Rússland
51 52 53 54 55 56 57 58 59 … 100 ›
Vladimír Sjírínovskí látinn af völdum Covid-19 Rússneski stjórnmálamaðurinn og öfgaþjóðernissinninn Vladimír Sjírínovskí er látinn, 75 ára að aldri. Hann lést af völdum Covid-19 og hafði legið inni á sjúkrahúsi vegna veikindanna um margra vikna skeið. Erlent 6.4.2022 11:13
Vaktin: Undanhaldi Rússa frá Kænugarði að ljúka Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, kemur til með að ávarpa öryggisráð Sameinuð þjóðanna í dag en þetta er í fyrsta sinn sem hann ávarpar ráðið frá því að innrás Rússa hófst í febrúar. Erlent 5.4.2022 06:32
Úkraínuforseti vill Rússa út úr öryggisráðinu og draga þá fyrir stríðsglæpadómstól Forseti Úkraínu hvetur til þess að Rússar verði reknir úr öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir stríðsglæpi og Evrópusambandið ætlar að banna innflutning á kolum frá Rússlandi og skipum þaðan að koma til evrópskra hafna. Innlent 5.4.2022 21:30
Vilja til Rússlands en flykkjast til Íslands í sumar Ísland er orðið eftirsóttasta laxveiðilandið nú þegar erfitt er að komast til Rússlands að veiða. Það stefnir allt í gott laxveiðisumar í ár. Innlent 5.4.2022 21:01
Segir hryllinginn í Bucha aðeins eitt dæmi af mörgum og krefst aðgerða Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kom saman til fundar í New York í dag en Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, ávarpaði meðal annars ráðið í gegnum fjarfundarbúnað. Hann lýsti hryllingnum í Bucha, og víðar, kallaði eftir alvöru aðgerðum og gagnrýndi viðbrögð alþjóðasamfélagsins við stríðsglæpum Rússa. Erlent 5.4.2022 15:52
Útilokar ekki að vísa starfsmönnum sendiráðs Rússa úr landi Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra segist reikna með frekari viðskiptaþvingunum í garð Rússlands eftir nýleg tíðindi af fjöldamorðum Rússa í úkraínskum bæjum, þar á meðal Bucha. Innlent 5.4.2022 13:55
Sindri þekkti bæjarstjórann sem Rússar skutu: Þetta hefðu getað verið við Íslenskur maður sem flúði Kænugarð segir mikla heppni að hann hafi ekki verið fluttur inn í hús sem hann var að byggja í bænum Motishin. Hann þekkti bæjarstjórann þar vel sem fannst í gær látin ásamt eiginmanni sínum og syni. Þau höfðu verið skotin af Rússum. Erlent 5.4.2022 12:01
Danir sparka fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi Dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að vísa fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi. Jeppe Kofod, utanríkisráðherra Danmerkur, greindi frá því í morgun að utanríkismálanefnd landsins hafi komist að þessari niðurstöðu. Erlent 5.4.2022 09:04
Vaktin: Gervihnattamyndir sýna lík á götum Bucha þann 11. mars Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa hafa gerst seka um stríðsglæpi í Bucha og víðar þar sem fólk hafi verið pyntað, konum nauðgað og börn myrt. Hann segist enn opinn fyrir friðaviðræðum en að það reynist þeim sífellt erfiðara að semja við Rússa. Erlent 4.4.2022 06:31
Sannfærð um að hinir seku verði sóttir til saka Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segist sannfærð um að Rússar verði sóttir til saka vegna stríðsglæpa. Það sagði hún í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og sagði hún einnig að fregnir af ódæðum rússneskra hermanna í norðurhluta Úkraínu muni hafa áhrif á viðhorf umheimsins gagnvart innrásinni. Innlent 4.4.2022 18:53
Kallar Pútín stríðsglæpamann en telur ekki að um þjóðarmorð sé að ræða Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur farið fram á það að Vladímír Pútín Rússlandsforseti verði sóttur til saka fyrir stríðsglæpi sína í Úkraínu og fordæmdi fjöldamorðið í bænum Bucha. Forseti Úkraínu sakar Rússa um þjóðarmorð í bænum en Biden tekur ekki undir það. Erlent 4.4.2022 15:47
Rússneska sendiráðið á Íslandi tekur undir með Moskvu en hvað er rétt? Talsmenn sendiráðs Rússlands á Íslandi hafa tjáð sig um hroðaverkin í Bucha og endurtaka þá línu frá Moskvu að um sé að ræða „ögrun“ af hálfu Úkraínustjórnar. Erlent 4.4.2022 12:59
Hryllingur í Bucha: Fullyrðir að rússneskir hermenn séu verri en íslamska ríkið Utanríkisráðherra Úkraínu segir Rússa hafa framið fjöldamorð á almennum borgurum í bænum Bucha, þar sem lík liggja eins og hráviði á götum eftir brotthvarf Rússa. Vestrænir leiðtogar fordæma Rússa fyrir voðaverk á svæðinu og saka þá sumir um stríðsglæpi. Erlent 4.4.2022 00:00
Saka Rússa um þjóðarmorð í Bucha Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu hefur sakað Rússa um þjóðarmorð eftir að Rússar yfirgáfu bæinn Bucha í útjaðri Kænugarðs fyrir helgi. Svo virðist sem tugir ef ekki fleiri almennir borgarar hafi verið teknir af lífi í bænum af Rússum og grafa hefur þurft lík þeirra í fjöldagröfum. Erlent 3.4.2022 16:30
Skelfilegir stríðsglæpir koma í ljós Alþjóðleg mannréttindasamtök segja ljóst að rússneskir hermenn hafi framið ýmsa stríðsglæpi í Úkraínu. Hræðilegar sögur berast frá íbúum þeirra svæða sem Rússar hafa horfið frá. Erlent 3.4.2022 12:39
Vaktin: Rússar kalla eftir neyðarfundi öryggisráðsins Árásir voru gerðar á hafnarborgina Odessa við suðurströnd Úkraínu í morgun og er haft eftir ráðamanni að rússnesk flugskeyti hafi hæft mikilvæga innviði. Erlent 3.4.2022 07:34
Saka Rússa um að hafa gert árásir á friðsæl mótmæli Úkraínumenn saka Rússa um að hafa gert sprengjuárásir á friðsæl mótmæli í sunnanverðri Úkraínu í dag. Stjórnvöld vara við hörðum átökum á svæðinu næstu daga. Frans páfi var óvenjuharðorður í garð Rússlandsforseta í ávarpi í dag. Erlent 2.4.2022 23:02
Segir Rússa hafa rænt áhrifavaldinum sem lifði af árásina á fæðingarspítalann Fréttaritarinn Thomas van Linge segir að úkraínsku konunni, sem lifði af árás Rússa á fæðingarspítala í Maríupól, hafi verið rænt af Rússum. Hún sé ein þeirra mörgu flóttamanna sem Rússar hafi beint frá Maríupól til Rússlands þvert á samninga. Innlent 2.4.2022 16:46
Slátruðu 250 þúsund hreindýrum þegar vírus fannst á svæðinu Ragnari Axelssyni langaði að skrásetja með myndum líf hreindýrahirðingjanna á Síberísku túndrunni, en til þess þurfti hann að ferðast til borgar sem aðeins var hægt að ferðast til ef manni væri boðið þangað. Lífið 2.4.2022 12:01
Vaktin: Gæti tekið mörg ár að hreinsa upp jarðsprengjur Rússa Volódímír Selenskíj, forseti Úkraínu, segir að rússneskar hersveitir hafi komið fyrir jarðsprengjum í íbúðum og líkum á sama tíma og þær hörfi rólega úr norðurhluta landsins. Þetta kom fram í nýjasta ávarpi forsetans til úkraínsku þjóðarinnar. Hann varaði sömuleiðis við því að staðan væri áfram gríðarlega erfið í austurhlutanum þar sem Rússar væru að undirbúa árásir í Kharkív og Donbas-héraði. Erlent 2.4.2022 07:38
Rússar á undanhaldi frá Kænugarði en herða tökin á Mariupol Margt bendir til að Rússneskar hersveitir hafi beðið afhroð í nágrenni Kænugarðs og séu á hröðu undanhaldi þaðan. Ekki hefur gengið að fá Rússa til að standa við loforð um frelsun íbúa í Mariupol. Aðstoðarforsætisráðherra Úkraínu segir þá hafa gert neyðarvistir til borgarinnar upptækar. Erlent 1.4.2022 20:00
Vaktin: Tvö þúsund manns komust frá Mariupol Eldur geisar á olíubirgðastöð í Belgorod í Rússlandi en ríkisstjórinn á svæðinu segir úkraínskar herþyrlur hafa flogið yfir landamærin og ráðist á stöðina. Úkraínuher hefur ekki tjáð sig um ásakanirnar. Erlent 1.4.2022 06:32
Rússar gerðu hjálpargögn á leið til Mariupol upptæk Rússneskar hersveitir hafa komið í veg fyrir að hóferðabilalest sem nálgaðist hafnarborgina Mariupol í gær geti flutt stríðshrjáða íbúa á brott og lagt hald á hjálpargögn sem ætluð voru borgarbúum, að sögn aðstoðarforsætisráðherra landsins. Rússar krefjast þess að evrópuríki greiði fyrir gas frá Rússum með rúblum frá og með deginum í dag. Erlent 1.4.2022 13:39
Vaktin: Selenskí segir rússneska herinn hörfa frá norðurhluta Úkraínu Rússar hafa heitið því að opna „mannúðarhlið“ frá Maríupól í dag. Að sögn varaforsætsiráðherra Úkraínu hefur röð hópferðabifreiða lagt af stað til borgarinnar til að freista þess að koma íbúum burt. Erlent 31.3.2022 07:06
Úkraínuforseti hvetur til að sett verði hafnbann á Rússa um allan heim Allt bendir til að Rússar séu að safna liði til stórsóknar í austurhluta Úkraínu. Flóttafólk sem kom til Póllands í dag segir ekkert að marka yfirlýsingar þeirra um að hernaðaraðgerðum væri lokið í norðurhluta landsins. Forseti Úkraínu skorar á ríki heims að setja hafnbann á rússnesk skip. Erlent 31.3.2022 19:45
Merkja gríðarlega aukningu í netárásum Sérfræðingar í tölvuöryggismálum segjast merkja gríðarlega aukningu í netárásum. Árásunum hafi fjölgað eftir innrás Rússa í Úkraínu og afleiðingar eigi enn eftir að koma fyllilega í ljós. Öflugar árásir geti valdið stöðvun á þjónustu heilu borga og bæja. Innlent 31.3.2022 19:32
Telur að pólitísk einangrun Rússa muni vara í langan tíma Friðrik Jónsson, sérfræðingur í öryggis-og varnamálum telur að jafnvel þótt komi til vopnahlés eða friðarsamninga muni pólitísk einangrun Rússa vara í langan tíma. Innlent 31.3.2022 17:16
Úkraínuforseti segir rússneskar hersveitir hafa verið hraktar á brott Fjörutíu og fimm hópferðabílar lögðu af stað til umsetinnar Mariupol í Í Úkraínu morgun í von um að hægt verði að koma stríðshrjáðum íbúum borgarinnar á brott. Forseti Úkraínu segir hersveitir Rússa ekki hafa dregið sig til baka frá útjaðri Kænugarðs heldur hafi þær verið hraktar á brott af úkraínska hernum. Erlent 31.3.2022 12:12
Segir Rússa undirbúa stórsókn í Donbas Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa undirbúa stórsókn í austurhluta landsins. Rússar hafa sjálfir sagt að þeir hafi nú náð fyrstu hernaðarmarkmiðum sínum og nú standi fyrir dyrum að „frelsa“ Donbas. Erlent 31.3.2022 06:46
Segist vita dæmi þess að rússneskir hermenn neiti að hlýða skipunum Jeremy Fleming, yfirmaður bresku njósnastofnunarinnar GCHQ segir að stofnunin hafi upplýsingar um að rússneskir hermenn hafi neitað fara eftir skipunum ú Úkraínu. Þeir hafi meðal annars skotið niður eigin flugvél. Erlent 30.3.2022 22:43