Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Magnús Jochum Pálsson skrifar 6. júlí 2026 10:16 Albanese hefur beðist afsökunar á ummælum sínum um Kylie Minogue. Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla um áströlsku poppstjörnuna Kylie Minogue í hlaðvarpsviðtali í síðustu viku. Albanese spilaði útgáfu af Ríða, drepa, giftast þar sem hann sagðist vilja giftast, deita og ríða Minogue.
Albanese var gestur í hlaðvarpinu Bush Deep hjá ástralska grínistanum Nikki Osborne í lok síðustu viku. Osborne spurði forsætisráðherrann á einum tímapunkti „Ríða, giftast, deita?“ og gaf honum sem valkosti Kylie Minogue, leikkonuna Nicole Kidman og skemmtikraftinn Rhondu Burchmore - allt frægar ástralskar konur. Albanese hikaði við spurninguna og svaraði: „Ég var að gifta mig, ég er bara búinn með sex mánuði.“ „En hvað ef allt fer í skrúfuna? Þykjumst bara aðeins,“ sagði Osborne þá. „Kylie, augljósleg,“ svaraði Albanese. „Þú myndir giftast Kylie, ríða henni og deita hana?“ „Allt ofantalið,“ svaraði Albanese og bætti við: „Hún er frábær.“ Viðtalið við Albanese má hlusta í heild sinni hér að neðan en spurninguna umdeildu má sjá eftir þrettán mínútur og fimmtíu sekúndur. Ástralir viðkvæmari en Íslendingar Ummæli Albanese vöktu mikla hneykslan í Átralíu, þingkonan Zali Steggall sagði ummælin „algjörlega óviðeigandi“ og hann þyrfti að leiða með fordæmi og bregðast við kvenfyrirlitningu frekar en að taka þátt í henni. Sarah Henderson, skuggaráðherra samskipta í ríkisstjórninni, sagði í færslu á X að ummælin væru „niðrandi í garð kvenna, vandræðaleg fyrir Ástrali og gera lítið úr embætti forsætisráðherrans“. Forsætisráðherrann sendi frá sér tilkynningu í morgun og sagði þar: „Ég biðst fortakslaust afsökunar fyrir ummælin.“ Anthony Albanese hefur gegnt embætti forsætisráðherra Ástralíu frá árinu 2022. AP Albanese er á ferðalagi um Kyrrahafið um þessar mundir og situr Richard Marles, varaforsætisráðherra Ástralíu, í embættinu á meðan. Hann sagði ríkisstjórnina „algjörlega skuldbundna“ til að efla stöðu kvenna í samfélaginu. Ástralir virðast vera viðkvæmari en við Íslendingar því Oddur Ævar Gunnarsson, fréttamaður hjá Sýn, hefur haldið úti viðtalsþáttunum Af vængjum fram síðustu ár þar sem hann hefur meðal annars látið stjórnmálamenn spila Ríða, drepa, giftast.
Ástralía Fjölmiðlar Jafnréttismál Hollywood Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Fleiri fréttir Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Sjá meira