Hákarl banaði sundmanni Samúel Karl Ólason skrifar 18. september 2026 11:36 Nokkrum ströndum hefur verið lokað á svæðinu eftir tvær hákarlaárásir í vikunni. Myndin tengist fréttinni ekki beint. EPA/BIANCA DE MARCHI Hákarl réðst á og banaði sundmanni undan ströndum Perth í Ástralíu í morgun. Maðurinn var á sundi með öðrum þegar hákarlinn réðst á þá en eingöngu annar þeirra komst í land. Vitni segjast hafa séð mikið af blóði í sjónum.
Lögreglan hefur staðfest að maður hafi látið lífið en frekari upplýsingar liggja ekki fyrir. Samkvæmt frétt ABC er þetta önnur hákarlaárásin á þessum slóðum í vikunni. Búið er að loka þó nokkrum baðströndum vegna árásanna. Sorrento-ströndin, þar sem árásin átti sér stað, er sögð mjög vinsæl. Ástralski miðillinn Nine News hefur eftir vitni sem sá árásina að vinur þess sem fórst hafi verið algjörlega miður sín þegar hann komst í land. Hann hafi beðist afsökunar á því að hafa ekki bjargað vini sínum, á meðan aðrir reyndu að sannfæra hann um að hann hefði ekkert getað gert. Ráðamenn hafa gefið út þá skipun að drepa eigi hákarlinn en ekki liggur fyrir hvaða hákarl um er að ræða né af hvaða tegund hann er. Skömmu fyrir árásina í morgun hafði borgari tilkynnt að hann hefði séð um 2,5 metra langan hákarl á svæðinu. Einnig er talið að um fimm metra langur hvítháfur hafi sést á svæðinu.
Ástralía Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira