„Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 6. október 2026 21:05 Ísak Bergmann Jóhannesson var svekktur með að ná aðeins í eitt stig í kvöld. Alex Nicodim/NurPhoto via Getty Images Ísak Bergmann Jóhannesson leyfði sér að vera svekktur eftir markalaust jafntefli íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Eistum í kvöld. „
Mér fannst við ekki nógu góðir í fyrri hálfleik. Ég var ekki alveg búinn að sjá hvort að boltinn var inni þarna eða hvort hann hafi farið í höndina á einhverjum,“ sagði Ísak og vitnaði þá í færi íslenska liðsins í fyrri hálfleik þar sem boltinn virtist hafa farið yfir marklínuna. „Fyrri hálfleikurinn var bara alls ekki nógu góður og við vorum bara ekki on it. Í svona leikjum, þar sem er svona lítil prósenta á milli liðanna og við erum ekki alveg on it, þá er það bara erfitt. Sama hvert maður fer í alþjóðlegum fótbolta þá er það bara erfitt. Við tökum þessu stigi, en við erum ekki ánægðir með heildarframmistöðuna.“ Þá sagði Ísak það vera erfitt að greina það svona strax eftir leik hvað liðið hefði getað gert betur til að ná að brjóta Eistana á bak aftur. „Það er erfitt að greina það núna. Arnar fór yfir nokkra hluti í hálfleik, bara lét okkur heyra það í hálfleik. Við breyttum aðeins pressunni og mér fannst seinni hálfleikurinn vera miklu betri, pressulega séð og með boltann. Það kom þarna kafli á 60.-80. mínútu þar sem við vorum að þrýsta þeim niður og mér fannst markið alveg hafa getað komið þá. En þetta var bara erfitt,“ sagði Ísak og hélt áfram. „En við erum á toppnum í þessum riðli. Þetta er erfiður útivöllur og við þurfum bara að einbeita okkur að jákvæðu punktunum og læra af þessu og greina í nóvemberglugganum.“ Klippa: Ísak eftir leik gegn Eistum Eftir þennan fjögurra leikja landsleikjaglugga trónir Ísland á toppi 4. riðils C-deildar Þjóðadeildarinnar með tveggja stiga forskot, sem er eitthvað sem Ísak hefði þegið fyrirfram. „Já, algjörlega. Markmiðið var að vera á toppnum farandi inn í nóvemberverkefnið. Þá er það Búlgaría úti og Lúxemborg heima. Við erum með þetta í okkar höndum og núna þurfum við að greina þetta verkefni og koma sterkari í nóvembergluggann.“ Að lokum segist Ísak hafa komist vel undan þessum langa landsleikjaglugga þar sem reyndi á marga leikmenn í fjórum leikjum á stuttum tíma. „Ég er sjálfur bara góður. Ég er 23 ára og get alveg hlaupið 90 mínútna leiki á þriggja daga fresti. Maður þarf bara að hugsa vel um sig á milli leikja og fara í meðhöndlun og allt þetta. En skrokkurinn er bara góður,“ sagði Ísak að lokum.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Sjá meira