
Úttekt á uppsögnum hjá OR

„Sviðsettur blaðamannafundur“ hafi verið gróf atlaga að æru Áslaugar Thelmu
Áslaug Thelma Einarsdóttir og Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður hennar, segja blaðamannafund sem Orkuveita Reykjavíkur (OR) hélt um vinnustaðamenningu og mannauðsmál sín hafa verið sviðsettan. Markmiðið með fundinum hafi verið að vega gróflega gegn æru Áslaugar Thelmu og til að upphefja OR, dótturfélög fyrirtækisins og stjórnendur þeirra.

Krefur Orku náttúrunnar um 125 milljónir króna
Áslaug Thelma Einarsdóttir, sem Orka náttúrunnar braut gegn með uppsögn árið 2018, krefst 125 milljóna króna í skaða- og miskabætur. Hún hafði áður hafnað boði fyrirtækisins um 13,6 milljónir króna í bætur.

„Við hefðum átt að vanda okkur betur“
Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar segir að fyrirtækið hefði átt að vanda sig betur í máli Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, fyrrverandi forstöðumanns, sem stefndi fyrirtækinu fyrir ólögmæta uppsögn. Orkuveita Reykjavíkur var dæmd skaðabótaskyld í málinu í Landsrétti í dag.

Áslaug Thelma hafði betur gegn Orku náttúrunnar í Landsrétti
Landsréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, fyrrverandi forstöðumanns einstaklingssviðs Orku náttúrunnar (ON), gegn fyrirtækinu. ON hyggst una niðurstöðunni og ætlar ekki að áfrýja.

Áslaug Thelma áfrýjar málinu gegn Orku náttúrunnar
Áslaug Thelma Einarsdóttir hefur áfrýjað dómi héraðsdóms í máli hennar gegn Orku náttúrunnar en það var niðurstaða dómsins að sýkna ON af ásökunum Áslaugar um ólögmæta uppsögn og kynbundinn launamun.

Orka náttúrunnar sýknuð í máli Áslaugar Thelmu
Orka náttúrunnar, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, hefur verið sýknuð af ásökunum fyrrverandi starfsmanns fyrir ólögmæta uppsögn og kynbundinn launamismun.

Höfðu áhyggjur af frammistöðu Áslaugar Thelmu
Starfsmannastjóri Orkuveitu Reykjavíkur og starfsmaður Capacent höfðu báðar áhyggjur af frammistöðu Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, fyrrverandi forstöðumanns einstaklingssviðs Orku náttúrunnar, áður en henni var sagt upp í september 2018.

Lýsti atvinnuleysi og vanlíðan síðan henni var sagt upp hjá ON
Áslaug Thelma Einarsdóttir, sem sagt var upp störfum sem forstöðumanni á einstaklingssviði hjá Orku náttúrunnar árið 2018, lýsir miklum átökum sínum og Bjarna Más Júlíussonar fyrrverandi framkvæmdastjóra ON þegar þau störfuðu saman.

Áslaug Thelma stefnir Orku náttúrunnar
Áslaug Thelma Einarsdóttir hefur stefnt Orku náttúrunnar fyrir ólögmæta uppsögn og kynbundinn launamismun.


Segir OR hafa ráðið PR-menn til að skaða orðspor Áslaugar Thelmu
Sigurður G. Guðjónsson hefur sent ON bréf þar sem hann fer fram á bætur fyrir hönd Áslaugar Thelmu.

Bjarni Bjarnason sest aftur í forstjórastól Orkuveitu Reykjavíkur
Bjarni Bjarnason, sem óskaði sjálfur eftir að stíga tímabundið til hliðar úr forstjórastól á meðan rannsókn málsins færi fram, tekur aftur við forstjórastöðunni í dag.

Aðhafast ekkert frekar vegna bréfaskrifta Einars Bárðarsonar
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur mun ekki aðhafast neitt frekar vegna tölvupósts sem Einar Bárðarson, eiginmaður Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, sendi stjórnendum OR.

Borgarfulltrúi stendur heilshugar með Áslaugu Thelmu og segir hana hafa orðið fyrir opinberri smánun
Segir sögu Áslaugar Thelmu vera klassíska Metoo-sögu.

Starfsfólk OR fengið nóg af rangtúlkunum og ósanngirni
Í yfirlýsingu Starfsmannafélags OR og trúnaðarmanna starfsmanna segir að fullyrðingar um að vinnustaðurinn sé rotinn og að þar ríki þöggun séu rangar.

Tókust á um úttekt innri endurskoðunar á OR: Segir mjög óeðlilegt að leggjast yfir Facebook-síður aðstandenda
Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, gagnrýnir ýmislegt við skýrslu innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar um vinnustaðamenningu og mannauðsmál hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Kafa þurfi dýpra í málefni OR
Eyþór Arnalds segir ljóst að fara þurfi dýpra í málefni Orkuveitunnar. Úttekt á vinnustaðamenningu OR var kynnt á fundi borgarráðs í gær.

Forstjóri OR ekki fengið hluta skýrslunnar í hendur
Vinnufundur alls starfsfólks samstæðu OR var haldinn í dag vegna mikilvægra ábendinga í úttekt innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar.

Telja meira í skýrslunni um Orkuveituna en áður hefur komið fram
Skýrsla Innri endurskoðunar um vinnastaðamenningu og ákveðin starfsmannamál Orkuveitunnar og dótturfyrirtækja var kynnt í borgarráði í dag.

Segir skrif sín á vegg Einars Bárðarsonar óháð persónum og leikendum
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs, segist standa við skrif sín á vegg Einars Bárðarsonar, eiginmanns Áslaugar Thelmu Einarsdóttur.

Kveðst hafa verið í geðshræringu og ekki að hóta
Einar Bárðarson, eiginmaður Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, segir að tölvupóstur sem hann sendi til stjórnenda hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR) skömmu eftir að Áslaugu var sagt upp störfum í september síðastliðnum hafi ekki verið hugsaður sem hótun.

Um þriðjungur upplifði einelti hjá OR
Rúm þrjátíu prósent fyrrverandi starfsmanna Orkuveitu Reykjavíkur sögðust hafa upplifað einelti á vinnustað.

Afþökkuðu skýringarnar en kölluðu ítrekað eftir þeim á Facebook
Uppsagnir Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, fyrrverandi forstöðumanns hjá Orku náttúrunnar, og Bjarna Más Júlíussonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar, hafa vakið mikla athygli frá því að þær rötuðu í fjölmiðla í september.

Frammistöðuvandi ástæða uppsagnar Áslaugar Thelmu
Þetta hefur RÚV upp úr tölvupóstsamskiptum lögmanns hennar, Sigurðar G. Guðjónssonar, og Helgu Jónsdóttur, starfandi forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, frá því í morgun.

Útilokar ekki kæru vegna bréfaskrifta Einars
Helga Jónsdóttir, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, útilokar ekki að ummæli Einars Bárðarssonar, sem hann lætur falla í tölvupóstsamskiptum við yfirmenn fyrirtækisins og túlka megi sem hótanir, fari í kæruferli.

Nafnlausar ásakanir og engar kærur komið fram gegn Þórði
Engar kærur um alvarlegt kynferðisofbeldi hafa borist gegn Þórði Ásmundssyni sem átti að taka við sem framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar (ON) eftir að Bjarna Má Júlíussyni var sagt upp sem störfum í september.

Ekki sammála um réttmæti uppsagnar
Skýrsla innri endurskoðunar um Orkuveitu Reykjavíkur var kynnt í gær. Stjórnarformaður og starfandi forstjóri OR sáttir við niðurstöðurnar.

Markaðssettur spuni
Á vinnumarkaði er gott orðspor mikilvæg auðlind og við starfslok er orðspor um vel unnin störf ómetanlegt.

Tíu vikna „stormur í vatnsglasi“
Sjötíu dögum eftir að Áslaugu Thelmu Einarsdóttur var sagt upp störfum sem forstöðumanni á einstaklingssviði hjá Orku náttúrunnar er niðurstaða óháðrar úttektar á málinu sú að uppsögnin hafi verið réttmæt.

Einar Bárðarson krafðist tveggja ára launa vegna brottrekstursins
Einar Bárðarson sagður hafa haft í hótunum við stjórnarformann ON.