Fótbolti

Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona

Valur Páll Eiríksson skrifar
Mourinho fagnaði sigrinum en er meðvitaður um að aðeins tíu leikir eru búnir af deildinni.
Mourinho fagnaði sigrinum en er meðvitaður um að aðeins tíu leikir eru búnir af deildinni. Getty

José Mourinho, þjálfari Real Madrid, segir sigur gærkvöldsins á Barcelona í El Clasico-slagnum á Nou Camp duga skammt. Hann stefnir hærra.

Kylian Mbappé var hetja Real í gær og skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri, þar á meðal sigurmarkið þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.

Real hefur unnið fimm leiki í röð í öllum keppnum en er þó enn þremur stigum frá Barcelona sem heldur toppsæti deildarinnar þrátt fyrir úrslit gærdagsins. Mourinho kallar eftir meiru frá leikmönnum sínum.

„Þetta var frábær sigur en við þurfum að fara aftur í vinnuna. Ég mun ekki leyfa neinum að fara fram úr sér,“ sagði Mourinho eftir leik.

„Ef við vinnum í dag en töpum fyrir Real Santander næstu helgi gildir þetta fyrir lítið. Real Madrid keppir ekki til að vinna á Nývangi heldur til að vinna deildina. Við þurfum að halda áfram.“

Real Madrid er með 24 stig í þriðja sæti deildarinnar, einu stigi á eftir Atlético Madrid og þremur frá toppliði Barca.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×