Þjóðadeild karla í fótbolta

Fréttamynd

Orri hélt liðsfund án að­komu Arnars

Orri Steinn Óskarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, fær mikið hrós frá landsliðsþjálfaranum fyrir það hvernig hann tæklaði krefjandi aðstæður í verkefni liðsins eftir að upp komst um agabrot nokkurra leikmanna. 

Fótbolti
Fréttamynd

Skömmin sé nægi­leg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættan­legt“

Aga­brot lands­liðs­manna á dögunum er ekki í fyrsta skipti sem upp hefur komið mál í lands­liðsþjálfaratíð Arnars Gunn­laugs­sonar. Hans fyrstu viðbrögð voru að reka um­rædda leik­menn heim en ljóst sé að skömm þeirra sé nægi­lega mikil refsing. Arnar er sáttur við hvernig tekið hefur verið á málinu, því sé nú lokið en hafi haft áhrif á frammistöðu liðsins í leik gegn Eistum.

Fótbolti
Fréttamynd

Með á­skorun fyrir sjóð­heitan Andra Lucas

Tony Mowbray, knattspyrnustjóri Blackburn Rovers, skorar á framherja sinn, íslenska landsliðsmanninn Andra Lucas Guðjohnsen, að rjúfa 20 marka múrinn á tímabilinu. Andri hefur verið iðinn við kolann upp á síðkastið.

Enski boltinn
Fréttamynd

Ron­aldo í bann hjá Portúgal

Portúgalska knattspyrnusambandið er sagt hafa sett stórstjörnuna Cristiano Ronaldo í bann eftir að hann ákvað að yfirgefa landsliðsverkefni með landsliði sínu í nýafstöðnum landsleikjaglugga.

Fótbolti
Fréttamynd

Ís­land að beygja út af bak­dyra­leiðinni á EM?

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er efst í sínum riðli í C-deild Þjóðadeildarinnar, eftir fjóra leiki af sex. Jafnteflin gegn Eistlandi gætu hins vegar reynst dýrkeypt í baráttunni um sæti á EM 2028 og taldar eru minna en þriðjungslíkur á að Ísland verði með á mótinu sem fram fer í Englandi, Wales, Skotlandi og Írlandi.

Fótbolti
Fréttamynd

Upp um eitt sæti á heims­listanum

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fer upp um eitt sæti eftir tvo sigra og tvö jafntefli í nýliðnum landsliðsglugga. Allir andstæðingar liðsins eru neðar á listanum.

Fótbolti
Fréttamynd

„Það sem svíður mest“

„Akkúrat núna er ég svekktur. Við eigum að gera betur. Við erum betra lið en við sýndum í dag. Við þurufm að horfa á þetta aftur og gera betur. Þetta er ekki nóg,“ segir landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson eftir markalaust jafntefli Íslands við Eistland ytra í Þjóðadeildinni í kvöld.

Fótbolti
Fréttamynd

Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig

Cristiano Ronaldo birti langan pistil í kvöld þar sem hann sagði sína hlið á því hvers vegna hann fór frá portúgalska landsliðinu í miðjum landsleikjaglugga. Hann biðst afsökunar á því að hafa farið frá landsliðinu en vonast til að fá að snúa aftur í landsliðið.

Fótbolti