Fótbolti

Ringul­reið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigur­vegara áður en há­tíðin hófst

Sindri Sverrisson skrifar
Harry Kane þykir líklegur til að hljóta Gullboltann í kvöld í fyrsta sinn.
Harry Kane þykir líklegur til að hljóta Gullboltann í kvöld í fyrsta sinn. Getty/Daniela Porcelli

Mikil eftirvænting ríkir vegna afhendingar Gullboltans, eða Ballon d'Or, í Palladium-leikhúsinu í London í kvöld en mögulega hafa umsjónarmenn hátíðarinnar hlaupið á sig.

BBC og fleiri miðlar greina frá því að skömmu áður en hátíðin átti að hefjast í kvöld hafi birst greinar á vefsíðu Ballon d'Or um hvaða knattspyrnufólk hlyti þessi virtu verðlaun France Football tímaritsins.

Fyrst sást grein með fyrirsögn um að Harry Kane hefði hlotið Gullboltann árið 2026, fjórum og hálfum klukkutíma áður en það átti að koma í ljós í kvöld, en svo mátti líka sjá greinar um að Lamine Yamal, Kylian Mbappé og Lionel Messi hefðu hlotið verðlaunin.

Sömuleiðis mátti sjá greinar um að Alexia Putellas og Ewa Pajor hefðu hlotið Gullboltann í ár fyrir að skara fram úr meðal kvenna.

Ekki er ljóst hvort greinarnar birtust vegna mistaka og hvort þær voru svo fjarlægðar til að fela mistökin eða hvort allt saman var viljandi gert til að skapa umræðu og auka enn á eftirvæntinguna. Allt kemur að minnsta kosti í ljós í kvöld þegar verðlaunin verða formlega afhent. Verðlaunahátíðin hefst klukkan 20 að íslenskum tíma í beinni útsendingu DAZN.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×