
Sameinuðu þjóðirnar

Stjórnvöld hafi ekki sinnt skyldu sinni við innleiðingu Barnasáttmálans
Stjórnvöld hafa ekki sinnt skyldu sinni við innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Fjölga þarf tækifærum fyrir börn og ungmenni til að taka þátt. Stjórnvöld þurfa að tryggja betur aðstoð við börn af erlendum uppruna, fötluð börn og börn sem búa við fátækt.

Koma saman til að ræða deilu Asera og Armena
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun koma saman í dag til að ræða deilu Asera og Armena en átök hafa blossað upp enn á ný í héraðinu Nagorno Karabakh og liggja tugir eða hundruð í valnum.

Átök, hamfarahlýnun og kórónaveiran ógna heilsu kvenna og barna
Samkvæmt skýrslu þriggja stofnana Sameinuðu þjóðanna eru þær framfarir sem orðið hafa í að bæta hag kvenna og barna í heiminum síðastliðinn áratug í mikilli hættu vegna átaka, hamfarahlýnunar og nú kórónaveirunnar

Staðfestu tæplega þrjátíu ára gamalt kuldamet á Grænlandi
Alþjóðaveðurfræðistofnunin hefur nú staðfest að -69,6°C sem mældust á sjálfvirkri veðurathugunarstöð á Grænlandi árið 1991 sé mesti kuldi sem mæst hefur á norðurhveli jarðar.

Xi tilkynnti óvænt um að Kína stefni að kolefnishlutleysi 2060
Kínverjar ætla að stefna að því að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2060 til að draga úr hættunni á verstu afleiðingum loftslagsbreytinga. Xi Jinping, forseti Kína, tilkynnti þetta óvænt í ávarpi á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.

Varaði við köldu stríði Kína og Bandaríkjanna
Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, varaði við hættunni á að nýtt kalt stríð brytist út á milli Bandaríkjanna og Kína í ávarpi sínu á fyrsta allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem fer fram í fjarfundi.

Afmæliskönnun Sameinuðu þjóðanna: Mikill stuðningur við alþjóðlega samvinnu
Heimsbyggðin hefur áhyggjur af aðgangi að heilsugæslu, hreinu drykkjarvatni, hreinlætisaðstöðu og menntun, ef marka má niðurstöður könnunar Sameinuðu þjóðanna á afstöðu til heimsmála.

Að halda friðinn?
Í dag, 21. september er alþjóðlegi friðardagurinn. Í tilefni dagsins bjóða Sameinuðu þjóðirnar, sem fagna einmitt 75 ára afmæli í ár, öllum stríðandi fylkingum að leggja niður vopn, stöðva ofbeldi og virða 24 klukkustunda vopnahlé í nafni friðar.

WHO varar við að sóttkví sé stytt
Evrópuþjóðir verða að halda fast við sóttkvíarreglur vegna kórónuveirufaraldursins í ljósi fjölgunar smitaðra um alla álfuna undanfarið, að mati yfirmanns Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) í Evrópu. Fjölgunin ætti að vera álfunni vakning.

Saka stjórn Maduro um glæpi gegn mannkyninu
Rannsakendur mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna fullyrða að ríkisstjórn Nicolás Maduro, forseta Venesúela, sé sek um „svívirðileg“ brot sem falli undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyninu.

Alþjóðadagur til verndar ósonlaginu
Í dag er aþjóðadagur til verndar ósonlaginu til þess að vekja athygli á þeirri ógn sem felst í þynningu ósonlagsins. Ósonlagið hindrar að megnið af skaðlegum útfjólubláum geislum sólar (UV-B) nái til jarðar.

Ellefu þúsund flóttamenn bíða þess að komast í skjól á Lesbos
Talið er að ellefu þúsund hælisleitendur á grísku eyjunni Lesbos hafist við undir beru lofti eftir að Moria flóttamannabúðirnar brunnu til grunna í síðustu viku

Dularfullir draugabátar og ólöglegar veiðar
Hundruðum norðurkóreskra fiskibáta hefur skolað á strendur Japans undanfarin ár. Beinagrindur dáinna sjómanna eru eini farmurinn.

Faraldurinn stöðvar ekki loftslagsbreytingar
Losun gróðurhúsalofttegunda stefnir í sama horf og áður en kórónuveiruheimsfaraldurinn hóf innreið sína fyrr á þessu ári þrátt fyrir metsamdrátt.

Fyrrverandi hermenn viðurkenna ódæði gegn Róhingjum
Tveir hermenn, sem gerðust liðhlaupar frá her Mjanmar eða Búrma, hafa játað á myndbandsupptöku að yfirmenn þeirra hafi skipað þeim að fremja stríðsglæpi gegn Róhingjum.

Telja réttarhöldin vegna Khashoggi ógegnsæ
Réttarhöld vegna morðsins á Jamal Khashoggi sem fóru fram í Sádi-Arabíu skorti gegnsæi og drógu ekki þá seku til ábyrgðar, að mati mannréttindaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna. Átta manns voru dæmdir í fangelsi fyrir meinta aðild að morðinu.

UNICEF kallar eftir stuðningi við neyðaraðgerðir í Beirút
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) kallar eftir auknum stuðningi við neyðaraðgerðir í Beirút svo öll þau börn sem ættu að hefja nýtt skólaár njóti réttinda sinna til menntunar.

Bandaríkjastjórn felli niður refsiaðgerðir gegn Alþjóðasakamáladómstólnum
Evrópusambandið hvatti Bandaríkjastjórn í dag til þess að fella niður refsiaðgerðir sem hún hefur lagt á starfsmenn Alþjóðasakamáladómstólsins. Aðgerðir Bandaríkjamanna séu óásættanlegar og fordæmalausar.

Tsíkhanovskaja mun ávarpa Öryggisráðið
Svetlana Tsíkhanosvkaja mun ávarpa Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna næstkomandi föstudag.

Lífslíkur hækka með því að hætta notkun jarðefnaeldsneytis
Lífslíkur jarðarbúa gætu hækkað að meðaltali um tuttugu mánuði verði notkun jarðefnaeldsneytis hætt að mati Sameinuðu þjóðanna.

Hvetur stjórnvöld til grænna fjárfestinga í faraldrinum
Lífslíkur jarðarbúa myndu aukast um 20 mánuði ef notkun jarðefnaeldsneyta yrði hætt.

„Heil kynslóð gæti misst af skólagöngu“
Neyðarástand ríkir í menntamálum um allan heim sakmvæmt Skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Lokanir skóla vegna COVID-19 hafi áhrif á menntun 1,5 milljarða barna í 190 löndum.

Ratko Mladic áfrýjar lífstíðardómi
Fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba hefur hafið ferli við að áfrýja lífstíðardómi sem Alþjóðastríðsglæpadómstóllinn í málefnum fyrrverandi Júgóslavíu dæmdi hann í árið 2017.

Einangrun Bandaríkjanna bersýnileg í deilunum um Íran
Mike Pompeo, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er reiður út í hefðbundin bandalagsríki Bandaríkjanna í Evrópu og sakar þau um að vera með leiðtogum Íran í liði.

Minnst 45 létust þegar bátur þeirra sprakk
Minnst 45 farendur og flóttamenn létust, þar af fimm börn, í mannskæðasta skipbroti við strendur Líbíu á þessu ári.

Sparnaðaraðgerðir í mæðravernd ávísun á mæðradauða í stórum stíl
Sparnaðaraðgerðir í mæðravernd vegna COVID-19 geta kostað allt að 113 þúsund konur lífið í fátækari ríkjum. Áhrif faraldra leggjast þungt á konur og jaðarsetta hópa samkvæmt UN Women.

Einn fundinn sekur um morðið á Hariri
Sérstakur dómstóll, sem nýtur stuðnings Sameinuðu þjóðanna, hefur sakfellt einn af þeim fjórum sem ákærðir voru fyrir aðild að morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, í Beirút árið 2005.

Annar mótmælandi deyr í Hvíta-Rússlandi
Mótmælandi lést í haldi lögreglunnar í Hvíta-Rússlandi í gær en þetta er annað dauðsfallið sem vitað er um frá því að átök brutust út milli mótmælenda og lögreglu á sunnudag. Sameinuðu þjóðirnar gagnrýna stjórnvöld harðlega fyrir framgang þeirra gegn mótmælendum.

Ósátt við að Bandaríkin reyni að stýra ferðinni hjá WHO
Frakkar og Þjóðverjar hafa sagt sig frá viðræðum um umbætur á Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO) vegna óánægju með að Bandaríkjamenn reyni að stýra ferðinni.

COVID-19: Afleiðingarnar alvarlegri en sjúkdómurinn fyrir börn
Þótt börn séu ekki mörg meðal þeirra rúmlega 700 þúsund einstaklinga sem látist hafa af völdum COVID-19 deyja þúsundir barna vegna óbeinna afleiðinga faraldursins og milljónir barna eru í lífshættu, einkum vegna vannæringar í fátækjum ríkjum.