Sam­einuðu þjóðirnar

Sam­einuðu þjóðirnar

Fréttir af Sameinuðu þjóðunum.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Út­séð um að mark­mið Parísar­sam­komu­lagsins náist

Ekki er lengur mögulegt að koma í veg fyrir að hlýnun jarðar verði umfram eina og hálfa gráðu og líklegt er að farið verði fram yfir þau mörk á næstu árum. Sérfræðingar Sameinuðu þjóðanna segja brýnt að mannkynið komi í veg fyrir enn meiri hlýnun og reyni síðar að vinda ofan af þeirri sem þegar hefur átt sér stað.

Erlent
Fréttamynd

„Konur eru svangari, fá­tækari og ör­væntingar­fyllri en nokkru sinni fyrr“

Stríðið í Súdan hefur leitt til verstu mannúðar- og flóttamannakrísu í heiminum fyrir konur og stúlkur, samkvæmt nýlegri skýrslum UN Women. Átökin á milli stjórnarhers Súdans og RSF-uppreisnarhersins hafa nú staðið yfir í þrjú ár og ná til fjölda héraða, þar með talið Darfúr og Kordófan. Svæðisstjóri UN Women í Súdan, Salvator Nkurunziza, segir nóg komið og að stríðinu verði að ljúka. 

Erlent
Fréttamynd

Að­för sem krefjist þess að talað sé um kven­réttindi frekar en kynja­jafn­rétti

Stella Samúelsdóttir, framkvæmdastýra UN Women, fundaði í mars með hundruðum félagasamtaka á árlegri kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna. Hún segir að í fyrsta skipti í 70 ára sögu þessa fundar hafi umræður og ályktun snúist um að verja þau réttindi sem þegar hafa náðst í stað þess að ræða það hvert eigi að stefna. Samtökin efna til fundar síðar í dag um bakslag í jafnréttismálum. 

Innlent
Fréttamynd

Gagn­rýni: Veru­leikinn fær fall­ein­kunn. Stóð upp í hléi

Ef veruleikinn hefði hlotið tilnefningu til Óskarsverðlaunanna, sem fram fóru á sunnudaginn, hefðu aðstandendur hans komið tómhentir heim. Klén tragikómedía um stríð, veðrið og verðbólgu vekur fáar aðrar tilfinningar en löngun til að labba út í hléi. Hvernig nokkrum datt í hug að leggjast í gerð verksins sætir furðu.

Lífið
Fréttamynd

Evrópskir ung­lingar reykja mest allra af rafrettum

Rúm fjórtán prósent evrópskra unglinga reykja svokallaðar rafrettur og er hlutfallið hvergi hærra á byggðu bóli. Yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Evrópu segir það afleiðingu vísvitandi markaðsherferðar rafrettufyrirtækja sem beint sé að unglingum og ungmennum.

Erlent
Fréttamynd

Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu

Að minnsta kosti sex þúsund manns voru myrt á þriggja daga tímabili þegar borgin El Fasher í Súdan féll í hendur uppreisnarmanna Rapid Support Forces (RSF) í október. Í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna segir að umfang ofbeldisins og grimmdarverka í borginni hafi verið af sláandi skala. Ódæðin hafi verið gífurleg og líklega sé um að ræða stríðsglæpi og mögulega glæpi gegn mannkyninu.

Erlent
Fréttamynd

Fursta­dæmin þjálfa upp­reisnar­menn í leyni­legri her­stöð

Yfirvöld í Eþíópíu hafa reist leynilegar herbúðir þar sem þúsundir meðlima uppreisnarhópsins Rapid Support Forces (RSF) eru þjálfaðir fyrir átök við stjórnarherinn í Súdan. Framkvæmdirnar munu hafa verið fjármagnaðar af Sameinuðu arabísku furstadæmunum, sem hafa staðið þétt við bakið á RSF í átökunum blóðugu í Súdan.

Erlent
Fréttamynd

Undir­búa nýja inn­rás til að af­vopna Hamas

Forsvarsmenn ísraelska hersins eru sagðir leggja drögin að nýrri innrás á Gasaströndina. Ráðamenn í Ísrael telja ólíklegt að leiðtogar Hamas-samtakanna muni samþykkja að leggja niður vopn og því þurfi að gera það með valdi. Að minnsta kosti sjö Palestínumenn hafa fallið í árásum Ísraela í dag.

Erlent
Fréttamynd

Vara við upp­gangi Íslamska ríkisins

Sameinuðu þjóðirnar segja Íslamska ríkið vera í töluverðum vexti í Afríku, Mið-Austurlöndum og víðar í heiminum. Margar deildir hryðjuverkasamtakanna hafa aukið umsvif sín og fjölgað árásum. Á fundi Sameinuðu þjóðanna um baráttu gegn hryðjuverkastarfsemi sem haldin var í gær, sagði Alexandre Zouev, einn yfirmanna gagn-hryðjuverkaskrifstofu Sameinuðu þjóðanna, að ógnin frá Íslamska ríkinu hefði aukist jafnt og þétt.

Erlent