendum að birta efni“. Þá sagði í yfirlýsingu stjórnvalda að þau væru að skoða hvort innleiða ætti bann að næturlagi og aðgerðir til að stöðva endalausa skrunun fyrir þá sem eru yngri en 18 ára sem hluta af löggjöfinni. Á Íslandi hefur ekki verið tilkynnt um samfélagsmiðlabann en bæði ríkisstjórn og borgarstjórn í Reykjavík hafa tilkynnt um símabann í grunnskólum frá og með haustinu. Forysta Kennarasambands Íslands hefur gagnrýnt það og sagst hafa áhyggjur af innleiðingu bannsins. Þá segja þau önnur mál meira aðkallandi en símabann innan skólakerfisins. Foreldrar hafa á sama tíma fagnað banninu.
Símanotkun barna Börn og uppeldi Ástralía Bretland Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Borgarstjórn Mest lesið „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Erlent Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Erlent Lögregla klippti á plöturnar Innlent Hótar tollum vegna skógareldanna Erlent Fleiri fréttir Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Skógræktarstarfsmönnum haldið í gíslingu í hjólhýsi Fjölskyldur kvennanna í sárum eftir nýjar fréttir Maður fluttur með sjúkraflugi undir læknishendur eftir hákarlaárás Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Árásarmaðurinn hafi sagst „ekki geta meir“ Ekki með tök á eldinum og slökkviliðsstjóri hljóp á sig Hótar tollum vegna skógareldanna Yfir hundrað íbúðir gjörskemmdar Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Flóka saknað og grunur um þjófnað Skotárás við Álaborg Boðar aukin ríkisafskipti og heitir því að verða áfram „maður fólksins“ Mótmælt í Kænugarði vegna uppsagnar varnarmálaráðherrans Reykur frá skógareldum í Kanada veldur vandræðum víða Gerðu árásir á Íran sjötta daginn í röð Trump sáir efasemdafræjum í aðdraganda þingkosninga Gróðureldar loga stjórnlaust og fólki ráðlagt að halda sig innandyra Fimmtíu og sjö með stöðu sakbornings vegna vanrækslu brúar R. Kelly biðlar til Trump um að milda fangelsisdóminn Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Bandaríkjamenn skjóta á skip sem hugðist leggja við bryggju á Kharg-eyju Tvö þúsund smitaðir og rúmlega sjö hundruð látnir Sex létust í árásum Rússa í nótt Fyrrum forsætisráðherra Noregs vill þjóðaratkvæði um aðildarviðræður Segja gervigreindina hafa valið þá sem sagt var upp og saka Meta um mismunun Carroll fær loksins miskabæturnar frá Trump Þurfa að hafa lokið herskyldu til að fá vernd innan ESB Sjá meira