Jóhann Berg pirraður eftir agabrot landsliðsmanna Aron Guðmundsson skrifar 13. október 2026 08:32 Jóhann Berg í einum af þeim 100 landsleikjum sem hann spilaði fyrir Íslands hönd á glæstum ferli. Getty/Filip Filipovic Jóhann Berg Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í fótbolta, tjáði sig um agabrot nokkurra landsliðsmanna milli leikja í nýafstöðnu landsliðsverkefni í Þjóðadeildinni. Um óheppilegt mál sé að ræða.
Eins og greint var frá á dögunum gerðust einhverjir leikmenn íslenska karlalandsliðsins í fótbolta sekir um agabrot í nýliðnum landsliðsglugga. Starfsmenn landsliðsins hafa fundað vegna málsins. Ku áfengi verið haft um hönd. Jóhann Berg, sem lagði nýverið knattspyrnuskóna á hilluna eftir farsælan atvinnu- og landsliðsmannaferil, sagði að áður fyrr hefði það verið algengara í landsliðsverkefnum að menn væru þyrstir og hefðu fengið sér í glas. Tekið hefði verið fyrir allt slíkt þegar Lars Lagerback tók við liðinu, ekki bara meðan á verkefninu stóð, heldur líka strax eftir það. Af orðum Jóhanns Bergs að dæma hefur verið slakað á taumnum hvað þetta varðar síðan þá. Menn hafi fengið leyfi til að fá sér eitt og eitt rauðvínsglas eftir síðasta leik í verkefni og skála þegar vel gengur. „Auðvitað er þetta óheppilegt. Þeir fá frí þarna um kvöldið og einhverjir greinilega fara og fá sér, ég veit sjálfur ekki nákvæmlega hvað gerðist. Þeir töluðu um þetta innan hópsins, að þetta væri ekki nógu gott,“ sagði Jóhann Berg í nýju hlaðvarpi sem hann kemur að og ber nafnið Sjöan. Ekki bætir úr skák að næsti leikur á eftir, gegn Eistlandi á útivelli, hafi verið lélegur af Íslands hálfu en honum lauk með markalausu jafntefli. „Í þessum nútímafótbolta væri best að sleppa áfenginu milli leikja, sérstaklega þegar þú ert búinn að spila þrjá leiki á stuttum tíma. Það er þá kannski hægt að fá sér einn eða tvo eftir síðasta leikinn. Pirringurinn hjá mér liggur þar að ég hefði viljað sjá menn koma alveg brjálaða inn í þennan leik við Eistland, sýna að þetta hafi ekki haft áhrif. En sá leikur var bara mjög lélegur og þetta hjálpar ekki neinum.“
Landslið karla í fótbolta Fótbolti Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir Parker nýr þjálfari West Ham Þorláki sagt upp í Sádi-Arabíu FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Sjá meira